Fréttir - Eyjafréttir - 02.11.2016, Blaðsíða 15
15Eyjafréttir / Miðvikudagur 2. nóvember 2016
Íþróttir
u m S j Ó n :
Einar KriSTinn HELGaSon
einarkristinn@eyjafrettir.is
Handbolti | Olís-deild karla :: Selfoss 38:32 ÍBV ::
Fyrrverandi leikmenn Eyja-
manna skoruðu 21 mark
Handbolti | Olís-deild kvenna :: Fram 20:17 ÍBV ::
Illa nýtt færi, skref, tvígríp
auk margra tapaðra bolta
Ester Óskarsdóttir í baráttu um boltann í leiknum gegn Selfossi fyrr í haust.
Brynjar Karl Óskarsson og Theódór Sigurbjörnsson fá óblíðar móttökur í leiknum gegn Val fyrr á tímabilinu.
Eyjamennirnir Dagur Arnarsson og
Elliði Snær Viðarsson voru valdir í
æfingahóp hjá U-21 landsliðsins í
handbolta á dögunum. Æfingarnar,
sem hófust nú á mánudag og verða
út vikuna, eru hluti af undirbúningi
liðsins fyrir HM í Serbíu í janúar.
Auk Dags og Elliða eru þeir
Nökkvi Dan Elliðason og Hákon
Daði Styrmisson í hópnum en sá
fyrrnefndi spilar með Gróttu og sá
síðarnefndi með Haukum.
U-21 landsliðið
Eyjamenn áttu harma að hefna
þegar þeir mættu Selfyssingum á
útivelli í Olís-deildinni síðastliðinn
fimmtudag. Liðin mættust í
bikarkeppninni á sunnudeginum og
þar hafði Selfoss betur eftir
framlengdan leik. Fyrrum leik-
maður ÍBV, Einar Sverrisson, reið á
vaðið og skoraði fyrsta mark
leiksins. Agnar Smári var ekki lengi
að svara og jafna leikinn með góðu
skoti utan af velli. Nokkuð jafnræði
var með liðunum fyrri part
hálfleiksins og voru Eyjamenn með
forystuna lengi vel. Selfyssingar
komust yfir á 17. mínútu, staðan þá
12:11, og sóttu í sig veðrið eftir
það. Þegar flautað var til hálfleiks
voru heimamenn komnir með fimm
marka forystu, 20:15.
Selfoss hélt uppteknum hætti
þegar flautað var til leiks á ný og
áður en langt um leið voru níu mörk
sem skildu liðin að. Theodór
Sigurbjörnsson tók þá til óspilltra
málanna og sneri taflinu við með
hverju markinu á fætur öðru. Þegar
fimm mínútur lifðu leiks var staðan
orðin 32:32 og ótrúlegur
viðsnúningur að baki. Svo virðist
sem mikið púður hafi farið í að
jafna leikinn þar sem Selfyssingar
skoruðu sex síðustu mörk leiksins
og unnu þar með sannfærandi sigur
38:32.
Fyrrverandi leikmenn ÍBV
reyndust liðinu erfiðir í leiknum en
línumaðurinn Guðni Ingvarsson
skoraði þrettán mörk í leiknum og
Einar Sverrisson átta. Markahæstur
í liði ÍBV var Theodór með þrettán
mörk, eftir honum var Grétar
Eyþórsson með sex og svo Dagur
Arnarsson með fimm. Andri Ísak
Sigfússon varði níu mörk og
Kolbeinn Arnarsson fjögur.
Eftir umferðina er ÍBV í sjötta sæti
deildarinnar með níu stig.
ÍBV mætti Fram á útivelli á
laugardaginn í sjöundu umferð
Olís-deildarinnar. Fram var með
nokkra yfirburði í fyrri hálfleik og
var fimm mörkum yfir þegar flautan
gall. ÍBV liðið gafst ekki upp þrátt
fyrir að eiga á brattann að sækja
gegn toppliði Fram og minnkaði
muninn í eitt mark undir lokin. Nær
komust þær ekki og Fram því enn
taplausar eftir sjö umferðir
Fyrst um sinn var leikurinn jafn en
í stöðunni 5:5 sigldu heimamenn
fram úr ÍBV. Þóra Guðný Arnars-
dóttir fékk þá tveggja mínútna
brottvísun og nýtti Fram sér það.
Fram jók forskot sitt hægt og
bítandi og áttu Eyjakonur engin
svör, staðan 11:6 í hálfleik.
Munurinn hefði getað verið meiri
en Erla Rós Sigmarsdóttir kom í
veg fyrir það þegar hún varði tvö
vítaköst á jafn mörgum mínútum.
Sóknarleikur ÍBV var slakur í fyrri
hálfleik, skot sem geiguðu, skref,
tvígríp auk margra tapaðra bolta.
Eins og fyrr segir gerði ÍBV liðið
áhlaup í síðari hálfleik og lenti
Fram í stökustu vandræðum á
köflum. Á 52. mínútu var staðan
16:15 fyrir Fram og töluverð spenna
komin í leikinn. Heimamenn úr
Safamýrinni reyndust sterkari á
lokasprettinum og kláruðu leikinn
með þriggja marka mun, 20:17.
Hetjuleg barátta Eyjakvenna nægði
því miður ekki til að skáka öflugu
liði Fram.
Markahæst í liði ÍBV var Ester
Óskarsdóttir með átta mörk. Erla
Rós Sigmarsdóttir var með sextán
skot varin í markinu. Eftir umferð-
ina er ÍBV í fimmta sæti deildar-
innar með sex stig.
Framundan
Laugardagurinn 5. nóvember
Kl. 15:00 Grótta - ÍBV
Olís-deild kvenna
Laugardagurinn 5. nóvember
Kl. 14:00 ÍBV2 - Mílan
Coca Cola bikar karla
Sunnudagurinn 6. nóvember
Kl. 16:00 Víkingur - ÍBV
Coca Cola bikar kvenna
Fimmtudagurinn 10.nóvember
Kl. 18:00 Haukar - ÍBV
Olísdeild karla
Laugardaginn 12.nóvember
Kl. 13:30 ÍBV - Valur
Olísdeild kvenna
Fram 7 6 1 0 167 13
Stjarnan 7 5 1 1 193 11
Haukar 7 5 0 2 167 10
Valur 7 4 0 3 172 8
ÍBV 7 3 0 4 189 6
Selfoss 7 2 0 5 182 4
Fylkir 7 1 0 6 133 2
Grótta 7 1 0 6 162 2
Olísdeild kvenna
Afturelding 9 8 0 1 251 16
Selfoss 9 5 0 4 282 10
FH 9 4 2 3 249 10
Valur 9 5 0 4 228 10
Fram 9 4 1 4 262 9
ÍBV 9 4 1 4 256 9
Haukar 9 4 0 5 270 8
Stjarnan 9 3 2 4 217 8
Grótta 9 3 1 5 227 7
Akureyri 9 1 1 7 223 3
Olísdeild karla
Dagur Arnarsson
Elliði Snær Viðarsson