Fréttir - Eyjafréttir - 09.11.2016, Qupperneq 1
Eyjafréttir
Þrjár Eyjadömur
útskrifast úr
HárakadEmíunni
framkvæmdir á
ísfélags- og fisk-
iðjurEitunum >> 2
vEl HEppnuð
safnaHElgi >> 8 >> 12
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Vestmannaeyjum 9. nóvember 2016 :: 43. árg. :: 45. tbl. :: Verð kr. 490 :: Sími 481-1300 :: www.eyjafrettir.is
Börnin fengu sinn skammt á Safnhelgi. Í Sæheimum var boðið upp á bráðskemmtilega sýningu þar sem börn sem hafa komið í pysjueftirlitið voru sýnd
á myndum. Afskaplega vel heppnuð sýning og gaman að sjá hversu margir litu við um helgina og áhuginn var mikill eins og myndin ber með sér.
Staðan í samningum útgerðar og
sjómanna er á viðkvæmu stigi en
ekki er annað að heyra en að fullur
vilji sé til að semja áður en kemur til
boðaðs verkfalls á morgun, 10.
nóvember. Unnið hefur verið að
lausn á verðlagsmálum sem hefur
verið ein aðalkrafa sjómanna en þá
eru önnur mál eftir. Komi til verkfalls
stöðvast veiðar strax og vinnsla
fljótlega á eftir.
„Það er verið að keyra saman tölur
frá báðum aðilum varðandi verðlags-
myndunina,“ sagði Valmundur
Valmundsson, formaður Sjómannafé-
lags Íslands þegar rætt var við hann í
gær. Þá hafði samninganefnd
sjómanna verið kölluð saman
klukkan fjögur. „Farið verður yfir
tillögur um bæði verðmyndun á
botnfiski og uppsjávarfiski sem lúta
að meiri upplýsingum um afurða-
verð. Vonandi klárast það í kvöld en
þá er allt hitt eftir,“ sagði Valmundur.
Hann sagði að samninganefndin
yrði í húsi þar til útséð verður
hvernig fer. „Við viljum hafa hana
klára og vera snöggir að taka
ákvarðanir. Við skynjum þá miklu
ábyrgð sem hvílir á okkur og munum
gera allt til að leysa deiluna í tíma.
Tíminn er stuttur en af okkar hálfu er
allt tal um frestun á verkfalli ekki
inni í myndinni,“ sagði Valmundur
að endingu.
Heiðrún Lind Marteinsdóttir,
framkvæmdastjóri Samtaka fyrir-
tækja í sjávarútvegi (SFS), segir
stöðuna erfiða nú þegar tíminn er að
renna út en þó ekki vonlausa. „Við
höfum undanfarna daga og vikur
einbeitt okkur að fiskverðsmálum og
á meðan hafa önnur mál beðið. Ég tel
ólíklegt að það náist að afgreiða allar
kröfur bæði útgerðarmanna og
sjómanna áður en boðað verkfall á að
koma til framkvæmda á morgun,
fimmtudag. Það er hins vegar góður
samhljómur beggja megin borðsins
að ljúka verðlagsmálunum og að því
leyti tel ég að við séum nær takmark-
inu en áður. Verði það mál afgreitt
má ætla að forsendur standi til þess
að slá verkfalli á frest.“
Heiðrún Lind segir samt að óvissan
sé slæm. „Það voru sjómenn sem
boðuðu verkfallið og það er í þeirra
höndum að fresta því eða afboða. Við
erum a.m.k. við öllu búin,“ sagði
Heiðrún Lind.
„Ef af verkfalli verður stöðvast öll
vinnsla í fyrirtækinu en maður vonar
auðvitað í lengstu lög að slíkt ástand
skapist ekki,“ segir Friðrik Stefáns-
son, framkvæmdastjóri Ísfélagsins og
það sama á við um Vinnslustöðina og
aðra vinnslu og útgerð í Vestmanna-
eyjum.
:: Verkfall sjómanna hefst á morgun náist ekki samningar ::
Ómar GarðarSSon
omar@eyjafrettir.is
Góður samhljómur beggja megin
borðsins að ljúka verðlagsmálunum
:: Tíminn er stuttur en frestun ekki inni í myndinni, segja sjómenn ::