Fréttir - Eyjafréttir - 05.10.2016, Blaðsíða 1
cLOE OG ARON BEST
FRÁ AXLARSTEINI OG
NIÐUR Í FJÖRU
EyJAhJARTAÐ hENNAR
hILdAR OddGEIRS >> 8 >> 12 >> 14
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Eyjafréttir
Vestmannaeyjum 5. október 2016 :: 43. árg. :: 40. tbl. :: Verð kr. 490 :: Sími 481-1300 :: www.eyjafrettir.is
Fulltrúar frá Vegagerðinni og
Ríkiskaupa halda til Noregs á
morgun til viðræðna við Fiskerstrand
Verft AS, sem átti lægsta boð í smíði
og rekstur Vestmannaeyjaferju. Í
smíði ferjunnar bárust alls tólf tilboð
en kostnaðaráætlun hljóðaði upp á
27,5 milljónir evra eða ríflega 3,5
milljarða íslenskra króna.
Lægsta boð kom frá Nantong
Rainbow Offshore and Egineering
frá Kína upp á 21.420.000 evrur eða
2,7 milljarða króna og næstlægsta
boð átti Fiskerstrand Verft AS frá
Noregi upp á 21.850.000 evrur sem
gera 2,8 milljarða í íslenskum
krónum.
„Það hefur verið unnið hratt og vel
og fljótlega lá fyrir áreiðanleikakönn-
un á þeim fyrirtækjum sem buðu í
verkið. Það kom í ljós að lægsta
tilboð Kínverjanna stóðst ekki kröfur
útboðsgagna,“ sagði Andrés Þ.
Sigurðsson, lóðs í Vestmannaeyjum
sem á sæti í smíðanefndinni.
„Ríkiskaup og Vegagerð eru með
þetta á sinni könnu núna og fara
fulltrúar Vegargerðar og Ríkiskaupa
út á morgun til að ræða við Norð-
mennina. Það er allt á fullum
snúningi en allt er þetta enn á
frumstigi. Þetta norska fyrirtæki
hefur góða reynslu í smíði ferja og
var með lægsta gilda tilboðið þannig
að það lá beinast við að tala við þá
fyrst. Ef ekkert óvænt kemur í ljós,
þá sjáum við ekki annað en að ný
ferja fari að sigla á milli lands og
Eyja sumarið 2018 eins og ráð er
fyrir gert,“ sagði Andrés.
Ferjan á að vera um 70 metra löng,
14 metra breið, geta flutt allt að 73
fólksbíla og allt að 540 farþega og
vera með djúpristu um 2,8 m. Til
samanburðar þá getur Herjólfur flutt
innan við 56 bifreiða, allt að 525
farþega og er með djúpristu 4,2 m.
Nýja ferjan skal vera með tveimur
Azipull skrúfum sem gefur henni
mikla stjórnhæfni við erfiðar
aðstæður.
Gangi allt eftir siglir ný ferja milli
lands og Eyja sumarið 2018
:: Hafa góða reynslu í smíði ferja og voru með lægsta gilda tilboðið,“ sagði
Andrés fulltrúi í smíðanefnd ::
Ómar GarðarSSon
omar@eyjafrettir.is
Nýr prestur í Vestmannaeyjum, Viðar Stefánsson þjónaði í sinni fyrstu messu í Landakirkju á sunnudaginn. Hér er hann með Guðmundi Erni Jónssyni
sóknarpresti sem prédikaði.
:: Fulltrúar Ríkiskaupa og Vegagerðar til viðræðna við Norðmenn ::