Fréttir - Eyjafréttir - 13.07.2016, Blaðsíða 11
11Eyjafréttir / Miðvikudagur 13. júlí 2016
„Ég vil fyrir hönd Kvenfélagsins
Líknar bjóða ykkur velkomnar til
Vestmannaeyja og vonast til að þið
munuð eiga hér góðan tíma á
fallegu eyjunni okkar sem hefur
uppá svo ótal margt að bjóða. Það
er gaman að vera kvenfélagskona
og fá svona skemmtilegt verkefni,
að taka á móti kvenfélagskonum af
öllum Norðurlöndunum. Líknar-
konur hafa lagt hug sinn og hjarta í
að taka vel á móti ykkur svo að
dvölin verði ykkur sem ánægju-
legust.
Það er ekki langur tími sem þið
stoppið en það er von mín að kynni
ykkar af Vestmannaeyjum muni
leiða ykkur hingað aftur og þá
kannski með fjölskyldu eða vinum.
Hér er svo sannarlega margs að
njóta og þið eruð ávallt velkomnar
aftur,“ sagði Edda Ólafsdóttir
formaður Líknar þegar hún tók á
móti 110 norrænum konum sem
tóku þátt í Norrænu sumarþingi
kvenfélaga innan Nordens Kvinne-
förbund, NKF, sem haldið var í
Vestmannaeyjum dagana 17. til 19.
júní sl.
Eyjarnar allar og hafið umhverfis
var vettvangur fundarins en
hefðbundin fundastörf og fyrir-
lestrar fóru fram í AKÓGES
salnum. Fundargestir komu til Eyja
á föstudeginum í sól og blíðu.
Líknarkonur höfðu veg og vanda að
skipulagningu og framkvæmd
þingsins og buðu þær þingfulltrúum
m.a. í kvöldmat í Líknarhúsinu.
Konurnar fóru í bátsferð umhverfis
Vestmannaeyjar. Skoðuðu hella,
fuglalíf og fuglabjörg og komu við í
Klettshelli. Farin var skoðunar- og
fræðsluferð í rútu sem hófst með
hádegisverði hjá Grími kokki í
Skátaskálanum. Síðan er farið um
magnaða náttúru Vestmannaeyja og
áhrifarík saga eyjanna sögð. Litið
var við í Eldheimum og ferðinni
lauk með móttöku bæjarstjórnar
Vestmannaeyja í Sagnheimum,
byggðasafni.
Fjölmargir áhugaverðir fyrirlestrar,
tengdir þema þingsins, sem var
Lifað í sátt við náttúruna, voru á
dagskrá þingsins og ályktað var um
aðstæður fæðandi kvenna á
landsbyggðinni.
Guðbjörg Ósk Jónsdóttir fyrr-
verandi formaður Líknar flutti
erindi um það þegar hún flutti með
fjölskyldu sína, fyrirvaralaust, frá
Eyjum þegar eldgos hófst í
Heimaey 23. janúar 1973 og sagði
frá tímunum meðan fjölskyldan
flutti milli staða og bjó m.a. í
hjólhýsi hluta þess tíma sem hún
dvaldi uppi á landi.
Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir
Líknarkona og félagsmálafrömuður
flutti erindi Helgu Hallbergsdóttur
menningamiðlara og safnstjóra og
Hrefnu Valdísar Guðmundsdóttur
þjóðfræðings um líf sex Eyjakvenna
og baráttu þeirra og nána samvinnu
við náttúruna.
Kristín Linda Jónsdóttir, sálfræð-
ingur og ritstjóri fjallaði um
jákvæðan lífsstíl sem færir styrk,
sátt, heilsu og hamingju og gaf
hagnýt ráð tengd efninu.
Þá var sýnd áhugaverð mynd sem
Eva Káradóttir og Margrét Lilja
Magnúsdóttir tóku saman um
aðstæður í Vestmannaeyjum þegar
Kvenfélagið Líkn var stofnað og
um framlag félagsins og áhrif þess
á samfélagið.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir
framkvæmdastjóri afmælisnefndar
100 ára kosningaréttarafmælis
kvenna og fyrrv. þingforseti,
ráðherra og þingmaður sagði í máli
og myndum frá
hvernig kosninga-
réttarafmælis kvenna
á Íslandi var minnst
árið 2015.
Í hátíðarkvöldverði í
Akóges um kvöldið
fóru fram formanna-
skipti þar sem
Kvenfélagasamband
Íslands tók formlega
við formennsku í
NKF. Fráfarandi
formaður, Elisabeth
Rusdahl, lauk miklu lofsorði á alla
framkvæmd þingsins og sagði það
rós í hnappagat Líknarkvenna. Nýr
formaður er Guðrún Þórðardóttir
forseti KÍ sem tók við formennsku
í Nordens Kvinneförbund, NKF, til
næstu fjögurra ára.
Edda formaður Líknar sagði að
konurnar hafi verið ánægðar með
hvernig til tókst. „Þingið tókst
frábærlega vel og fengu Líknar-
konur og allir Eyjamenn mikið hrós
frá konunum fyrir frábærar
móttökur og gott viðmót,“ sagði
Edda.
Áhyggjur af lækkandi
fæðingartíðni
Í ályktun þingsins segir að fæðinga-
tíðni fari lækkandi á Norðurlönd-
unum, þar af leiðir að öldruðum
fjölgar svo að ójafnvægi í aldurs-
dreifingu eykst.
Margir þættir
spila inní þessa
þróun, s.s.
tekjuóöryggi
foreldra og fáar
fæðingadeildir,
sérlega í hinum
dreifðari
byggðum.
Til að sporna við
óheillaþróuninni
telur sumarfundur
NKF að aðstæður
fæðandi kvenna þurfi að bæta og
jafnframt að viðhalda gæðum
þjónustunnar víða í hinum dreifðari
byggðum og þar sem náttúruöflin
geta verið óvægin á Norðurlönd-
unum. Að lifa í sátt við náttúruna
snýst m.a. um að viðhalda byggð
um land allt.
„Það er óásættanlegt að konur
þurfi að dvelja langdvölum fjarri
heimilum sínum meðan þær bíða
fæðingar eða séu sendar milli
sjúkrastofnana, þannig að börn
þeirra fæðist jafnvel í misjöfnum
veðrum úti á þjóðvegum. Slíkt er
bæði áhættusamt og óöruggt fyrir
konur og ófædd börn þeirra,“ segir í
ályktuninni.
Þing haldin á hverju sumri
Norræn þing kvenfélaga eru haldin
á hverju sumri, til skiptis á
Norðurlöndunum og skiptast
kvenfélagasambönd landanna um
að halda þingin. Markmiðið með
þingunum er að efla kynni og miðla
reynslu meðal kvenfélagskvenna á
Norðurlöndunum auk þess að taka
ákvarðanir fyrir félagsheildina.
Allar kvenfélagskonur eru
velkomnar að sækja þingin sem
auglýst eru innan kvenfélaganna og
hjá Kvenfélagasambandí Íslands
sem heldur utanum skráningar til
þáttöku á þingin. Samhliða
þingunum eru haldnir stjórnarfundir
í NKF. Næsta þing NKF verður í
Sandefjord í Noregi í júní 2017.
Vel heppnað norrænt kvenfélagsþing í Vestmanneyjum:
Að lifa í sátt við náttúruna og
viðhalda byggð um land allt
:: Er meðal þess sem kom fram í ályktun NFK :: Með 67.800 konur innan sinna vébanda
ómar GarðarSSon
omar@eyjafrettir.is
Nordens
Kvinne-
forbund
Nordens Kvinneforbund
(NKF) var stofnað árið
1919. Þá undir nafninu
Nordens Husmorforbund.
Nordens Kvinneforbund
samanstendur af Norges
Kvinne- og familieforbund,
Riksförbundet Hem och
Samhälle, Kvenfélagasam-
bandi Íslands, finnsk
sænska Marthaförbundet,
og finnska Marttaliitto.
Samtals eru um 67.800
meðlimir innan vébanda
samtakanna.
Edda Ólafsdóttir formaður Líknar, Elísabeth Rusdalh formaður Norræna kvenfélagasambandsins NKF og
Guðrún Þórðardóttir forseti KÍ og nýr formaður NKF.
Alls mættu til Eyja 110 konur til þátttöku í Norrænu sumarþingi kvenfélaga innan NKF.
Það er óásættanlegt að konur þurfi að
dvelja langdvölum fjarri heimilum sínum
meðan þær bíða fæðingar eða séu sendar
milli sjúkrastofnana, þannig að börn þeirra
fæðist jafnvel í misjöfnum veðrum úti á
þjóðvegum. Slíkt er bæði áhættusamt og
óöruggt fyrir konur og ófædd börn þeirra.
”