Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 17.04.2013, Blaðsíða 21

Fréttir - Eyjafréttir - 17.04.2013, Blaðsíða 21
Eyjafréttir / Miðvikudagur 17. apríl 2013 21 ° ° Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey VE, segir að ótrúlega mikill fiskur hafi gengið á grunnslóð á vertíðinni. Vandinn sé að hífa áður en troll - ið fyllist því ekki vilja þeir taka of stór höl.Það hefur ekki bara verið mokfiskirí, veðrið hefur verið tiltölulega gott og vertíðin því verið þægileg. Undanfarið hefur verið stutt að sækja og fljótt gengur að fylla. Birgir Þór, sem er meðal okkar reyndustu skipstjóra, segir að það hafi verið algjört mok á grunn - slóðinni en minni fiskur er í kantin - um en oft áður. „Það hefur nánast verið hægt að labba á fiskinum, hann er það þéttur og vandinn er að fá ekki of mikið í hverju holi,“ sagði Birgir. „Maður þarf að vera nógu fljótur að hífa þegar fiskurinn byrjar að ganga inn.“ Þegar hann var beðinn um að lýsa vertíðinni sagði hann að það hefði verið ágætt á ýsunni fyrir austan fyrst eftir áramót og ufsinn hafi komið við Eyjar í febrúar. „Það er búið að vera mjög gott hjá þeim sem geta beitt sér í ufsanum, eiga nógan kvóta og það er nóg af þorski, stórum og góðum,“ sagði Birgir og kom næst inn á breytt mynstur á fiskigöngum. Hafró sér ekki þennan fisk „Núna fæst ýsan allt í kringum landið, sérstaklega fyrir norðan og ástandið hér heima við er allt annað en oftast áður. Á meðan mikill fiskur er á grunnslóð er lítið að hafa í kantinum nema karfa. Neta- og togararall Hafró fer að mestu leyti fram í köntunum og þeir sjá ekki þennan fisk sem við sjáum hér. Segjast elstu menn ekki hafa séð eins mikið af fiski og í vetur. Hafa síðustu túrar verið þannig að við erum með trollið í botni í tíu til 20 mínútur og svo er það híft upp í sjó og dólað með það þangað til búið er að gera að fiskinum í holinu á undan,“ sagði Birgir máli sínu til stuðnings. Hann segir mikinn fisk hafa verið á grunnslóðinni í fyrra en hann sé enn meiri í ár. „Hann virðist líka vera dreifðari á stærra svæði. „Á meðan við erum í Háfadýpinu að reyna fá blandaðan fisk er Steinunn SF vestur á Selvogsbanka að reyna við ufsa og Drangavík VE fyrir vestan Eyjar í þorski sem er auð - veldast að fá. Þó maður fái átta tonn í hali kastar maður aldrei í sama farið, til að reyna fá réttu blönduna og yfirleitt endum við í karfa í kantinum.“ Birgir segir að fleira en gott fiskirí hafi einkennt vertíðina. „Veðrið hefur verið tiltölulega milt í vetur og gott á sjónum þannig að þetta hefur verið þægileg vertíð.“ Verðhrun á þorski Markaðurinn hverju sinni ræður ráðstöfun aflans. Allur ufsi fer í Godthaab og mest af þorskinum líka. „Við sendum svo tvo gáma á markað erlendis eða um 40 prósent aflans, hitt er unnið hér á landi. Það hefur verið ágætt verð á ýsu undan- farið, annar fiskur hefur lækkað eitt hvað nema þorskurinn sem hefur hrunið. Ég gæti trúað að verð á þorski hafi lækkað um 35 til 40 prósent. Verðið í fyrra var 440 krónur á vertíðinni og um 550 krónur á haustin þegar framboð er minna. Í haust var verðið á þorsk - inum í kringum 400 krónur en á vertíðinni 250 til 260 krónur. Þessi lækkun á þorskinum kemur niður á sjómönnum ekki síður en útgerð - inni.“ Þegar Birgir er spurður um kvóta - stöðuna segir hann að kvótinn sé og verði alltaf alltof lítill. „Hjá okkur er það alverst í ýsunni sem hefur verið skorin mikið niður síðustu ár. Við erum alveg hættir að sækja í ýsuna eins og við gerðum, það er frekar að hún sé meðafli. Ég er ósammála Hafró sem segir ýsustofninn í lægð. Það er meira af ýsu en þeir halda fram og þorsk - kvótinn mætti vera miklu meiri. Hafró er yfirleitt þremur árum á eftir og það verður komin niður - sveifla þegar þeir uppgötva upp - sveifluna í þorskinum,“ sagði Birgir sem að endingu kvaðst að öðru leyti vera vera sáttur við Hafró. Birgir skipstjóri á Vestmannaey ánægður með vertíðina: Vandinn er að fá ekki of mikið í hverju holi :: Elstu menn ekki hafa séð eins mikið af fiski og í vetur :: Hafró ekki enn búin að uppgötva uppsveifl una í þorskinum Karlinn í brúnni, Birgir Þór Sverrisson tekur stöðuna í gegnum talstöðina. Söngkeppni framhaldsskólanna verður haldin á Akureyri um helgina en fjórir Eyjapeyjar ætla að verja heiður Framhaldsskól - ans í Vestmannaeyjum í keppn - inni. Þetta eru þeir Birgir Davíð Óskarsson, Guðbjörn Guðjóns- son Patrick Maximilian Rittmüller og Jón Þór Guðjónsson. Kvartett - inn kalla þeir Hólí Mólí en reynd - ar voru þeir ekki alveg búnir að negla niður nafnið þar sem þeir hafa líka notað FÍV-strákarnir. Keppnin fer þannig fram að öll atriðin 30 koma fram fyrir þriggja manna dómnefnd á föstudaginn. Sú dómnefnd velur 12 atriði sem komast áfram í aðalkeppnina, sem verður á laugardagskvöld og í beinni út- sendingu Ríkissjónvarpsins. „Við ætlum að komast í aðalkeppnina, það er ekki spurning,“ sögðu strákarnir sem kíktu við á ritstjórn Eyjafrétta á mánudag. Hólí Mólí eða FÍV-strákarnir taka lagið Let's get it started með Black Eyed Peas sem þótti henta vel sönghæfileikum drengjanna. „Þetta er svona soft rapp en við leggjum mikla áherslu á sviðsframkomuna, verðum kynþokkafullir og flottir. Þetta verður algjört bíó. Flestir standa bara einir á sviðinu og syngja en við erum með heljarinnar atriði sem ég veit að fólk vill sjá aftur í beinni útsendingu,“ útskýrði Patrick. „Páll Óskar er einmitt einn þriggja dómara og við leggjum svolítið upp með að heilla hann upp úr skónum. Við dönsum m.a. 20 dansspor,“ bætti Guðbjörn við en hann er aðal í kvartettinum. Strákarnir fóru í tveggja daga work- shop í lok mars en mættu reyndar bara seinni daginn. „Í viðtali sem var tekið við okkur fyrir keppnina, reyndi Patrick að útskýra fjarveru okkar fyrri daginn með ömurlegum brandara. Best að hann útskýri hann sjálfur,“ sagði Jón Þór og beindi orðum sínum að Patrick. „Ég spurði stelpurnar hvort það hefði ekki verið 26. mars og sagði svo að við hefðum ruglast og haldið að það hefði verið 26. snickers. Það hló enginn,“ sagði Patrick von - svikinn. Duglegir á facebook Allir sem taka þátt í keppninni hafa haldið úti facebooksíðu og hafa strákarnir verið einstaklega duglegir við að setja inn myndbönd frá æfingum. „Við höfum aðeins kíkt á síður hjá hinum skólunum og það eru fáir sem eru jafn duglegir og við. Vonandi hjálpar það okkur til að komast áfram,“ sagði Guðbjörn en facebooksíðu þeirra má finna með því að skrifa „FÍV Söngkeppni Framhalds skólanna 2013 Patrick Jón Þór Guðbjörn & bara Biggi“. Hvað er þetta „bara Biggi“? „Þetta festist við mig eftir viðtalið. Ég sagðist heita bara Biggi tvisvar og hef verið kallaður þetta síðan,“ sagði bara Biggi. Strákarnir hafa undirbúið sig af krafti síðustu vikur og æft stíft enda urðu mannabreytingar frá undan - keppninni í skólanum. „Ævar Örn Kristinsson, aka Danny Zuko, var með okkur fyrst en hann var rekinn fyrir kjaft. Biggi kemur í hans stað og fyrir vikið er kvartettinn mun betri,“ útskýrði Jón Þór. Vilja að fólk muni eftir sér Hafið þið séð atriði sem eru líkleg til að enda í öðru sæti á eftir ykkur? „Já það eru nokkur sem koma til greina. Mér finnst atriðið hjá MS vera mjög flott. Annars skorum við á alla að kíkja inn á facebooksíðuna okkar og fylgjast með keppninni. Við verðum með 20 manna stuðn- ingslið en sem betur fer kemst Alexander Gautason ekki. Svo bæt - ast stelpurnar á Akureyri við stuðn- ingsmannahópinn þegar þær eru búnar að sjá okkur, þannig að FÍV mun óma um salinn,“ sagði Patrick. „Við viljum að fólk muni eftir okkur og komi til okkar eftir keppn- ina og segi við okkur: -Hey, eruð þið ekki FÍV-strákarnir? Hólí Mólí, hvað þið voruð góðir,“ sagði Guð - björn hlæjandi. Er þetta upphafið að löngum ferli kvartettsins? „Næst tökum við Eurovision,“ svöruðu strákarnir áður en þeir ruku út í sólina. Söngkeppni framhaldsskólanna um helgina: Viljum að fólk muni eftir okkur :: Kvartettinn Hólí Mólí ver heiður FÍV :: Verðum kynþokkafullir og flottir ÓMAR GARÐARSSON omar@eyjafrettir. is JÚLÍUS G. INGASON julius@eyjafrettir. is Þetta er svona soft rapp en við leggjum mikla áherslu á sviðsframkomuna, verðum kynþokkafullir og flottir. Þetta verður algjört bíó. Flestir standa bara einir á sviðinu og syngja en við erum með heljarinnar atriði sem ég veit að fólk vill sjá aftur í beinni útsendingu ”

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.