Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 17.04.2013, Blaðsíða 23

Fréttir - Eyjafréttir - 17.04.2013, Blaðsíða 23
° ° Eyjafréttir / Miðvikudagur 17. apríl 2013 23 Knattspyrna KFS meÝ annan fótinn í úrslit KFS hefur gengið afar vel í 1. riðli C-deildar Lengjubikarsins í knatt - spyrnu. Eyjamenn hafa spilað fjóra leiki, unnið þrjá og gert eitt jafntefli en KFS er í efsta sæti riðilsins þegar aðeins einn leikur er eftir, gegn Afríku sem er í neðsta sæti án stiga. Nú síðast lagði KFS Ísbjörninn að velli á Selfossvelli, 4:2 en mörk KFS gerðu þeir Ásgeir Heimir Ingimarsson (2), Einar Kristinn Kárason og Friðrik Már Sigurðsson. Ef allt fer eftir bókinni og Eyjamenn vinna Afríku í síðasta leiknum, þá er KFS komið í úrslit C-deildar en þangað komast efstu lið riðlanna fjögurra. Keppnistímabilið virðist því fara ansi vel af stað hjá lærisveinum Hjalta Kristjánssonar, þjálfara liðsins. Enn tapa stelpurnar Hvorki gengur né rekur hjá kvenna liði ÍBV í knattspyrnu en liðið leikur í A-deild Lengju- bikarsins. Þegar fjórum af fimm umferðum er lokið, er ÍBV enn án stiga enda hefur liðið tapað öllum fjórum leikjum sínum. ÍBV tapaði fyrir FH og Þór/KA með minnsta mun, 2:1 í bæði skiptin, 4:0 gegn Breiðabliki og Valur niðurlægði svo Eyjaliðið með 6:0 sigri. ÍBV á eftir einn leik í keppninni, gegn Stjörnunni en leikurinn fer fram á laugardaginn. Mark ÍBV gegn Þór/KA gerði Bryndís Jóhannes- dóttir. Þórarinn Ingi maÝur leiksins Þórarinn Ingi Valdimarsson, leikmaður ÍBV sem nú er í láni hjá norska úr - vals deild arlið - inu Sarps - borg, var valinn maður leiksins í leik liðsins gegn Álasundi. Leikurinn fór fram á heimavelli Sarpsborg en Álasund hafði betur 0:2. Þetta kemur fram á Fótbolti.net. Sarpsborg hefur farið ágætlega af stað en þegar fjórum umferðum er lokið, hefur liðið unnið einn leik, gert tvö jafntefli og tapað einum. Liðið er í 9. sæti en 16 lið leika í norsku úrvalsdeildinni. Framundan Miðvikudagur 17. apríl Kl. 18:30 Fram-ÍBV Úrslitakeppni kvenna, handbolti. Laugardagur 20. apríl Kl. 14:00 Stjarnan-ÍBV Lengjubikar kvenna, fótbolti. Kl. 13:00 Snæfellsnes-ÍBV 4. flokkur kvenna, fótbolti. Kl. 13:30 Haukar-ÍBV 4. flokkur karla, ABC, fótbolti. Kl. 16:00 Grótta-ÍBV 3. flokkur karla, AB, fótbolti. Sunnudagur 21. apríl Kl. 10:50 Keflavík-ÍBV 5. flokkur kvenna, fótbolti. Kl. 13:00 FH-ÍBV 2. flokkur kvenna, fótbolti. Íþróttir Úrslitakeppni kvenna: ÍBV á leiÝ í sumarfrí? - Tap í kvöld þýÝir aÝ Fram hefur sópaÝ ÍBV út úr úrslitakeppninni annaÝ áriÝ í röÝ Það var fátt sem gladdi augað þegar ÍBV tók á móti Fram í öðrum leik liðanna í undanúrslit - um Íslandsmótsins. Eftir að hafa staðið í Safamýrarstórliðinu í fyrsta leik liðanna í Reykjavík, vonuðust margir til að bilið milli ÍBV og Fram og Vals, væri loks að minnka. En annað kom á daginn, Fram valtaði yfir ÍBV í Eyjum og sýndi svo um munaði að enn er talsvert í land með að ÍBV nái þeim bestu í getu. Þrjá sigurleiki þarf til að komast í úrslitin en Fram er nú 2:0 yfir og getur unnið þriðja leikinn í kvöld á heimavelli sínum. Leikirnir tveir voru nánast eins og svart og hvítt. Fyrri leikurinn var kaflaskiptur, þar sem liðin skiptu hálfleikjunum á milli sín en Fram náði að jafna metin í lok fyrri hálfleiks eftir að ÍBV hafði náð fimm marka forystu. Í seinni hálfleik náði Fram svo fimm marka forystu en undir lokin munaði minnstu að ÍBV næði að jafna metin. Leikurinn á sunnudaginn var hins vegar á allt öðrum nótum. Fram náði fljótlega undirtökunum og það var eins og leikmenn ÍBV réðu ekkert við 3-2-1 vörn Framara. Fram var 7:15 yfir í hálfleik og átti ekki í vand - ræðum með að sigla sigrinum örugg - lega í heimahöfn. Það bendir því allt til þess að leik- menn ÍBV séu á leið í sumarfrí og í raun ekkert nema kraftaverk getur komið í veg fyrir að svo verði. ÍBV þarf að vinna Fram þrisvar sinnum í röð, þar af tvívegis í Safamýrinni en þess má geta að ÍBV hefur ekki unnið Fram í mótsleik síðan Eyja - liðið hóf aftur keppni í úrvalsdeild fyrir þremur árum. Það er því til mikils ætlast að ÍBV vinni þrjá leiki í röð en á meðan enn er von, er algjör óþarfi að gefast upp. Það væri í það minnsta gaman að fá Framliðið aftur til Eyja. Rakel Hlynsdóttir reynir að brjótast í gegnum vörn Fram en er stöðvuð af fyrrum markverði knattspyrnuliðs ÍBV, Birnu Berg Haraldsdóttur. ÆfingaferÝ karlaliÝs ÍBV í knattspyrnu: GóÝur endir á góÝri ferÝ - ÍBV mætti Portsmouth og tapaÝi 2:1 - Hermann ánægÝur meÝ ferÝina ÍBV mætti Portsmouth í góð - gerðaleik á Fratton Park, heima - velli enska liðsins sem spilaði í úrvalsdeild fyrir þremur árum en hefur farið hratt niður á við í ensku deildarkeppninni, lék í C- deild í vetur og reyndar var það þannig að í leikslok kom í ljós að Portsmouth er fallið í D-deild. Hermann Hreiðarsson, þjálfari ÍBV og fyrrum leikmaður Porstmouth, kom því í gegn að liðin myndu mæt - ast en allur ágóði leiksins rennur beint til Portsmouth enda hefur félagið glímt við mikil fjárhags - vandræði undanfarin ár. Um sjö þús - und manns mættu á völlinn, sem telst nokkuð góð mæting á leik sem þenn - an en þrátt fyrir slakt gengi liðsins, mæta um 12 þúsund manns á heima - leikina, sem er næstmesta aðsókn allra liða í C-deild. Hermann sagði í samtali við Eyja - fréttir að leikurinn hefði verið skemmtilegur og allir, bæði leik- menn og áhorfendur, hefðu skemmt sér vel. „Þetta var nú líka til gamans gert, enda rifu gamlar kempur Portsmouth fram skóna og spiluðu með. Reyndar var þetta hörkuleikur og áhorfendur voru mjög ánægðir með gæði leiksins. Það var frábært að svona margir mættu á völlinn, stemmningin var góð og mikil gleði á vellinum. Það var líka gaman fyrir strákana að upplifa þessa stemmn - ingu og mér fannst við spila mjög vel gegn vel þjálfuðum leikmönnum Portsmouth. Ég vona að strákarnir hafi notið þess að spila á þessum velli fyrir framan þessa áhorfendur.“ Eins og áður sagði kom Hermann inn á og lék með báðum liðum. „Það var náttúrulega mjög gaman að fá að sprikla aðeins með. Það komu nokkrar gamlar hetjur og spiluðu með Portsmouth. Ég var svo valinn maður leiksins en ég held að það hafi verið vegna þess að ég gaf alltaf á hitt liðið. Ég spilaði með báðum liðum, þannig að það var ekki hægt annað en að velja mig mann leiksins,“ sagði Hermann hlæjandi. Þjálfarinn er annars ánægður með æfingaferð liðsins til Englands og telur að hún hafi hjálpað mikið til í undirbúningi ÍBV fyrir fyrsta leik sem verður eftir tæpar þrjár vikur. „Markmiðið hjá okkur var að þétta hópinn í þessari ferð. Hópurinn er tvískiptur og gott að hafa alla leik- mennina þannig að það sé hægt að vinna saman á æfingum. Ég er mjög ánægður með hvernig til hefur tekist enda ferðin verið góð.“ Þið skoðuðuð einhverja leikmenn. Er búið að semja við einhverja af þeim? „Það liggur ekkert fyrir í þeim efnum. Við erum að skoða hvað hægt sé að gera og hvort menn séu tilbúnir að koma á þeim kjörum sem við getum boðið,“ sagði Hermann að lokum en Eyjamenn voru væntan - legir heim í dag, miðvikudag. Fram - undan eru svo tveir til þrír æfinga - leikir. Góð stemmning var á vellinum þegar Portsmouth tók á móti ÍBV. Flottir fim- leikakrakkar Þessi myndarlegi hópur frá Fim- leikafélaginu Rán tók þátt í Fylkis - mótinu í hópfimleikum. Krakk - arnir gerðu sér lítið fyrir og unnu gull og silfur á trampolíni. Þau skemmtu sér konunglega og voru félagi sínu til sóma í ferðinni. Hópurinn vildi koma á framfæri þakklæti til Vil- bergs fyrir stuðning við félagið fyrir ferðina. Íþróttir Handbolti Nemanja ekki meÝ ÍBV næsta vetur Það verður ekkert úr því að skyttan öfluga, Nemanja Malovic, sem varð markahæsti leikmaður 1. deild ar í vetur, spili með ÍBV næsta vetur. Nemanja þurfti að yfirgefa landið þar sem hann var ekki með landvistarleyfi en náði þó að spila alla leiki liðsins, utan þess síðasta. Eftir því sem fram kemur á heimasíðu ÍBV-íþrótta - félags, hófust strax viðræður við leikmanninn en ekki reyndist mögulegt að keppa við launatilboð svissneska liðsins Amicitia Zürich og leikur hann því í Sviss næstu tvö árin. „Það er nokkuð ljóst að karlaliðið verður fyrir mikilli blóðtöku þegar þessi góði drengur heldur á önnur mið, en þjálfarar og stjórn eru þegar byrjuð að leita að arftaka Nemó,“ segir í frétt á vefsíðu ÍBV- íþróttafélags. 3. og 4. flokkur í undan úrslit Þriðji flokkur karla í handbolta tryggði sér sæti í undanúrslitum Ís- landsmótsins með heldur óvæntum en glæsilegum sigri á Fram í 8-liða úrslitunum. Leikurinn fór fram á heimavelli Framara en Eyjapeyjar unnu með þremur mörkum, 26:29. ÍBV lék í 2. deild í vetur en endaði í efsta sæti og komst því í úrslit. Fram aftur móti lék í 1. deild, end - aði í efsta sæti og því eru úrslitin nokkuð óvænt. Í undanúrslitum mætir ÍBV FH, sem endaði í þriðja sæti 1. deildar í vetur. Mörk ÍBV: Dagur Arnarsson 10, Arnar Gauti Arnarson 5, Nökkvi Dan Elliðason 5, Hákon Styrmis- son 4, Svavar Grétarsson 4, Magnús Karl Magnússon 4. Fjórði flokkur karla komst einnig í 8-liða úrslit Íslandsmótsins, bæði yngra og eldra árið. Eldra liðið sótti Hauka heim en tapaði í hörkuleik 28:26. Yngra liðið er hins vegar komið áfram eftir sann - færandi sigur á Herði frá Ísafirði. Liðin áttust við í Eyjum á laug - ardag og var aldrei spurning hvort liðið væri betra enda lokatölur 24:12 fyrir ÍBV. Í undanúrslitum sækir ÍBV FH heim í Kaplakrika. Þjálfari beggja flokka er Jakob Lárusson. Mörk yngra liðsins: Breki Ómars- son 6, Friðrik Holm Jónsson 3, Hákon Jónsson, Elliði Snær Viðarsson 3, Sveinn Andri Pálsson 2, Ágúst Emil Grétarsson 2, Darri Viktor Gylfason 2, Ásgeir Elíasson 1, Ingvar Ingólfsson 1, Daníel Sig- urjónsson 1.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.