Fréttir - Eyjafréttir

Issue

Fréttir - Eyjafréttir - 08.06.2016, Page 1

Fréttir - Eyjafréttir - 08.06.2016, Page 1
Eyjafréttir Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ VÖRUR UM ALLT LAND Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins. Vestmannaeyjum 8. júní 2016 :: 43. árg. :: 23. tbl. :: Verð kr. 490 :: Sími 481-1300 :: www.eyjafrettir.is Vestmannaeyjabær þarf að rýma Ráðhúsið á næstu dögum vegna endurbóta. Að sögn Elliða Vignis- sonar, bæjarstjóra Vestmannaeyja var ástand hússins skoðað og niðurstaðan var að þörf er á gagngerum endur- bótum á húsinu. Flyst öll starfsemin annað meðan á framkvæmdum stendur. ,,Ráðhúsið okkar hér við Ráðhúströð var teiknað af Guðjóni Samúelssyni og byggt sem sjúkrahús árið 1927. Þótt sannarlega hafi þar verið vel að verki staðið þá var byggingatækni og aðferðir þess tíma fjærri því sem gengur og gerist í dag,“ sagði Elliði. „Helsta vandamálið er vegna rakaskemmda og á það bæði við um þak, grunn og flesta útveggi. Líklegt er að skipta þurfi um alla glugga, timburklæðningu í þaki, brjóta upp gólf í kjallara og ýmislegt fleira. Þegar um svo stóra framkvæmd er að ræða er ekki boðlegt að reyna að halda úti starfsemi í húsinu.“ Starfsmenn bæjarins hafa upp á síðkastið verið að leita að heppilegu bráðabirgðarhúsnæði og segir Elliði að svo geti farið að félagsþjónustan fari í norðurhluta Rauðagerðis og stjórnsýslan fari inn á aðra hæðina í Landsbankahúsinu. Hvað nánari útlistun á ástandi hússins varðar þá hefur verið óskað eftir minnisblaði um það og er vonast til að sú samantekt liggi fyrir í næstu viku. Í kjölfarið mun Vestmannaeyjabær svo fara í útboð á framkvæmdinni. „Ég reikna með því að við reynum að flytja í sumar og í raun má segja að flutningar séu hafnir því við erum að fara yfir tölvumál og ýmislegt fleira. Ætli það megi ekki búast við því að undirbúningur taki þrjár til fimm vikur og síðsumars flytjum við. Þetta er náttúrulega hundleiðinlegt og veldur röskun á högum bæði starfsmanna og þjónustuþega. Það þýðir samt ekkert að væla yfir því og sem betur fer eru starfsmenn upp til hópa jákvæðir og taka því sem að höndum ber með þjónustuþega í fyrirrúmi. Við bara brettum upp ermarnar og einhendum okkur í þetta verk,“ sagði Elliði. Ráðhúsið rýmt :: Þörf á miklum endurbótum :: Byggt árið 1927: Öll starfsemin flyst annað meðan á fram- kvæmdum stendur :: Félagsþjónustan í norðurhluta Rauðagerðis :: Stjórnsýslan í Landsbankahúsið SædíS EVa BirgiSdóttir seva@eyjafrettir.is Sjómannadagur í máli og myndum Flottir krakkar í grV >> 14 24 útSkriFaðir Frá FíV >> 12 >> 10 Á föstudaginn var Höllinni afhentar þessar flaggstangir. Það voru Íslandsbanki og Landsbankinn sem fjármögnuðu kaupin en Sjómannadagsráð Vestmannaeyja, með Ríkharð Zoega Stefánsson fremstan í flokki, sáu til að þessi hugmynd varð að veruleika.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.