Fréttir - Eyjafréttir - 17.04.2013, Síða 20
20 Eyjafréttir / Miðvikudagur 17. apríl 2013
°
°
Óskar Pétur brá sér í túr með Vestmannaey VE:
Klukkutíma stím í mokfiskirí
:: Þorskurinn mest áberandi en það var líka ýsa, langa og eitthvað lítið af lýsu
Óskar Pétur Friðriksson, ljós-
myndari Eyjafrétta, er gamall
sjóhundur og leiðist ekki þegar
tækifæri gefst til að fara á sjó.
Hann hefur farið út með loðnu -
skipum og í vetur fór hann í
netaróður með Kristbjörgu VE.
Hann átti trollið eftir og í síðustu
viku brá hann sér í túr á Vest-
mannaey VE, eitt af tveimur
togskipum Bergs-Hugins. Óskar
myndaði í miklum móð og enn
og aftur sannaðist að hann er
ekki fiskifæla.
Skipstjóri á Vestmannaey er Birgir
Þór Sverrisson og í allt eru 12 karl -
ar um borð. Þeir fóru út sunnu dag -
inn 7. apríl og var mæting rétt fyrir
klukkan átta um kvöldið og sleppt á
slaginu átta. Veður var gott og ekki
farið langt, trollinu kastað í Háfa -
dýpi eftir klukkutíma stím í austur.
Vildu þeir fá blandaðan afla og
höfðu ekki síst áhuga á lýsu sem
selst á ágætis verði í Frakklandi. Í
fyrsta holinu var togað í klukkutíma
og var aflinn sex tonn og um 60
prósent ufsi. „Biggi var ágætlega
sáttur við þessa samsetn ingu en
restin var grams en blái litur inn átti
eftir að láta undan eins og í kosn -
ingabaráttunni,“ sagði Óskar Pétur.
„Sá guli tók yfir þegar við
köstuðum næst.“
Stutt tog
Þeir voru með fótreipistroll sem
hæfir mjúkum botninum í Háfa -
dýpinu. Í næstu holum var mest af
þorskiog seinni partinn á mánu -
daginn var ákveðið að fara í land þó
enn vantaði í örfá kör. Lengst voru
togin stutt en gáfu upp í 12 til 14
tonn. „Hægt er að fylgjast með því
hvað mikill fiskur er kominn í troll -
ið og þegar kveikt er á öllum nem -
um er trollið dregið upp í sjó og
dól að þangað til búið er að tæma
móttök una og pláss er fyrir nýjan
skammt. Þorskurinn var mest
áberandi en það var líka ýsa, langa
og eitthvað lítið af lýsu.“
Trollinu er spólað inn á tromlu
eftir búið er að húkka úr hlerunum
og belgur og poki hífður upp á
dekk. Leyst er frá pokanum og
fiskurinn rennur niður í móttöku
sem tekur um tíu tonn. Þaðan fer
hann á færibandi inn á aðgerðar-
borðin þar sem höfð eru höfð snör
handtök við að gera að fiskinum.
Hrogn og lifur eru skilin frá.
Niðri í lest er færiband sem hægt
er að snúa og draga í allar áttir og af
því fer fiskurinn beint í körin þar
sem honum er raðað og hann ísaður.
Það var nóg að gera hjá körlunum
á Vestmannaey í þessum túr. Vakt -
irnar eru 16 tímar og átta tímar í
svefn en þegar mikill afli er standa
menn aukavaktir eftir þörfum. Alls
eru þeir með 160 kör en í þessum
túr voru þeir með fisk í 140 körum
eða um 65 tonn.
Þegar líða tók á mánudaginn var
ákveðið að fara í land og lagði Vest-
manney að bryggju klukkan sex á
mánudagskvöldið og hafði túrinn
staðið í nákvæmlega 22 klst.
Strákarnir í aðgerð. Fremstur er Einar Örn Þórsson, 1. vélstjóri, þá Finnur Freyr Harðarson, háseti og fyrir
aftan hann glittir í Héðinn Karl Magnússon, 2. stýrimann.
Trollið tekið um borð, fullt af vænum þorski, líka ýsu og eitthvað af lýsu.
Mikilvægasti maðurinn um borð.
Kokkurinn Sigmundur Rúnar
Rafnsson sér til þess að enginn
fer svangur í koju.
Það þarf auðvitað að ísa aflann. Finnur Freyr
slær ekki slöku við í lestinni.
Ósvaldur Freyr Guðjónsson, netamaður virðist vera sáttur með aflann.
Togbáturinn Siggi Bjarna frá Garði var á sömu
slóðum og Vestmannaey.
ÓMAR GARÐARSSON
omar@eyjafrettir. is
Trollinu er spólað
inn á tromlu eftir
búið er að húkka úr
hlerunum og belgur
og poki hífður upp á
dekk. Leyst er frá
pokanum og
fiskurinn rennur
niður í móttöku sem
tekur um tíu tonn.
Þaðan fer hann á
færibandi inn á
aðgerðarborðin þar
sem höfð eru höfð
snör handtök við að
gera að fiskinum.
Hrogn og lifur eru
skilin frá.
”