Fréttir - Eyjafréttir - 31.08.2016, Síða 4
4 Eyjafréttir / Miðvikudagur 31. ágúst 2016
AA fundir
eru haldnir sem hér segir
að Heimagötu 24:
Mánudagur: kl.20.30
Miðvikudagur: kl.20.30
Fimmtudagur: kl.20.30
Föstudagur: kl.23.30
Laugardagur: kl.20.30 opinn fundur
Sunnudagur: kl.11.00
Athugið, allir fundir reyklausir
Móttaka nýliða hálfri klst.
fyrir hvern auglýstan fundartíma.
Ath.símatíma okkar, sem eru hvern dag,
hefjast 30 mín. fyrir ákveðinn
fundartíma og eru 2 klst. í senn.
Sími 481 1140
>> Smáauglýsingar
Matgæðingur vikunnar
Landakirkja
Fimmtudagur1. september:
Kl. 20.00
Æfing Kórs Landakirkju.
Sunnudagur 4. september
Kl. 11.00
Kveðjumessa sr. Kristjáns Björns-
sonar. Kór Landakirkju syngur
undir stjórn Kitty Kovács. Sóknar-
nefnd Landakirkju býður kirkju-
gestum að þiggja kirkjukaffi að
lokinni athöfn.
Þriðjudagur 6. september
Kl. 10.00 Kaffistofan.
Kl. 20.00 Fyrsta samvera Kven-
félags Landakirkju þennan veturinn.
Miðvikudagur
Kl. 10.00 Bænahópurinn góði
kemur saman eftir frí.
Kl. 17:30 Kyrrðarbænin.
Kl. 20.00 Fyrsti Aglow-fundur
vetrarins.
Hvítasunnu-
kirkjan
Dagana 1. - 4. september 2016
Fimmtudagur kl. 20:00
Bænastund.
Sunnudagur kl. 13:00
Samkoma, gestirnir Lena Løebner,
Miriam Sloth og Snorri í Betel.
Lena spilar og syngur af nýjum
geisladisk. Lena er dönsk en fædd í
Tansaníu og ferðast mikið um til að
syngja. Kaffi og notalegt spjall á
eftir.
Allir hjartanlega velkomnir.
Kirkjur bæjarins:
Aðvent-
kirkjan
Laugardagur
Kl. 12:00 Samvera.
Allir velkomnir.
Eyjamaður vikunnar
golfið ekki bundið við aldur, mikil fjöl-
breytni og maður er ekki bara að keppa
við mótherjann heldur líka við sjálfan sig
rúnar gauti gunnarsson er
efnilegur golfari sem á framtíðina
fyrir sér. Hann var efstur af öllum í
Vestmannaeyjum í Ecco mótaröðinni
sem er frábær árangur. rúnar gauti
er Eyjamaður vikunnar.
Nafn: Rúnar Gauti Gunnarsson.
Fæddur: 28.12 2002.
Fæðingarstaður: Reykjavík, því
miður....
Fjölskylda: Gunnar Friðfinnsson er
pabbi minn, Betsý Ágústsdóttir er
mamma mín og svo á ég eina
systur, Jennu.
Vinna: Vann á golfvellinum í
sumar.
Aðaláhugamál: Golf, Rubik's
kubbar, snóker og borðtennis.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera: Að vera í golfi.
Uppáhalds matur: Fahitas og
pizzur.
Versti matur: Súr hákarl.
Uppáhalds tónlist tónlist: Öll
tónlist nema lagið úr teiknimynd-
inni Kúlugúbbarnir.
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á: Vestmannaeyjar eru alltaf
fallegar en La Galiana golfvöllurinn
á Spáni er mjög fallegur.
Uppáhalds íþróttamaður og
félag: Ronnie O'Sullivan og ÍBV.
Uppáhalds sjónvarpsefni: Snóker
og golf S.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
lesa: Spennusögur, svo hef ég lesið
nokkrar Útkalls bækur og finnst þær
áhugaverðar.
Hvað ertu búinn að æfa lengi
golf? Átta ár.
Hvað finnst þér skemmtilegast við
golfið? Félagsskapurinn og
útiveran. Golfið er ekki bundið við
aldur, fjölbreytni og maður er ekki
bara að keppa við mótherjann
heldur líka við sjálfan sig.
Hvet alla til að prófa golfið!
Gómsætur kjúklingur
2-4 kjúklingabringur
1 rauð paprika
1 rauðlaukur
1 bbq sósa
1 blár doritos
1 poki rifinn ostur
1stk sýrður rjómi
1stk mild salsa sósa.
Skerðu kjúklinginn niður í bita,
hitaðu hann á pönnu þar til að hann
er ekki lengur hrár. Saxaðu niður
laukinn og paprikuna smátt.
Settu kjúklinginn, paprikuna og
laukinn saman í eldfast mót, stráðu
vel af bbq sósunni yfir og blandaðu
þessu vel saman, síðan mylurðu
niður doritosið og stráir því yfir, því
næst setur þú ostinn yfir. Þetta inn í
ofn þar til osturinn bráðnar, berð
þetta fram með sýrðum rjóma og
salsa.
Eftirréttur
Döðlugott m/ lakkrís
500 g döðlur saxaðar smátt
250 g smjör
120 g púðursykur
5-6 bollar rice crispies
400 g rjómasúkkulaði
2 pokar lakkrískurl.
Aðferð:
Döðlur og smjör brætt saman í
potti. Púðursykurinn er bræddur
með þangað til döðlurnar eru orðnar
mjúkar. Blandið Rice crispies og
lakkrískurli saman við og setjið í
form í frysti í 10 mín. Bræðið
súkkulaðið yfir vatnsbaði. Hellið
yfir rice crispiesblönduna og frystið
í u.þ.b. 30 mín.
skora á stóra bróður minn, hann
aron Huga Helgason, undur og
stórmerki verða til þegar hann fer í
eldhúsið og matreiðir. Trúi ekki öðru
en að hann komið með skothelt
plan.
gómsætur kjúklingur og
Döðlugott
sr. Kristján kveður á sunnudag
Arney Lind Helgadóttir
er matgæðingur vikunnar
ÍBÚÐ TIL LEIGU
3ja herbergja íbúð að Heiðarvegi 3
(efri hæð). Laus strax.
Upplýsingar veitir Jón Ingi í
s. 896-3426.
-------------------------------------------
Eyjafréttir vilja eindregið hvetja
brúðhjón til að senda inn mynd
til birtingar sem og foreldra
nýrra Eyjamanna.
Myndir og upplýsingar sendist á
frettir@eyjafrettir.is
Börn og brúðhjón
Rúnar Gauti Gunnarsson
er Eyjamaður vikunnar
Sr. Kristján Björnsson sóknar-
prestur okkar Eyjamanna til
margra ára syngur kveðjumessu
sína nk. sunnudag, 4. septem-
ber kl. 11:00 í Landakirkju. Kór
Landakirkju syngur undir stjórn
okkar færa organista, Kitty
Kovács.
Sr. Kristján var skipaður sóknar-
prestur í Vestmannaeyjum hinn 1.
september árið 1998. Hann fór svo í
leyfi frá Landakirkju 1. júlí 2016 til
þess að sinna afleysingum í
Eyrarbakkaprestakalli og hafði þá
starfað sem sóknarprestur í
Vestmannaeyjum í rétt tæp 18 ár.
Þegar staða sóknarprests í Eyrar-
bakkaprestakalli var svo auglýst til
umsóknar í mars sl. hreppti Kristján
embættið.
Starfsfólk og sóknarnefnd Landa-
kirkju vill óska Kristjáni áframhald-
andi góðs gengis á nýjum stað og
þakkar góðar stundir í gegnum árin.
Sóknarnefnd Landakirkju býður
kirkjugestum til kirkjukaffis að
lokinni athöfn.