Fréttir - Eyjafréttir - 24.02.2016, Qupperneq 2
2 HEilSAn | | Miðvikudagur 24. febrúar 2016
Árið 2000 var Jackie
einstæð móðir með þrjú
börn og hafði ekki mikið milli
handanna. Ein jólin byrjaði
hún að blanda saman olíur
og baðsölt til þess að gefa
vinum og vandamönnum í
jólag jafir. Eftir það fóru
hjólin að snúast og eftir-
spurnin að aukast.
Þetta er Jackie Cordoco sem
kemur frá Barsilíu og rekur
Heilsu-eyjuna og er með aðstöðu á
Faxastígnum. Árið 2002 stofnaði
hún sitt fyrsta fyrirtæki og var með
18 vörur sem hún var að framleiða.
Árið 2004 opnaði hún nuddstofu í
Kópavogi með vinkonu sinni þar
sem þær voru að nudda og heila
en Jackie var einnig að selja
vörurnar sínar. Árið 2007 stækkaði
hún í 280 fermetra húsnæði og var
framleiðslan orðið mjög mikil á
þessum tímapunkti ásamt því að
hún var að leigja pláss fyrir aðra
nuddara.
„Þetta gekk alveg rosalega vel og
það var mjög mikið að gera, enda
ekki mörg fyrirtæki á þessum
tímapunkti með náttúrulegar
snyrtivörur.“
Jackie var komin með áhuga-
sama einstaklinga í Brasilíu og
Bandaríkjunum til að selja vörurnar
en þá skall kreppan á. „Um leið og
það dregst saman hjá fólki þá
hættir það að leyfa sér þessa hluti
og það drógst verulega saman,
vörurnar seldust samt sem áður
ágætlega en aldrei þannig að ég
gæti haldið öllu þessu batteríi
gangandi.“
Þetta varð til þess að Jackie hætti
allri framleiðslu og leigði sér pláss
til þess að nudda í Borgartúni og
ætlaði sér aldrei aftur út í þetta. En
annað kom á daginn. „Að búa til
snyrtivörurnar fannst mér svo
gaman að það vantaði stóran part
af mér eftir að ég hætti að búa til
vörurnar mínar.“
Jackie var líka komin með marga
fasta kúnna og vörurnar hennar að
hjálpa mörgum. „Það gefur mér
alveg svakalega mikið, ef ég veit að
ég er að hjálpa einhverjum. Í dag
stendur alveg til að gera þetta
aftur stærra og fara að framleiða
meira,“ segir Jackie. „Vestmanna-
eyjar eru frábær staður til að
framleiða snyrtivörur, náttúran,
loftið og vatnið. Það væri frekar
flott, snyrtivörur frá Vestmanna-
eyjum.“Jackie er komin með góðan
kúnnahóp í Vestmannaeyjum,
fjölskyldunni líður mjög vel í Eyjum
og Jackie horfir björtum augum á
framhaldið.
Jackie Cordoco kemur frá Brasilíu rekur Heilsu-eyjuna:
Það gefur mér mikið ef ég veit
að ég er að hjálpa einhverjum
Sara Sjöfn grettiSdóttir
sarasjofn@eyjafrettir.is
Jackie Cordoco rekur Heilsu - Eyjuna
Þegar kemur að heilsuefl-
ingu og -átaki er mataræðið
einn mikilvægasti hlekkurinn.
Kökur og sætindi er eitthvað
sem er þá fljótt að hverfa
af matseðlinum. Eða hvað?
Við fengum Berglindi Sig-
marsdóttur, höfund bók-
anna Heilsuréttir fjölskyld-
unnar og einn eiganda
veitingastaðarins Gott, til að
henda í eina holla köku fyrir
okkur.
Botn
150 gr. möndlur
150 gr. döðlur (steinlausar)
50 gr. kókos
2 matsk kókosolía, fljótandi
örlítið sjávarsalt.
Aðferð - botn
1. Hitið ofn í 180 gr. c.
2. Setjið allt í matvinnsluvél
og vinnið þar til þetta er
komið saman.
3. Setjið smjörpappír í hringlaga
form og þjappið í botninn, látið
deig upp með köntum einnig.
4. Bakið í 10-15 mín. eða þar
til botninn fer að gyllast
á köntunum.
Fylling
1 avókadó
3 matsk kókosolía, fljótandi
1 banani (vel þroskaður)
3-4 matsk fljótandi sæta, lífrænt
hlynssíróp eða annað
safi úr einni sítrónu eða um 2 lime
örlítið salt.
Aðferð – fylling
1. Allt maukað saman í mat-
vinnsluvél og hellt yfir botninn,
sett í frysti.
Mér finnst hún best 10-15 mín eftir
að hún er tekin úr frysti.
Þá er auðvelt að skera hana og
hún er rosalega fersk og góð,
æðisleg með þeyttum rjóma. Ég
sigta stundum lífrænan flórsykur
yfir hluta af henni, bara sem skraut.
Sítrónu-Lime kaka
:: a la Berglind Sigmars
Baldurshaga | sími 481-3883
facebook.is/joy
JOY TO THEWORLD
TVENNUTILBOÐ
Samloka
+ lítill boost
kr.1.980
GLEÐITILBOÐ
1/2 Samloka
+ lítill boost
kr.1.490