Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 06.04.2016, Blaðsíða 20

Fréttir - Eyjafréttir - 06.04.2016, Blaðsíða 20
S ími 481-1300 : : f re t t i r@ey ja f re t t i r. i s Eyjafréttir Á fundi bæjarstjórnar í síðustu viku var samþykkt að fjölga leikskólaplássum, styrkja Grunnskólann og taka upp frístundakort frá og með næstu áramótum. Er þarna verið að bregðast við kröfum fjölskyldu- fólks um meiri og betri þjónustu fyrir börn. Elliði Vignisson, bæjarstjóri sagði í samtali við Eyjafréttir að málefni barna og velferð fjölskyldna væru meðal mikilvægustu þátta í rekstri hvers bæjarfélags. „Þjónusta við þau, eins og alla aðra veltur á því að reksturinn sé nægilega traustur til að tryggja þá velferð,“ sagði Elliði og það hafi Sjálfstæðisflokkurinn haft að leiðarljósi. Lán og skuldbindingar hafi verið greidd upp, hagrætt hafi verið í rekstri og reynt að skapa svigrúm til að auka þjónustu án þess að leggja frekari álögur á bæjarbúa. „Með hliðsjón af þessu telur bæjarstjórn að svigrúm sé til að nota hagræðingaraðgerðir og rekstrarár- angur seinustu ára til að bæta enn frekar þjónustustigið í sveitar- félaginu, nú með áherslu á þjónustu við börn og barnafjölskyldur.“ Elliði sagði það mat fulltrúa Sjálfstæðisflokksins að enn brýnna sé nú en oft áður að treysta búsetu- skilyrði í Vestmannaeyjum. Ytri aðstæður, sérstaklega samgöngur og fæðingarþjónusta séu á engan máta boðlegar. „Vestmannaeyjar eru drífandi og kraftmikið sveitarfélag sem er borið uppi af dugmiklu íbúum sem kjósa sér að eiga hér búsetu. Það eru því hagsmunir sveitarfélagsins að skapa aðlaðandi og ákjósanlegar aðstæður m.a. fyrir fjölskyldufólk með þeim þáttum sem við höfum boðvald yfir. Eftir því ríkið stendur sig verr verða bæjaryfirvöld að gera betur,“ sagði Elliði að lokum. Stefán Jónasson, oddviti Eyjalistans er ánægður með tillögurnar og segir að góð útkoma í rekstri og fjárhags- stöðu bæjarsjóðs geri þetta mögulegt. Hann segir líka brýnt að skapa fjölskyldufólki eins góðar aðstæður og kostur er. „Ég get ekki upplýst hvaða upplýsingar komu fram á minnisblaði sem bæjarstjóri lagði fram á fundinum, nema að staða bæjarins á síðasta ári var mjög góð,“ sagði Stefán en tillagan kom honum í opna skjöldu. „Þetta var aldrei orðað við okkur en ég held að umræðan í Eyjafréttum og viðtöl blaðsins við fólk sem er í vandræðum vegna skorts á leiks- skólaplássum hafi þrýst á þau. Við fögnum að frístundakort og sumarfrí- stund, sem voru ein helstu baráttumál okkar verði að veruleika frá og með næstu áramótum. Það eru 25.000 krónur á ári fyrir hvert barn.“ Ekki segist Stefán hafa fengið svör við því hvað þessar aðgerðir kosta. Þær voru ekki komnar í gær þrátt fyrir loforð bæjarstjóra. „Já, staðan er góð og ég vil að það komi fram að bæði gamli Vestmannaeyjalistinn og Eyjalistinn á þessu kjörtímabili hafa unnið að hagræðingaraðgerðum bæjarstjórnar af fullum heilindum og við viljum fara varlega í fjármálum. Þetta er allt spurning um forgangs- röðun og við viljum hag aldraðra, fatlaðra og fjölskyldufólks sem mestan. Enn er verk að vinna, við erum með hæstu sorpeyðingargjöldin og það eru blikur á lofti í tekjuöflun bæjarins. Það þarf því að fara varlega í sakirnar í útgjöldum,“ sagði Stefán að lokum. >> Nánar á bls. 8. Bæjarstjórn styrkir stöðu barnafólks ómar garðarSSon omar@eyjafrettir.is Börn við leik á leikskólanum Sóla þar sem börnum verður fjölgað á næstu dögum. B ir ti st m eð fy ri rv ar a um in ns lá tt ar vi ll ur o g m yn da br en gl vikutilboð SuShi frá osushi Kemur til okkar föstudaga kl. 17.00 Tökum niður pantanir ! 6. til 12. apríl 2016 Weetos 350 gr verð nú kr 498,- verð áður kr 698,- Weetabix 24 stk verð nú kr 498,- verð áður kr 598,- SS pylsur 10 stk verð nú kr 768,- verð áður kr 848,- nutramino protein Water 0,5 ltr verð nú kr 498,- verð áður kr 698,- myllu pylsubrauð 5 stk verð nú kr 178,- verð áður kr 248,- ATH! Opið AllA dAgA Til kl. 21.00

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.