Fréttir - Eyjafréttir - 13.07.2016, Page 8
8 Eyjafréttir / Miðvikudagur 13. júlí 2016
Sumarstúlka Vestmannaeyja
árið 2016 var haldin með pompi
og prakt í þrítugasta skipti á
laugardagskvöld. Keppnin var
öll hin glæsilegasta og sjá mátti
að stúlkurnar höfðu lagt mikla
vinnu á sig undanfarnar vikur.
Alls tóku fjórtán stúlkur þátt í
keppninni sem var öll hin
glæsilegasta. Margrét Júlía
Ingimarsdóttir var kosin vinsæl-
asta stúlkan en stelpurnar kjósa
sjálfar vinsælustu stúlkuna.
Sigþóra Önnudóttir er ljós-
myndafyrirsætan, Díana Helga
Guðjónsdóttir var valin sport-
stúlkan, Jenný Jóhannsdóttir
hlaut titilinn bjartasta brosið og
Margrét Björk Grétarsdóttir er
sumarstúlka Vestmannaeyja
árið 2016.
Eyjafréttir, Höllin og Einsi Kaldi
bera hitann og þungann af keppn-
inni í ár. Súsanna Georgsdóttir er
framkvæmdastjóri keppninnar og er
hennar framlag alveg til fyrir-
myndar eins og kvöldið sjálft bar
merki um. Hafdís Snorradóttir var
veislustjór kvöldsins hún er enginn
nýgræðingur á þeirri braut og kann
að fá fólk til að hlæja. En eins og
veislustjórinn sagði þá var kokkur-
inn búinn að æfa sig vel fyrir
kvöldið, en hann hefur dvalið með
íslenska landsliðinu undanfarið og
var því vel tilbúinn eins og áður að
elda ofan í mannskapinn sem hann
gerði vel eins og honum er lagið.
Kvöldið alveg til fyrirmyndar
Mikið var lagt í keppnina sem var
öll hin glæsilegasta og geta Súsanna
og stelpurnar fjórtán verið stoltar. Í
opnunaratriðinu sýndu stúlkurnar
dansatriði sem gaf góðan tón fyrir
kvöldið og það sem koma skyldi.
Því næst tók hvert atriði við af öðru.
Krakkar úr Grunnskóla Vestmanna-
eyja sem Súsanna kennir, sýndu
dans, Sara Reene Griffin kom og
söng tvö lög sem hún gerði
frábærlega, þvílík söngkona þar á
ferð.
Sumarstúlkurnar geisluðu af
öryggi og útgeislun í tískusýning-
unni frá Sölku og 66°norður þar
sem þær sýndu brot af sumartísk-
unni í fatnaði og útivistarfatnaði
sem er virkilega flott.
Skvísubúðin var með tískusýningu
fyrir 35+ og börn og sýndar voru
myndir úr óvissuferð sumarstúlkn-
anna. Næst tók við kynning á
stúlkunum sem komu fram í sínum
eigin kjólum, Hafdís leyfði
áhorfendum að kynnast stelpunum
betur og sýndar voru myndir úr
þeirra lífi. Að henni lokinni dró
dómnefnd sig í hlé og átti hún
vandasamt val fyrir höndum. Í
dómnefnd sátu, Sara Sjöfn
Grettisdóttir, Annika Vignisdóttir,
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, Hafdís
Ástþórsdóttir og Birgir Nielsen. Á
meðan beðið var eftir niðurstöðum
hennar fóru á svið kærustuparið
Elías Fannar Stefnisson og Kristín
Inga Jónsdóttir sem tóku nokkur lög
og skemmtu gestum. Því næst var
komið að stóru stundinni, Margrét
Björk, Jenný, Díana Helga, Sigþóra
og Margrét Júlía voru allar vel að
titlum sínum komnar. En allar
stúlkurnar fjórtán voru glæsilegar.
Margir komu að keppninni og
verðlaunin glæsileg
Stúlkurnar sem titil hljóta fá allar
að gjöf mjög veglega tösku með
Nivea húð- og hársnyrtivörum frá
Bajerstorf, fæðubótarefni og
sólarvörn frá Artasan, Max factor
snyrtivörur frá Medico, gjafaöskju
frá Ölgerðinni, gjafabréf frá Joy,
gjafabréf frá Slippnum, Skin
Iceland húvörur frá Aróma,
gjafabréf frá 900 Grillhús, gjafa-
öskju frá Snyrtihofinu, skart frá
Skvísubúðinni og gjafabréf á
Subway.
Vinsælustu stúlkuna velja stelpurn-
ar sjálfar og fær hún að auki,
förðunarvörur frá NN Cosmetic,
púða frá Nostra, hárbursta frá B
prow.is, gjafabréf frá Vöruhúsinu
og gjafakörfu frá Heildverslun
Karls Kristmannssonar.
Ljósmyndafyrirsætan
Ljósmyndafyrirsætan er sú stúlka
sem myndast best að mati dómara.
Auk þess kemur ljósmyndari að vali
hennar. Ljósmyndafyrirsæta fær auk
þeirra gjafa sem allir verðlauna-
hafar fá, Canon 600D myndavél frá
Geisla, nærfatasett frá Eyjavík, ferð
fyrir 2 fram og til baka með
Herjólfi, hárbursti og facion fix
hársnyrtivörur frá B prow.is,
förðunarvörur frá NN Cosmetic
gjafabréf frá Smart og gjafabréf frá
Tanganum.
Sportstúlkan
Sportstúlkan er meðal annast valin
út frá tískusýningunni frá 66°norð-
ur. Hún er valin eftir útgeislun,
hvernig hún ber fötin og framkomu.
Sportstúlkan fær auk gjafanna sem
allir verðlaunahafar fá, peysu og
líkamsræktarkort frá Hressó,
gjafabréf á Gott, gjafabréf frá Axel
Ó, hárbursta og facion fix hársnyrti-
vörur frá B prow.is, förðunarvörur
frá NN cosmetic og gjafaöskju frá
Activ.
Bjartasta brosið
Bjartasta brosið er stelpan sem
dómnefnd fannst bera mesta
útgeislun og er með bjartasta
brosið. Verðlaun hennar eru auk
gjafanna sem allir verðlaunahafar
fá, ferðataska frá Eymundsson, ferð
fyrir 2 fram og til baka með
Herjólfi, gjafabréf frá Einsa Kalda,
förðunarvörur frá NN cosmetic,
púða frá Nostra, gjafabréf frá
Sölku, hárbursta og Blond tríó frá B
prow.is.
Sumarstúlkan
Sumarstúlkan er sú stúlka sem
dómnefnd finnst bera af í heildina.
Sumarstúlkan fær auk gjafanna
sem allir verðlaunahafar fá, kjól frá
Berglindi Ómars fatahönnuði,
gjafabréf með morgunverði fyrir 2 á
Hótel Selfoss, flug frá Flugfélaginu
Erni, sléttujárn og hárbursta frá B
Prow.is, ferð fyrir 2 fram og til baka
með Herjólfi, gjafabréf frá Einsa
Kalda, gjafabréf frá Apótekaranum,
gjafabréf frá Axel Ó, förðunar- og
burstasett frá NN Cosmetic, húfu og
vettlinga eftir Siggu Ingu frá
Nostru, gjafakörfu frá Heildverslun
Kalla Kriss og gjafabréf frá Sölku.
Frábært starf og mörgum
að þakka
Eins og áður hefur komið fram eru
margir sem koma að svona keppni
og flestir sem gefa vinnu sína og
allar gjafirnar.
„Ég vil koma á framfæri innilegustu
þökkum til allra sem studdu
keppnina með einum eða öðrum
hætti. Það er ekkert sjálfgefið að
fólk sé tilbúið að leggja þessu lið,“
sagði Súsanna Georgsdóttir,
framkvæmdastjóri Sumarstúlku-
keppninnar að henni lokinni.
„Gjafirnar sem stúlkurnar fengu
voru mjög myndarlegar og flottar.
Þeir sem hjálpuðu okkur við
frábæra óvissuferð eiga líka skilið
þakklæti. Eins Bjarni Þór ljósmynd-
ari, stelpurnar á Dízó, María og
Henrétta sem sáu um snyrtingu,
Einsi Kaldi og hans fólk, skemmti-
kraftar og síðast en ekki síst
Sumarstúlkurnar 14 sem stóðu sig
allar frábærlega.“
Margét Björk Grétarsdóttir
Sumarstúlkan 2016
:: Margrét Júlía Ingimarsdóttir vinsælasta stúlkan :: Sigþóra Önnudóttir ljósmyndafyrir-
sætan :: Díana Helga Guðjónsdóttir sportstúlkan :: Jenný Jóhannsdóttir bjartasta brosið
Sara Sjöfn GrettiSdóttir
sarasjofn@eyjafrettir.is