Fréttir - Eyjafréttir - 31.08.2016, Blaðsíða 21
17Eyjafréttir / Miðvikudagur 31. ágúst 2016
Fab Lab eða stafræn smiðja
snýst um að hvetja einstaklinga
og frumkvöðla til að láta
hugmyndir sínar verða að
veruleika, skapa tækifæri til
vinnu við frumgerðasmíð og
vöruþróun með því að bjóða
upp á aðgang að stafrænum
framleiðslutækjum og búnaði af
ýmsum toga, en aðstæðan er
mjög flott í Fab Lab, allt frá
saumavél upp í miklu flóknari
tæki eins og þrívíddaprentara.
Hugmyndin að Fab Lab kemur frá
þekktum uppfinninga- og vísinda-
manni, Neil Gershenfeld prófessor.
Hugmynd hans var einföld, að
bjóða upp á umhverfi, færni,
háþróaða tækni og efni til að búa til
hluti, á einfaldan og hagkvæman
hátt hvar sem er í heiminum. Einnig
að þessi möguleiki væri öllum
aðgengilegur.
Nú í dag eru Fab Lab verksmiðj-
urnar orðnar um 700 talsins og eru
staðsettar víða um heiminn. En sex
Fab Lab verksmiðjur eru á Íslandi.
Samstarfið er mikið á milli
verksmiðja og var Frosti Gíslason
verkefnastjóri Lab Lab í Vest-
mannaeyjum nýkominn frá Kína af
Fab Lab ráðstefnu þegar blaðamað-
ur fór að heimsótti smiðjuna.
Gott samstarf við Framhalds-
skólann í Vestmannaeyjum
Fab Lab í Vestmannaeyjum hefur
verið starfrækt síðan 2008. Núna
hefur smiðjan aðstöðu í Framhalds-
skólanun, en hún fluttist þangað í
fyrra haust. Flutningurinn var mikil-
vægt skref í átt að sköpun í námi.
Breytingar í atvinnulífinu kalla á
breytingar í menntamálum og
hvernig þjálfa megi hæfni sem
nauðsynleg er á 21. öld í Fab Lab
og samræmist markmiðum
aðalnámskráa fyrir leik- grunn- og
framhaldsskóla.
Það hefur þegar verið tekið upp á að
bjóða krökkum frá sjöunda bekk og
upp úr að kynnast smiðjunni og
læra á hana í gegnum skólann sinn.
Frosti Gíslason verkefnastjóri sagði
að aðstæðurnar eftir komu þeirra
upp í Framhaldsskóla væru mjög
góðar. „Það hefur gengið mjög vel
og samstarfið við skólann er mjög
gott. Einnig erum við alltaf að fá
fleiri og fleiri nemendur sem eru að
koma og nýta sér aðstöðuna, hvort
sem það er á þeirra eigin tíma eins
og í frímínutum eða í eyðum í
stundatöflu og svo erum við einnig
með formlega kennslu.“
En hvað er verið að kenna í
fab Lab?
„núna erum við að kenna fab
Lab, stafræna framleiðslutækni
sem er valáfangi og virki lega
vinsæll meðal nemenda, l ist ir
og menning sem er partur af
skylduáföngum og svo er
frumkvöðlafræðin þar sem
nemendur taka þátt í nýsköp-
unarkeppni framhalddsskólanna
og munu gera það næsta vor.“
Sjöundi bekkur í Grunnskólanum
er svo í svokölluðum lotum þar sem
Fab Lab er komið inn. „Það sem
flestir þekkja sem handvinnu og
smíði er nú orðið, handavinna,
smíði og Fab Lab. Þannig að allir
krakkar í sjöunda bekk fá að
kynnast Fab Lab sem er okkar
ávinningur seinna meir. Krakkar í
áttunda til níunda bekk hafa svo val
um að taka Fab Lab tvær annir á
þeim tíma. Þetta hefur sýnt okkur
að krakkar sem hafa komið til okkar
í grunnskóla eru að velja áfanga hjá
okkur þegar komið er í framhalds-
skóla og eru þar af leiðandi komnir
með ágætan grunn fyrir því sem
koma skal og gera þar með erfiðari
og flóknari hluti sem gerir þau bara
enn þá betur tilbúin fyrir atvinnu-
markaðinn.“
Ávinningur út í lífið
Frosti segir að Fab Lab opni nýjar
víddir fyrir nemendur sem hafa
jafnvel ákveðið að fara bara
bóklegu leiðina í skólagöngu sinni.
„Krakkarnir læra að koma hugmynd
í framkvæmd alveg frá kroti og
blaði í tilbúna vöru eða hvað eina
annað sem það er og afla sér þá
reynslu og þekkingu í leiðinni. Eins
og til dæmis að gera mistök, það er
mjög góð reynsla að hafa gert
mistök og lært svo eitthvað af
þeim.“
Ávinningurinn er eflandi fyrir
krakka sem hafa farið í Fab Lab
sagði Frosti. „Við höfum séð að
krakkar sem hafa verið í Fab Lab
taka með sér verklag og þekkingu
frá okkur sem þau nýta í áframhald-
andi námi eða fara með inn í
fyrirtækin sem þau fara að vinna
hjá. Hafa stundum komið og unnið
hluti hjá okkur fyrir fyrirtækin sem
þau starfa hjá. Betra var að vinna í
einhverju tækjanna okkar heldur en
í höndunum.“
Aðstaðan er til staðar fyrir
alla
Í Fab Lab eru krakkar að byrja
ellefu til tólf ára að læra og hanna
hugmynd í hugbúnaði sem er unnið
við úti á vinnumarkaðnum, einnig
læra þau ákveðið verklag og aga í
Fab Lab. „Þegar líða tekur á önnina
og allir eru komnir á fullt í sín
verkefni er andrúmsloftið hérna
eins og á venjulegum vinnustað.
Það eru allir að sinna sínu verkefni
og sinni stöð, ekkert vesen,
reyndustu kennarar sem ég þekki
vilja meina að agavandamál séu
ekki til í Fab Lab,“ sagði Frosti.
Aðspurður sagði Frosti að Fab Lab
væri opið öllum. „Hér aðstoðum
við sem dæmi frumkvöðla og
fyrirtæki til þess að koma hug-
myndum sínum í framkvæmd.
Einnig einstaklinga sem vilja
framkvæma ákveðna hluti, þá er
aðstaðan opin þeim en hlutirnir eru
samt sem áður undir einstaklingn-
um komnir,“ sagði Frosti að
endingu.
:: Fab lab passar vel við aðra starfsemi Framhaldsskólans ::
Opnar nýjar víddir fyrir
nemendur óháð öðru námi
:: Framkvæmd frá kroti :: Þekking og reynsla :: Mistök til að læra ::
Þegar blaðamann bar að garði voru krakkarnir að vinna við að útfæra hönnun sína í viðeigandi forritum. Sem sagt hönnunarvinna á byrjunarstigi.
SARA Sjöfn GRETTiSdÓTTiR
sarasjofn@eyjafrettir.is