Fréttir - Eyjafréttir - 17.04.2013, Qupperneq 19
Eyjafréttir / Miðvikudagur 17. apríl 2013 19
°
°
Landsfundur Vinstri hreyfingarinnar
græns framboðs samþykkti ályktun
þess efnis að öllum landsmönnum
væri gert fært að velja sér sinn
heimilis lækni.
Heilsugæslan er hryggjarstykkið í
heilbrigðiskerfi hvers nútímaþjóð -
félags. Heilsugæslan sinnir flestum
notendum og er sá hluti heilbrigð -
iskerfisins sem flestir leita fyrst til.
Þar sem heilsugæslan er fullnægj -
andi, leysir hún velflest þeirra vanda -
mála sem á borð hennar koma.
Það er hins vegar álit þeirra sem til
þekkja, að heilsugæslan hér á landi
sé engan veginn í stakk búin til að
mæta þeim kröfum sem til hennar
eru gerðar. Nýleg könnun sýndi að 8
sinnum fleiri leita á bráðamóttöku
sjúkrahúsanna og læknavaktina hér á
landi en t.d. í Noregi.
Ýmsar leiðir eru færar til að efla
heilsugæsluna og tryggja hana í sessi
sem grunnþjónustu.
Tryggja þarf í fyrsta lagi að ofan-
nefnd ályktun okkar nái fram að
ganga og auka veg og virðingu
heimilis lækna til jafns á við aðrar
sérfræðigreinar innan læknastéttar -
innar.
Einnig þarf að tryggja mannafla
inni á heilsugæslustöðvum svo fag -
sérfræðingar séu ekki að sinna störf -
um sem heimilislæknar eiga að
sinna. Launakjör heimilislækna
verða að vera sambærileg við kjör
annarra sérfræðinga til að tryggja
endurnýjun innan greinarinnar.
Meðalaldur heimilislækna er hár og
fer hækkandi og ljóst er að þrátt fyrir
aukningu í framhaldsnámi í grein -
inni, eru of fáir læknar að sækja í sér-
fræðinám í heimilislækningum. Hafa
verður í huga að það tekur 12-14 ár
að mennta sérfræðing í heimilis-
lækningum.
Að lokum er vert að benda á að að-
gangur Íslendinga að sérfræði þjón -
ustu utan heilsugæslunnar er allt
annar og mun meiri en þekkist á
Norðurlöndunum. Þar er notast við
tilvísunarkerfi líkt og gert var hér á
landi á árum áður.
Tilvísun er mikilvægur hlekkur í
samskiptum heimilislæknis og fag -
sérfræðings. Í tilvísuninni eru upp -
lýsingar frá heimilislækni um
almennt heilsufar sjúklings, einkenni
þess vandamáls sem er orsök til -
vísunarinnar, rannsóknir heimilis-
læknis svo fátt eitt sé nefnt. Samtímis
er þá gerð krafa um að fagsérfræð -
ingurinn sendi heimilislækni svar-
bréf með niðurstöðum sínum, sjúk -
dómsgreiningu og ráðleggingum um
meðferð. Þannig tekur heimilis-
læknirinn aftur við sjúklingnum og
heldur utan um áframhaldandi eftir-
lit. Tilvísun er því mikilvægt
öryggisnet fyrir sjúklinginn.
Framtíð heilsu -
gæslunnar
Sóknarfæri
í sjávarútvegi
Við Íslendingar getum verið stoltir
af þeirri staðreynd að við eigum,
ólíkt mörgum öðrum þjóðum í
Evrópu, sjálfbæran sjávarútveg sem
skilar arði og þarf ekki á ríkis -
styrkjum að halda. Við eigum mikið
undir því að okkur takist á komandi
kjörtímabili að styrkja íslenskan
efnahag til framtíðar og þar skiptir
miklu máli hvernig við höldum á
umhverfinu gagnvart sjávarútveg-
inum. Við eigum mikil sóknarfæri í
því að efla sjávar útveginn enn
frekar, okkar grund vallaratvinnu -
grein.
Skýr stefna
Við Sjálfstæðismenn höfum skýra
stefnu í sjávarútvegsmálum. Við
teljum rétt að byggja áfram á afla-
markskerfinu en fyrst og fremst
ætlum við að skapa sjávarútvegs-
fyrirtækjum sem og öðrum fyrir -
tækjum í landinu svigrúm til
athafna. Kröftugt atvinnulíf fer
samhliða auknum hag heimilanna.
Við ætlum að breyta lögum um
veiðigjöld. Sú ofurskattlagning sem
lögin fela í sér dregur kraftinn úr
fyrirtækjunum og hindrar þau í að
ráðast í nauðsynlegar fjárfestingar,
nýsköpun og þróunarstarf. Hin
neikvæðu áhrif álagningar veiði -
gjaldsins dyljast engum sem sækja
heim sjávarútvegsfyrirtækin og því
góða fólki sem þar starfar, ekki bara
hjá útgerðarfélögunum heldur einn -
ig hjá þeim tugum fyrirtækja út um
allt land sem tengjast sjávarútvegi.
Lítil og meðalstór fyrirtæki hafa
orðið fyrir neikvæðum áhrifum of
hás veiðigjalds og þeirrar óvissu
sem ríkt hefur um greinina síðustu
ár vegna orðræðu og athafna stjórn-
málamanna. Stöðugleiki í atvinnu -
lífinu er nauðsynlegur til að friður
gefist til uppbyggingar og aukinnar
verð mæta sköpunar.
Í hnotskurn
Sjálfstæðisflokkurinn leggur höfuð -
áherslu á að efla atvinnulífið. Við
ætlum okkur að eyða þeirri óvissu
sem núverandi ríkisstjórn hefur
skap að með óraunhæfum hug -
myndum um breytingar á fiskveiði -
stjórnunar kerfinu og breyta
lögunum um veiði gjald.
160 ár frá komu August von Kohl til Vestmannaeyja:
Saga þessa merka
manns má ekki gleymast
:: Dagskrá á sumardaginn fyrsta hefst á Skansinum
:: Erindi um Kohl á Byggðasafni
Til stendur að minnast komu Au-
gust Andreas von Kohl til Vest-
mannaeyja en á sumardaginn
fyrsta, fimmtudaginn 25. apríl,
eru 160 ár frá komu hans til Eyja.
Kohl hafði mikil áhrif á sam-
félagið hér en við komu hans,
1853 var ástandið allt annað en
gott í Vestmannaeyjum. Með
harðfylgi tókst Kohl að breyta
samfélaginu hér til frambúðar og
stofnaði m.a. eina íslenska
herinn hér í Eyjum.
„Við erum að vinna í dagskrá sem
heitir Kapteinn Kohl - sýslumaður -
inn sem breytti sögu Vestmanna -
eyja,“ sagði Helga Hallbergsdóttir,
safnstjóri Sagnheima, sem ásamt
Arnari Sigurmundssyni fór yfir sögu
Kohl með blaðamanni Eyjafrétta.
„Kohl breytti vissulega sögunni hér.
Þegar hann kom hingað, höfðu verið
hér stórir sjóskaðar, ginklofinn herj -
að á ungabörn og hér ríkti almennt
vonleysi sem leiddi til óreglu. Við
vorum búin að vera lengi undir
stjórn Danakonungs sem átti alla
báta og allan fiskinn og menn sáu
e.t.v. lítinn hvata til að vinna.
Kohl var liðsforingi af gömlum her-
mannaættum. Þegar hann kemur hin-
gað, gengur vonleysi manna algjör -
lega yfir hann og hann ákveður að
reyna að breyta stöðunni. Hann taldi
að fyrst menn væru svona hræddir
við erlenda sjóræningja, þá væri rétt
að reyna a.m.k. að verja sig fyrir
þeim. Hann stofnaði því herfylk -
ingu, þar sem gilti algjört bindindi
auk þess sem fram fóru heræfingar,
sem voru í raun íþróttaæfingar og
einnig hélt hann fjölskylduhátíðir í
Herjólfsdal. Hann ætlaðist til þess að
allir karlmenn gengju í herinn,
innleiddi sjálfsvirðingu og kenndi
mönnum kurteisi, aga og þrifnað.
Kohl lét líka reisa þinghúsið Borg,
þar sem lágu frammi bækur og blöð
og þar er fyrsti vísirinn að Bókasafni
Vestmannaeyja. Þannig tendraði
hann áhuga fólks á að lesa og gera
eitthvað meira en að hanga við
búðarborð kaupmannsins og staupa
sig. Hann í raun og veru rífur þetta
samfélag upp um fimmtíu til hundrað
ár því allt í einu fóru menn að ganga
um bæinn, beinir í baki með von um
bjartari framtíð. Menn báru mikla
virðingu fyrir Kohl og þess vegna
náði hann þessum mikla árangri.
Kohl var svo kominn með embætti í
Danmörku sjö árum eftir komu sína
hingað og var farinn að kveðja fólk
þegar hann veiktist og andaðist hér í
janúar 1860. Hann var svo jarðsettur
í kirkjugarðinum hér í Eyjum. Her -
fylkingin hélt áfram í einhver ár eftir
það en Kohl hafði breytt samfélaginu
hér til frambúðar, þótt herfylkingin
hafi svo lognast út af.“
Áorkaði miklu
á skömmum tíma
Arnar segir að dagskráin hefjist á
Skansinum. „Þar er að finna húsið
Landlyst, þar sem Kohl bjó síðustu
tvö árin sem hann var hér í Eyjum.
Á Skansinum verður spilaður
hergöngumars fylkingarinnar í Vest-
mannaeyjum í nýrri útsetningu og í
kjölfarið verður hleypt af fall-
byssunni. Við höfum fengið Karl
Gauta Hjaltason, sýslumann og arf-
taka Kohls, til að fara í í fylkingar-
brjósti skrúðgöngu frá Skansinum og
upp á Byggðasafn og að sjálfsögðu
undir taktföstum trumbuslætti. Þar
verða flutt tvö erindi, annars vegar
mun Karl Gauti flytja erindi um
forvera sinn og einnig Óskar Guð-
mundsson rithöfundur, sem telur sig
vera afkomanda Kohl. Óskar ætlar
að koma með sýn hans fjölskyldu á
Kohl sem er nýr vinkill á sögu hans
hér í Eyjum.“
Helga segir að það sé ekki ólíklegt
að hér séu fleiri afkomendur Kohl.
„Það var þannig með Kohl að hann
mátti ekkert aumt sjá og það eru til
vísur sem gefa í skyn að hann hafi
verið dálítið veikur fyrir kvenfólki en
þar er talað um að hann hafi gengið í
Venusarver. En Kohl kom að mörg -
um góðum verkum, m.a. breytingum
á Landakirkju og vegagerð. Menn
höfðu góðan tíma og á skömmum
tíma tókst honum að virkja karlmenn
hér í Eyjum til framkvæmda.“
„Það er mjög mikilvægt að halda
sögu Kohl á lofti enda áorkaði hann
mjög miklu á mjög skömmum tíma.
Ég skrifaði á sínum tíma stutta grein
um Kohl og í kjölfarið skoðaði ég
legsteininn hans. Ég sá að þar vant -
aði eitthvað, fann hluta legsteinsins
hér á Byggðasafninu og fékk Sig-
mund Andrésson safnstjóra í lið með
mér við að laga legstein Kohls. Saga
hans má ekki gleymast og þess vegna
förum við af stað með þessa
dagskrá,“ sagði Arnar að lokum.
Helga hvatti að lokum alla til að
mæta á Skansinn á sumardaginn
fyrsta kl. 14:00 og taka þátt í
dagskránni sem verður auglýst nánar
í næsta blaði.
Koparstunga af Vestmannaeyjum sem birtist í dönsku blaði um 1880,
eða stuttu eftir að Kohl féll frá, og nær yfir Strandveg, Miðstræti og
þar suður af. Á myndinni sjást húsin Nýhöfn, Fögruvellir og Landlyst.
Fyrir miðri mynd eru verslunarhúsin á Tanganum og blaktir danski
fáninn við hún.
Kominn tími á
Eyjakvöld í Eyjum
Eyjakvöld verður haldið í
Höllinni á laugardaginn. Um er
að ræða svipað kvöld og haldið
var á skemmtistaðnum Spot í
Kópavogi í janúar þessu ári en
þangað fjölmenntu Eyja menn í
tengslum við minningarhátíð
vegna upphafs Vestmannaeyja -
gossins. Kvöldið þá heppnaðist
í alla staði mjög vel og nú á að
endurtaka leikinn í Eyjum.
Á Eyjakvöldinu á laugardaginn
koma fram Blítt og létt, Logar,
Dans Á Rósum, Stertimenni og
Bjartmar Guðlaugsson. „Það hefur
verið pressa á okkur að koma með
Eyja kvöldið til Eyja en við höfum
verið með svona kvöld nokkrum
sinnum áður og þau hafa verið
alveg hreint stórkostleg. Aðsókn
hefur verið gríðarlega góð og stuðið
eftir því,“ sagði Ólafur Guðlaugs-
son í Logum.
„Okkur Dadda í Höllinni fannst
þetta góður tímapunktur til að slá
upp svona kvöldi í tengslum við
Lundakomuhátíðina sem aðilar í
ferðaþjónustunni í Eyjum standa
fyrir. Hafi verið tilefni til að koma
saman og skemmta sér á Eyja -
kvöldi, þá er það núna enda löngu
kominn tími á Eyjakvöld í Eyjum.
Allir sem fram koma eiga það
sameiginlegt að hafa búið og starf -
að í Eyjum til lengri eða skemmri
tíma. Dagskráin byrjar klukkan
23:00 þegar Blítt og létt stígur á
svið og síðan halda sveitirnar hver á
fætur annarri uppi stuðinu. Þess má
geta að það er búið að bóka hjarta -
lækni á vakt fyrir Logana,“ sagði
Ólafur hlæjandi að lokum.
JÚLÍUS G. INGASON
julius@eyjafrettir. is
Hafi verið tilefni til
að koma saman og
skemmta sér á Eyja -
kvöldi, þá er það
núna enda löngu
kominn tími á Eyja -
kvöld í Eyjum. Allir
sem fram koma eiga
það sameiginlegt að
hafa búið og starfað
í Eyjum til lengri eða
skemmri tíma.
” Við ætlum að breytalögum um veiði -gjöld. Sú ofurskatt-lagning sem löginfela í sér dregurkraftinn úr fyrir -
tækjunum og
hindrar þau í að
ráðast í nauðsyn -
legar fjárfestingar,
nýsköpun og
þróunarstarf.
”UNNUR BRÁKONRÁÐSDÓTTIR 2. sæti á l istaSjál fstæðisf lokksins
ARNDÍS SOFFÍA
SIGURÐARDÓTTIR
1. sæti á l ista
Vinstr i grænna
JÓRUNN EINARS-
DÓTTIR
5. sæti á l ista
Vinstr i grænna
Heilsugæslan er
hryggjarstykkið í
heilbrigðiskerfi hvers
nútímaþjóð félags.
Heilsugæslan sinnir
flestum notendum
og er sá hluti heil -
brigð iskerfisins sem
flestir leita fyrst til.
”