Fréttir - Eyjafréttir - 27.07.2016, Blaðsíða 28
B
ir
ti
st
m
eð
fy
ri
rv
ar
a
um
in
ns
lá
tt
ar
vi
ll
ur
o
g
m
yn
da
br
en
gl
Vikutilboð
S ími 481-1300 : : f re t t i r@ey ja f re t t i r. i s
Eyjafréttir
SuShi frá Osushi
Kemur til okkar föstudaga kl. 17.30
Tökum niður pantanir !
26. til 31. júlí 2016
Það var vel til fundið þegar
nokkrir ættingjar, velunnarar og
vinir Páls Steingrímssonar ákváðu
að gera heimildarmynd um
kappann sem varð 86 ára á
mánudaginn, 25. júlí. Þann dag
var myndin, sem fengið hefur
heitið, Frá Heimaey á heimsenda
frumsýnd í Sagnheimum í
Vestmannaeyjum. Það var vel
mætt á frumsýninguna enda ferill
Páls ótrúlegur og hann vinmarg-
ur. Hann hefur starfað sem
kennari, myndlistarmaður, rak
myndlistarskóla í Eyjum í 17 ár,
heillaðist af ljósmyndun og sneri
sér loks að kvikmyndagerð sem
skilað hefur af sér um 100
kvikmyndum sem flestar eru
heimildarmyndir en líka gerði
hann leiknar myndir.
Vestmannaeyjar, úteyjalíf og hinar
mörgu hliðar náttúrunnar hafa verið
viðfangsefni Páls í kvikmyndagerð-
inni. Hann hefur tylt niður fæti í
öllum heimsálfum í leit sinni að efni
og staðirnir á heimskringlunni sem
hann hefur heimsótt skipta hundr-
uðum.
Það var því úr vöndu að ráða að
klippa niður í klukkutímamynd allt
það efni sem liggur eftir Pál. Þeir
sem komu að gerð myndarinnar eru
Ólafur Ragnar Halldórsson, kvik-
myndagerðamaður og klippari hjá
Kvik ehf., Erpur Snær Hansen,
líffræðingur, Helga Hallbergsdóttir,
forstöðumaður Sagnheima, Helgi
Bragason, lögmaður og frændi Páls,
Kári Bjarnason, forstöðumaður
Safnahúss Vestmannaeyja, Marinó
Sigursteinsson, pípulagningarmeist-
ari, áhugamaður um sögu Vest-
mannaeyja, Páll Magnússon,
fjölmiðlamaður sem tók viðtal við
nafna sinn sem er burðurinn í
myndinni og svo loks meistarinn
sjálfur, Páll Steingrímsson, kvik-
myndagerðamaður.
Myndin er skemmtileg enda ekki
hægt annað því Páll er með skemmti-
legri mönnum en það sem gefur
henni ekki síst gildi er heimildagild-
ið. Eins og myndbrot af úteyjalífi frá
því um miðja síðustu öld. Þeir
bræður, Palli, Svabbi, Gísli og Bragi
Steingríms áttu sitt athvarf í Hellisey.
Þeir hafa verið duglegir að mynda
sjálfa sig og víðar var komið við í
úteyjum. Þessar myndir eru mjög
góðar og gefa okkur innsýn í veröld
sem var.
Sjálfur segir Páll um myndina að
hún segi annars vegar sögu hans og
feril og hinsvegar frá heimahögum
og umhverfinu sem hann ólst upp í.
„Ég er svo heppinn að hafa aðgang
að myndaglefsum þar sem ég er til
sjós 17 ára gamall við lúðuveiðar á
Guðrúnu VE. Eins á ég mikið efni af
nútíma veiðum úr róðrum með bátum
frá Vinnslustöðinni. Ég á eldri og
yngri myndir af staðháttum í Eyjum,
landslag, loftslag og sjólag, einnig
loftmyndir af sömu fyrirbærum.
Veigamestar eru þó myndir mínar af
úteyjalífi, bjargferðum, lundaveiði og
fjárflutningum, iðju sem að hluta er
smátt og smátt að leggjast af. Ég á
gríðarlega merkilegt myndefni frá
Surtsey og hef aðgang að ómetanlegu
efni um Heimaeyjargosið. Ég gerði á
sínum tíma mynd um þjóðhátíð
Vestmannaeyja,“ segir Páll um
ferilinn.
Páll hefur hlotið fjölda verðlauna
fyrir myndir sínar og framlag til
íslenskrar kvikmyndagerðar.
Stórskemmtileg heimildarmynd um Pál Steingrímsson:
Frá Heimaey á
heimsenda
Páll Steingrímsson ásamt bræðrum sínum Svavari og Braga við frumsýninguna á mánudaginn.
ath! Opið aLLa DaGa tiL KL. 21.00
Floridana ávaxtasafar 1ltr
verð nú kr 198,-
verð áður kr 248,-
SS súpukjöt
verð nú kr/kg 798,-
verð áður kr/kg 380,-
Tómatar verð nú kr/kg 598,- áður kr 998,-
Paprikur verð nú kr/kg 598,- áður kr 998,-
Agúrkur verð nú kr/stk. 145,- áður kr 198,-
Kartöflur verð nú kr/kg 448,-
Lífrænar rófur / Lifrænar gulrætur
Lífrænt blómkál / Lífrænt spergilkál
Maryland kex
verð nú kr 95,-
verð áður kr 198,-
Búrfells skinka
verð nú kr 380,-
verð áður kr 460,-
Nýtt íslenskt
grænmeti
beint frá býli !
Gleðilega Þjóðhátíð
LuNdi bæði nýr og reyktur