Fréttir - Eyjafréttir - 31.08.2016, Qupperneq 24
B
ir
ti
st
m
eð
fy
ri
rv
ar
a
um
in
ns
lá
tt
ar
vi
ll
ur
o
g
m
yn
da
br
en
gl
Opið Mán-fös kl. 7.30-19.00 / Lau. kl. 10-19 / Sun kl. 11-19
Vikutilboð
31.ágúst til 6.september 2016
SuShi frá osushi
Kemur til okkar föstudaga kl. 17.30
Tökum niður pantanir !
S ími 481-1300 : : f re t t i r@ey ja f re t t i r. i s
Eyjafréttir
Vestmannaeyjahlaupið er á
laugardaginn næstkomandi. Það
er von þeirra sem standa að
hlaupinu að sem flestir taki þátt.
Það kostar aðeins 1000 kr. að
vera með og rennur allur ágóði
óskiptur til góðgerðamála í
Vestmannaeyjum. Það má
hlaupa, ganga, keppast við tíma
eða bara njóta. Aðalatriðið er að
vera með. Upplýsingar og
skráning er á vestmannaeyja-
hlaup.is. Vestmannaeyjahlaupið
fór fyrst fram árið 2011 og hefur
fest sig í sessi sem eitt af athyglis-
verðari hlaupum hér á landi.
Betsý Ágústsdóttir, starfsmaður
Íslandsbanka ætlar að mæta núna,
eins og hún hefur gert í flestum
Vestmannaeyjahlaupunum.
Hversu oft hefur þú farið í Vest-
mannaeyjahlaupið? -Öll skiptin nema
eitt, fjögur til fimm skipti og alltaf
fimm kílómetra.
Ertu vanur hlaupari? -Nei, ég get
ekki sagt það. Ég tók eitt sumarið þar
sem ég æfði reglulega fyrir hlaupið
en ég hef ekki gert það í sumar.
Hvað stefnir þú á að fara marga
kílómetra í ár? -Ég skráði mig í tíu
núna en ég sé þetta bara fyrir mér
sem göngu og skokk og njóta þess að
vera með.
Stefnir þú á einhvern sérstakan tíma?
-Ég er ekki að fara að slá nein met,
bara taka góðan göngutúr og klára
þetta. Fyrst og fremst að styrkja góð
málefni.
Hvað þarf að hafa í huga í hlaupi sem
þessu? Jákvætt hugarfar og hafa
gaman. Það skemmir ekki fyrir að
vera í góðu formi.
Einhver skilaboð til þeirra sem veigra
sér við að taka þátt? Bara drífa sig,
það er mjög einfalt að skrá sig. Ég
tala nú ekki um ef Herjólfur er að
bjóða frítt á milli lands og Eyja að
fólk ofan af landi skreppi í dagsferð.
Eins og ég segi þá þarf þetta ekki að
vera keppni heldur bara að vera með,
það er mikilvægast að vera með.
Ólöf Ragnarsdóttir, sem einnig
vinnur í Íslandsbanka ætlar ekki að
láta sig vanta þegar ræst verður í
Vestmannaeyjahlaupið á laugardag-
inn.
Hversu oft hefur þú farið í Vest-
mannaeyjahlaupið? -Ég hef farið
tvisvar áður.
Ertu vanur hlaupari? -Get ekki alveg
sagt það en ég hef verið að hlaupa
markvisst síðan í janúar og svo fór ég
21 kílómetra í Reykjavíkurmaraþon-
inu.
Hvað stefnir þú á að fara marga
kílómetra í ár? -Ég ætla tíu núna.
Stefnir þú á einhvern sérstakan tíma?
-Í kringum 60 mínútur en þetta er
öðruvísi hringur og erfið braut.
Hvað þarf að hafa í huga í hlaupi sem
þessu? -Númer eitt, tvö og þrjú er að
fara ekki of hratt af stað.
Einhver skilaboð til þeirra sem veigra
sér við að taka þátt? -Ég hvet alla til
að skrá sig, maður þarf alls ekki að
vera vanur hlaupari, það geta allir
skokkað eða gengið. Ég skora
sérstaklega á Anton Bjarnason að
taka þátt í hlaupinu en það er hægt að
gera eins og hann, borga bara gjaldið
eða borga tvöfalt eins og hann ætlar
að gera, og styrkja þar af leiðandi
góðan málstað.
:: Vestmannaeyjahlaupið 2016 :: Betsý og Ólöf láta sig
ekki vanta ::
Stefna ekki á að
slá met en gott að
styrkja góð málefni
Ólöf Ragnarsdóttir Betsý Ágústsdóttir
Nivea spray, 150ml
Wild Flower
Key to love
verð nú kr 368,-
verð áður kr 698,-
Nivea invisible
rollon, 25ml
verð nú kr 199,-
verð áður kr 398,-
MS Hleðsla
6x250ml
verð nú kr 998,-
verð áður kr 1498,-
Brink hrískökur
m/súkkulaði
verð nú kr 198,-
verð áður kr 248,-
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum hafnaði í gær kröfu
Brims hf. um að setja lögbann á hluthafafund í Vinnslu-
stöðinni hf. (VSV) sem boðað er til í dag. Jafnframt var
kröfu Brims um að Vinnslustöðinni væri gert að greiða
málskostnað hafnað. Það er því ekki annað að sjá en að
fundurinn verði á áður auglýstum tíma, klukkan 11.00 í
dag.
Það var á mánudaginn sl. sem Brim hf., eigandi tæplega
33% í VSV fór fram á lögbann á að hluthafafundinn þar
sem kjósa á félaginu nýja stjórn. Upphafið er deila um
stjórnarkjör á aðalfundi VSV 6. júlí sl. Fundarstjóri
úrskurðaði þá að stjórnarkjörið væri ólögmætt þegar í ljós
kom að ekki höfðu öll atkvæði í fundarsal skilað sér til
talningar og að störfum talningarnefndar aðalfundar hefði
ekki verið lokið. Hann lét endurtaka kosninguna með
nýjum kjörseðlum. Sjá nánar á Eyjafréttir.is
Sýslumaður hafnar kröfu um
lögbann á aðalfund