Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 08.06.2016, Blaðsíða 12

Fréttir - Eyjafréttir - 08.06.2016, Blaðsíða 12
12 Eyjafréttir / Miðvikudagur 8. júní 2016 „Starfið á önninni hefur verið öflugt og sama má segja um allt starfsárið. Stöðugt leitum við leiða til að bæta starfið, gera það fjölbreyttara og skilvirkara. Gera góðan skóla enn betri. En hvað er það sem gerir skóla að góðum skóla? Fræðimenn eru alls ekki sammála um það, enda eru það margir þættir sem vinna saman í góðum skóla,“ sagði Helga Kristín Kolbeins í skólaslitaræðu sinni og vitnaði í úttekt á starfsemi Framhaldsskólans fyrir mennta- og menningarmálaráðuneytið sem var unnin á árinu. Helstu niðurstöður hennar eru að í skólanum ríki almennt traust, skólabragurinn einkennist að jafnaði af hlýju, mikilli persónu- legri nánd og almennt góðri líðan. Stefna skólans sé skýr og skipulega sett fram. Allar námsbrautir uppfylli skilyrði aðalnámskrár um grunn- þætti og lykilhæfni. Fagmenntaðir kennarar annast kennslu í nær öllum áföngum. Húsnæðið er rúmgott, skólinn hefur náð markmiði sínu um brotthvarf. „Í úttektinni er bent á nokkra þætti sem við þurfum að huga að,“ sagði Helga Kristín. „Virkja þarf nemendur og foreldra til stefnumót- unarvinnu og efla nemendafélag og foreldrafélag. Auka aðgengi að rafrænum námsgögnum. Einnig benda skýrsluhöfundar á að nemendur séu ekki nægjanlega stoltir af skólanum sínum og að það hafi neikvæð áhrif á sjálfsmynd þeirra og kem ég nánar að þeim þætti seinna í máli mínu.“ Félagslíf á uppleið Helga Kristín sagði að á skólafundi vorannar með öllum nemendum og kennurum hafi verið fjallaði um félagslífið og tóku nemendur virkan þátt í umræðum um hvernig félagslífið ætti að vera. „Stofnaður var vinnuhópur sem vann úr hugmyndum fundarins, stóð fyrir kosningum í nemendaráð og hélt sumarfagnað fyrir nemendur til að fagna lokum skólaársins. Vinnuhópurinn vann einnig með nemendum í fjölmiðlafræði og gaf út skólablað sem er afar vel heppnað og fékk nafnið Sviðsljósið. Vinnuhópurinn á hrós skilið og vil ég nota tækifærið og þakka Thelmu og Samúel sérstaklega fyrir vel unnin störf þeirra með hópnum.“ Við bíðum spennt eftir næsta vetri, þegar félagslífið tekur mið af þeim hugmyndum sem vinnuhópurinn setti fram. Byrjunin lofar afar góðu, sumarfagnaðurinn var vel sóttur af nemendum og einstaklega ánægju- legt var að foreldrar tóku þátt í fagnaðinum. Ég vil nota þetta tækifæri og þakka Hafdísi, Völu, Eydísi, Þórunni, Sigríði Láru, Diljá og Hjördísi fyrir að taka þátt í þessu með okkur. Það er ómetanlegt að fá foreldra til starfa og vona ég að samstarfið eflist enn meira.“ Skuldum ekki neitt Helga Kristín nefndi næst bága fjárhagsstöðu margra framhalds- skóla sem ætti ekki við Framhalds- skólann í Vestmannaeyjum. „Í fjölmiðlum undanfarnar vikur hefur mikið verið fjallað um rekstrarerfið- leika framhaldsskóla Íslands og er reksturinn hér vissulega erfiður. En við stöndum okkar plikt, við skuldum ekki neitt og erum í skilum með allt. Þær erfiðu aðgerðir sem við réðumst í á árinu 2015 gera það að verkum. Í nýrri úttekt sem skilað var í gær frá Ríkisendurskoðun til Alþingis, kemur meðal annars fram að greiðslustaða skólans gagnvart ríkissjóði batnaði frá því að vera rúm 21 milljón í skuld yfir í að við erum algjörlega skuldlaus núna í janúar. Við vitum það öll sem hér erum að hverri krónu sem varið er til framhaldsskólans er vel varið. Skólinn er skilvirkur og vel rekin stofnun. Óeigingjarnt framlag starfsfólks og þrautseigja hefur stuðlað að hagkvæmni í rekstri og tryggt gæði skólastarfsins. Samt sem áður er núverandi fjármögnun ekki nægjanleg. Okkur vantar fé til að endurnýja búnað. Aðkallandi er orðið að endurnýja ýmislegt hér innan húss og þá sérstaklega búnað vélskólans.“ Ánægð með skólann Í áfangamati á vorönn er niður- staðan að 75% nemenda eru ánægðir með áfanga sína, 87% ánægð með kennarann og 88% vinna vel í kennslustundum. „Starfsfólk skólans tók þátt í könnun um stofnun ársins og urðum við í 16. sæti af 50 þetta árið. Þegar niðurstöðurnar eru skoðaðar kemur í ljós að starfsfólkið er ánægt með flesta þætti og ánægðra en flestir aðrir með vinnustaðinn sinn. Starfsfólkið er ánægt með stjórnun skólans, starfsandann á vinnustaðn- um, kjörin sín, vinnuskilyrðin sem þeim eru sköpuð og það er stolt af skólanum. En það er einn þáttur sem dregur skólann mikið niður í einkunn og það er ímynd hans. Starfsfólkið er ekki sátt við þá ímynd sem skólinn hefur og eins og ég kom inn á fyrr í ræðunni þá sjáum við sömu áhyggjur koma fram hjá nemendum skólans,“ sagði Helga Kristín og spurði: En hvað er átt við með ímynd og hvernig skapar maður hana? Ímynd skiptir máli „Þegar rýnt er betur í svör starfs- manna, kemur í ljós að þeir upplifa að þegar skólann ber á góma er umræðan ekki nægjanlega jákvæð. Að nærsamfélagið taki oft á tíðum ekki jákvæða afstöðu til skólans. Það er verðugt verkefni að taka á þessum þætti. Jákvæð ímynd er mjög mikilvæg hverri stofnun og hverju samfélagi. Sterk jákvæð ímynd er nauðsynleg skólanum jafnt og samfélaginu hér í Vestmannaeyjum. Jákvæð ímynd styrkir sjálfsmynd okkar, hvetur okkur til dáða og stemmir stigu við þekkingartapi sem svo mörg smærri samfélög hafa glímt við á síðast- liðnum áratugum með brottflutningi sérhæfðra starfsstétta og aldurs- hópa. Ímynd má líkja við viðskipta- vild, sem laðar að fólk, fjármagn og hugmyndir og hefur bein áhrif á efnahagslíf samfélagsins.“ Hlustum ekki á úrtöluraddir Helga Kristín sagði það markmið skólans að bjóða fjölbreytt og gott nám, sem mætir kröfum nemenda og samfélagsins á hverjum tíma. Menntun ungs fólks eigi að hafa forgang og allir Eyjamenn þurfi að sameinast um verkefnið. „Allar kannanir sýna að Framhald- skólinn í Vestmannaeyjum er góður skóli og getum við verið stolt af honum. Úttektir utanaðkomandi aðila eru sérlega jákvæðar og okkur er bent á að við erum að standa okkur afskaplega vel. Reksturinn er í jafnvægi, hér er hæft starfsfólk og ánægðir nemendur sem stunda fjölbreytt nám. En þrátt fyrir að allar þessar staðreyndir blasi við í könnunum meðal nemenda, starfsfólks og opinberum úttektum koma raddir sem segja: já... en ég hef nú heyrt... og ég hef nú fyrir satt... og ég veit nú að þetta er svona og hinsegin. Hlustum ekki á þessar úrtöluradd- ir, horfum stolt og full tilhlökkunar til framtíðar og látum róður skólans berast sem víðast.“ Verið stolt af árangrinum Þá sneri Helga Kristín máli sínu til útskriftarnema og þakkaði þeim samstarfið. „Þið hafið staðið ykkur vel og verið skólanum til sóma. Þið hafið gert skólann að heilsueflandi framhaldsskóla. Til hamingju með árangurinn ykkar. Þó við höfum verið að verðlauna sum ykkar hér, þá eruð þið öll sigurvegarar. Þið hafið öll náð takmarki ykkar. Öll hafið þið þurft að leggja á ykkur mikla vinnu, blóð, svita og tár til að ná þessum áfanga en það dugði til því hér eruð þið nú.Verið því stolt af árangri ykkar, framtíðin blasir við. Munið að hlusta á sjónarmið annarra. Umgangast alla þá er á vegi ykkar verða af sömu alúð – háa sem lága. Komið fram við aðra eins og þið viljið að þeir komi fram við ykkur. Hafið í huga að raða ykkur ekki með einstaklingum sem rífa ykkur niður með nöturlegum athugasemd- um og neikvæðri umræðu heldur veljið ykkur vini sem styrkja, auðga og efla. Hafið hugfast að ekkert það starf sem ykkur verður falið er svo ómerkilegt að það eigi ekki skilið að vera leyst af hendi af fyllstu alúð og samviskusemi. Verið trú yfir því sem ykkur er treyst fyrir – í stóru sem smáu. Virðið og verið trú uppruna ykkar og Vestmannaeyjum – leggið alúð við móðurmálið. Ég vona að þið eigið góðar minningar frá tíma ykkar hér í skólanum. Á framhaldsskólaárum kynnumst við oft á tíðum okkar bestu vinum sem við eigum ævilangt þótt leiðir skilji á vissan hátt nú við brautskráningu. Ég minni ykkur á að þið eruð aldeilis ekki laus við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum þó að þið séuð að útskrifast héðan í dag. Þið verðið alla ævi nemendur skólans og hann er stoltur af ykkur eins og þið eruð stolt af ykkar skóla og nýtið hvert tækifæri til að tala vel um hann. Fyrir hönd Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum þakka ég ykkur samfylgdina og óska ykkur fararheilla hvert sem leiðir liggja,“ sagði Helga Kristín sem að lokum þakkaði starfsfólki skólans fyrir önnina. „Þetta er búið að ganga afar vel og hafið þið staðið sem klettur með stjórnendum skólans í gegnum allar þær breytingar sem gengið hafa yfir. Það er alls ekki sjálfgefið að stofnanir hafi aðgang að þeim mannauði sem hér starfar.“ Helga Kristín veitir Guðnýju Charlottu Harðardóttir dúx skólans viðurkenningu en meðaleinkunn hennar var 8,92. Kristín Edda Valsdóttir flutti þakkarræðu útskriftarnema. Björgvin Eyjólfsson aðstoðar- skólameistari. :: Helga Kristín skólameistari :: FÍV er góður skóli :: Jákvæðar úttektir :: Ekki sátt við þá ímynd sem skólinn hefur: Hlustum ekki á úrtöluraddir, horfum stolt og full tilhlökkunar til framtíðar :: Látum hróður skólans berast sem víðast :: Skuldum ekki neitt og erum í skilum með allt ómar garðarSSon omar@eyjafrettir.is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.