Fréttir - Eyjafréttir - 21.09.2016, Qupperneq 1
Eyjafréttir
Helga klár í slaginní baráttu við kerfið >>11 >> 8 >> 10
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
blóð, sviti og tár
Vestmannaeyjum 21. september 2016 :: 43. árg. :: 38. tbl. :: Verð kr. 490 :: Sími 481-1300 :: www.eyjafrettir.is
Ómar GarðarSSon
omar@eyjafrettir.is
Karlalið ÍBV mætti Breiðabliki í
Kópavogi á mánudag eftir að hafa
ferðast með Lóðsinum til Land-
eyjahafnar. Bæði lið þurftu nauðsyn-
lega á stigum að halda, Breiðablik í
baráttunni um Evrópusæti og
mögulega Íslandsmeistaratitil og ÍBV
á hinum enda deildarinnar í
fallbaráttu.
Hafsteinn Briem, miðvörður
Eyjamanna, kom ÍBV yfir á 38.
mínútur leiksins þegar hann stangaði
hornspyrnu Jóns Ingasonar í netið,
spurning hvort reynsluboltinn
Gunnleifur Gunnleifsson hefði getað
gert betur.
Eyjamenn fóru sáttir inn í hálfleik-
inn með eins marks forystu en hún
dugði skammt því Höskuldur
Gunnlaugsson jafnaði metin fyrir
Breiðablik í upphafi síðari hálfleiks.
Höskuldur var þá einn og óvaldaður
inni í teig Eyjamanna og skoraði af
stuttu færi, góð innkoma hjá honum
en hann hafði einungis verið inná
vellinum í þrjár mínútur.
Fleiri mörk voru ekki skoruð í
leiknum og niðurstaðan jafntefli.
Breiðablik gat þar með ekki náð FH
sem urðu í kjölfarið Íslandsmeistarar
annað árið í röð og í áttunda skiptið á
þrettán árum. ÍBV heldur 10. sætinu
með eins stigs forskot á Fylki í 11.
sæti þegar tvær umferðir eru eftir.
Næsti leikur ÍBV er gegn Val í
Eyjum sunnudaginn 25. september
en á sama tíma mun Fylkir mæta
Þrótti R. sem er í neðsta sæti
deildarinnar.
:: Pepsi-deild karla :: Breiðablik 1:1 ÍBV ::
Ekki tókst að hrista af sér fall-
drauginn en þó spor í rétta átt
Alls bárust tólf tilboð í smíði og
rekstur á nýrri Vestmannaeyjaferju og
átti norska fyrirtækið Moskenes-
straumen AS lægsta tilboð í smíði og
rekstur nýrrar ferju. Var það langt
undir kostnaðaráætlun. Lægsta boð
eingöngu í smíði ferjunnar átti
Nantong Rainbow Offshore and
Egineering frá Kína en litlu munaði á
því tilboði og boði frá Fiskerstrand
Verft AS frá Noregi. Tilboðin voru
opnuð hjá Ríkiskaupum í síðustu
viku.
Þetta kemur fram á vef Vegagerðar-
innar en útboðið var tvíþætt, bjóða
mátti í annarsvegar nýsmíði ferjunnar
og hinsvegar í einkaframkvæmd þar
sem boðið var í smíði ferjunnar og
rekstur í tólf ár.
Í smíði ferjunnar bárust alls tólf
tilboð en kostnaðaráætlun hljóðaði
upp á 27,5 milljónir evra eða ríflega
3,5 milljarða íslenskra króna. Lægst
boð kom frá Nantong Rainbow
Offshore and Egineering frá Kína
upp á 21.420.000 evrur, eða 2,764
milljarðar íslenskra króna. Næst-
lægsta boð átti Fiskerstrand Verft AS
frá Noregi upp á 21.850.000 evrur
eða 2,819 milljarðar.
Lægsta boð í smíði og rekstur
ferjunnar átti norska fyrirtækið
Moskenesstraumen AS og hljóðaði
það upp á 7,14 milljarða íslenskra
króna en kostnaðaráætlun nam
rúmum 13,22 milljörðum króna.
Næstlægst bauð Eimskip Ísland ehf.,
og Sæferðir ehf. en það boð hljóðaði
upp á rúmar 8,12 milljarða íslenskra
króna.
Farið verður yfir tilboðin og þau
borin saman eftir ákveðnum reglum
hvort sé hagstæðara að smíða ferjuna
eingöngu eða taka tilboði í einka-
framkvæmd, þ.e.a.s. smíði og rekstur
ferjunnar. Farið verður yfir hvort
tilboðin eru gild sem og mat á
skipasmíðastöðinni. Einnig þarf að
taka með í reikninginn fjarlægðarálag
vegna nýsmíðinnar sem gert verður í
samræmi við útboðsskilmála.
:: Nantong Rainbow
Offshore and Egineering
með lægsta boð í smíði
eingöngu ::
:: Tilboð í rekstur og smíði
nýrrar Vestmannaeyja-
ferju opnuð ::
Moskenesstrau-
men AS með
lægsta boð í
smíði og rekstur
sem er langt
undir kostnaðar-
áætlun
Mynd: Hafliði Breiðfjörð
Hafsteinn Briem fagnar hér marki sínu gegn Breiðablik í síðasta leik ÍBV.