Fréttir - Eyjafréttir - 02.11.2016, Síða 12
12 Eyjafréttir / Miðvikudagur 2. nóvember 2016
„Fjörug, fræðandi og skemmti-
leg leiksýning sem er sérstak-
lega ætluð yngstu áhorfend-
unum og þeim sem eru ungir í
anda.“ Svona hljómar yfirskriftin
á nýju leikriti sem er í sýningu
um þessar mundir í Kópavogi.
Tveir af þremur forsprökkum
sýningarinnar eru Eyjamennirnir
Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson
og Ástþór Ágústsson en með
þeim er Magnús Guðmundsson.
Ástþór Ágústsson útskrifaðist af
European Theatre Arts brautinni við
Rose Bruford College vorið 2007.
Síðan þá hefur hann leikið með
ýmsum leikhópum, bæði í London
og hér heima, helst ber að nefna
Bottlefed, DifferenceEngine,
Spindrift Theatre, auk HalfCut, sem
Ástþór stofnaði ásamt tveimur
öðrum og fékkst við gagnvirkar
sýningar af ýmsum stærðargráðum.
Guðmundur Lúðvík Þorvalds-
son nam leiklist í Los Angeles í
New York Film Academy. Hann
hefur leikið í nokkrum áramóta-
skaupum, í Fangavaktinni og Rétti
2, ásamt þess að leika í nokkrum
bíómyndum. Guðmundur hefur auk
þess leikstýrt nokkrum sýningum
og skrifað fyrir áhugaleikhús. Þá
hefur hann séð um unglinganám-
skeið á vegum Leikfélags Kópavogs
fjórum sinnum. Guðmundur er einn
af stofnendum Leikhópsins Lottu
og lék með þeim í Dýrunum í
Hálsaskógi, Rauðhettu og Hans
klaufa.
Á vefsíðu Leikfélags Kópavogs
segir eftirfarandi um leikritið Leitin
að sumrinu: „Verkið fjallar um Jón
sem þekkir ekki annað en eilíft
sumar. Dag einn fara skrýtnar
persónur að ryðjast inn í líf hans,
hver á fætur annarri og skipta um
árstíðir. Jón er í fyrstu alls ekki
sáttur við þessar breytingar, en lærir
smám saman að hver árstíð hefur
sína kosti og galla. Í sýningunni er
lögð áhersla á að börnin taki þátt
með skemmtilegum hætti og upplifi
þannig leikhúsið á nýjan og
áhugaverðan hátt. Tónlist og öll
leikhljóð eru einnig leikin og
framkvæmd á staðnum, af leikur-
unum sjálfum og ef þannig vill til
með hjálp áhorfenda og verður því
heimur sýningarinnar og upplifunin
enn raunverulegri og skemmtilegri
fyrir vikið.“
Blaðamaður setti sig í samband við
þá Guðmund Lúðvík Þorvaldsson
og Ástþór Ágústsson á dögunum og
spurði þa m.a. út í sýninguna,
framhaldið og stöðu Leikfélags
Vestmannaeyja.
Guðmundur:
Hver var kveikjan að leikritinu?
„Fyrsta hugmyndin kemur fyrir
kannski þremur árum síðan,
líklegast á köldum vetrardegi en ég
gerði ekkert við það þá heldur fór
það í hugmyndabanka sem að ég
reyni að leggja inní, til að geta
skoðað seinna,“ sagði Guðmundur.
„Svo kom það upp í fyrra að vinur
minn hann Hörður formaður
Leikfélags Kópavogs spyr mig
hvort að ég sé ekki til í að gera
barnasýningu og setja hana upp í
leikhúsinu þeirra. Ég fékk Ástþór
með mér og þá fór af stað ferli í að
finna út hvað við vildum gera. Þá
mundi ég eftir þessari hugmynd
minni og dustaði af henni rykið og
við skiptum á milli okkur verkum
við að skrifa en leikritið fjallar um
árstíðaskiptin. Svo seinna fengum
við Magnús Guðmundsson leikara í
lið með okkur og hann bætti upp
það sem okkur vantaði í að gera
þetta að þeirri sýningu sem að þetta
er í dag.“
Hvernig hafa sýningarnar gengið?
„Þegar þetta er skrifað eru tvær
sýningar búnar og þær hafa gengið
glimrandi vel.“
Hafið þið fengið góðar viðtökur?
„Já, mjög góðar, og leikritið er að
virka í mun breiðari aldurshóp
heldur en við þorðum að vona. Þó
að við höfðum skrifað þetta með
yngstu börnin í huga.“
Hvernig er að vera þrír saman í
því að semja, leikstýra og leika?
Koma aldrei upp árekstrar? „Það
eru auðvitað ekki allir alltaf
sammála en við höfum það fyrir
reglu að prófa allar hugmyndir og
þá sjáum við oftast strax hvort
eitthvað virkar eða ekki. Erfiðast
var það var samt að hafa ekki
leikstjóra til að vera með augun í
salnum, en við fengum aðstoð frá
góðu fólki til að koma á nokkrar
æfingar, vera í salnum og gefa
okkur leiðbeiningar og það var
mikil hjálp í því.“
Hvernig lítur framhaldið út?
Einhver verkefni í deiglunni? „Við
ætlum að sýna áfram Leitina að
sumrinu á meðan fólk vill koma og
sjá okkur. Ég er núna með
leiklistarnámskeið fyrir unglinga í
Leikfélagi Kópavogs sem endar
með leiksýningu og svo fer ég á
Sólheima eftir áramót og leikstýri
þar.“
Hvernig finnst þér leiklistin/
leikhúsið í Vestmannaeyjum hafa
þróast undanfarin ár? „Leikfélagið
heima hefur verið að gera góðar og
metnaðarfullar sýningar og það
hefur skilað sér langt að stækka
aðstöðuna og gera upp húsið. Enda
held ég að heimamenn séu almennt
stoltir af Leikfélagi Vestmannaeyja.
Ég vona að bæjaryfirvöld haldi
áfram að styrkja leikfélagið svo
bæjarbúar geti notið þess áfram að
fara í leikhús.“
Er það hamlandi fyrir fólk sem vill
leggja leiklistina fyrir sig að búa í
Vestmannaeyjum? „Það getur verið
það, en það er ekki ómögulegt. Það
er svo margt sem spilar inní. Það
skiptir máli að vera með sterkt
bakland. Það koma hærri laun með
fleiri áhorfendum, og markaðurinn í
Eyjum er ekki mjög stór. Það skipir
miklu máli að vera góður að
markaðasetja sig og sníða sér stakk
eftir vexti.“
Hver er draumurinn þinn sem
leikari? „Minn draumur er að leika
meira, skrifa meira, og leikstýra
meira.“
Ástþór:
Hver var kveikjan að leikritinu?
„Stjórnarmeðlimur úr Leikfélagi
Kópavogs hafði samband við okkur
þar sem þá langaði að nýta húsið á
daginn. Þeir spurðu hvort við
værum ekki til í að setja á svið
barnasýningu og við slógum til.
Eftir nokkra leit að leikriti ákváðum
við að semja það sjálfir,“ sagði
Ástþór.
Hvernig hafa sýningarnar gengið?
„Stórvel, mætingar framar vonum.
Það eru sæti fyrir fimmtíu manns í
húsinu, en við höfum verið að fá
sextíu til sjötíu manns og er verið
að bæta við sýningum eins og
staðan er núna.“
Hvernig er að vera þrír saman í
því að semja, leikstýra og leika?
Koma aldrei upp árekstrar? „Það
er strembið. Það kom fljótlega
þreyta í okkur þar sem það reyndist
erfitt að skipuleggja æfingatíma þar
sem við erum allir í vinnu. Síðan er
heilmikið sem þarf að huga að á
bakvið tjöldin. Þetta náðist allt á
endanum og við erum fegnir að
hafa lagt í þetta.“
Hvernig lítur framhaldið út?
Einhver verkefni í deiglunni? „Ég
hef verið að lesa inn á auglýsingar
fyrir nýja Hard Rock staðinn í
Reykjavík. Það er ekkert gulltryggt
enn þá en ég verð að öllum
líkindum rödd staðarins í fram-
tíðinni. Annað sem er í deiglunni er
áhugamanna leikrit í apríl, eftir
Ágústu Skúladóttur. Þar verða með
mér tveir aðrir Vestmannaeyinga,
þau Sindri Freyr Ragnarsson og
Erna Björk Einarsdóttir.“
Hvernig finnst þér leiklistin/
leikhúsið í Vestmannaeyjum hafa
þróast undanfarin ár? „Það hefur
verið mjög gaman að fylgjast með
Leikfélaginu, því hefur vaxið fiskur
um hrygg. Ég er enginn sérstakur
aðdáandi söngleikja en það sem þau
hafa verið að gera er flott og ég
samgleðst þeim innilega.“
Er það hamlandi fyrir fólk sem vill
leggja leiklistina fyrir sig að búa í
Vestmannaeyjum? „Ekkert
sérstaklega, en maður þarf vissulega
að vera í Reykjavík ef maður vill
læra hana. Á móti er hægt að öðlast
mjög góða reynslu á því að vera í
leikfélagi á borð við það sem er í
Eyjum.“
Hver er draumurinn þinn sem
leikari? „Það eru alls konar
draumar . Ég væri til í að komast í
kvikmyndir ef því er að skipta,
einnig að tala inn á teiknimyndir.
Maður þarf fyrst að taka nokkur
skref áður en það gæti komið til
þess. Það er fjarlægur draumur að
lifa á þessu á Íslandi en með
einhverri vinnu er þetta alveg
mögulegt.
Að lokum vill ég bæta við að við
höfðum það bak við eyrað í upphafi
að hafa leikmyndina sem með-
færilegasta svo við gætum ferðast
með þetta. Ég vona að við getum
komið með sýninguna til Vest-
mannaeyja ef áhugi er fyrir því, en
það seinni tíma pæling.“
:: Guðmundur Lúðvík og Ástþór með í leitinni að sumrinu ::
Sýnum áfram á meðan fólk
vill koma og sjá okkur
:: Vonast til að geta komið með sýninguna til Vestmannaeyja ef áhugi er fyrir því ::
Einar KriSTinn HELGaSon
einarkristinn@eyjafrettir.is