Fréttir - Eyjafréttir - 17.04.2013, Blaðsíða 14
X-V Vinstri Græn
Arndís Soffía
Sigurðardóttir:
Vil að auð -
lindin skili
eigendum
sínum
veru lega
meiri arði
1. - Miðað við óbreytt skattkerfi og
2% hagvöxt mun verða 50-60 millj -
arða svigrúm í rekstri ríkissjóðs.
Það svigrúm ætlar VG að nýta til
upp byggingar í velferðar-, mennta-
og heilbrigðismálum. Það er ekki
hægt að búa lengur við ómarkvissa
stefnu í heilbrigðismálum og redd -
ingar frá ári til árs. Ég vil sjá
sterkan Lands spíltala í Reykjavík
sem getur verið raunverulegur
bakhjarl allra heilbrigðisstofnana
um allt land. Heilsu gæslan á hverj -
um stað á að vera fyrsti viðkomu -
staður og inni í heilbrigðiskerfinu á
að vera bæði tannlæknaþjónusta og
sálfræði þjónusta og mikilvægt er að
fæð ing a rþjónusta sé í heimabyggð.
Hvert hérað verður að geta tekist á
við bráðaverkefni og sjúkraflutn -
ingar verða að vera öruggir. Hvað
varðar Vestmannaeyjar, kalla
aðstæður á að þar sé sterk heil-
brigðisþjónusta sem verður að geta
treyst á sig sjálf.
2. - Ég sat í samráðshópi innanríkis -
ráðherra sem skilaði nú nýverið af
sér skýrslu um stöðu löggæslunnar.
Samróma niðurstaða hópsins, sem
var skipaður fulltrúum allra þing -
flokka og hagsmunaaðila úr
lögregl unni, var að veita þyrfti 875
milljónum króna til lögreglunnar á
hverju ári, næsta kjörtímabil. Fjölga
þyrfti lög reglumönnum um 236 og
er það í samræmi við mannafla-
greiningu RLS. Fyrsta forgangsmál
var að fjölga almennum lögreglu -
mönnum úti á landi. Það var einnig
tillaga samráðshópsins að við
stjórnar mynd un eftir kosningar yrði
unnið samkvæmt niðurstöðum
skýrslunnar.
3. - Samgöngur til Landeyjahafnar
hafa verið algert forgangsmál í tíð
Ögmundar Jónassonar innanríkis -
ráðherra. Varðandi gjaldtökuna
finnst mér ótækt að Vestmanna -
eyingar þurfi að búa við að þurfa að
greiða svo miklu meira í fargjald ef
Herjólfur þarf allt í einu að sigla til
Þorlákshafnar. Mér þætti eðlilegt
að Vestmanneyingar gætu almennt
siglt á milli á lægra gjaldi en ferða-
menn.
4. - Ég vil að auðlindin skili eig -
endum sínum (þjóðinni) verulega
meiri arði. Varðandi veiðigjaldið
myndi ég vilja breyta því þannig að
gjaldið miðist við hlutfall af heims-
markaðsverði á hverjum tíma en
ekki fasta krónu tölu.
5. - Við eigum að geta gert miklu
betur þegar kemur að því að færa
störf út á land og þá er ég sérstak-
lega að tala um störf sem þarfnast
háskóla- eða sérmenntunar. Vinstri
stjórnin hefur stóraukið nýsköpun -
ar sjóð og rann sóknarsjóði sem
kemur auðvitað til góða þegar fólk
vill hefja störf og atvinnuuppbygg -
ingu úti á landi.
6. - Umræðan snýst aðallega um
hvort kosið verði núna eða seinna
en ekki AF HVERJU fólk vill eða
vill ekki ganga þar inn. Ég vil ekki
ganga í ESB og fyrir því eru margar
ástæður. Margir sjá ofsjónum yfir
þeirri kjarabót sem þeir telja felast í
því að taka upp evru á Íslandi,
þ.á.m. ASÍ. Miðað við þá þróun
sem á sér nú stað í nágrannalöndum
okkar, t.d. Danmörku þá held ég að
ASÍ og launa fólks eigi eftir að bíða
enn meiri áskoranir ef við göngum í
ESB. Frá Evrópusambandinu stafa
nú skipanir til aðildarríkja um að
bregðast við atvinnu leysi sem er
orðið alvarlegt mein í Evrópusam-
bandslöndum. Þær ganga út á að
örva markaðinn með því að lækka
laun, hækka eftirlauna aldur, veita
fyrirtækjum meira svig rúm til að
semja um laun og beinlínis draga úr
félagslegum áhrifum við gerð
kjarasamninga. Í þessari baráttu
held ég að Íslendingar eigi eftir að
verða undir sérstaklega þegar ASÍ
er orðið klappstýra fyrir ESB.
7. - Vegna þess að ég ætla að vinna
á þingi með hagsmuni almennings
að leiðarljósi. Alltaf.
X-Þ Píratar
Smári McCarthy:
Fargjöld til
Vestmanna
eyja eru
vegatollar
sem ber að
afnema
1. - Öll sjúkrahús ættu að vera há -
tækni vædd, en það er ekki for-
gangsatriði.
Forgangsatriðið er að sjá til þess
að allir komist í ásættanlega læknis -
þjónustu í sinni heimabyggð.
Píratar vilja dreifstýringu, sem felur
meðal annars í sér að fólk þurfi ekki
alltaf að leita í miðlæga þjónustu.
Það er mikil sóun í heilbrigðis -
kerfinu sem við verðum að finna út
úr.
2. - Að hluta til gæti þetta lagast við
það að hætta að koma fram við
vímu efna vanda fólks sem glæp og
líta á það frekar sem það heilbrigð -
is vandamál sem það er - þá minnkar
álagið á lögreglu alls staðar og
hugsanlega hægt að færa til fé til að
tryggja fulla löggæslu alls staðar á
landinu. Að auki er rétt að snúa við
þeirri þróun, sem hefur verið, að
áherslan sé á löggæslu á höfuð -
borgarsvæðinu á kostnað lands -
byggð arinnar.
3. - Já, þær eru hluti af þjóðvega -
kerfinu. Gjaldtakan vegna ferða til
og frá Vestmannaeyjum eru allt of
há - ekki síst fyrir fólk sem á ekki
bíl og þarf að taka rútu frá Land -
eyjahöfn og til baka. Heildarkostn -
aðurinn jókst verulega á undan -
förnum árum og það er slæmt. Far -
gjöld til Vestmannaeyja eru vega -
tollar sem ber að afnema. Ég á ekki
til neina galdralausn um hvernig við
lækkum eða afnemum þessa vega-
tolla, og vil gjarnan heyra frá fólki
sem hefur legið yfir þessu.
4. - Kvótakerfið, eins og það stend -
ur, er að valda miklum skaða: sam -
þjöppun á eignarhaldi, brottflutn -
ingur á veiði réttindum úr þeim
byggðarlögum þar sem veiðin er
helst stunduð, og það er búið að
tortíma smábátaútgerð.
Þetta verður ekki lagað á auga -
bragði. Fyrsta skrefið miðar að því
að vernda fiskistofna, vernda hafs-
botninn, og blása nýju lífi í smá -
bátaútgerð: að afmarka svæði til
frjálsra strandveiða á línu án kvóta
fyrir báta undir ákveðinni stærð.
5. - Mjög ósáttur. Það er nákvæm-
lega ekkert gott við miðlægni, dreif-
stýring er það eina sem getur
gengið til langs tíma: það er örugg -
ara, það er sveigjanlegara, og það
þolir betur álagsbreytingar. Fólk á
að geta tekið ákvarðanir sem varða
sig sjálft byggt á bestu upplýsingum
sem eru til staðar hverju sinni.
Píratar vilja alls ekki samþjöppun
valds, hvorki í Reykjavík né annars
staðar.
6. - Evrópusambandið er ólýðræð -
islegt bákn sem ber að varast. Hins
vegar eru möguleikar okkar tak -
mark aðir: EES samningurinn er að
ræna okkur fullveldi, en er um leið
okkar mikilvægasti viðskipta -
samningur. Við getum því ýmist
reynt að semja til okkar fullveldið á
ný, sem er örugglega ekki mögu -
legt, eða sætt okkur við þau hlut-
skipti að þurfa að fara inn í
Evrópusambandið og reyna að laga
það sem er að því innan frá.
Hvorugt er sérstaklega aðlaðandi.
Píratar hafa þó einfalda stefnu: Við
viljum að almenningur verði upp -
lýstari um samningaviðræðurnar og
látum niðurstöðurnar í bindandi
þjóðaratkvæðagreiðslu.
7. - Eyjamenn geta svarað því betur
en ég. En þetta snýst ekki bara um
að treysta mér, þetta snýst um að
treysta nýjum hugmyndum. Píratar
hafa mjög nýstárlega og skynsam-
lega sýn á stjórnmálin. Kosning -
arnar snúast um hugmyndir.
14 Eyjafréttir / Miðvikudagur 30. ágúst 2012
°
°
1. Hvernig ætlar þú að leysa vanda heilbrigðiskerfisins, m.a. í Vestmannaeyjum? Ertu hlynnt/hlynntur nýju hátæknisjúkrahúsi? | 2. Skorið hefur verið niður í löggæslumálum
m.a. með þeim afleiðingum að innbrotum hefur fjölgað mikið í Vestmannaeyjum. Hvernig vilt þú bæta þennan vanda og hvar finnur þú fjármagn til þess? | 3. Telur þú að
ferjusiglingar eigi að vera hluti af þjóðvegakerfinu og gjaldtaka í samræmi við það? | 4. Hvernig sérð þú næstu skref fyrir þér varðandi sjávarútveg? Óbreytt kerfi eða breyt -
ing ar og þá hvaða breytingar? | 5. Undanfarin ár hefur miðjuvæðing verið áberandi á Íslandi, þar sem stofnanir og opinber störf hafa flust frá t.d. Vestmanna eyjum á höfuð -
borgarsvæðið. Ertu sátt/sáttur við þessa þróun? | 6. Viltu að Ísland gangi inn í ESB og af hverju/ekki? | 7. Af hverju eiga Eyjamenn að kjósa þig á þing?
Samgöngur til
Landeyjahafnar
hafa verið algert for-
gangsmál í tíð Ög-
mundar Jónassonar
innanríkis ráðherra.
Varðandi gjaldtök -
una finnst mér
ótækt að Vest -
manna eyingar þurfi
að búa við að þurfa
að greiða svo miklu
meira í fargjald ef
Herjólfur þarf allt í
einu að sigla til Þor-
lákshafnar. Mér
þætti eðlilegt að
Vestmanneyingar
gætu almennt siglt á
milli á lægra gjaldi
en ferðamenn.
- Arndís Soffía
Sigurðardóttir
Oddviti Vinstri grænna
”
Evrópusambandið er ólýðræðislegt bákn
sem ber að varast. Hins vegar eru
möguleikar okkar takmark aðir: EES
samningurinn er að ræna okkur fullveldi, en
er um leið okkar mikilvægasti viðskipta -
samningur. Við getum því ýmist reynt að
semja til okkar fullveldið á ný, sem er
örugglega ekki mögulegt, eða sætt okkur
við það hlutskipti að þurfa að fara inn í
Evrópusambandið og reyna að laga það
sem er að því innan frá. Hvorugt er sérstak-
lega aðlaðandi. Píratar hafa þó einfalda
stefnu: Við viljum að almenningur verði
upp lýstari um samningaviðræðurnar og
látum niðurstöðurnar í bindandi
þjóðaratkvæðagreiðslu.
- Smári McCarthy
Oddviti Pírata
”
EYJAFRÉTTIR.is - vertu með á nótunum!
Flestir oddvitana eru sammála um að gjaldskrá Herjólfs sé ekki í lagi eins og staðan er í dag.