Fréttir - Eyjafréttir - 31.08.2016, Page 12
2 TAflfélAg VeSTmAnnAeyjA 90 árA
lengsta
skák á
skákþingi
Lengsta skák sem tefld hefur
verið á Skákþingi Íslands frá
upphafi var viðureign þeirra jóns
Garðars Viðarssonar skákmeist-
ara (2335 stig) og jóhanns
Hjartarsonar, stórmeistara (2585
stig) í 3ju umferð á Skákþingi
Íslands sem fram fór í félags-
heimilinu Ásgarði i Eyjum 23.
ágúst til 3. sept. 1994. Skákin fór
margoft í bið var tefld til þrautar
og lauk með jafntefli eftir 183
leiki ! Í mótslok voru þeir jóhann
Hjartarson, Helgi Ólafsson og
Hannes Hlífar Stefánsson
stórmeistarar allir með 8,5 vinn.
af 11 mögulegum. Þurfti því
útkljá mótið með aukakeppni
milli þeirra þriggja og fór hún
fram í fundarsal Sparisjóðs Vm. í
október sama ár. Tefld var tvöföld
umferð og fór svo að lokum að
jóhann Hjartarson stóð uppi
sem sigurvegari. Þess má geta að
jóhann Hjartarson er einnig
Skákmeistari Íslands 2016.
Fyrr á þessu ári var leitað til
Gunnars júlíussonar, Eyjamanns,
grafísks hönnunar hjá Dynamit í
Reykjavík um að gera tillögur að
félagsmerki TV. Gunnar var með
listsýningu á goslokum 2015 í
húsnæði félagsins við Heiðarveg.
Gunnari er margt til lista lagt og
gerði hann meðal annars í
framhaldinu mynd af Helga
Ólafssyni , stórmeistara, Eyja-
manns og var myndinni komið
fyrir í húsnæði TV. Gunnar lagði
fram nokkrar hugmyndir að
félagsmerki og afmælismerki TV.
Farið var yfir tillögur Gunnars og
ein þeirra samþykkt og prýðir nú
blaðið ásamt 90 ára afmælismerki
TV. Gunnar færði TV merkin að
gjöf, en þess má geta að Magnús
Bergsson, bakarameistari í Tungu
við Heimagötu sem sat í fyrstu
stjórn TV fyrir 90 árum var afi
Gunnars júlíussonar ( Magnússon-
ar) TV færir Gunnari júlíussyni
þakkir fyrir höfðinglega gjöf og
velvild í garð félagsins.
Á árunum 2004 og allt til 2012
stóð yfir mikið blómaskeið í skák í
Vestmannaeyjum. Að mati
undirritaðs hófst það allt haustið
2003 þegar ákveðið var að efna til
öflugs skákmóts, sem sniðið væri
fyrir skólakrakka og fékk nafnið
Skákævintýri í Eyjum og efnt var til
í fyrsta skipti vorið 2004 og
endurtekið enn stærra ári seinna.
Það sem gerðist í framhaldi af
þessu var ævintýri líkast og átti sér
nokkrar forsendur. Í fyrsta lagi var
þó nokkur fjöldi krakka að tefla í
félaginu á þessum tíma og voru
þau sífellt að bæta sig. Í öðru lagi
var forystusveit félagsins afar
áhugasöm, formaður var Magnús
Matthíasson og aðrir sem komu að
þessari sömu framtíðarsýn voru
þeir Sverrir Unnarsson og undir-
ritaður. Ekki má gleyma því að
félagið átti marga mjög öfluga
fylgismenn, bæði skákmenn og
aðra í bænum og má þar nefna
Sigurjón Þorkelsson, Stefán
Gíslason‚ Ólaf Tý Guðjónsson og
Guðjón Hjörleifsson. Þá voru þeir
Helgi Ólafsson og Björn Ívar
Karlsson félagsmenn í félaginu og
studdu dyggilega við bakið á
starfinu. Í þriðja lagi voru fyrirtæki í
Eyjum þess albúin að styðja við
vaxandi starfsemi og má þar nefna
Ísfélagið, Vinnslustöðina, Glófaxa,
Huginn og Vestmannaeyjabæ.
Framtíðarsýnin var skýr, við
skyldum eignast skákkrakka sem
gæfu krökkum á landsvísu ekkert
eftir. Til þess þurfti að feta ákveðin
stíg, þar sem feta þurfti eftir
mörgum vörðum. Á sama tíma eða
haustið 2004 festi félagið kaup á
húsnæði undir starfsemina að
Heiðarvegi 9A og er þar enn með
aðstöðu rúmum áratug síðar.
Húsnæðið tryggði félaginu
ákveðið sjálfstæði til skipulagn-
ingar á starfsemi sinni sem kom
sér vel og oft var fullt út að dyrum í
Skáksetrinu og í góðum veðrum
var teflt úti á gangstéttinni fyrir
framan.
Ýmislegt var gert til
að fjölga krökkum í
félaginu og var efnt til alls kyns
uppákoma, svo sem sunnudags-
móta sem reyndar áttu sér lengri
sögu, deildakeppni krakka,
skákmaraþons, stúlknakákmót,
skipulagðar hópferðir upp á land
til þátttöku á mótum, þar sem
gleði og samstaða var snar þáttur í
ferðalaginu.
skákstarfið
Þá ákvað stjórn að vinna markvisst
að því að finna mótherja við hæfi
hverju sinni og þegar ljóst var að
sveit okkar bestu krakka var við
það að skipa sér í fremstu röð á
islandsmóti barnaskólasveita var
efnt til vinaskákmóts við öflugasta
skólann á þeim tíma, Salaskóla,
bæði í Kópavogi og í Eyjum.
Ungum skákmönnum var boðið að
taka þátt í kappskákum með þeim
fullorðnu í félaginu og efldust þeir
gífurlega við það að etja kappi við
sér eldri og reyndari skákmenn og
áunnu sér á unga aldri skákstig,
sem á þeim tíma var fremur
sjaldgæft á landsvísu. Þá tók
félagið á hverju vori og hausti þátt
í deildakeppni Skáksambandsins,
en mest vorum við með 5 sveitir í
þeirri keppni og eitt sinn vorum
við með sveitir í öllum 4 deildum
keppninnar. Þar fengu ungir
krakkar úr Eyjum tækifæri til að
etja kappi við öfluga skákmenn
alls staðar af að landinu. Ekki þarf
að tíunda hversu geysiöflug A sveit
félagsins var á þessum tíma og
ávallt í toppslagnum, náðu
verðlaunasæti ár eftir ár, en aldrei
lönduðum við titlinum sjálfum.
Sveitin hlaut silfurverðlaun alls 5
sinnum 2003, 2006, 2007, 2010 og
2011 oftast undir stjórn hins
geðþekka liðsstjóra Þorsteins
Þorsteinssonar. Félagið hafði á að
skipa fjölmörgum erlendum
stórmeisturum í þessum rimmum
og öflugu íslensku stórmeistarap-
ari með Helga Ólafssyni og Henrik
Danielsen.
Ýmislegt var gert til að efla
áhugann, nokkrum sinnum stóð
félagið fyrir útgáfu á blaðinu
Skákeyjunni, þar sem starfsemin
var kynnt bæjarbúum og var slík
útgáfa alger nýlunda, þar sem
athyglinni var fyrst og fremst beint
að skákbörnum.
Í Eyjum voru haldin fjölmörg
skákmót fyrir utan þau sem nefnd
hafa verið, þ.á.m. Íslandsmót barna,
unglingameistaramót Íslands,
norðurlandamót barnaskólasveita,
Sparisjóðsmótin, Vinnslustöðvar-
mótin, Volcano mót á gamlársdag
og hið víðfræga jólaskákmót sem
er eina skákmótið á landinu sem
haldið er á jóladag.
áranGurinn
Með þrotlausri vinnu í barnastarf-
inu fór árangurinn brátt að koma í
ljós og fyrsti titillinn kom í janúar
2005 þegar Nökkvi Sverrisson var
Íslandsmeistari barna. Titlunum
átti eftir að fjölga og tveimur árum
síðar vann Kristófer Gautason
sama titill og endurtók það svo
fyrstur allra árið eftir. Árið 2006
vann sveit frá Eyjum íslandsmót
barnaskólasveita og yngri drengir
endurtóku það afrek svo árið eftir.
Keppendur frá Eyjum fóru á erlend
skákmót, þrisvar sinnum tóku
sveitir héðan þátt í Norðurlanda-
móti barnaskólasveita og náðu þar
tvisvar í silfurverðlaun. Tvisvar
sinnum tókum við þátt í Evrópu-
móti barnaskólasveita og náði
sveit Eyjamanna 5. sæti á EM árið
2006 og á norðurlandamótunum í
skólaskák sem haldið er til skiptist
á norðurlöndunum áttum við á
árunum 2007-2014 nær árlega
keppendur, en þrír einstaklingar
fóru á þau mót; Nökkvi Sverrisson
(tvisvar 3 sæti) og Kristófer
Gautason fóru á nokkur slík mót
og Róbert Aron Eysteinsson einu
sinni. Þá tók Kristófer þátt í
heimsmeistaramótinu 2009 í
Tyrklandi.
Afrek skákkrakka í Vestmanna-
eyjum á þessum árum byggðust
ekki bara upp í kringum einn eða
tvo krakka, heldur voru hér á
tímabili vel á annan tug skák-
krakka sem gátu skákað hverjum
jafnaldra sem var á landinu. Fyrir
utan þessa þrjá ofangreindu má
hér nafngreina eftir aldri þau
Ágúst Sölva Hreggviðsson, Bjart Tý
Ólafsson, Alexander Gautason,
Sindra Frey Guðjónsson, Hallgrím
júlíusson, Daða Stein jónsson, Val
Marvin Pálsson, Sindra jóhanns-
son, Baldur Haraldsson, Nökkva
Dan Elliðason, Ársæl Guðjónsson,
jörgen Frey Ólafsson, Sigurð Arnar
Magnússon, Hafdísi Magnúsdóttur,
Eyþór Daða Kjartansson og
Guðlaug Gísla Guðmundsson.
lokaorð
Lærdómurinn af þessu þessum
mikla árangri sem náðist í þessu
afskekkta bæjarfélagi er fyrst og
fremst sá að allt er hægt ef viljinn
er fyrir hendi. Með mikilli vinnu,
samstarfi og stuðningi margra er
unnt að ná gífurlegum árangri á
ekki stærri stað en í Vestmanna-
eyjum. Virkja þarf þann meðbyr
sem menn sjá oft í smærri afrekum
eða hæfileikum sem sýna sig,
byggja upp í kringum hið smáa og
láta gleðina fleyta mönnum áfram
til stærri sigra og uppbyggingar.
Lengi lifi Taflfélag Vestmannaeyja.
blómaskeið taflfélagsins 2004-2012
Útgefandi Eyjasýn fyrir hönd Taflfélags Vm. | Ritnefnd Arnar Sigurmundsson, ábm. og Karl Gauti Hjaltason | Umbrot Eyjasýn ehf. | Prentun Landsprent ehf.
9 0 á r A A F M æ L i S B L A ð TA F L F é L AG S V E S T M A N N A E y j A | D R E i F T M E ð E y j A F R é T T U M 3 1 . Á G ú S T 2 0 1 6
Karl gauti Hjaltason
fyrrv. formaður TV
nýtt félagsmerki taflfélags Vestmannaeyja
frá afhendingu málverksins af Helga Ólafssyni í skákheimilinu vorið 2016. frá vinstri Þórarinn Ingi
Ólafsson, Sigurjón Þorkelsson, gunnar júlíusson , Karl gauti Hjaltason og Arnar Sigurmundsson.
Stúlknaskákmót haustið 2008 í skákheimili TV við Heiðarveg