Fréttir - Eyjafréttir - 06.04.2016, Blaðsíða 18
18 Eyjafréttir / Miðvikudagur 6. apríl 2016
Þriðji flokkur karla náði frábær-
um árangri um helgina, varð
deildarmeistari í 1. deild og þeirri
3., þar sem yngra árið lék sem
ÍBV 2. Í 1. deildinni var úrslita-
leikur um toppsætið þar sem ÍBV
nægði jafntefli til þess að taka við
bikarnum í Íþróttamiðstöðinni.
ÍBV spilaði við Hauka sem voru í 2.
sætinu, Haukar höfðu tapað fyrir
ÍBV fyrr á tímabilinu en ljóst var að
hart yrði barist á laugardaginn. ÍBV
spilaði líklega sinn besta leik á
tímabilinu og vann að lokum sjö
marka sigur, á köflum var forystan í
hættu þar sem ÍBV spilaði nokkurn
hluta leiksins tveimur færri. ÍBV
stóð þó af sér þá kafla og jók
forystuna undir lokin. Leiknum
lauk 26-19 þar sem Ágúst Emil
Grétarsson og Elliði Snær Viðars-
son gerðu sex mörk hvor. Andri
Ísak Sigfússon átti frábæran leik í
markinu og varði 17 skot, mörg
hver á mikilvægum augnablikum í
leiknum. Daníel Freyr Gylfason,
sem hefur verið að jafna sig eftir
veikindi, tók við bikarnum í
leikslok. Mikið af fólki mætti á
leikinn og horfði á strákana taka við
bikarnum.
Strákarnir í liði 1 munu því mæta
Þór Ak. í 8-liða úrslitum Íslands-
mótsins í Eyjum en ekki hefur
fengist staðfestur leikdagur.
ÍBV 2 spilaði í 3. deild en í liðinu
voru einungis leikmenn á yngra ári
flokksins, fæddir árið 1999 eða
seinna. Liðið hafði sigrað 13 af
þeim fjórtán leikjum sem liðið hafði
spilað á tímabilinu og gert eitt
jafntefli við Hauka á útivelli. Liðin
mættust í Eyjum á laugardaginn og
sýndi ÍBV allar sínar bestu hliðar,
liðið sigraði með tíu marka mun
30-20. Daníel Örn Griffin skoraði
sjö mörk, Gabríel Martinez skoraði
sex líkt og Óliver Magnússon.
Bjarki Svavarsson varði 29 skot í
markinu, sem er frábært afrek.
Liðið hefur því sigrað fjórtán af
þeim fimmtán leikjum sem liðið
hefur spilað.
Fimm í landsliðshóp
Á dögunum voru einnig fimm
leikmenn úr flokknum valdir í U-18
ára landslið Íslands. Markvörðurinn
Andri Ísak Sigfússon, línumaðurinn
Elliði Snær Viðarsson, hornamaður-
inn Friðrik Hólm Jónsson, miðju-
maðurinn Logi Snædal Jónsson og
skyttan Daníel Örn Griffin. Þessir
leikmenn spiluðu allir stórt hlutverk
í liði 3. flokks sem vann 1. deildina.
Logi Snædal hefur þó verið
meiddur undanfarnar vikur og
ekkert getað spilað með liðinu, það
verður því sterkt fyrir þá að fá hann
inn í liðið í úrslitakeppninni. Daníel
Örn hefur þá einnig spilað með ÍBV
2 þar sem hann er á yngra ári í
flokknum, hann hefur verið algjör
lykilmaður í báðum liðunum.
Handbolti | Frábær árangur hjá 3. flokki karla:
Tvöfaldir deildarmeistarar
Þriðji flokkur kvenna varð eins og
strákarnir deildarmeistari um
helgina þar sem liðið sigraði í
annarri deildinni. Þetta er annað
árið í röð sem þriðji flokkur kvenna
verður deildarmeistari þar sem liðið
vann fyrstu deild á síðustu leiktíð.
ÍBV sendi þó einungis lið til leiks
í annarri deild þessa leiktíðina sem
sigraði deildina án teljandi
vandræða.
ÍBV sigraði fjórtán af fyrstu sextán
leikjum sínum, gerði eitt jafntefli og
tapaði einungis einum. Þá er
tveimur leikjum ólokið en þeir
skipta nú engu máli uppá lokastöðu
deildarinnar. Stelpurnar munu að
öllum líkindum mæta hörkuliði
Fram sem endar líklega í 2. sæti í
1. deild.
Handbolti |
Þriðji flokkur kvenna
einnig deildarmeistarar
Íbúakönnun um
aðgengi að Löngu
bæjarstjórn Vestmannaeyja hefur samþykkt að
fram fari íbúakönnun um aðgengi að Löngu og
fer könnunin fram 11.-12. apríl nk. Til að nýta
atkvæðarétt sinn eru tvær leiðir í boði.
Annars vegar er hægt að kjósa á skrifstofu Um-
hverfis -og framkvæmdasviðs að Skildingavegi 5,
frá kl. 09-12 báða dagana og hins vegar er um að
ræða rafræna kosningu. Til þess að geta kosið raf-
rænt, þarf að sækja um svokallaðan Íslykil, sem er
nokkurs konar auðkennislykill á Internetinu. Til
þess að sækja um Íslykil þarf að fara á vefsíðuna
http://www.island.is/islykill. Þar má sjá tengil
„Panta Íslykil“ sem tekur notandann á síðu þar
sem hægt er að panta Íslykil. Þar er slegin inn
kennitala notandans og merkt við hvernig við-
komandi vill fá Íslykilinn afhentan. Í netbanka/
heimabanka eða í bréfpósti á lögheimili. Athugið
að það getur tekið allt að viku að fá lykilinn í bréf-
pósti og því er nauðsynlegt fyrir þá sem ekki hafa
aðgang að heimabanka að sækja um lykilinn sem
allra fyrst, hafi þeir á annað borð áhuga á að taka
þátt í íbúakosningunni með rafrænum hætti.
Eftir að Íslykillinn hefur borist þarf að skrá sig inn
á „Mínar síður“ hjá island.is. Við það er handhafa
Íslykilsins boðið að velja sér nýjan auðkennis-
streng sem auðveldara er að muna. Allar nánari
upplýsingar um Íslykil Þjóðskrár Íslands má finna
á vefsíðunni http://www.island.is/islykill. Einnig
er hægt að notast við rafræna auðkenningu í
gegnum GSM síma.
Þetta er í annað sinn sem leitað hefur verið beint
til bæjarbúa eftir afstöðu til mála af þessu tagi, en
í fyrra sinn var um að ræða byggingu hótels við
Hástein. Er það von Vestmannaeyjabæjar að sem
flestir nýti sér rétt sinn og taki þátt í atkvæða-
greiðslunni.