Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 12.10.2016, Blaðsíða 18

Fréttir - Eyjafréttir - 12.10.2016, Blaðsíða 18
18 Eyjafréttir / Miðvikudagur 12. október 2016 Í kjölfar breytinga á knattspyrnu- ráði karla hjá ÍBV þá hef ég fengið upplýsingar um ákveðnar sögur sem eru tengdar við mig vegna brotthvarfs Bjarna Jóhannssonar sem þjálfara ÍBV. Í ljósi þess að knattspyrnutíma- bilinu er lokið þá er mér það ljúft og skylt að upplýsa stuðn- ingsmenn um það hvernig brotthvarf hans bar að, miðað við þær upplýsingar sem ég hef. Föstudaginn 19. ágúst sl. baðst Bjarni Jóh. lausnar í kjölfar ósigurs liðsins gegn Fylki kvöldinu áður. Ég sjálfur var staddur erlendis og þeir sem funduðu með Bjarna voru formaður og framkvæmdastjóri ráðsins. Þær upplýsingar sem formaður og framkvæmdastjóri tilgreindu við ráðið í heild sinni voru að Bjarni taldi sig hafa misst traust leikmanna liðsins og kominn á endastöð með liðið. Sú yfirlýsing sem var send út á sínum tíma var samin af formanni, framkvæmdastjóra og Bjarna sjálfum. Orðið við óskum um upp- lýsingar Í kjölfarið var kallað mikið eftir frekari upplýsingum um brotthvarf hans og m.a. boðaði ráðið til opins fundar í Týsheimilinu þar sem farið var yfir málið í heild sinni. Þar upplýsti ráðið málið frá sinni hlið og þar var ítrekað að ekkert óeðlilegt hefði komið uppá í samstarfi ráðsins og Bjarna. Því hafi brotthvarf Bjarna komið ráðinu algerlega í opna skjöldu. Í tengslum við brotthvarf Bjarna virðast hafa sprottið upp illar sögur frá hendi Gróu á Leiti. Þær sögur beindust að einhverju leyti gegn mér bæði sem ráðsmanni og sem föður eins leikmanns í liðinu. Það sem mér hefur verið sagt er annars vegar að ég hafi ekki tekið þátt í undirbúningi bikarúrslitaleiksins gegn Val þar sem sonur minn væri ekki í byrjunarliðinu, og hins vegar hafi ég rekið Bjarna af einhverjum óljósum ástæðum sem tengdust mér. Ræddi aldrei við Bjarna um son minn Varðandi samskipti mín og Bjarna frá því að hann var ráðinn og þar til hann hvarf á braut, þá voru þau mjög góð og tengdust aðallega samskiptum á æfingum og á reglulegum fundum ráðsins og framkvæmdastjóra með þjálfurum liðsins. Ég ræddi aldrei við Bjarna um son minn sem leikmann hjá honum og það vita þeir sem þekkja til að það hef ég aldrei gert við einn einasta þjálfara sem hefur verið hjá ÍBV. Meira að segja ræddi ég aldrei mál sonar míns við sjálfan mig þann tíma sem ég var tímabundið þjálfari liðsins tímabilið 2015. Í þeim leikjum sem ég stýrði var sonur minn aldrei í byrjunarliði og ástæðan skýr, hann var á þeim tíma ekki nægjanlega sterkur til að vera í byrjunarliðinu. Hann breytti því svo sjálfur þegar nýr þjálfari tók við liðinu. Því hefur verið haldið fram að ég hafi reynt að hafa áhrif á val þjálfara með tilliti til sonar míns. Slíkt gerði ég aldrei. Varðandi slíkar ávirðingar þá segir það meira til um þjálfara liðs, ef viðkomandi þjálfari lætur slíkan þrýsting hafa áhrif á liðsval sitt. En ef slíkt er reynt, er mikilvægt að því sé komið til skila innan stjórnar hið allra fyrsta. Má í þessu ljósi nefna að Jón Rúnar Halldórsson hefur verið formaður hjá FH um mjög langt skeið og sonur hans Jón Ragnar spilað lengi með FH á sama tíma. Það að faðir leikmanns sé ráðs- maður er því nokkuð sem er engan veginn nýtt af nálinni. Bikarleikurinn undirbúinn Síðustu samskipti mín og Bjarna voru fimmtudaginn 4. ágúst á fundi sem við áttum með honum varðandi deildarleik gegn Víkingi Ólafsvík á sunnudegi og svo bikarúrslitaleik- inn helgina á eftir. Varðandi undirbúning fyrir bikarúrslitaleikinn þá var aðkoma mín að þeim leik mikil. Liðið tryggði sér sæti þar gegn FH á fimmtudegi fyrir Þjóðhátíð. Ég lagði strax til að það yrði fundað um undirbúning bikarúrslitaleiksins á laugardegi/sunnudegi. Það náðist á sunnudeginum og þar vorum við einungis þrír sem mættum ég, Óskar Jósúa og Daddi diskó. Þar lögðum við línurnar fyrir þær tvær vikur sem voru í sjálfan stóra leikinn og alla fyrri vikuna var ég ásamt fleirum að vinna í að fá styrki o.fl. fyrir leikinn sem og önnur mál er sneru að liðinu vegna þess leiks og annarra leikja. Laugardaginn 6. ágúst hélt liðið vestur vegna útileiks gegn Víkingi Ólafsvík. Sunnudaginn 7. ágúst fór ég sjálfur með fjölskyldu minni í sumarfrí til Alicante sem var pantað í febrúar, og var því ekki með liðinu í útileiknum gegn Víkingi. Alla þá viku var ég daglega í sambandi við framkvæmdastjóra og ráðsmenn vegna verkefna sem þurfti að leysa af hendi vegna bikarúrslitaleiksins. Fimmtudaginn 11. ágúst flaug ég úr sumarfríi mínu frá Alicante til Íslands til að vinna í undirbúningi bikarúrslitaleiksins hjá karlaliðinu sem og að sjá bikarúrslitaleik kvenna. Á föstudeginum kl. 13.00 hittumst framkvæmdastjóri og nokkrir ráðsmenn í húsakynnum KSÍ til að vinna í lokaundirbúningi leiksins. Sú vinna var í gangi fram að bikarúrslitaleik kvenna um kvöldið. Á laugardagsmorgni kl. 9.00 hófst vinnan á ný og stóð alveg fram að leik, og svo hélt vinnan áfram eftir leikinn við að ganga frá ýmsum verkum á vegum ÍBV. Ég sjálfur var á staðnum og vann verkin allan þann tíma sem skipulagður var og það getur Óskar Jósúa staðfest. Formaðurinn óskaði eftir fundi Sunnudaginn 14. ágúst hélt ég svo til baka til Alicante í mitt sumarfrí með fjölskyldu minni. Næsta verkefni liðsins var fimmtudaginn 18. ágúst í heimaleik gegn Fylki. Eftir þann leik fékk ég hringingu frá Óskari Erni formanni þar sem hann vildi að ráðið myndi funda um stöðu liðsins. Ég var sammála á þeim tímapunkti og vildi að menn myndu setjast niður með þjálfurum liðsins daginn eftir til að fara yfir stöðuna og reyna að finna hvaða leið væri hægt að fara til að breyta gengi liðsins. Í mínum huga var mun betra að menn svæfu á málunum og kæmu svo saman daginn eftir til að ræða málin. Formaður og framkvæmda- stjóri boðuðu Bjarna á fund daginn eftir og planið var að ég og Daddi diskó, sem einnig var staddur erlendis, yrðum í símasambandi inn á fundinn. Þetta getur Óskar Jósúa staðfest. Til þessa kom aldrei þar sem Bjarni sagði upp strax á föstudags- morgninum og hvernig það gekk fyrir sig eru einungis formaður og framkvæmdastjóri til frásagnar um ásamt Bjarna. Lýsing mín hér að framan er nákvæm lýsing á samskiptum mínum og Bjarna Jóh sem og að mín afskipti voru engin af brott- hvarfi Bjarna sem þjálfara liðsins. Ég og Bjarni höfum verið fínir mátar enda eigum við saman góða sögu hjá ÍBV. Bjarna óska ég velfarnaðar í framhaldinu hvar svo sem hann mun bera niður. Legg hug og hjarta í allt fyrir ÍBV Ég vil einnig koma á framfæri að upp kom atvik á meðan ég var í sumarfríi sem varð til þess að ég hringdi í starfsmann félagsins. Því samtali lauk á þeim nótum að við myndum setjast niður og fara yfir málið þegar ég kæmi heim. Það gerðum við og málið var leyst farsællega. Ég hef alltaf í verkum mínum lagt hug og hjarta mitt í verkin fyrir félagið mitt, ÍBV. Það að vera sakaður um það sem Gróa á Leiti hefur verið að segja undanfarnar vikur er lygi. Hvaða aðilar bera ábyrgð á því veit ég ekki en bið þá aðila að hætta slíkum útburði af ósannindum. Það vita þeir sem þekkja mig að ég er ekki að vinna fyrir ÍBV til að þóknast mér sjálfum eða mínum. Ég ber fyrst og fremst hag ÍBV fyrir brjósti og hef mikinn metnað fyrir hönd félagsins míns. Ég hef framtíðarsýn fyrir liðið mitt, vinn eftir þeirri sýn og er tilbúinn að leggja mikið á mig til þess. Ég er stoltur af því sem ég hef lagt fram á þeim tveimur árum sem ég var ráðsmaður í knattspyrnuráði ÍBV. Ég lagði hug og hjarta mitt í verkefnið ásamt miklu magni af klukkustundum í að laga umgjörð liðsins, auka tekjur deildarinnar, ná sterkum leikmönnum til Eyja, verja stöðu ÍBV gagnvart samkeppnisað- ilum og umfram allt að tryggja stöðu liðsins í deild þeirra bestu. Ég þakka félögum mínum í ráðinu, þjálfurum, leikmönnum og framkvæmdastjórum fyrir sam- starfið. ÍBV er og verður alltaf félagið mitt, ég á því mikið að þakka og það mun enginn halda mér frá félaginu. Með vinsemd og virðingu, Ingi Sigurðsson :: Yfirlýsing frá Inga Sigurðssyni :: Illar sögur frá hendi Gróu á Leiti :: Um brotthvarf Bjarna Jóhanns- sonar sem þjálfara ÍBV :: Upplýsingar til stuðningsmanna ÍBV :: Ingi Sigurðsson.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.