Fréttir - Eyjafréttir - 06.01.2016, Qupperneq 1
Eyjafréttir
Uppgjör við 2015
og markmiðin
fyrir 2016
hamingjUsamari
nemendUr í fív >> 14 >> 16
Vestmannaeyjum 6. janúar 2016 :: 43. árg. :: 1. tbl. :: Verð kr. 450 :: Sími 481-1300 :: www.eyjafrettir.is
Áramótin fóru vel fram og venjunni samkvæmt í Vestmannaeyjum. Gamla árið var kvatt með brennu í Hásteinsgryfju og flugeldasýningu í umsjá
Björgunarfélags Vestmannaeyja. Ný árið var svo boðið velkomið með hefðbundnum sprengingum. Í samtali við Adolf Þórsson, formann Björgunar-
félagsins, sagði hann að flugeldasalan hefði verið á pari við síðustu ár. „Við erum alltaf sáttir en erum mjög sáttir í ár.“ Adólf sagðist ekki hafa heyrt af
neinum slysum á fólki sem er ánægjulegt. Flugeldasalan verður svo opin fyrir þrettándagleðina á föstudaginn milli kl 13:00 og 19:00.
M
yn
d
/ Ó
sk
ar
P
ét
ur
F
ri
ðr
ik
ss
on
Tekist á um ráðningu nýs slökkviliðsstjóra og eldvarnaeftirlitsmanns:
Öllum verkferlum fylgt
:: bæði skráðum og óskráðum :: segir Ólafur Þór Snorrason framkvæmda-
stjóri Umhverfis- og framkvæmdasviðs :: Bara „sumum“ fulltrúum kynntar
fyrirhugaðar breytingar, segir minnihlutinn :: Málið aldrei rætt í ráðum
Um áramótin lét af störfum sökum
aldurs Ragnar Þór Baldvinsson,
slökkviliðsstjóri, eftir 44 ára starf.
Við stöðu slökkviliðsstjóra tók
Friðrik Páll Arnfinnsson en Stefán
Örn Jónsson er áfram varaslökkvi-
liðsstjóri.
Flestir eru sammála um ágæti
Friðriks Páls í stöðuna en ekki eru
allir sáttir með hvernig staðið var að
ráðningunni. Vefur Eyjafrétta hefur
logað af skrifum að undanförnu
vegna þessa.
Allt hófst þetta á grein Georgs Eiðs
Arnarssonar þann 30. desember. En
þar segir hann m.a: „Þessu til viðbótar
ganga síðan sögusagnir út um allan
bæ um að starf slökkviliðsstjóra, sem
hættir núna um áramótin vegna aldurs,
standi ekki vara-slökkviliðsstjóra til
boða, sem starfað hefur í slökkviliði
Vestmannaeyja í yfir 40 ár, né heldur
eigi að auglýsa stöðuna, heldur standi
til að setja þetta mikilvæga starf í
hendurnar á einhverjum úr hirðinni í
kring um bæjarstjórann.“
Í kjölfarið kviknaði mikil umræða í
bænum um ráðninguna. Í framhald-
inu sá Stefán Örn Jónsson vara-
slökkviliðsstjóri sig knúinn til að
skrifa. Þar sver hann af sér að hafa
verið boðin staðan heldur eingöngu
tilkynnt um hver tæki við stöðunni.
Þessu svarar Ólafur Þór Snorrason,
framkvæmdastjóri Umhverfis- og
framkvæmdasviðs, með grein. Þar
kemur meðal annars fram að þegar
slökkviliðsstjóri lét af störfum vegna
aldurs þá var mat hans að rétt væri að
sameina aftur stöðu slökkviliðsstjóra
og eldvarnaeftirlitsmanns. „Þannig
kynnti ég afstöðu mína fyrir mínum
yfirmönnum sem og fulltrúum í
fagráðinu. Á báðum stöðum fékk ég
stuðning við þessi áform.“
Svo virðist þó sem eingöngu
fulltrúum meirihluta hafi verið
tilkynnt þetta.
Greinarskrifin, sem sprottið hafa af
þessu máli, má lesa í heild sinni á
blaðsíðum 2 og 6 í blaði vikunnar.
annáll ársins 2015
:: fyrri hlUti >> 9