Fréttir - Eyjafréttir - 27.07.2016, Qupperneq 27
27Eyjafréttir / Miðvikudagur 27. júlí 2016
Íþróttir
u m S j Ó n :
Guðmundur TÓmaS
SiGFúSSon
gudmundur@eyjafrettir.is
Framundan
Miðvikudagur 27. júlí
Kl. 16:00 ÍBV/Keflavík - HK/
Víkingur
2. flokkur kvenna - bikar -
8-liða úrslit
Fimmtudagur 28. júlí
Kl. 18:00 ÍBV - FH
Borgunarbikar karla - undan-
úrslit
Kl. 18:00 ÍBV/KFS/KFR -
Haukar
2. flokkur karla
Kl. 18:00 KFS - Vængir
Júpíters
3. deild karla
Eyjamenn spiluðu einn sinn
lélegasta leik í langan tíma þegar
liðið sótti Skagann heim á sunnu-
daginn. Frá fyrstu mínútu leit liðið
aldrei út fyrir það að geta skorað.
Garðar Gunnlaugsson hefur verið í
hvílíku formi hjá Skagamönnum og
skoraði með frábæru skoti utan
teigs eftir rétt rúmt korter í leiknum
á móti Eyjamönnum. Ármann
Smári Björnsson tvöfaldaði síðan
forystuna eftir að Eyjamenn
dekkuðu hann illa inni í sínum
vítateig.
Eftir að hafa lent 2:0 undir sýndu
Eyjamenn aldrei vilja til vinna
leikinn. Sóknirnar voru hugmynda-
snauðar og lokasendingar lélegar. Í
liði ÍBV voru tveir af betri leik-
mönnum liðsins, Pablo Punyed og
Sindri Snær Magnússon fjarri góðu
gamni. Það hefði munað um minna
en miðjusvæðið var ekki jafn gott
og það er alla jafna.
Bjarni Jóhannsson var svekktur
eftir leik að hafa ekkert fengið úr
þessum leik. Hann var ekki
ánægður með svæðið sem Garðar
fékk þegar hann skoraði markið.
„Við komum ágætlega inn í
leikinn. Fáum svo á okkur þetta
stórglæsilega mark, svona menn
eiga ekki að vera lausir þarna fyrir
utan. Það var mjög slæmt, síðan
kemur fast leikatriði sem þeir skora
úr. Eftir það fannst mér við ranka
við okkur og seinni hálfleikurinn
var einstefna,“ segir Bjarni en
samkvæmt tölfræði Vísis áttu
Eyjamenn 14 skot gegn 11 hjá
Skagamönnum. Skagamenn hittu
markið þó átta sinnum gegn
einungis fjórum hjá ÍBV.
ÍBV hefur ekki unnið leik í
deildinni síðan 4. júní, er það
áhyggjuefni? „Við erum ekkert
stressaðir, við höfum verið að spila
á móti sterkari liðum seinni partinn
í fyrri umferðinni. Við erum spakir
og erum að hugsa um næsta leik
sem eru fjögurra liða úrslit í
bikarnum. Þetta verður jafnt, það
var jafntefli síðast fyrir viku síðan
og við hljótum að eiga 50%
möguleika á að komast áfram,“
sagði Bjarni.
Guðmundur Steinn til ÍBV
Framherjinn Guðmundur Steinn
Hafsteinsson er kominn til ÍBV en
hann fékk leikheimild í fyrradag
(mánudag). Hann hefur verið að
spila í 3. deild í Noregi en á að baki
leiki hjá nokkrum liðum á Íslandi.
Hann á 47 leiki að baki með Val
þar sem hann skoraði níu mörk. Þá
spilaði hann sex leiki á láni hjá HK
þar sem hann skoraði tvö mörk.
Næst fór hann til Víkings frá
Ólafsvík og spilaði þar tvö tímabil í
fyrstu deildinni og eitt í efstu.
Hann gerði 17 mörk í 41 leik í 1.
deildinni en skoraði einungis eitt
mark í 19 leikjum í Pepsi-deildinni
2013. Þá spilaði hann með Fram
þegar liðið féll úr Pepsi-deildinni
árið 2014, þar gerði hann fimm
mörk í 12 leikjum og var marka-
hæsti leikmaður liðsins.
Búist er við því að Guðmundur
Steinn verði í hópnum þegar ÍBV
mætir FH á morgun, fimmtudag í
undanúrslitum Borgunarbikarsins.
Avni Pepa framlengir við ÍBV
Fyrirliði ÍBV, Avni Pepa, hefur
ákveðið að gera nýjan þriggja ára
samning við ÍBV en hann er að
spila sitt annað tímabil hjá ÍBV eftir
að hann kom frá Noregi. Hann er 27
ára og leikur í stöðu miðvarðar en
hann er í landsliði Kosovó sem er
með Íslandi í riðli í undankeppni
HM 2018.
Í yfirlýsingu frá ÍBV segir að það
séu mikil gleðitíðindi að Avni sé
búinn að framlengja við ÍBV. Þar
segir einnig að liðið sé búið að
tryggja sér samning allra helstu
lykilmanna fyrir næsta tímabil.
Þóra Guðný Arnarsdóttir og Sandra
Erlingsdóttir voru í Svíþjóð í byrjun
mánaðarins þar sem þær tóku þátt í
Opna Evrópska mótinu fyrir hönd
u-18 landsliðsins í handbolta. „Við
lentum í riðli með Svartfjallalandi,
Sviss, Noregi og Rúmeníu, en
spilaðir voru tveir leikir á dag fyrstu
tvo dagana,“ segir Þóra Guðný.
Seinni þrjá dagana var umspil
gegn Slóvakíu, Georgíu og
Færeyjum. „Við lentum í 13. sæti á
mótinu eftir þrjá sigra, eitt jafntefli
og þrjá tapleiki. Ferðin var
ógleymanleg enda alltaf skemmti-
legt með þessum stelpum og
frábæru þjálfarateymi. Í lok
ferðarinnar var komið að því að
kveðja þjálfara okkar til fjögurra
ára, þá Jón Gunnlaug Viggóson og
Halldór Stefán Halldórsson. Þrátt
fyrir að það sé aldrei auðvelt að
kveðja vitum við að það er einhvað
nýtt og skemmtilegt sem tekur við.
Við viljum þakka nokkrum
fyrirtækjum sérstaklega fyrir
frábæran stuðning í landsliðsverk-
efnum okkar til þessa, án þeirra
hefði verið mjög strembið að fara í
þetta verkefni, og verkefnið í
Póllandi í desember sl. þar sem það
var mjög stutt á milli verkefna.
Fyrirtækin eru: Vinnslustöðin,
Vélaverkstæðið Þór, Eyjablikk,
Salka, Geisli, Bergur Huginn, Ós,
Langa, Godthaab í nöf, Ísfélagið,
Póley, Hótel Vestmannaeyjar,
Bergur ehf og síðast en ekki síst
viljum við þakka Íþróttabandalagi
Vestmannaeyja.
Handbolti |
þóra
Guðný og
Sandra
þakka
stuðn-
inginn
Knattspyrna | Pepsídeild karla :: ÍA 2:0 ÍBV:
Grátlega lélegt hjá Eyja-
mönnum á Skaganum
Stelpurnar okkar í meistaraflokki
kvenna tryggðu sér sæti í
úrslitum Borgunarbikarsins með
sigri á Þór/KA fyrir norðan á
laugardaginn. Stuttu áður hafði
liðið tapað fyrir Þór/KA fyrir
norðan 2:0 en þar var Cloe
Lacasse hvíld akkúrat fyrir
þennan leik.
ÍBV virkaði sterkara liðið nánast
allan leikinn, sótti meira og var
meira með boltann. Völlurinn var
blautur og virtust stelpurnar vera
ákveðnari en heimakonur. Þegar
líða fór á leikinn herti ÍBV tökin og
virtust vera með yfirhöndina. Í
framlengingunni tók ÍBV svo öll
völd á vellinum.
Heimakonur virtust vera algjörlega
búnar á því en Cloe Lacasse var
síðan ferskust allra í framlenging-
unni. Hún fékk dauðafæri í byrjun
framlengingar þar sem hún hefði
getað fengið vítaspyrnu en fékk
ekki. Cloe átti stuttu seinna skot í
stöngina eftir að hún fór framhjá
markverði heimakvenna.
Enn einu sinni átti Cloe sprett upp
kantinn, nú gaf hún út á Rebekah
Bass sem skoraði með frábæru skoti
í fjær hornið. Geggjað mark og
virkilega mikilvægt þar sem
úrslitaleikur var í boði. ÍBV hélt
boltanum vel undir lokin og unnu
stelpurnar verðskuldaðan sigur
miðað við gang framlengingarinnar.
Ánægð með að vera
komin í úrslit
Sóley Guðmundsdóttir, fyrirliði
ÍBV, var að vonum sátt í leikslok og
leyndi ekki gleði sinni í viðtali eftir
leik. „Ég er búin að bíða eftir þessu
síðan ég byrjaði að spila fótbolta,“
sagði Sóley. „Það er loksins komið
að þessu. Þetta var mikill baráttu-
leikur, völlurinn mjög blautur og
því gátum við ekki spilað fallegan
fótbolta. Þetta var þvílík barátta og
við vorum yfir í baráttunni í dag.“
Við vorum með meira á tanknum,
við kláruðum allt sem við áttum.
Það er alltaf gaman að mæta
Blikum og þær eru hörkulið, það
verður jafnmikill baráttuleikur og
núna. Við erum langflestar að fara í
fyrsta skiptið þangað og það verður
bara gaman.“
Ian Jeffs var einnig sáttur en hann
var ánægður með sína ákvörðun að
hvíla Cloe í fyrri hálfleik gegn Þór/
KA fyrir rúmri viku síðan.
„Tilfinningin er mjög góð, þetta var
mjög gaman og jafn leikur. Það var
mikil barátta en ég er virkilega
ánægður að við séum komin í úrslit.
Það gekk illa í upphafi móts og við
erum búin að tapa alltof mörgum
leikjum á heimavelli. Þetta var
okkar markmið, að fara alla leið í
bikarnum,“ sagði Jeffs.
„Við vorum með okkar plan sem
fór út um gluggann þegar við
mættum og völlurinn var á floti.
Það voru margir pollar inni á
vítateig og kantinum, það var erfitt
að spila. Við reyndum að vera
beinskeyttari og komast bakvið þær.
Það var erfitt að spila góðan
fótbolta í svona aðstæðum.
Ég er ánægður með mína ákvörð-
un núna, undanfarna leiki hef ég
verið að hugsa um þennan leik. Ég
hvíldi Cloe í hálfleik þegar ég kom
hingað fyrir fjórum dögum í einn
hálfleik og lét Rebekah spila 60
mínútur tvo leiki í röð. Mér fannst
þetta vera ákvörðun sem lítur vel út
núna. Við áttum meiri kraft í fram-
lengingunni. Cloe var með fulla
hlaupagetu og kraft í dag og þær
réðu illa við hana. Hún stóð sig vel
í dag eins og aðrar sem gáfu allt í
þetta og ég er mjög ánægður með
þetta.“
Úrslitaleikurinn verður föstudag-
inn 12. ágúst en þar mætir liðið eins
og áður segir Breiðablik en það
verður algjör hörkuleikur.
Knattspyrna | Borgunarbikar kvenna :: þór/KA 0:1 ÍBV:
Í úrslit eftir frábæran
sigur í framlengdum leik
FH 12 7 4 1 17 - 7 25
Stjarnan 12 7 2 3 23 - 16 23
Breiðablik 12 7 1 4 15 - 8 22
Fjölnir 12 6 2 4 24 - 16 20
ÍA 12 6 1 5 16 - 18 19
VíkingurR. 12 5 3 4 17 - 12 18
VíkingurÓ. 12 5 3 4 16 - 18 18
Valur 12 4 3 5 18 - 15 15
ÍBV 12 4 2 6 12 - 14 14
KR 12 3 4 5 12 - 13 13
Fylkir 12 2 2 8 11 - 21 8
Þróttur R. 12 2 1 9 9 - 32 7
Pepsídeild karla
Stelpurnar léku með armbönd Bleika fílsins fyrir norðan.