Fréttir - Eyjafréttir - 24.02.2016, Page 5
HEilSAn | | Miðvikudagur 24. febrúar 2016 5
Guðlaugur Ólafsson fór í
magabandsaðgerð hjá
Auðuni í júlí 2013. Hann var
búinn að reyna ansi margt
til þess að ná af sér auka-
kílóunum, bæði að æfa stíft
og taka mataræðið hressi-
lega í gegn. Árangurinn var
yfirleitt takmarkaður og ef
einhver stoppaði hann stutt
við. Eftir áralanga baráttu
komast hann að því að
þetta væri nánast ógerlegt
fyrir sig. Hann frétti að
Auðun Sigurðsson væri að
gera magabandsaðgerðir út
í Bretlandi og ákvað að
senda honum línu.
,,Ég bjóst við langri bið þegar ég
sendi honum póstinn, en stuttu
seinna hringdi hann og sagðist
eiga lausan tíma eftir tvær vikur. Ég
var alveg gáttaður því ég bjóst við
margra mánaða bið. Ég fór út til
Bretlands í aðgerðina í júlí 2013 og
var mér vitandi fyrsti maðurinn
hérna heima sem fór í þessa
aðgerð hjá honum,“ segir Gulli. Að
sögn Gulla tók aðgerðin fljótt af,
en hann fór í hana um hádegisbil
og var kominn upp á hótel um
miðjan dag. „Ég var mjög sprækur
eftir aðgerðina og var farinn í
búðarráp daginn eftir. Flaug svo
heim til Íslands tveimur dögum
seinna og var kominn til vinnu
stuttu seinna.“
Þitt að halda í bjarghringinn
Gulli segir aðgerðina hafa gert sér
gott og að honum líði vel, samt sé
hann ekki enn kominn á þann stað
sem hann vill vera á því að þetta sé
alls engin töfralausn. ,,Ég lýsi þessu
oft þannig að ef þú dettur í sjóinn
þá er hent til þín bjarghring og þá
er það þitt að halda í hann.
Magabandið er bara eins og
bjarghringurinn. Það tók mig
hellings tíma að læra inn á þetta.
Mér gekk rosalega vel fyrst og
mokaði af mér kílóunum.
Svo byrjaði ég að keppa við
sjálfan mig og ætlaði mér stóra
hluti og setti mér allskyns
markmið að ná hinum og þessum
árangri fyrir ákveðinn tíma. Ég lét
þrengja bandið áður en ég var
tilbúinn að fá þrengingu og þá fór
ég að æla mikið. Ég var alltof
ákafur í stórar tölur. Í kjölfarið
áttaði ég mig á því að árangurinn
gerist smám saman og það er lítið
sem ég get gert til þess að stjórna
þessu.
Núna tveimur og hálfu ári seinna
er ég 30 kílóum léttari en vildi svo
sannarlega vera kominn í kjör-
þyngd. Í byrjun var stefnan að
komast þangað á tveimur árum en
vegna þess að ég var of ákafur
fyrst þá snerist þetta allt í hönd-
unum á mér,“ segir Gulli.
Gulli segist vel finna fyrir
mörgum breytingum eftir
aðgerðina og það sé margt sem
hann eigi erfiðara með að borða í
dag en það sé mjög einstaklings-
bundið hvað það sé sem fólk geti
ekki borðað eftir aðgerð. Í hans
tilfelli á hann t.d. erfitt með að
borða upphitaðan mat, nautakjöt
og brauð. Hann segist borða mjög
hægt og helst þurfa að vera með
minni gaffal og að hann sé
stundum eins og fimm ára gamalt
barn að borða. Gulli segir stóran
kost við magabandsaðgerðina að
það séu engin lyf sem fylgi þessu.
Við spurðum Gulla í lokin hvað
hann myndi ráðleggja fólki sem er
að hugsa út aðgerð sem þessa. ,,Ég
myndi alltaf ráðleggja fólki að
reyna fyrst sjálft áður en það fer að
huga að svona aðgerð. Það er alltaf
best að gera þetta náttúrulega ef
maður getur það. Ef fólk er búið að
reyna allt er þetta ákveðinn hjálp.
En þetta er dýrt, sem mér finnst allt
í lagi og því frábært að hafa kost á
þessu ef ekkert annað gengur.”
lilja Ólafsdóttir er ein af
þeim sem hefur nýverið
farið í magabandsaðgerð
hjá Auðuni Sigurðssyni. Hún
segir markmiðið með
aðgerðinni alls ekki hafa
verið að verða mjó heldur
hafi stærsta ástæðan verið
vefjagigt sem hún hefur
verið að glíma við í fjölda
ára. líklega auðveldara að
takast á við vefjagigtina
með færri aukakíló. Hún
segir að heilsan sé það sem
skipti mestu máli, ekki útlitið.
„Ég heyrði fyrst af aðgerðinni í
umfjöllun sem sýnd var í Ísland í
dag. Mér fannst ég nú ekki það feit
að ég þyrfti í þessa aðgerð þannig
að ég gerði ekkert í þessu. Til að
byrja með. En svo stuttu seinna fór
ég á kynningarfund með konu
sem hafði farið í svona og hún
sagði að þetta væri líka flott fyrir
fólk sem væri í svona jójó dæmi,
rokkandi upp og niður með
kílóin. Þá fyrst fór ég að hugsa
þetta fyrir alvöru. Þá var langur
biðlisti að fara í aðgerðina en ég
komst loks að í mars 2015,“ segir
Lilja.
Hún segir aðgerðina hafa verið
minna mál en hún hélt, enda alls
ekki eins mikið inngrip og þegar
fólk fer í hjáveituaðgerð og því sé
mjög sérstakt að Tryggingastofnun
skuli ekki taka þá í kostnaðinum
líkt og í hjáveituaðgerð. „Ég fór inn
rúmlega átta um morguninn og ég
var komin í bæinn frá Akranesi um
hádegisbil. Aðgerðin tók um
þrjátíu mínútur. Einu óþægindin
sem ég fann eftir aðgerðina var
loftið inn í mér en það var eitthvað
sem fór á nokkrum dögum.“
Tímabilið eftir aðgerðina er það
sem öllu máli skiptir og Lilja segir
að það séu margir sem halda að
þetta sé einhver töfralausn en hún
segir það fjarri lagi. ,,Maður þarf að
vinna fyrir því að sjá árangur. Sumir
halda að þetta sé bara auðvelda
leiðin út og maður verði mjór
korteri eftir aðgerðina en þannig
er það ekki.
Eftir aðgerðina er mánaðarlegt
eftirlit og þurfti ég að fara til
Reykjavíkur en núna kemur Auðun
hingað til Eyja. Stóra vandamálið
mitt var matarfíkn og ég borðaði
alltaf of stóra skammta en í dag
borða ég litla skammta og vel mér
hollan og næringaríkan mat. Það
er mjög mikilvægt þar sem
matarskammtarnir eru svo litlir og
mér líður rosalega vel. Sumir dagar
eru erfiðari en aðrir og þá rennur
maturinn ekki niður og þá fæ ég
mér fljótandi mat. Það er margt
sem ég þarf að passa mig á, eins
og brauð, pasta og fleira en
súkkulaði rennur ansi ljúft niður,“
segir Lilja og hlær.
Aðspurð um árangurinn eftir
aðgerðina segir hún að það hafi
lítið gerst í byrjun hjá sér en um
hálfu ári seinna hafi hlutirnir farið
að gerast hratt og nú sé hún búin
að missa rúm 20 kíló. ,,Ég er
alsæl með árangurinn en þetta er
hellings vinna. Bandið er bara
hjálpartæki fyrir fólk með matar-
fíkn.”
Lilja Ólafsdóttir :: Bandið er hjálpartæki fyrir fólk með matarfíkn:
Heilsan það sem skiptir
mestu máli en ekki útlitið
:: Segir aðgerðina hafa verið minna mál en hún hélt
Gunnlaugur Ólafsson :: Þú getur aldrei verðlagt heilsuna:
Aðgerðin gerði honum
gott og honum líður vel
:: Ekki kominn á þann stað sem hann vill :: Alls engin töfralausn.
Gulli er 30 kg léttari tveimur og hálfu ári eftir aðgerðina.
Lilja er búin að missa rúm 20 kg síðan hún fór í aðgerðina.