Fréttir - Eyjafréttir - 13.07.2016, Side 1
Eyjafréttir
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
jói og Einsi
sáttir mEð Em
tímamót
í samgöngum >> 10
Varð læknir
En Ekki bílstjóri >> 12 >> 13
Vestmannaeyjum 13. júlí 2016 :: 43. árg. :: 28. tbl. :: Verð kr. 490 :: Sími 481-1300 :: www.eyjafrettir.is
Það eru aðeins sextán dagar í
stærstu helgi ársins í Vestmanna-
eyjum, Þjóðhátíð 2016. Mikil
umræða hefur skapast í kringum
hátíðina eins og gerist á hverju ári
og fólk er byrjað að undirbúa sig
og læra þjóðhátíðarlagið sem
hefur fengið frábærar móttökur.
Hörður Orri Grettisson sem á sæti í
þjóðhátíðanefnd sagði í samtali við
Eyjafréttir að undirbúningur gengi
vel. Aðspurður um miðasölu og hvort
ævintýri íslenska landsliðsins, aðrir
tónleikar og viðburðir séu að hafa
áhrif þar á sagði Hörður: „Miðasalan
gengur mjög vel og allir aðrir
viðburðir sem hafa verið í gangi hjá
Íslendingum virðast ekki hafa áhrif á
Þjóðhátíð. Uppselt er til Eyja á
föstudegi með Herjólfi og lítið er
eftir af miðum með Herjólfi til Eyja á
sunnudeginum en ennþá eru til miðar
með Viking Tours til Eyja á föstudeg-
inum.“
Hörður Orri er virkilega ánægður
með þjóðhátíðarlagið, Ástin á sér
stað með Hjómsveitinni Albatros og
það eru Sverrir Bergmann og Friðrik
Dór sem syngja. Segir Hörður að
langt sé síðan undirtektir hafa verið
svona góðar hjá fólki.
Undirbúningur gengur yfir höfuð
mjög vel að mati Harðar Orra.
„Það eru ekki miklar áherslubreyt-
ingar í skipulagi þjóðhátíðar, en fyrir
hverja einustu hátíð er farið yfir það
sem betur má fara og unnið er eftir
ábendingum og öðru hvað varðar til
dæmis gæslu, myndavélar og fleira“.
Heimasíða þjóðhátíðar, dalurinn.is
hefur að geyma ýmsar upplýsingar
og þar á meðal þessar,
• Á vegum þjóðhátíðarnefndar eru
um 100 gæslumenn að störfum
þegar álagið er mest.
• Í þeim hópi eru 3 bráðatæknar og 3
neyðarflutningamenn sem hafa til
umráða 2 fullbúna sjúkrabíla.
• Sjúkraflutningamaður er alltaf
reiðubúinn á sérútbúnu sexhjóli
með börum.
• Í gæsluliði þjóðhátíðarnefndar
undanfarin ár hafa verið um 14
lögreglumenn og 2 hjúkrunar-
fræðingar.
• Læknir er á vöktum allar nætur í
Herjólfsdal.
• Sjúkraskýli, þar sem læknis-
þjónusta er veitt, stendur 233 metra
frá Brekkusviðinu.
• Yfirmaður sálgæslu á þjóðhátíð er
doktor í sálfræði.
• Í Herjólfsdal eru rúmlega 10
eftirlitsmyndavélar sem vakta
svæðið 24 tíma á sólarhring og
geyma upptökur.
Á samfélagsmiðlunum hefur umræða
átt sér stað um stöðu kvenna sem
koma fram á hátíðinni og við því
sagði Hörður: „Þetta er umræða sem
kemur upp fyrir hverja hátíð og er
afar sérstök. Við setjumst alls ekki
niður og sniðgöngum einhverja,
hvorki konur né karla. Við reynum að
velja það sem er vinsælast á hverju
ári og skiptir þá engu hvort um sé að
ræða karla eða konur,“ sagði Hörður
Orri að lokum.
Sara Sjöfn GrettiSdóttir
sarasjofn@eyjafrettir.is
Þjóðhátíð nálgast óðum :: Miðasalan gengur mjög vel:
Sniðgöngum enga,
hvorki konur né karla
:: segir Hörður Orri í þjóðhátíðarnefnd
Margrét Björk Grétarsdóttir hlaut titilinn Sumarstúlka Vestmannaeyja á laugardaginn. Allt um Sumarstúlkukeppnina í máli og myndum á bls. 8.