Fréttir - Eyjafréttir - 25.05.2016, Blaðsíða 9
9Eyjafréttir / Miðvikudagur 25. maí 2016
kaupa. Þar skiptir líka máli það
úrræði stjórnvalda að heimila
kaupendum fyrstu íbúðar að nýta
séreignarsparnað skattfrjálst til að
kljúfa útborgun í fyrstu eign eða
greiða inn á höfuðstól húsnæðis-
láns.“
Að hafa bankann í vasanum
Nú býður Íslandsbanki upp á þann
möguleika að sækja um netgreiðslu-
mat undirritað með rafrænum
skilríkjum sem mun spara við-
skiptavinum sporin. „Þetta er hluti
af þeirri stafrænu vegferð sem
bankinn er í og það hefur sýnt sig
með nýju greiðslumiðlunarappi
Kass, sem og Íslandsbanka appinu,
að sífellt fleiri vilja afgreiða
bankaviðskipti sín hvar og hvenær
sem er, og í raun hafa bankann í
vasanum.
Þróuninni mun fleygja hratt fram
og má nefna að á næstu misserum
er stefnt að því að gera þinglýsingar
rafrænar og verður húsnæðislána-
ferlið því enn einfaldara og
þægilegra fyrir viðskiptavininn,“
segir Þórdís.
Eyjamenn eins og aðrir bera
traust til Íslandsbanka
Þórdís segir útibúið leggja mikla
áherslu á að veita viðskiptavinum
sínum framúrskarandi þjónustu. Ef
marka megi þjónustakannanir
undanfarinna ára þá hafi það gengið
mjög vel og viðskiptavinir beri
mikið traust til starfsfólksins.
„Við höfðum svo sannarlega
ástæða til að fagna. Nýverið bárust
enn og aftur þær gleðifréttir að
enginn banki hefði hlotið hærri
einkunn en Íslandsbanki frá
viðskiptavinum sínum í Íslensku
ánægjuvoginni. Við fögnuðum
glæsilegri niðurstöðu í útibúinu
okkar hér í Vestmannaeyjum. Hér
var ofurþjónustudagur svokallaður
rauður dagur. Það voru margir sem
komu við og fögnuðu með okkur.
Við fengum sem dæmi heillaóska-
skeyti frá einum ánægðum
viðskiptavini til 83 ára. Þar sagði
hann svo ég vitni beint í textann:
-Íslandsbanki Vestmannaeyjum,
ánægjuvogin segir allt sem segja
þarf, til hamingju með heiðurinn.
Því er ekki að neita að við erum
upp með okkur að fá svona hlýjar
kveðjur frá okkar viðskiptavinum.“
Útibúið í Eyjum
skorar hvað hæst
Það er mikil samkeppni á útlána-
markaði hvort sem um er að ræða
lán fyrir einstaklinga eða fyrirtæki
og Þórdís segir að þau fari ekki
varhluta af henni hér í Eyjum.
„Það er áhersla Bankans og sýn
að vera númer eitt í þjónustu og á
síðasta ári var gengið enn lengra og
gefið loforð um að veita bestu
bankaþjónustu á Íslandi. Útibúið í
Eyjum er það útibú sem hefur verið
að skora hvað hæst út úr þeim
greiningum af öllum útibúum
bankans og af því erum við afar
stolt. Hlutdeild okkar er stór í
Eyjum og byggir á áratuga
starfsemi Íslandsbankans og
fyrirrennara hans hér. Markaðshlut-
deild eins og sú sem við höfum hér
er einstök á landsvísu. Það er því
ekki skrýtið að við finnum fyrir
aukinni samkeppni. Við fögnum
alltaf samkeppni þar sem hún er af
hinu góða fyrir neytendur.“
Samkeppni óháð
staðsetningu
Þórdís segir að auðvitað hafi ríkt
samkeppni þó að hún hafi breyst
nokkuð undanfarið ár. „Því má ekki
gleyma að hér var starfræktur Spari-
sjóður um áratuga skeið. Það hefur
lengi verið mikil samkeppni á milli
allra viðskiptabankanna um til
dæmis lán til stærri fyrirtækja og er
sú samkeppni óháð staðsetningu
viðkomandi banka.
Íslandsbanki og fyrirrennarar hans
þar á undan hafa þjónað Eyja-
mönnum dyggilega um margra
áratuga skeið. Við höfum bent fólki
á að koma og heimsækja okkur og
fara yfir sín mál. Það er alltaf heitt
á könnunni og við tökum vel á móti
öllum. Starfsfólk útibúsins er
reynslumikill og samheldinn hópur
með góð tengsl við viðskiptavini og
samfélagið í Vestmannaeyjum. Það
má segja að það séu yfirleitt
persónuleg tengsl og þjónusta sem
skipta miklu máli þegar valinn er
viðskiptabanki.“
Þórdís segir útibúið í Vestmanna-
eyjum hafa kappkostað að fá til
Eyja fræðslufundi og kynningar
sem Íslandsbanki hefur verið að
bjóða uppá annarsstaðar á landinu.
„Mikil ánægja hefur verið með
þessa fundi og hafa þeir verið vel
sóttir. Við munum á morgun, 26.
maí bjóða uppá áhugaverðan
fyrirlestur sem hentar aldurs-
hópnum 40 til 55 ára mjög vel. Þar
sem tekjusamsetning við starfslok
verður skoðuð og hvað er hægt að
gera á fimmtugs- og sextugsaldri til
að auka tekjurnar til muna. Á
fundinum verður þeirri spurningu
velt upp, hvað fólk getur gert í dag
til að halda óbreyttum tekjum við
starfslok?
Sýnd verða raunhæf dæmi út frá
ólíkum tekjum og aldri. Auk þess
verður fjallað um áhrif þess að
vinna á lífeyrisaldri og fleira.“
Breytt umhverfi
Í þjónustukönnunum einstaklinga
og fyrirtækja á árinu 2015 fær
útbúið góða einkunn þegar spurt er
um heildaránægju bæði hjá
einstaklingum og fyrirtækjum.
„Útibúið er einnig að fá frábær
meðmæli frá viðskiptavinum.
Þessar niðurstöður endurspegla það
viðmót sem starfsfólk upplifir hjá
viðskiptavinum sem er mjög
jákvætt. Ummæli viðskiptavina um
útibúið eru flest á einn veg eða
frábær þjónustulund, persónuleg
þjónusta, jákvætt og þægilegt
viðmót,“ segir Þórdís.
„Viðskiptavinir útibúsins hafa
verið að sækja þjónustuna meira
beint hjá útibúinu heldur en í
gegnum síma eða tölvupóst. Þó
hefur á þessu ári mátt merkja mikla
aukningu í notkun okkar viðskipta-
vina á ÍslandsbankaAppinu og
Netbankanum. Sama má segja um
nýja greiðsluappið Kass sem
Sprotafyrirtækið Memento og
Íslandsbanki hafa þróað og nýverið
var sett í loftið.
Kass er frábær lausn sem auðvelt
er að tileinka sér og nota. Appið
gerir notendum kleift að millifæra
peninga sín á milli með því einu að
nota farsímanúmer eða Kass
notendanafn. Auk þess geta
notendur sent rukkun eða skipt
greiðslum á milli sín.
Appið er tengt við greiðslukort og
bankareikning og hægt er að senda
og taka á móti greiðslum. Allir geta
nýtt sér kass appið, óháð viðskipta-
banka og símafyrirtæki. Áhersla er
lögð á öryggi, einfaldleika og
þægilegt notendaviðmót. Eyjamenn
hafa verið fljótir að tileinka sér
þessa nýju lausn okkar. Ég hvet alla
sem hafa tök á, að kynna sér Kass
appið, það má t.d. nálgast í
gegnum heimsíðuna https:/kass.is
þetta er algjör snilld að mínu mati.“
Höldum áfram að styðja
nærsamfélagið
„Við hjá Íslandsbanka munum hér
eftir sem hingað til einblína á að
bjóða viðskiptavinum okkar framúr-
skarandi þjónustu með gildin okkar
fagleg, jákvæð og framsýn að
leiðarljósi. Íslandsbanki og forverar
hans eiga sér langa sögu hér sem
byggir á 97 ára þjónustu og
samvinnu við íbúa Vestmannaeyja,“
segir Þórdís þegar hún er spurð að
því hvernig hún sjái fyrir sér
framtíð bankans í Eyjum. Hún
bendir líka á að frá upphafi hafi
saga bankans verið samofin
sjávarútveginum sem er helsta
atvinnugrein Vestmannaeyja.
„Innan bankans er starfandi
sérfræðingahópur sem saman-
stendur af starfsfólki með áralanga
reynslu í fjármálageiranum og
sjávarútveginum. Starfsfólk okkar
er með mikla reynslu og munum
við leitast við að bjóða viðskipta-
vinum okkar persónulega og góða
þjónustu hér eftir sem hingað til.
Íslandsbanki mun halda áfram að
styðja nærsamfélag sitt hér í
Vestmannaeyjum enda mikilvægt
fyrir bankann að vera virkur
þátttakandi í samfélaginu. Bankinn
hefur til að mynda um langt skeið
verið einn af bakhjörlum ÍBV og
komið þannig að öflugri uppbygg-
ingu á ungliðastarfi félagsins.“
Hjálparhönd
„Mig langar að nefna að Íslands-
banki býður starfsmönnum sínum
að leggja sitt af mörkum til
góðgerðarmála. Starfsmenn
bankans geta varið einum vinnudegi
á ári í þágu góðs málefnis og velja
sér sjálfir það málefni sem þeir vilja
veita liðsinni.
Um er að ræða sjálfboðaliðastörf
fyrir góðgerðarfélög, mannúðar-
samtök, björgunarsveitir og ýmis
önnur góð málefni.
Íslandsbanki hefur þannig lagt ríka
áherslu á að leggja lið, ekki aðeins
með styrkjum heldur einnig virkri
þátttöku starfsfólks bankans í
verkefnum sem horfa til heilla í
samfélaginu.
Með því að bjóða starfsfólki sínu
einn dag á ári til að sinna góðgerða-
málum vill bankinn rétta samfélags-
verkefnum um land allt hjálparhönd
og vera jákvætt hreyfiafl. Mark-
miðið á þessu ári er að helmingur
starfsfólks taki þátt í Hjálparhönd,“
segir Þórdís.
Þá segir hún að starfsfólk bankans
hafi verið óþreytandi í að brydda
uppá einhverju skemmtilegu til
tilbreytingar. „Til dæmis klæðumst
við búningum á öskudaginn og
fögnum með börnunum sem koma í
útibúið. Fyrir Þjóðhátíð er sprellað
og á Þorláksmessu er komin hefð á
að fá til okkar Lúðrasveit Tónlistar-
skólans og jólavein til að skemmta
þeim sem líta inn í jólaösinni.“
Áheitasöfnun komin
yfir 450 milljónir
Og Íslandsbanki komið víða við
sögu. „Íslandsbanki hefur verið
stoltur stuðningsaðili Reykjavíkur-
maraþons síðan 1997. Hlaupið
hefur fest sig í sessi sem einn
stærsti fjölskylduviðburður í
Reykjavík. Maraþonið fer næst
fram þann 20. ágúst 2016, að
morgni Menningarnætur.“
Hægt er að velja um að hlaupa 10
km, hálft maraþon eða heilt
maraþon og einnig er boðið upp á
3 km skemmtiskokk. „Það ættu allir
að finna vegalengd sem hentar og
viljum við hvetja alla til að vera
með. Þess má geta að heildarupp-
hæð áheita sem hafa safnast í
tengslum við Reykjavíkurmaraþon
Íslandsbanka frá því áheitasöfnun
hófst árið 2006 er nú komin yfir
450 milljónir,“ sagði Þórdís að
lokum.
„Íslandsbanki er með öflugt
útibúanet þar sem starfsfólk leggur
sig mikið fram við að veita góða
þjónustu,“ segir Birna Einarsdóttir,
bankastjóri Íslandsbanka.
„Útibúið okkar í Vestmannaeyjum
er alveg einstakt. Saga útbúsins er
löng og tryggð viðskiptavina er
mikil. Þetta útibú bankans hefur
hvað hæsta markaðshlutdeild og
hæstu einkunn þegar kemur að
þjónustumælingum. Það er
virkilega ánægjulegt að taka þátt í
þeirri rótgrónu starfsemi sem er í
Vestmannaeyjum eins og í sjávarút-
vegi um leið og við hefjum ný
ævintýri með atvinnurekendum í
ferðaþjónustu.
Það er alveg ljóst að Eyjamenn eru
kappsmiklir og það á við bæði í
starfi og leik. Þrátt fyrir fjölda
áskorana sem snúa til dæmis að
samgöngum hafa þeir náð að
byggja upp fjölbreytt atvinnulíf sem
sést vel í veitingahúsarekstri og
menningartengdri afþreyingu. Við
erum virkilega stolt af þessu öfluga
útibúi okkar og enn öflugra
starfsfólki sem gerir okkur kleift að
vinna jafn ötullega með heima-
mönnum og raun ber vitni. Við
horfum því jákvæðum augum til
næstu ára í Eyjum.“
:: Horft til Vestmannaeyja frá höfuðstöðvunum:
Horfum jákvæðum
augum til næstu
ára í Eyjum
:: segir Birna Einarsdóttir, bankastjóri
Líf og fjör á Þjóðhátíð. kristín finnbogadóttir og Guðjón Hjörleifsson.
starfsfólkið uppstrílað á öskudaginn.
Þórdís ásamt krökkum sem litu við í bankanum á öskudaginn.