Fréttir - Eyjafréttir - 06.01.2016, Síða 10
10 Eyjafréttir / Miðvikudagur 6. janúar 2016
Leoncie, hélt tónleika á Háaloftinu
fyrir fullu húsi. Leoncie var í
skýjunum yfir aðsókninni og
móttökunum, sagði þetta hafa verið
einhverja stærstu upplifun sína á
ferlinum, auk þess sem hún lofaði
aðbúnað á Hótel Vestmannaeyjum
og fiskinn hjá Einsa kalda.
Vilja stækkun
Hraunbúða
Á aðalfundi Félags eldri borgara í
Vestmannaeyjum var skorað á
bæjarstjórn Vestmannaeyja og
bæjarráð að hlutast til um að strax
verði ráðist í framkvæmdir við
stækkun Hraunbúða. Bentu eldri
borgarar á að þörfin aukist með
hverjum degi og nú séu 29 íbúar í
Eyjum, sem fengið hafa vistunar-
mat, á biðlista eftir plássi á
Hraunbúðum.
Brúðargjafirnar til
Krabbavarnar
Þau Sólrún Gunnarsdóttir og Gylfi
Viðar Guðmundsson, kafteinn á
Hugin VE, létu loks verða af því að
ganga í það heilaga eftir margra ára
óvígða sambúð. Þau tilkynntu að
þau vildu engar gjafir en ef gestir
vildu styrkja Krabbavörn í Vest-
mannaeyjum, væru framlög vel
þegin. Það bar góðan árangur og
afhentu brúðhjónin Krabbavörn 700
þúsund krónur að brúðkaupi loknu.
Tólf Eyjafyrirtæki
framúrskarandi
Fyrirtækið Creditinfo veitir árlega
viðurkenningu þeim íslenskum
fyrirtækjum sem að mati þeirra og
samkvæmt styrkleikaprófi eru
framúrskarandi. Að þessu sinni
voru 577 fyrirtæki á listanum og af
þeim tólf frá Vestmannaeyjum. Efst
þeirra voru Ísfélagið í 12. sæti og
Vinnslustöðin í því 18. Hin
fyrirtækin voru Huginn ehf., Dala
Rafn ehf., Skipalyftan ehf., Ós ehf.,
Frár ehf., Ufsaberg ehf., Vélaverk-
stæðið Þór ehf., Fiskmarkaður
Vestmannaeyja hf., Lending ehf. og
Steini og Olli byggingaverktakar
ehf. Þess má geta að alls eru hátt í
33 þúsund fyrirtæki á íslensku
hlutafélagaskránni en aðeins 577
stóðust styrkleikaprófið eða 1,7%
fyrirtækjanna.
Vestmannaeyjahlaupið
það besta
Vestmannaeyjahlaupið er skipulagt
götuhlaup, sem alla jafna fer fram í
septembermánuði og hefur notið
sívaxandi vinsælda bæði heima-
manna sem og fólks ofan af landi.
Hlaupið 2014 var það fjórða í
röðinni og nú fengu aðstandendur
þess góða viðurkenningu, þegar
vefurinn hlaup.is tilkynnti að
samkvæmt einkunnum sem
hlaupararnir sjálfir gefa, hefði
Vestmannaeyjahlaupið verið valið
það besta í flokki götuhlaupa á
landinu.
Stútar og stautar
Hér áður fyrr var algengt í skýrslum
frá lögreglu að talað væri um „stúta
undir stýri“ og var þá átt við að
viðkomandi hefði verið undir
áhrifum áfengis við akstur. Hin
síðari ár virðist sem „stútum“ hafi
fækkað en þeirra í stað komið
„stautar undir stýri“ og þá vísað til
að viðkomandi hafi verið undir
áhrifum ávana- eða fíkniefna. Þegar
tölur frá lögreglu eru skoðaðar,
kemur í ljós að nokkru fleiri stautar
eru teknir á ári en stútar. Svo má
um það deila hvort sú þróun er betri
eða verri. Um miðjan febrúar var
einn stautur stöðvaður í Vestmanna-
eyjum og um sömu helgi lagt hald á
um 150 grömm af þrenns konar
fíkniefnum í fórum manns sem var
að koma til Eyja með Herjólfi. Sá
var í framhaldinu handtekinn og
vistaður í fangageymslu en hann
mun vera það sem kallað er
„góðkunningi lögreglu“.
Trúnaðarbrestur
Útibússtjóra Sparisjóðs Vestmanna-
eyja á Selfossi var sagt upp störfum
vegna trúnaðarbrests en brot hans
áttu sér stað á árinu 2014. Hann
hafði starfað hjá útibúinu á Selfossi
allt frá því að það var opnað, árið
2000.
Sjúkraflug nær daglega
Mikið var um sjúkraflug til
Vestmannaeyja bæði í janúar og
febrúar. Á fyrstu 47 dögum ársins
voru alls farin 20 sjúkraflug og
fyrstu tvær vikur febrúar var
sjúkraflug nær daglegur viðburður.
Þá upplýsti Mýflug, sem sér um
sjúkraflugið, að langoftast hefði
verið flogið sjúkraflug til Vest-
mannaeyja af öllum stöðum árið
2014.
Með verstu veðrum
í sögunni
Óhætt er að segja að veður hafi
verið í rysjóttara lagi þennan
veturinn, mjög hörð veður og meiri
snjór en allajafna. Versta veðrið
gerði sunnudaginn 21. febrúar,
austan fárviðri með snjókomu.
Mesti tíu mínútna meðalvindur fór í
46,2 m á sek. og sló upp í 56,6 m á
sek. Trausti Jónsson, veðurfræð-
ingur sagði þetta það mesta í sögu
sjálfvirkra mælinga á Stórhöfða og
á topp tíu yfir mesta vindhraða frá
árinu 1949.
Fiskiðjan eða Hraun-
búðir
Nokkur ágreiningur varð í bæjar-
stjórn vegna þeirrar ákvörðunar
meirihlutans að verja verulegu fé til
að endurgera húsnæði Fiskiðjunnar.
Áætlanir gerðu ráð fyrir að þar yrði
m.a. til húsa í framtíðinni starfsemi
Þekkingarseturs og Sæheima.
Fulltrúar minnihluta bæjarstjórnar
töldu hins vegar heppilegra að nota
það fjármagn til stækkunar á
Hraunbúðum.
Tvenn verðlaun
Eyjamaðurinn Unnar Gísli
Sigurmundsson, betur þekktur sem
Júníus Meyvant, var heldur betur í
sviðsljósinu við afhendingu
íslensku tónlistarverðlaunanna í
Hörpu. Fyrst var hann verðlaunaður
fyrir popplag ársins 2014 og síðan
kallaður á svið á ný sem Bjartasta
vonin í poppi og rokki.
Mannabreytingar
á Eyjafréttum
Gísli Valtýsson, prentari og
framkvæmdastjóri Eyjafrétta, ákvað
að láta af störfum eftir áratugastarf
hjá fyrirtækinu. Við starfi hans tók
Ásta Sigríður Guðjónsdóttir. Um
sama leyti var Guðrún Mary
Ólafsdóttir ráðin sem blaðamaður
hjá Eyjafréttum. Viðdvöl Ástu varð
ekki löng á blaðinu, hún hætti
störfum í september og tók þá
Guðrún Mary við starfi fram-
kvæmdastjóra.
Tveir bikarmeistaratitlar
Að jafnaði er ekki mikið fjallað um
íþróttir í þessum annál, ekki vegna
þess að annálaritara þyki þær
ómerkilegri en önnur umfjöllunar-
efni, heldur rýmisins vegna, og fyrr
á tíð var ætíð sérstakur íþróttaannáll
í blaðinu. En ekki er hægt að láta
hjá líða að minnast á síðustu
helgina í febrúar. Þá var keppt í
bikarúrslitum í handbolta og tveir
bikarar komu til Eyja. Þriðji flokkur
kvenna ÍBV sigraði Selfoss
sannfærandi, 24:18 og meistara-
flokkur karla ÍBV bar sigurorð af
FH með minnsta mun 23:22. Það
var því mikið um dýrðir og
mannfjöldi á bryggjunni þegar liðin
komu heim með Herjólfi. Að auki
léku þriðji flokkur karla og
meistaraflokkur kvenna í úrslita-
keppni bikarsins en urðu að sætta
sig við tap. Engu að síður mjög
góður árangur hjá handboltafólki
ÍBV.
MARS
Mars og Góa snemma á
ferð
Yfirleitt hefst sauðburður ekki fyrr
en í maí. Hann hófst þó þetta árið
tveimur mánuðum fyrr hjá þeim
Ingibjörgu og Garðari í Þorlaugar-
gerði þegar ein ærin bar tveimur
lömbum þann 3. mars. Þessi
snemmbornu lömb hlutu nöfnin
Mars og Góa í tilefni árstímans.
Innflutningsbann á
Hugin og
Vinnslustöðina
Rússar sýndu aðeins klærnar þegar
Tollabandalag Rússlands ákvað að
setja innflutningsbann á sjö íslensk
fyrirtæki, þar af tvö frá Vestmanna-
eyjum, Hugin og Vinnslustöðina.
Talið var að með þessu væru Rússar
að sýna óánægju sína með þátttöku
Íslendinga í viðskiptaþvingunum
ESB og Bandaríkjamanna.
Forsvarsmenn þessara fyrirtækja
sögðust svo sem ekkert vera að fara
á límingunum vegna þessara
aðgerða. Aftur á móti reyndist þetta
aðeins forsmekkurinn að því sem
koma skyldi. Um haustið settu
Rússar innflutningsbann á nær öll
íslensk matvæli sem var mun
alvarlegra mál.
Fjölsótt Blúsbræðra-
messa
Kirkjusókn hefur farið mjög
þverrandi hin síðari ár, bæði í
Vestmannaeyjum sem og víðar á
landinu. Ekki hefur þó þurft að
kvarta yfir lítilli kirkjusókn í þau
skipti sem svonefndar tónlistar-
messur hafa verið haldnar í
Landakirkju. Nokkrar slíkar hafa
verið haldnar á undanförnum árum
og eitthvert ákveðið þema þá
ríkjandi í tónlistinni, svo sem Elvis
Presley og James Bond. Að þessu
sinni var boðið til Blúsbræðramessu
á æskulýðsdegi þjóðkirkjunnar og
var þétt setinn bekkurinn í Landa-
kirkju.
Hundruð tonna
sópuðust burt
Í ljós kom að ofsaveðrið sem gerði í
lok febrúar hafði ekki aðeins valdið
tjóni á mannvirkjum heldur höggvið
skörð í náttúruna. Stór gróðurþekja
austan í Stórhöfða hafði sópast burt
og hundruð tonna af jarðvegi horfið.
Kunnáttumenn voru sammála um
að brýn þörf væri að lagfæra svæðið
þannig að ekki hlytist af meira tjón.
Hraðskreiðar og
krappar lægðir
Og meira af tíðarfari. Flestir voru
sammála um að veðurfar það sem af
var vetri hefði verið óvenju erfitt.
Lægðir, hraðskreiðar og krappar og
lítið hlé milli þeirra. Þessu fylgdi
ofsafengið veður og mikill vindur,
oft yfir 40 metra á sekúndu. Þetta
staðfestu veðurfræðingarnir Einar
Sveinbjörnsson og Trausti Jónsson
og sjómenn á Eyjaflotanum tóku
undir það, tíðin hefði verið með
eindæmum stirð og oft á tíðum
aðgæsluveður.
Samgöngur úr lagi
Þetta afleita tíðarfar hafði að
sjálfsögðu sín áhrif á samgöngur
milli lands og Eyja. Landeyjahöfn
hafði verið lokuð frá því um haustið
og ferðir Herjólfs til Þorlákshafnar
voru ítrekað felldar niður. Þetta
bitnaði bæði á þeim sem þurftu að
ferðast á milli og einnig á þeim
fyrirtækjum í Vestmannaeyjum sem
eiga allt sitt undir samgöngum
vegna vöruflutninga, þar á meðal
fiskvinnslufyrirtækjunum. Grímur
kokkur sagði þetta búið að vera
skelfilegt ástand og spurning hversu
lengi fyrirtæki í matvælavinnslu
héldu það út.
Raunfærnimat
í sjómennsku
Símenntunarmiðstöðin Viska kynnti
nýtt tækifæri fyrir starfandi
sjómenn til að mennta sig. Það
nefnist Sjósókn og er sniðið fyrir
sjómenn sem ekki hafa lokið
framhaldsskólanámi. Nú býðst þeim
svonefnt raunfærnimat í ýmsum
greinum sem tengjast sjómennsku
ásamt möguleikum á námi meðfram
vinnu. Valgerður í Visku sagðist
vonast til að með þessu værum við
á upphafsreit í ferð til aukinnar
menntunar íslenskra sjómanna.
Fyrsta barn ársins
Fyrsta barn ársins, sem fæddist í
Eyjum, kom ekki fyrr en 23. mars.
Það var drengur, 15 merkur og 54
cm á hæð. Foreldrar hans eru
Hlynur Már Jónsson og Hulda Sif
Þórisdóttir. Reyndar hafði Hulda
verið send til Reykjavíkur til að
fæða en sá stutti ákvað að draga
komu sína á langinn, líklega
ákveðinn í að fæðast í sinni
heimabyggð. Því var Hulda send
heim til Eyja á ný þar sem hún
fæddi drenginn og gekk allt að
óskum.
Óöryggi og óþægindi
Þetta leiddi hugann að því hve
óviðunandi staða verðandi foreldra
er í Eyjum. Nánast heyrir til
undantekninga að konur í Eyjum
fæði börn sín hér. Öryggisins vegna
er þeim beint upp á fastalandið,
oftast til Reykjavíkur. Þetta hefur
bæði óþægindi og kostnað í för með
sér og samkvæmt athugunum og
útreikningum Eyjafrétta getur sá
kostnaður verið allt frá 150 þúsund
krónum upp í rúma milljón með
vinnutapi og öðrum kostnaði. Þetta
þótti þeim sem við var rætt
óviðunandi ástand og töldu flestir
að með þessu væri fólki mismunað
eftir búsetu.
Hættuleg gatnamót
Í vikulegum skýrslum lögreglu er
jafnan getið um umferðaróhöpp. Í
annarri viku marsmánaðar sagði þar
að þrjú umferðaróhöpp (árekstrar)
hefðu orðið; tvö þeirra á gatnamót-
um Heiðarvegar og Kirkjuvegar og
eitt á mótum Illugagötu og
Kirkjuvegar. Á þessum gatnamótum
verða hvað flest umferðaróhöpp í
Vestmannaeyjum þó svo að á
báðum stöðum sé stöðvunarskylda.
Oft hefur verið rætt um að koma
upp umferðarljósum eða hringtorgi
á þessum varasömu gatnamótum en
málið aldrei komist af umræðustig-
inu.
Vilja afnema orlof
húsmæðra
Bæjarráð tekur jafnan fyrir á
fundum sínum hin aðskiljanlegustu
mál. Í mars fundaði ráðið og hvatti
m.a. alþingi til að afnema lög um
orlof húsmæðra. Raunar var hið
sama samþykkt á fundi bæjar-
stjórnar á kvenréttindadaginn 2008
en ekki orðið við því. Í ályktun
bæjarráðs segir að lögin, sem sett
voru árið 1972, séu tímaskekkja og
ekki í þeim anda sem nú sé unnið
eftir.
Ekki á útleið
að svo stöddu
Og það var fleira sem bæjarráð
fjallaði um í marsmánuði, m.a.
annars áframhaldandi aðild
Vestmannaeyjabæjar að SASS,
Samtökum sunnlenskra sveitar-
félaga. Þar kom fram að kostnaður
bæjarins vegna þátttöku í því
samstarfi er 11,5 milljónir króna í
ár. Bæjarráð taldi SASS öflugan og
góðan samstarfsvettvang fyrir
sunnlenska sveitarstjórnarmenn og
bæjarstjóri upplýsti að Vestmanna-
eyjabær væri ekki á útleið þaðan að
svo stöddu. Bætti svo við að aðildin
væri til endurskoðunar og það væru
hagsmunir Eyjamanna sem réðu för.
Dagurinn minn
Fríða Hrönn Halldórsdóttir, sem
sagt var upp störfum hjá Starfsorku
nokkrum vikum fyrr, gaf út bók
sem nefndist Dagurinn minn,
sjálfshjálparbók eða leiðsögn inn í
daginn. Hún sagði að bókin væri,
eins og nafnið benti til, ætluð sem
aðstoð við þá sem ættu í erfið-
leikum með daglegt líf og væri
kannski eigið uppgjör hennar eftir
erfitt tímabil í lífinu.
Ólga á vinnumarkaði
Talsverð ólga var á vinnumarkað-
inum á þessum vetrarmánuðum
vegna kjaramála og náði að
sjálfsögðu til Vestmannaeyja. Arnar
Þessir krakkar á Sóla fóru um bæinn og breiddu út boðskap vináttunnar. Dreifðu miðum og á miðanum sem
blaðamaður Eyjafrétta fékk, stóð: Farðu ekki langt í leit að vináttunni. Líttu þér nær.