Fréttir - Eyjafréttir

Issue

Fréttir - Eyjafréttir - 06.04.2016, Page 8

Fréttir - Eyjafréttir - 06.04.2016, Page 8
8 Eyjafréttir / Miðvikudagur 6. apríl 2016 Bærinn hefur samið við Hjallastefnuna um að taka allt að 15 börn til viðbótar inn á leikskólann Sóla á næstu dögum. Ný leikskóldeild tekur til starfa um næstu áramót. Grunnskólanum verður tryggt fjármagn til að fylgja eftir framtíðarsýn í námi og tekin verða upp svokölluð frístunda- kort sem hefur verið eitt helsta baráttumál Eyjalistans. Þetta er meðal atriða í tillögu fulltrúa Sjálfstæðismanna í bæjarstjórn sem samþykkt var samhljóða á fundi síðasta fimmtudag. Er þar tekið stórt skref til að mæta kröfum foreldra ungra barna um fleiri leikskólapláss. Á fundinum lá fyrir minnisblað vegna reksturs bæjarsjóðs áranna 2015 til 2016. Í framhaldi af því var samþykkt að fela bæjarstjóra að undirbúa viðauka við fjárhagsáætlun þar sem gert verði ráð fyrir aukinni þjónustu fyrir börn. Frá og með næstu mánaðamótum mun Vestmannaeyjabær taka upp heimagreiðslur fyrir fjölskyldur með börn frá níu mánaða aldri og til þess tíma þar sem barnið hefur leikskólagöngu. Bærinn hefur samið við Hjallastefnuna um að taka allt að 15 börn til viðbótar inn á leikskólann Sóla á næstu dögum. Ný leikskóldeild tekur til starfa um næstu áramót. Grunnskólanum verður tryggt fjármagn til að fylgja eftir framtíðarsýn í námi og tekin verða upp svokölluð frístundakort sem hefur verið eitt helsta baráttu- mál Eyjalistans. Þetta er meðal atriða í tillögu fulltrúa Sjálfstæðis- manna í bæjarstjórn sem samþykkt var samhljóða á fundi síðasta fimmtudag. Er þar tekið stórt skref til að mæta kröfum foreldra ungra barna um fleiri leikskólapláss. Á fundinum lá fyrir minnisblað vegna reksturs bæjarsjóðs áranna 2015 til 2016. Í framhaldi af því var samþykkt að fela bæjarstjóra að undirbúa viðauka við fjárhags- áætlun þar sem gert verði ráð fyrir aukinni þjónustu fyrir börn. Í dag er þjónusta dagforeldra niðurgreidd frá tólf mánaða aldri. „Mjög gjarnan hafa foreldrar hinsvegar þörf fyrir slíka niður- greiðslu fyrr, sérstaklega í ljósi þess að fæðingarorlof íslenskra foreldra spannar einungis níu mánuði. Þar sem íslenska ríkið hefur ekki staðið við boðuð loforð um lengingu fæðingarorlofs í tólf mánuði eða ráðist í aðgerðir til að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla- dvalar hyggst bæjarstjórn hefja niðurgreiðslu þjónustu dagforeldra við níu mánaða aldur frá og með 1. maí nk.,“ segir í tillögunni og var samþykkt að fela fræðsluráði að útfæra reglur þar að lútandi. Teknar verða upp heimagreiðslur til foreldra sem nýta sér ekki þjónustu dagforeldra frá því að börn þeirra verða níu mánaða og þar til þeim stendur til boða leikskóla- pláss. Barni fylgir kostnaður „Fæðing barns er ein stærsta gleðistund í ævi hverrar fjölskyldu. Hjá því verður þó ekki litið að kostnaður nýbakaðra foreldra er nokkur og það á þeim tíma sem atvinnutækifæri eru skert. Illu heilli hefur myndast óþægilegt þjónustu- bil á milli fæðingarorlofs ríkisins og þjónustu sveitarfélaga. Þetta bil hefur að hluta til verið brúað með þjónustu dagmæðra sem síðan er niðurgreidd af sveitar- félaginu. Það er mat bæjarstjórnar að það eigi að vera val foreldra hvort þeir velja heldur að þiggja heimagreiðslur og dvelja lengur heima hjá börnum sínum eða nota niðurgreidda þjónustu dagmæðra. Þess vegna mun sveitarfélagið frá og með 1. maí nk. taka upp heimagreiðslur frá níu mánaða aldri og til þess tíma þar sem barnið hefur leikskólagöngu. Bæjarstjórn felur fræðsluráði að útfæra reglur hér að lútandi,“ segir í tillögunni. 15 til 20 leikskólapláss strax Fram kom að töluverð eftirspurn hefur verið eftir daggæsluúrræðum í Vestmannaeyjum og skortur á þjónustu dagforeldra. Vestmanna- eyjabær hafi ráðist í aðgerðir til að mæta þeim vanda m.a. með opnun daggæsluúrræðis á Strönd. „Nauðsynlegt er þó að finna lausn á þessum vanda til lengri tíma litið. Vestmannaeyjabær hefur þegar lokið samningum við Hjallastefn- una um að taka allt að 15 börn til viðbótar inn á leikskólann Sóla og ætti inntaka að geta hafist á næstu dögum. Þar að auki verði leikskólanum Kirkjugerði tryggt fjármagn til að mæta kostnaði við þau auknu dvalargildi sem ef til vill er hægt að nýta þar. Með því móti ættu elstu börnunum sem í dag nýta þjónustu dagforeldra að verða boðin leikskólapláss og því skapast svigrúm hjá dagforeldrum að taka á móti nýjum börnum. Bæjarstjórn felur fræðsluráði framkvæmd og eftirfylgni vegna þessa.“ Ný leikskóladeild Bent er á að ein mikilvægasta þjónusta hvers sveitarfélags sé rekstur leikskóla. Ekki einungis sé þar um að ræða stuðning við foreldra til að fara á ný út á vinnumarkaðinn heldur skipti ekki minna máli að leikskólar eru fyrsta skólastigið. „Stefna Vestmannaeyja- bæjar er að öllum börnum 18 mánaða og eldri standi til boða leikskólapláss frá og með 1. september ár hvert. Sú ákvörðun að bæta tafarlaust við 15 til 20 leikskólaplássum tryggir að lengra verði gengið. Eftir sem áður liggur fyrir að það úrræði dugar ekki nema fram að næstu áramótum, þá fer á ný að safnast upp biðlisti ef ekkert verður að gert. Með það í huga samþykkir bæjarstjórn að opna nýja leikskóla- deild um næstu áramót. Með rekstri hennar vill bæjarstjórn stefna að því að inntaka barna á leikskóla verði oftar en nú er,“ segir í tillögunni og var fræðsluráði falið að fylgja málinu eftir. Framtíðarsýnar í menntamálum Á undanförnum misserum hefur GRV verið að innleiða framtíðarsýn í menntamálum með áherslu á bættan árangur nemenda í lestri og stærðfræði. Með það að leiðarljósi samþykkti bæjarstjórn að gera ráð fyrir sérstöku 2 milljóna króna viðbótarframlagi vegna þessa á næsta skólaári. Bæjarstjórn fól fræðsluráði framgöngu málsins og eftirfylgni. Frístundaheimili er starfrækt af Vestmannaeyjabæ og á seinustu árum hefur það verið rekið í Þórsheimilinu. Þar er sex til níu ára börnum boðið upp á fjölbreytt tómstundastarf eftir að skóladegi lýkur. „Leitast er við að bjóða upp á spennandi viðfangsefni sem veita börnum útrás fyrir leik- og sköpunarþörf. Leiðarljós frístunda- heimilisins er að hver einstaklingur fái að njóta sín og þroskist í umhverfi sem einkennist af hlýju, öryggi og virðingu. Hingað til hefur þessi þjónusta einungis verið veitt á veturna og skapar það oft röskun á högum barnsins og foreldrum þeirra þegar frístundaheimilið lokar. Til að auka þjónustu við þennan aldurshóp samþykkir bæjarstjórn að gera ráð fyrir að þjónusta frístunda- heimilis verði einnig veitt fram á sumar,“ segir í tillögunn. Fól bæjarstjórn fræðslu-, fjöl- skyldu- og tómstundaráði að sjá um framkvæmdina. Frístundakort „Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar hefur minnihluti bæjarstjórnar vakið máls á þörfinni fyrir svokölluð frístundakort þar sem börnum á aldrinum 6 til 16 ára er lagður til styrkur til að mæta kostnaði við íþrótta- og tómstundaiðkun. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks hafa ætíð lýst stuðningi við hugmyndina og talið hana allra góðra gjalda verða enda kostnaður foreldra af íþrótta- og tómstunda- starfi verulegur,“ segir í tillögu sjálfstæðismanna sem hafa borið við auknum kostnaði en nú sé lag. „Eins og komið hefur fram telja bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks að rekstrarárangur hafi nú skilað svigrúmi til að ráðast í aukna þjónustu og þá eðlilegt og sann- gjarnt að frístundastyrkir séu þar hluti af. Þess vegna samþykkir bæjarstjórn að gera ráð fyrir því að 1. janúar 2017 verði slíkir styrkir að upphæð 25.000 krónur fyrir hvert barn teknir upp. Bæjarstjórn felur fjölskyldu- og tómstundaráði framgöngu málsins og eftirfylgni þess.“ Bæjarstjórn fól bæjarstjóra og öðrum embættismönnum að gera ráð fyrir útgjöldum vegna ofantal- inna liða við gerð viðauka við núverandi fjárhagsáætlun og undirbúning fjárhagsáætlunar fyrir árið 2017. Undir þetta skrifuðu Hildur Sólveig Sigurðardóttir, Elliði Vignisson, Páll Marvin Jónsson, Trausti Hjaltason og Birna Þórsdóttir. Tillagan var samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum þeirra og Stefáns Óskars Jónassonar og Auðar Óskar Vilhjálmsdóttur fulltrúa Eyjalistans. Bæjarstjórn :: Samþykkir átak til að mæta kröfum barnafólks: Heimagreiðslur, fleiri börn á Sóla og tómstundakort :: Gert í ljósi góðrar stöðu :: Viðauki við fjárhagsáætlun þar sem gert verði ráð fyrir aukinni þjónustu fyrir börn ómar garðarSSon omar@eyjafrettir.is Kennarar, starfsfólk og börn á leikskóla klædd í blátt. Í tilefni af alþjóðlegum degi einhverfu klæddumst við bláu á föstudaginn. StarfSfólk óSkaSt Póstur í Vestmannaeyjum óskar eftir að ráða starfsfólk í sumarafleysingar. Óskað er eftir jákvæðum einstaklingum með ríka þjónustulund sem eiga auðvelt með samskipti. Nánari upplýsingar veitir Soffía Valdimarsdóttir fulltrúi á staðnum og í síma: 481-1000 Íslandspóstur hf

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.