Fréttir - Eyjafréttir - 06.04.2016, Qupperneq 12
12 Eyjafréttir / Miðvikudagur 6. apríl 2016
Alþjóðlegur dagur einhverfu var
síðastliðinn laugardag, 2.apríl og
bauð Einhugur, foreldra- og
aðstandendafélag einhverfra í
Vestmannaeyjum upp á opið
hús í Eldeyjarsalnum í tilefni
dagsins. Yfirskrift dagsins var:
Hvað eru börnin okkar að gera
og hver eru áhugamálin þeirra?
Yfir hundrað manns mættu á daginn
og var fullt út að dyrum meðan á
viðburðinum stóð. Dagurinn fór
fram úr björtustu vonum að sögn
þeirra sem stóðu að deginum. „Við
eigum eiginlega ekki til orð yfir
mætinguna og erum alveg óendan-
lega þakklát fyrir að allt þetta fólk
hafi komið og kynnst félaginu
okkar. Dagurinn heppnaðist
afskaplega vel í alla staða og við
viljum þakka öllum þeim sem
mættu og aðstoðuðu okkur við að
gera þennan dag að veruleika”
sagði Kristín Tryggvadóttir,
formaður Einhugs þegar blaðamað-
ur ræddi við hana í lok dagsins.
Formleg dagskrá dagsins hófst
með einlægum og skemmtilegum
fyrirlestri Daníels Hreggviðssonar
um hvernig það er að vera ein-
hverfur. Veitt voru verðlaun í
samkeppninni um merki félagsins
sem Einhugur efndi til. Þar bar
Sæþór Vídó, grafískur hönnuður
sigur út bítum. Tók hann við
verðlaunum og var merkið kynnt.
Elí Kristinn Símonarson spilaði
fyrir gesti eitt lag á fiðluna við
góðar undirtektir gesta. Og nokkur
börn úr félaginu sýndu áhugamálin
sín, sem voru fjölbreytt og
skemmtilegt og setti skemmtilega
mynd á daginn. Boðið var upp á
léttar veitingar frá Einsa Kalda og
pizzur frá Pizza 67.
Einhugur afhenti gjafir í alla skóla
í bænum í formi fræðsluefnis eða
námsgagna sem mun nýtast vel við
sérkennsluna í skólunum. Hamars-
skóli fékk afhent stórskemmtilegt
félagsfærninámsefni sem heitir stig
af stigi og er ætlað börnum frá sjö
til níu ára og er framhaldsefni af því
sem nú þegar er verið að vinna með
í fyrsta bekk. Sigurlás Þorleifsson
og Nina Anna Dau tóku á móti
gjöfunum fyrir hönd Hamarsskóla.
Barnaskólinn fékk bæði spil og
fræðibækur sem eiga eftir að nýtast
þeim vel í sérkennslu. Sigurlás
Þorleifsson og Sigríður Sigmars-
dóttir tóku við gjöfunum fyrir hönd
Barnaskólans.
Helga Björk Ólafsdóttir tók á móti
fyrir Sóla hönd, aukahluti fyrir
Numicon sem leikskólinn vinnur
mikið með. Emma Vídó kom sem
fulltrúi Kirkjugerðis og Víkur og
tók við Numicon stærfræðisetti og
hugtakaspili sem er ætlað fyrir
yngri börn með sérþarfir.
Það þótti frekar snúið að finna
námsgögn fyrir Tónlistarskólann
þannig að ákveðið var að færa þeim
gjafabréf eða inneign á fræðslu og
námsgögn sem munu nýtast þar.
Helga Kristín Kolbeinsdóttir tók á
móti bókagjöf fyrir hönd Fram-
haldsskólans í Vestmannaeyjum, en
bækurnar eru allar fræðslubækur
um einhverfu.
,,Með þessum gjöfum viljum við
bara þakka öllu því góða fólki fyrir
að hugsa alveg einstaklega vel um
börnin okkar. Við erum ótrúlega
lánssöm að búa hér í þessu litla
samfélagi og eiga allt þetta góða
fólk að. Skólastarfið hér í Eyjum er
alveg til fyrirmyndar og allir
reiðubúnir að gera allt sem hægt er
að gera fyrir börnin.“
Styrktaraðilar voru Vestmanna-
eyjabær, Einsi Kaldi, Hótel
Vestmannaeyjar, Pósturinn og Pizza
67. ,,Við viljum að lokum nota
tækifærið og þakka þeim kærlega
fyrir og öllum þeim fjölmörgu
aðilum sem hafa lagt okkur lið í
gegnum tíðina. Það er mikil velvild
í okkar garð og við erum þakklát
fyrir það,” sagði Kristín glöð í
bragði að lokum.
Alþjóðlegur dagur einhverfra í Eyjum :: Fór fram úr björtustu vonum:
Einhugur deildi út gjöf-
um til allra skóla í Eyjum
:: Sæþór Vídó sigraði í keppni um merki félagsins
Sæþór þorBjarnarSon
sathor@eyjafrettir.is
Aníta Einarsdóttir, hefur
einstakan áhuga á öllu sem
tengist Titanic. Svo hefur hún
einnig gaman af bílum og
mótorhjólum.
Daníel Hreggviðsson, aðaláhuga-
málin eru kvikmyndir, vísindi,
saga og tónlist.
Bergþóra Sigurðardóttir,
áhugamál hennar eru að hanna
föt úr gömlum sokkum, búa til
varaliti og goðið hennar, Marilyn
Monroe.
Arnar Bogi Andersen elskar alla
kubba.
Elí Kristinn Símonarson elskar
að teikna m.a. kvikmyndaleikara
og ameríska forseta. Helstu
áhugamálin hans eru kvikmyndir
og kvikmyndagerð, heimstyrj-
aldir og sagan í kringum þær,
tungumál og landafræði. Svo
hefur Elí Kristinn líka gaman af
því að spila á fiðluna.
Tara Sól, aðaláhugamál eru að
mála, spila á klarinett og
handbolti. Einnig hefur Tara Sól
mikinn áhuga á öllu sem tengist
Eurovision.
Magnús Kristleifsson, aðaláhuga-
mál er yu-gi-oh spil og Magnús
spilar þann leik mikið með vinum
sínum á netinu. Sem krakki var
aðaláhugamál Magnúsar að læra
um dýr og safnaði hann
dýrabókum.
Haldin var samkeppni um nýtt
merki félagsins og varð tillaga
Sæþórs Vídó fyrir valinu.
Eyjafréttir - vertu með á nótunum!
Yfir hundrað manns mættu á opna húsið hjá Einhug.