Fréttir - Eyjafréttir - 25.05.2016, Page 8
8 Eyjafréttir / Miðvikudagur 25. maí 2016
„Nú í maí eru liðin tvö ár síðan
tilkynnt var um ráðningu mína í
starf útibússtjóra hjá Íslandsbanka
hér í Vestmannaeyjum. Það er
ótrúlegt hvað tíminn líður hratt, mér
finnst svo stutt síðan þetta var. Ég
hafði ekki haft fasta búsetu utan
höfuðborgarsvæðisins áður en ég
flutti hingað. Ég renndi því nokkuð
blint í sjóinn. Ég fann það fljótt að
hér í Eyjum er gott að búa. Einnig
er vert að nefna að hér eru
veitingastaðir á heimsmælikvarða
og svo eigum við til dæmis
verðlaunasafnið Eldheima sem er
einstakt í heiminum og svo mætti
lengi telja,“ segir Þórdís Úlfars-
dóttir, útisbússtjóri Íslandsbanka í
Vestmannaeyjum.
Bankinn heldur á morgun,
fimmtudag, í Akóges ráðstefnuna,
Að hætta að vinna og halda sömu
launum. Þar verður bent á leiðir til
að halda sömu launum þegar kemur
að starfslokum. Það ásamt því að
Þórdís hefur starfað hér í tvö ár
þótti ástæða til að taka hús á henni
og forvitnast um hvernig henni
hefur líkað vistin í Eyjum.
Auka klukkutími á dag
Og hún sér fleiri kosti við að búa í
Vestmannaeyjum. „Eitt sem ég get
nefnt sérstaklega er að í höfuð-
borginni þar sem ég starfaði áður en
ég kom hingað gat ferðatíminn á
leið til og frá vinnu verið ansi
langur í allri umferðinni. Hér fer
maður út úr húsi og er kominn í
vinnu innan örfárra mínútna. Þannig
að það má segja að maður hafi auka
klukkutíma á dag til að nýta í
eitthvað skemmtilegra en að sitja í
bíl,“ segir Þórdís.
Stór hluti af fjölskyldu hennar býr
og starfar á höfuðborgasvæðinu.
„Svo vissulega eru það mikil
viðbrigði fyrir mig borgabarnið að
geta ekki bara sest upp í bílinn og
keyrt af stað þangað sem þarf að
fara þegar manni dettur það í hug.
Það þarf að skipuleggja ferðirnar og
laga sig að því sem í boði er hverju
sinni.
Ég neita því ekki að það hefur
truflað mig eins og svo marga aðra
að hafa ekki greiðar samgöngur. Við
erum sem dæmi má nefna að sjá
Suðurlandið vera að springa af
ferðamönnum og náum ekki að taka
til okkar hingað nema brot af þeirri
umferð. Það þykir mér og mörgum
fleiri miður þar sem náttúrufegurðin
og margt annað hér er svo einstakt
að vandfundinn er sá staður í
heiminum sem býður upp á viðlíka,
allavega hef ég ekki komið á hann
ennþá.“
Vel tekið af öllum
Þórdís segir að henni hafi líkað vel
frá fyrsta degi í Bankanum enda
hafi henni verið vel tekið. „Mér
hefur líkað mjög vel hérna.
Samstarfsfólkið tók mér vel sem og
viðskiptavinir útibúsins. Það má
segja að það komi varla nokkur
maður í útibúið án þess að einhver
þekki hann eða einhver veit deili á
honum. Hingað finnst fólki gott að
koma og heyrir maður það oft frá
viðskiptavinum hversu hlýtt og gott
viðmót sé hjá starfsfólki bankans.
Þess ber að geta að samanlagður
starfaldur 17 starfsmanna útibúsins
er kominn yfir 460 ár. Mér er til efs
að nokkurt annað bankaútibú finnist
hér á landi og þó víðar væri leitað
með svo háan starfsaldur. Reynslan
hér inanhúss er því orðin ærin. Hér
starfar samheldinn hópur sem er
líka duglegur að gera eitthvað
skemmtilegt saman utan vinnu-
tíma.“
Brottfluttir halda tryggð við
sitt gamla útibú
Upphaflega var stofnað útibú í
Eyjum í október árið 1919 og er því
stutt í aldarafmælið. „Starfsemi
bankans og forvera hans hefur verið
farsæl í samfélaginu og enn þann
dag í dag tala margir viðskiptamenn
um útibúið með mikilli hlýju, hvað
þá að þetta sé gamli Útvegsbankinn.
Útibú bankans og forvera hans
hefur verið til húsa í núverandi
húsnæði frá árinu 1952.“
Þórdís segir markaðssvæðið vera
bundið við Vestmannaeyjar að
nánast öllu leyti, hvort sem er í
einstaklings– eða fyrirtækjavið-
skiptum. „Þó er útibúið með
viðskipti við einstaklinga og
fyrirtæki á fastalandinu og er þá
einkum um að ræða brottflutta
Eyjamenn sem halda tryggð við sitt
gamla útibú.
Undanfarin ár hefur verið mikið
um framkvæmdir hér og einnig
hefur orðið mikil endurnýjun á
skiptastól Eyjamanna. Þar höfum
við komið að fjármögnun á mörgum
stórum sem smáum verkefnum.
Mikil umræða hefur átt sér stað
um stöðu þeirra sem eru að kaupa
sína fyrstu íbúð á húsnæðismark-
aðnum og hefur þjónusta Íslands-
banka þróast hratt til að mæta
þörfum þeirra. Fyrir nokkrum árum
voru húsnæðissparnaðarreikningar
settir á laggirnar og mögulegt er að
fá aukalán vegna fyrstu íbúðar-
Íslandsbanki Vestmannaeyjum :: Þórdís ánægð í Eyjum og segir stöðu útbúsins sterka:
Hér er viðmótið gott
og hingað finnst fólki
gott að koma
:: Samanlagður starfaldur 17 starfsmanna yfir 460 ár :: Reynslan því orðin ærin
:: Samheldinn hópur :: Með góð tengsl við viðskiptavini og samfélagið
ómar garðarSSon
omar@eyjafrettir.is
starfsfólk íslandsbanka í Vestmannaeyjum. frá vinstri: Þórdís Úlfarsdóttir, Betsý ágústsdóttir, Helena Björk Þorsteinsdóttir, sigurður ingi
ingason, Björk Elíasdóttir, Vigdís rafnsdóttir, Erna Dögg Hjaltadóttir, kjartan Guðjónsson, sigursteinn Bjarni Leifsson, sigurður friðriksson,
Hrönn Harðardóttir, sigríður Bjarnadóttir og sigurrós sverrisdóttir.
Þórdís Úlfarsdóttir, útisbússtjóri íslandsbanka í Vestmannaeyjum.