Fréttir - Eyjafréttir - 21.12.2016, Side 10
10 Eyjafréttir / Miðvikudagur 21. desember 2016
Tónlist er nátengd jólunum enda
framboðið mikið af tónleikum á
aðventunni sem eru eins misjafnir
og þeir eru margir. Á morgun,
fimmtudag ætla þrjár ungar konur
að slá upp tónleikum í Hvítasunnu-
kirkjunni þar sem huggulegheit og
jólastemning verða höfð að
leiðarljósi.
Þær eru Jenný Guðnadóttir 23 ára,
Elísabet Guðnadóttir 17 ára og
Guðný Emilíana Tórshamar 15 ára.
„Tónleikarnir hefjast klukkan 20.30
en húsið verður opnað kl. 20.00. Í
hljómsveitinni verða m.a. Helgi
Tórshamar, Birkir Ingason og
Simmi Einars,“ sagði Jenný sem
hlakkar til tónleikanna.
„Þetta verða í bland jólalög og
rólegheita kósý lög. Það verður
spilað á allskonar hljóðfæri sem við
höfum fundið í húsinu, gítara,
ukulele, mandólín og pumpuorgel.
En umfram allt á þetta að vera kósý,
eins og heima í stofu. Það er frítt
inn og vonumst við til að sjá sem
flesta enda tilvalið að taka sér frí frá
jólastressinu og lyfta sér aðeins
upp,“ sagði Jenný sem hvetur fólk
til að fjölmenna.
Hvítasunnukirkjan á morgun:
Jenný, Elísabet
og Guðný Emil-
íana með kósý
jólatónleika
:: Aðgangur ókeypis
Ómar GarðarSSon
omar@eyjafrettir.is
Það er kjörið tækifæri til að lyfta
sér upp milli jóla og nýárs með
því að mæta á tónleika söng-
fuglanna Silju Elsabetar Brynj-
arsdóttur og Alexanders Jarls
Þorsteinssonar í Eldheimum
fimmtudagskvöldið 29. desemb-
er. Bæði tóku þau fyrstu skrefin í
Vestmannaeyjum en eru nú í
söngnámi í London. Mæta þau
með þekktan konsertpíanista
sem sýnir metnað og vilja hjá
þessu unga Eyjafólki til að sýna
sínu fólki hvar þau er stödd á
listabrautinni.
Alexander Jarl eru á sínu fyrsta ári
í Royal College of Music þar sem
hann fékk inngöngu í haust eftir að
honum óvænt bauðst tækifæri á
áheyrnarprufu. Var honum í
kjölfarið boðið að skrá sig í skólann
einungis þremur dögum síðar en
vanalega tekur ferlið marga mánuði.
Silja Elsabet var nýkomin til
landsins í gærmorgun þegar
blaðamaður ræddi við hana. Hún
segist hlakka mikið til. „Tónleik-
arnir verða í Eldheimum á fimmtu-
daginn í næstu viku og byrja
klukkan 20.00. Með okkur er
Kjartan Valdemarsson píanóleikari
og dagskráin verður fjölbreytt og
skemmtileg,“ sagði Silja Elsabet.
„Hún verður blönduð, klassík og
léttari lög. Fyrir hlé syngjum við
óperuaríur og klassík lög en eftir
hlé verða það lög úr söngleikjum,
jóla- og að sjálfsögðu Eyjalög.“
Hún er á öðru ári í Bachelor námi
í söng við Royal Academy of Music
í London. „Það gengur ljómandi vel
hjá mér og er virkilega gaman að fá
þetta tækifæri. En nú eru það
tónleikarnir í Eldheimum þar sem
ég vonast til að sjá sem flesta,“
sagði Silja Elsabet að endingu.
Silja Elsabet og Alexander Jarl í Eldheimum 29. des.:
Lofa skemmtilegri og
fjölbreyttri dagskrá
Ómar GarðarSSon
omar@eyjafrettir.is
Silja Elsabet og Alexander Jarl
ætla að syngja saman í
Eldheimum milli jóla og nýárs,
fimmtudagskvöldið 29. des.
Um þrjátíu manns mættu á fund í
Stjörnufræðifélagi Vestmannaeyja í
síðustu viku þar sem Sævar Helgi
Bragason, stjörnuskoðunarmaður
mætti og kynnti nýja bók sína,
Stjörnuskoðun fyrir alla fjölskyld-
una og nýr stjörnusjónauki sem
félagið keypti nýlega var kynntur til
sögunnar.
SFV hefur samið við FÍV um að
veita tímabundna aðstöðu fyrir
sjónaukann, í risi Framhaldsskól-
ans. Þar eru þakgluggar sem vísa í
suður.
Sævar Helgi nýtti ferðina og hitti
grunnskólanemendur í Eyjum auk
þess að kynna sína frábæru nýju
bók.
Stjörnu-Sævar og nýr stjörnukíkir
Helgi Sævar og Davíð Guðmundsson, formaður félagsins við kíkinn. Um 30 manns mættu í Framhaldsskólann þegar kíkirinn var sýndur.
Ómar GarðarSSon
omar@eyjafrettir.is