Fréttir - Eyjafréttir - 23.11.2016, Síða 1
Eyjafréttir
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
íþróttaakademíankvenfélagið líkn >> 10
í minningu páls
steingrímssonar >> 12 >> 14
Vestmannaeyjum 23. nóvember 2016 :: 43. árg. :: 47. tbl. :: Verð kr. 490 :: Sími 481-1300 :: www.eyjafrettir.is
Þann 9. nóvember sl. fóru kennarar í
GRV með kröfu um bætt launamál til
bæjarstjóra og í gær á þriðjudaginn
kl. 13:30 gengu þeir út úr kennslu og
hittust á Bárustíg í mótmælaskyni. Á
fimmta tug kennara voru mættir í
mótmælin sem voru með rólegra
móti. Eftir nokkra stund marseraði
hópurinn á veitingastaðinn Einsa
Kalda þar sem kökur og kaffi var í
boði. Það mátti glögglega sjá á
kennurum að þeim var nóg boðið og
hefur verið nóg boðið í langan tíma.
„Við, grunnskólakennarar á Íslandi,
krefjumst þess að sveitarfélögin á
landinu bregðist án tafar við því
alvarlega ástandi sem skapast hefur í
skólakerfinu vegna hættulegra og
rangra áherslna í kjarastefnu
sveitarfélaga gagnvart grunnskóla-
kennurum. Laun kennara eru of lág
og valda því með öðru að grunn-
skólakerfið er ekki lengur sjálfbært.
Þeir kennarar sem nú starfa í
grunnskólunum njóta mun verri kjara
en samanburðarhópar og raunar
töluvert lægri kjara en almennt
tíðkast í landinu. Nú eru samningar
okkar lausir og hafa verið lengi.
Mánuðum saman hafa sveitarfélögin
haft tíma og tækifæri til að bregðast
við bráðum vanda. Ekkert bólar á
viðbrögðum og samninganefnd
sveitarfélaga virðist enn ekki hafa
umboð til neins nema að endurtaka
leikinn frá því í sumar og bjóða
áfram óboðleg kjör,“ segir í kröfu
kennara.
Segja kennarar að fulltrúar
sveitarfélaga hafi gengist við því á
síðustu árum að laun kennara séu allt
of lág. Þau hafi verið réttlætt með því
að sveitarfélögin hafi ekki efni á að
bjóða betri kjör. „Með því er í raun
verið að segja að sveitarfélögin séu
ófær um að reka þá grunnþjónustu
sem þau hafa tekið að sér fyrir íbúa
þeirra. Slíkt gengur auðvitað ekki til
lengdar. Við aðstæður sem þessar
mun grunnþjónustan bíða skaða eða
eyðileggjast með öllu. Árum saman
hafa kennarar þurft að bæta fyrir
getuleysi sveitarfélaga við að reka
grunnskólann með ásættanlegum
hætti. Nú er hinsvegar orðið ljóst að
kennarar geta ekki lengur komið í
veg fyrir að skólakerfið lendi í
stórhættu. Nýir kennarar fást ekki til
starfa, eldri kennarar heltast úr
lestinni eða hverfa til annarra starfa
– og þeir sem eftir standa munu ekki
anna öllum þeim brýnu verkefnum
sem fylgja grunnskólastarfi í landinu.
Kennarar hafa því aðeins tvo kosti.
Að yfirgefa skólana og afhjúpa
þannig endanlega þá skammsýni og
hyskni sem einkennir störf sveitar-
félaga á þessu sviði – eða stíga fram,
draga sveitarfélögin til ábyrgðar fyrir
stöðunni sem upp er komin og
krefjast viðbragða.
:: Kennarar GRV gengu úr kennslu í gær í mótmælaskyni ::
Getum ekki komið í veg fyrir að
skólakerfið lendi í stórhættu
:: Nýir kennarar fást ekki :: Eldri heltast úr lestinni :: Þeir sem eftir standa
anna ekki brýnum verkefnum sem fylgja grunnskólastarfi ::
Arnheiður, Dóra Hanna, Ásdís og Hildur voru mættar til að fylgja eftir kröfum um betri laun.
Einar KriStinn HElgaSon
einarkristinn@eyjafrettir.is