Fréttir - Eyjafréttir - 06.01.2016, Blaðsíða 9
9Eyjafréttir / Miðvikudagur 6. janúar 2016
Þessi annáll ársins 2015 er að
mestu leyti unninn út frá
umfjöllun Eyjafrétta á árinu um
það sem hæst bar í Vestmanna-
eyjum á árinu sem nú er að
kveðja. Reynt hefur verið að
velja úr það sem fréttnæmast
hefur verið og skemmtilegt. Hér
er að sjálfsögðu ekki um
tæmandi úttekt að ræða og
eflaust finnst einhverjum sem
því hafi verið sleppt sem hefði
átt erindi hér. Við því er ekkert
að gera, svona kom annálaritara
þetta fyrir sjónir.
JAnúAR
Metþátttaka
Alger metþátttaka var í Gamlárs-
hlaupinu sem hefur verið fastur
liður í nokkur ár. Alls tóku 130
manns þátt í því að þessu sinni en
allur ágóði af hlaupinu rennur til
styrktar Eyjarós, Krabbavörn í
Eyjum og nam upphæðin að þessu
sinni tæplega einni og hálfri milljón
króna.
Sjöfn og Gísli
Eyjamenn ársins
Hinir árlegu Fréttapýramídar voru
afhentir í byrjun janúar. Eyjamenn
ársins 2014 voru hjónin Sjöfn
Kolbrún Benónýsdóttir og Gísli
Matthías Sigmarsson en þau eiga
sjö börn sem öll hafa haslað sér völl
í atvinnulífinu. Sönghópurinn Blítt
og létt hlaut pýramída fyrir framlag
til menningarmála, Arnar Pétursson
fyrir framlag til íþróttamála og
hjónin Adda Sigurðardóttir og
Magnús Bragason, eigendur Hótels
Vestmannaeyja, hlutu pýramída
fyrir fyrirtæki ársins. Þá var
bryddað upp á þeirri nýjung að
veita viðurkenningu fyrir góða
umfjöllun um landsbyggðina og
hlaut hana Kristján Már Unnarsson,
fréttamaður á Stöð 2. Sérstakar
viðurkenningar hlutu einnig þau
Kolbrún Harpa Kolbeinsdóttir, sem
gaf út sína fyrstu bók á árinu 2014,
Gunnar Magnússon, þjálfari ÍBV í
handbolta, en ÍBV-liðið hampaði
Íslandsmeistaratitli 2014 undir hans
stjórn og svo fulltrúar þeirra sem
halda uppi samgöngum við Eyjar,
þeir Gunnlaugur Grettisson hjá
Herjólfi og Hannes Kristinn
Sigurðsson hjá Flugfélaginu Erni.
Hressó 20 ára
Þann 6. janúar fagnaði líkams-
ræktarstöðin Hressó 20 ára afmæli
sínu. Á þeim tímamótum var
tilkynnt að stöðin hefði gert tilboð í
reksturinn á líkamsræktarsal
Íþróttamiðstöðvarinnar. Því tilboði
var síðan tekið og þær systur, Anna
Dóra og Jóhanna Jóhannsdætur sem
eiga Hressó, gerðu gangskör í því
að endurnýja tæki og tól í þeim sal.
Valin úr hópi 600
umsækjenda
Söngkonan unga og efnilega, Silja
Elsabet Brynjarsdóttir, hafði ástæðu
til að fagna þegar henni var tilkynnt
að hún hefði fengið inngöngu í hinn
virta tónlistarháskóla, Royal
Academy of Music í London. Alls
voru umsækjendur um námið 600
talsins og Silja Elsabet var í hópi
þeirra sex sem komust inn.
Nýr sparisjóðsstjóri
Í lok ársins 2014 var ráðinn nýr
sparisjóðsstjóri hjá Sparisjóði
Vestmannaeyja, Hafsteinn Gunnars-
son, sem átti átta ár að baki hjá
stofnuninni. Í viðtali við Eyjafréttir
sagði hann að sér litist vel á nýja
starfið og taldi sparisjóðina eiga
framtíð fyrir sér. Ekki reyndist hann
þó sannspár þar, nokkrum mán-
uðum síðar yfirtók Landsbankinn
rekstur Sparisjóðsins.
Þrettándagleði
í blíðuveðri
Þrettándagleðin var haldin helgina
9. til 11. janúar en síðustu ár hefur
sá háttur verið hafður á að halda
gleðina um helgi í stað þess að
binda sig við sjálfan þrettándann, 6.
janúar. Hefur þessi breyting mælst
vel fyrir ekki síst hjá brottfluttum
Eyjamönnum sem jafnan fjölmenna
hingað til að taka þátt í þessari
fjölskylduskemmtun. Að þessu
sinni var veður eins og best verður á
kosið og þótti gleðin heppnast vel.
Of mikið af glundri
Reyndar sögðu lögreglumenn að
helgin hefði verið nokkuð annasöm
hjá þeim og bæði skemmdarverk og
innbrot hefðu verið meðal verkefna
sem komu inn á þeirra borð. Þá
kom einnig fram að eitt af tröll-
unum í þrettándagleðinni hefði
þurft aðstoð lögreglu þar sem það
hafði innbyrt of mikið af því sem
lögreglan kallaði „Grýluglundur“.
Þórhildur tekin við
Nýr rekstrarstjóri tók við hjá
Húsasmiðjunni í Vestmannaeyjum.
Ríkharður Hrafnkelsson, sem gegnt
hafði því starfi um nokkurra ára
skeið, flutti á heimaslóðir sínar í
Stykkishólmi og við starfinu tók
Þórhildur Ragna Karlsdóttir sem
hefur unnið hjá Húsasmiðjunni í
Eyjum frá árinu 2009.
Emma og Kristján áttu
Jólahúsið
Lionsklúbbur Vestmannaeyja, ásamt
fulltrúum HS-veitna standa á hverju
ári fyrir því að velja svokallað
„Jólahús“ sem er það hús sem best
þykir skreytt í anda hátíðarinnar. Að
þessu sinni var það hús þeirra
Emmu Pálsdóttur og Kristjáns
Óskarssonar við Illugagötu.
Gott gengi í olíuleit
Sextán nemendur úr Framhalds-
skólanum í Vestmannaeyjum tóku
þátt í keppninni Oilsim, sem
byggist upp á aðferðum til olíuleitar
og komust fjórir þeirra áfram í
framhaldskeppnina í Englandi. Það
voru þeir Elliði Ívarsson, Ólafur
Freyr Ólafsson, Valur Marvin
Pálsson og Þórður Örn Stefánsson
og nefndu þeir lið sitt Exxon
Valdez. Ekki gekk þeim síður í
framhaldinu á erlendri grund þar
sem þeir skákuðu keppendum frá
þekktum olíuvinnslulöndum og
enduðu í öðru sæti, á eftir olíuris-
unum frá Noregi.
Drullusokkar gáfu
20 stóla
Vélhjólaklúbburinn Drullusokkar í
Vestmannaeyjum gerir ýmislegt
annað en þeysast um á vélfákum. Í
janúar komu þeir færandi hendi upp
á spítala og gáfu stofnuninni tuttugu
stóla. „Við viljum láta gott af okkur
leiða,“ sagði forsvarsmaður þeirra,
Jens Karl Jóhannesson við það
tilefni.
Endurbætur á kirkjunni
Miklar endurbætur voru gerðar á
Landakirkju. Aðalbreytingin var sú
að hvelfing kirkjunnar, sem áður var
heiðblá, var nú máluð hvít og
stjörnurnar í henni blaðgylltar. Séra
Kristján Björnsson sagði að næstu
áfangar yrðu svo að skipta um
gólfefni og vinna upp ytra byrði
útveggjanna. Ekki væri þó ljóst
hvenær farið yrði í þær fram-
kvæmdir sem eru kostnaðarsamar.
Ríkið á nýjan stað
Um miðjan janúar flutti Vínbúðin
sig um set, frá Strandveginum, þar
sem hún hafði verið um áratuga-
skeið, yfir á Vesturveg 10, Reyni-
stað. Nýja búðin er mun rúmbetri
en sú gamla, opnari og bjartari og
vöruúrvalið hið sama og áður eða
um 400 sortir af mismunandi
eðalveigum.
Grétar Þór Íþróttamaður
Vestmannaeyja
Það var mikið um dýrðir á viður-
kenningahátíð ÍBV og Vestmanna-
eyjabæjar þegar veittar voru
viðurkenningar fyrir unnin íþróttaaf-
rek liðins árs. Alls voru valdir
þrettán íþróttamenn úr hinum ýmsu
greinum íþrótta en Íþróttamaður
Vestmannaeyja árið 2014 var valinn
Grétar Þór Eyþórsson, handbolta-
maður. Sabrína Lind Adólfsdóttir og
Dagur Arnarsson hlutu viðurkenn-
ingunna Íþróttamenn æskunnar.
Norðlendingafélagið
60 ára
Tími þorrablóta rann upp og hin
ýmsu félagasamtök kepptust við að
efna til fagnaða með súrmeti,
hákarli og ámóta kræsingum. Að
vanda var Norðlendingafélagið með
fyrsta þorrablótið en um leið
fagnaði félagið 60 ára afmæli sínu.
Líknarkonur söfnuðu
26 milljónum
Gengið var frá kaupum á nýju
tölvusneiðmyndatæki fyrir
Heilbrigðisstofnun Suðurlands í
Vestmannaeyjum. Þau kaup eru að
miklu leyti fjármögnuð af Kvenfé-
laginu Líkn sem með mikilli
þrautseigju hefur safnað 26
milljónum króna til kaupa á tækinu.
Margir hafa lagt þeim Líknarkonum
lið í þeirri söfnun, m.a. komu
fulltrúar frá Skipstjóra- og stýri-
mannafélaginu Verðandi færandi
hendi í janúar og lögðu tvær
milljónir í söfnunina.
Fjölmennir
Eyjatónleikar
Hjónin Guðrún Mary Ólafsdóttir og
Bjarni Ólafur Guðmundsson buðu í
fjórða sinn til Eyjatónleika í
tónlistarhúsinu Hörpu þann 23.
janúar til að minnast upphafs
eldgossins 1973. Þessir tónleikar
báru yfirskriftina Lífið er yndislegt,
eftir hinu þekkta þjóðhátíðarlagi
Hreims Heimissonar frá 2001.
Þarna mættu á svið öll helstu
stórstirni þjóðarinnar á tónlistar-
sviðinu og þáttur músíkanta frá
Eyjum ekki hvað minnstur. Gestir,
sem flestir eiga ættir sínar að rekja
til Eyja, troðfylltu salinn og höfðu á
orði að þetta væri orðið árlegt ættar-
mót sem þeir vildu ekki missa af.
Leiðtogaþjálfun
skáta í Eyjum
Skátahreyfingin á Íslandi var með
svonefnt Gilwell leiðtoganámskeið í
Eyjum í janúar. Fimmtán tóku þátt í
því þar af fjórir skátar frá Eyjum.
Ólafur Proppé, skátahöfðingi, sem
stýrði þessari þjálfun, var einkar
ánægður með aðstöðuna í Vest-
mannaeyjum og frábærar móttökur.
Matur og drykkur
Alltaf er ánægjulegt að fylgjast með
því þegar Eyjamenn hasla sér nýjan
völl, hvort sem er í Vestmanna-
eyjum eða annars staðar. Gísli
Matthías Auðunsson, einn eigenda
veitingastaðarins Slippsins í
Vestmannaeyjum, ákvað að opna
nýjan stað í Reykjavík. Fékk hann
nafnið Matur og drykkur og er í
sögufrægu húsi vestur á Granda,
gamla Alliance húsinu þar sem
einnig er til húsa Sögusafn
Reykjavíkur. Nafn staðarins er sótt í
helstu matarbiblíu Íslendinga,
samnefnda bók Helgu Sigurðar-
dóttur og kom út árið 1947.
FEBRúAR
Kvóti Eyjaflotans 130
þúsund tonn
Loðnuveiðar gengu misjafnlega í
byrjun. Hegðun loðnunnar var með
nokkuð öðru móti en undanfarin ár,
í janúar veiddist hún eingöngu fyrir
norðan land en þegar á leið fór að
veiðast á hefðbundnari miðum. Af
þeim 580 þúsund tonnum sem
leyfilegt var að veiða á þessari
vertíð, var hlutur Eyjaflotans um
130 þúsund tonn. Þar var Ísfélagið
langstærst með 80 þúsund tonn,
Vinnslustöðin með 40 þúsund og
Huginn með um 9 þúsund tonn.
Þegar rætt var við skipstjóra og
útgerðarmenn loðnuskipa í upphafi
febrúar, voru flestir sammála um að
það stefndi í góða vertíð.
Byggt fyrir Bónus
Aðalbreytingar samkvæmt nýju
deiliskipulagi, sem samþykkt var
hjá Vestmannaeyjabæ, voru þær að
gert var ráð fyrir rúmlega þrjú-
þúsund fermetra verslunarlóð við
Miðstræti, þar sem Bónus hyggst
opna verslun. Þá var og gert ráð
fyrir því að opna fyrir bílaumferð
og framlengja Skólaveg frá
Vesturvegi að Strandvegi, með
einstefnu til suðurs. Framkvæmdir
hófust við hvort tveggja þegar á leið
árið og voru framkvæmdir við
verslunarhúsnæðið í höndum Steina
og Olla, byggingaverktaka.
Guðbjörg hlaut
viðurkenningu FKA
Félag kvenna í atvinnulífinu veitir
árlega viðurkenningar til þeirra
kvenna sem þykja hafa skarað fram
úr á þeim vettvangi. Að þessu sinni
kom FKA-viðurkenningin í hlut
Guðbjargar M. Matthíasdóttur, aðal-
eiganda og stjórnarmanns í Ísfélagi
Vestmannaeyja.
Starfsorka lögð niður
Ákveðið var að leggja niður
starfsemi Starfsorku, starfsendur-
hæfingar Vestmannaeyja, og
starfsmönnunum tveimur sagt upp,
þeim Hrefnu Óskarsdóttur og Fríðu
Hrönn Halldórsdóttur. Þetta var
ákveðið í kjölfar þess að VIRK-
starfsendurhæfingarsjóður gaf út að
hann hygðist ekki endurnýja
rekstrarsamning við Starfsorku.
Stjörnukvöld
Stjörnukonur, undir stjórn Soffíu
Valdimarsdóttur, brydduðu upp á
nýmæli í fyrra, héldu Stjörnukvöld í
Akóges til styrktar góðum málum.
Nú endurtóku þær leikinn og
söfnuðu dágóðri upphæð sem
ákveðið var að nýta til kaupa á
spjaldtölvum fyrir Grunnskólann.
Leoncie í skýjunum
Og fleira var í dagskrá í skemmt-
analífinu. Sú landsþekkta söngkona,
Annáll ársins 2015 – fyrri hluti
SiGurGEir jÓnSSon
sigurge@internet.is
Þessi hlutu viðurkenningar Eyjafrétta fyrir árið 2014.