Fréttir - Eyjafréttir

Issue

Fréttir - Eyjafréttir - 08.06.2016, Page 2

Fréttir - Eyjafréttir - 08.06.2016, Page 2
2 Eyjafréttir / Miðvikudagur 8. júní 2016 útgefandi: Eyjasýn ehf. 480278-0549. ritstjóri: ómar garðarsson - omar@eyjafrettir.is. Blaðamenn: Sædís Eva Birgisdóttir - seva@eyjafrettir.is Sara Sjöfn grettisdóttir - sarasjofn@eyjafrettir.is íþróttir: guðmundur tómas Sigfússon - gudmundur@eyjafrettir.is ábyrgðarmaður: ómar garðarsson. Prentvinna: Landsprent ehf. ljósmyndir: óskar Pétur Friðriksson og blaðamenn. aðsetur ritstjórnar: Strandvegur 47, Vestmannaeyjum. Símar: 481 1300 og 481 3310. netfang: frettir@eyjafrettir.is. Veffang: www.eyjafrettir.is Eyjafréttir koma út alla miðvikudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu á Kletti, tvistinum, Toppn­um,­Vöruval,­Herjólfi,­Flughafnar­versluninni,­ Krónunni, Kjarval og Skýlinu. Eyjafréttir eru prentaðar í 2000 eintökum. Eyjafréttir eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið. Eyjafréttir Nú hefur Alþingi samþykkt fjárheimild til handa innanríkis- ráðherra og Vegagerðinni um að bjóða út smíði nýrrar Vest- mannaeyjaferju og gert er ráð fyrir því að ný ferja gæti komið til Eyja haustið 2018. Af því tilefni sendum við fyrirspurnir á þingmenn suðurkjördæmis um málið. Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjör- dæmi segist hafa verið þeirrar skoðunar að mikilvægasta málið sé að tryggja áframhaldandi uppbygg- ingu Landeyjahafnar og ná sem bestum árangri með siglingar þangað. Án hafnarinnar og lagfæringum á henni verða litlar framfarir í siglingum í Landeyja- höfn og ný ferja muni aldrei geta lagfært þau mistök sem gerð voru við hönnun á Landeyjahöfn og fæst ekki leiðrétt. ,,Lagfæring á höfninni gerist ekki nema með rannsóknum en fjöl- margir sjómenn og skipstjórar hafa bent á leiðir til að bæta höfnina en aldrei hefur verið hlustað á skoðanir þeirra, þó flest ef ekki allt sem þeir hafa bent á hafi gengið fram. Mín skoðun hefur verið sú að hlusta á þessa menn sem tala af reynslu og þekkingu og við á Alþingi sem tökum endanlega ákvörðun verðum að hlusta á þeirra rök. Fyrir þinginu liggja hinsvegar tillögur Vegagerð- arinnar og Smíðanefndar Herjólfs og þeim hefur ekki þótt tillögur skipstjórnarmanna á Herjólfi, skipstjóra í Eyjum og á sanddæl- ingarskipum Björgunar vera þess virði að hlusta á þær hvað þá að geta þeirra í gögnum sínum að neinu marki,“ sagði Ásmundur. En er ný ferja lausnin við sam- gönguvandamálum okkar Eyja- manna? ,,Við tryggjum öruggar samgöngur við Landeyjahöfn með lagfæringum á höfninni er stutta svarið. Engar óskir um fjárheimildir til að hefja rannsóknir á og við Landeyjahöfn liggja hins vegar fyrir og því ekki útlit fyrir að menn ætli að nota tímann þar til ný ferja kemur til að laga höfnina eins og allir tala um. Ég hef boðað breytingatillögu við Samgönguáætl- un 2015 til 2018 þar sem gert er ráð fyrir 250 milljónum króna til rannsókna í þessu tilefni strax á næsta ári og vonandi næ ég tillögunni fram.“ Hefur efasemdir Ásmundur segir að varðandi byggingu nýrrar ferju sé það ljóst að okkar góði Herjólfur sé orðinn 24 ára og ekki besta skipið til að sigla í vanskapaða Landeyjahöfn og því er löngu kominn tími til að byggja nýtt skip og nú sé það orðinn veruleikinn. ,,Vissulega vona ég að nýtt skip bæti samgöngur við Eyjar og fjölgi þeim dögum sem siglt verði til Landeyjahafnar. Ég hef hins vegar miklar efasemdir um þær væntingar og hef miklar áhyggjur af því að siglingar til Þorlákshafnar verði því miður mánuðum saman á hverju ári eftir að ný ferja verður tekin í notkun. Vonandi bætir fastur dælubúnaður í Landeyjahöfn við nýtingu hafnarinnar en engar rannsóknir hafa styrkt þá skoðun eða líkur. Mínar áhyggjur snúa því að þeim ótilgreinda tíma, 70 til 120 dögum á ári sem enn þarf að sigla í Þorlákshöfn á ferju sem er sér- staklega hönnuð til siglinga í Landeyjahöfn og mun því verða óheppileg til þeirra siglinga með fáum kojum og ganghraða upp á 13,5 sjómlílur sem verður afturför á þeirri leið. Þess vegna hefði þurft að laga höfnina og byggja skip sem hentar miðað við nýtingatíma í siglingum í Landeyjahöfn. Það er því huggun harmi gegn að gamli Herjólfur verður þá áfram til þjónustu reiðubúinn og segir mér svo hugur um að flestir kjósi að sigla með honum þegar sigla þarf í Þorlákshöfn enda mun ný ferja ekki standast honum snúning í siglingum þangað svo ekki sé minnst á aðbúnaðinn og allar kojurnar.“ Tökum áralagið í takt Nú þegar ákvörðun liggur fyrir segir Ásmundur að hann og aðrir snúi sér á hina hliðina og voni það besta. „Ég nenni ekki að taka fleiri snúninga í þessu ferjumáli, það er frá hjá mér með þessu svari. Við ættum að gera það öll. Hitt er að mikið verk er að koma höfninni í það lag sem við ætlumst til og ég trúi því að þar getum við öll lagst á sömu árina og tekið áralagið í takt. Það er ekki eftir neinu að bíða að takast á við lagfæringar í og við Landeyjahöfn og krefja Vegagerðina nú þegar um áætlun til endurbóta á Landeyjahöfn og innsiglingunni í höfnina. Ef það verkefni bíður eftir nýrri ferju verður lengri tími til að væntingar Vestmannaeyinga rætist að fullu til bættra samgangna milli Vestmanna- eyja og Landeyjahafnar. Það er því eitt verkefni eftir sem við öll vinnum að, betri höfn í Land- eyjum.” Ásmundur :: Ekki besta skipið til að sigla í Landeyjahöfn: Mikið verk er að koma höfninni í það lag sem við ætlumst til :: Trúi að þar geti allir lagst á sömu árina og tekið áralagið í takt. Það er ekki eftir neinu að bíða að takast á við lagfæringar í og við Landeyjahöfn SædíS EVa BirgiSdóttir seva@eyjafrettir.is Oddný G. Harðardóttir þingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi segist fagna því að bjóða eigi út smíði nýrrar Vestmannaeyjaferju. ,,Það var alltaf meiningin að byggja Landeyjahöfn og smíða nýja ferju. Verkið tafðist eðlilega vegna hrunsins. Nýja ferjan mun geta farið oftar á milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar en gamli Herjólfur en hún verður líka smíðuð með það í huga að geta siglt á Þorlákshöfn. Þetta er gott skref til að bæta samgöngur til Vestmannaeyja og það var sannarlega tími til kominn. Mér finnst líka frábært að ferjan verði hönnuð þannig að hún geti gengið fyrir rafmagni til móts við olíuna. Það er umhverfisvænna og betra,“ sagði Oddný, Oddný G. Harðardóttir formaður Samfylkingarinnar og þingmaður í Suðurkjördæmi Oddný G. Harðardóttir: Þetta er gott skref til að bæta samgöngur til Vestmannaeyja Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.