Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 02.11.2016, Blaðsíða 2

Fréttir - Eyjafréttir - 02.11.2016, Blaðsíða 2
2 Eyjafréttir / Miðvikudagur 2. nóvember 2016 Útgefandi: Eyjasýn ehf. 480278-0549. Ritstjóri: Ómar Garðarsson - omar@eyjafrettir.is. Blaðamenn: Einar Kristinn Helgason - einarkristinn@eyjafrettir.is Sara Sjöfn Grettisdóttir - sarasjofn@eyjafrettir.is Guðmundur Tómas Sigfússon - gudmundur@eyjafrettir.is Ábyrgðarmaður: Ómar Garðarsson. Prentvinna: Landsprent ehf. ljósmyndir: Óskar Pétur Friðriksson og blaðamenn. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegur 47, Vestmannaeyjum. Símar: 481 1300 og 481 3310. Netfang: frettir@eyjafrettir.is. Veffang: www.eyjafrettir.is Eyjafréttir koma út alla miðvikudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu á Kletti, Tvistinum, Toppn­um,­Vöruval,­Herjólfi,­Flughafnar­versluninni,­ Krónunni, Kjarval og Skýlinu. Eyjafréttir eru prentaðar í 2000 eintökum. Eyjafréttir eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið. Eyjafréttir „Um helgina vann Sjálfstæðis- flokkurinn stóran sigur í kosn- ingunum ef tekið er mið af þeim skoðanakönnunum sem ekki spáðu flokknum svo vel. Það athyglisverðasta við sigurinn er að flokkurinn sigrar í öllum kjördæmum landsins og á því 1. þingmann í hverju kjördæmi. Það er afdráttarlaus niðurstaða og við tökum mark á því þegar þjóðin hefur talað,“ sagði Ásmundur Friðriksson þegar hann var spurður út í úrslit kosninganna á laugardaginn. Hann sagði sigur flokksins í Suðurkjördæmi vera einstaklega glæsilegan og komi í framhaldi af fjölmennasta prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins á landinu þar sem 4015 konur og karlar völdu listanum forystusveit. „Það er líka athyglisvert við prófkjörið að við Páll Magnússon fengum flest atkvæði ef tekin eru öll prófkjörin og raðað eftir fjölda atkvæða í sæti. Það er líka mikið styrkleikamerki og afdráttarlaus niðurstaða Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi og þátttakan og úrslitin ákveðinn vilji fólksins eins og í kosningunum um helgina. Við virðum lýðræðis- legar niðurstöður kosninga.“ Ásmundur sagði að í kosningunum um síðustu helgi hafi Sjálfstæðis- flokkurinn í Suðurkjördæmi sýnt allar sínar bestu hliðar eins og hann þekki þær eftir að hafa tekið þátt í kosningabaráttu flokksins frá árinu 1978. „Ef ég man svo langt aftur? Gamlir kosningasmalar komu og buðu aðstoð og það munar um hvern mann og konu þegar úrslitin ráðast af síðasta atkvæðinu sem sett er í kjörkassann. Það þekkjum við sem aldrei gefumst upp. Ég fann stemninguna fram á síðustu mínútu og ég naut þess að félagar mínir í Eyjum, í Hveragerði, Selfossi og víðar hringdu fram á síðustu stundu til að biðja mig að hringja í fólk sem enn átti eftir að fara á kjörstað. Krafturinn og samheldnin skilaði sér í glæsilegri niðurstöðu.“ Ásmundur sagði samstöðu frambjóðenda líka eitt atriðið sem vert sé að minnast á. „Við öll í fyrstu átta sætunum vorum óskipt í heimsóknum og vinnu um allt kjördæmið síðustu tvær vikurnar og síðustu vikuna gerðum við ekkert annað en að sinna skyldum okkar, hitta fólk, heimsækja fyrirtæki og leggja okkur fram um að vera heildstæður og samtaka listi. Það tókst og það verður að þakka þeim sérstaklega sem skipuðu sæti fimm til átta hvað þau lögðu mikið á sig í vinnu og kostnaði síðustu vikuna fyrir kjördag. Svona samtaka lið með allt baklandið á bak við okkur nær árangri. Það er mörgum að þakka um allt kjördæmið en kosningastjórinn Margrét Rós Ingólfsdóttir fær sérstakar þakkir fyrir dugnað, yfirsýn og faglegt skipulag.“ Ásmundur segir að framundan séu stjórnarmyndunarviðræður og með niðurstöður kosninganna að leiðarljósi sé foseta Íslands ekki fær leið að ganga framhjá Bjarna Benediktssyni formanni Sjálf- stæðisflokksins, sigurvegara kosninganna. „Það verður heldur ekki gengið framhjá fram- bjóðendum í Suðurkjördæmi þegar kemur að útdeilingu embætta, styrkleiki flokksins í kjördæminu krefst þess,“ sagði Ásmundur Friðriksson og bað fyrir þakklæti til allra sem lögðu flokknum lið í kosningunum. :: Ásmundur Friðriksson, annar á lista Sjálfstæðisflokks ánægður með útkomu flokksins :: Stórsigur Sjálfstæðisflokksins og sjálfsagt að hann fái um- boð til stjórnarmyndunar :: Krafturinn og samheldnin skilaði sér í glæsilegri niðurstöðu :: Myndir frá kosningadegi Páll Magnússon með fjölskyldunni, sonurinn Páll, Páll, Hildur og Edda Sif. Tveir gamalreyndir á vinstrikantinum. Ragnar og Einar. Esther, Sigurhanna og Ingunn. Alfreð og Guðrún á kjörstað. Guðrún og Jóna á kosningavöku Sjálfstæðismanna. Sindri og Sæfinna mætt á kjörstað. Kátt á hjalla í kostningakaffi Vinstri grænna. Ágúst Sölvi, Hreggviður, Einar Fidda, Guðrún og Jóhanna. Þær stóðu vaktina á kjörstað. Helga Sigrún, Esther og Fjóla Margrét. Margt var um manninn í kosningakaffi Sjálfstæðismanna á Einsa Kalda.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.