Fréttir - Eyjafréttir - 21.12.2016, Side 21
21Eyjafréttir / Miðvikudagur 21. desember 2016
Rafn Jónsson, rekstrarstjóri
Ísfélagsins fyrir norðan er
fæddur og uppalinn á Þórshöfn
og báðir foreldrar hans eru
þaðan. Hann er vélfræðingur og
tók fyrstu skrefin á þeirri braut í
Vestmannaeyjum. Hefur hann
yfirumsjón með rekstrinum á
Þórshöfn.
„Ég kláraði Vélskólann 1980 en
fyrstu tvö árin tók ég í Vestmanna-
eyjum. Var í fyrsta árgangi skólans í
Eyjum eftir gosið 1973. Við vorum
fimm í skólanum og man ég m.a.
eftir Grími Gíslasyni frá Eyjum.
Við vorum hluti af Stýrimannaskól-
anum í Vestmannaeyjum og
skólastjóri var Friðrik Ásmunds-
son,“ segir Rafn en að námi loknu
lá leiðin á æskustöðvarnar.
„Ég byrjaði strax hjá Hraðfrysti-
stöð Þórshafnar. Fyrst í viðhaldi en
fer svo á Stakfellið ÞH sem var
sérfélag en gert út af Hraðfrysti-
stöðinni. Er þar til 1987 en held
áfram að leysa af eftir að ég byrjaði
í verksmiðjunni í október sama ár.“
Samherji keypti Hraðfrystihús
Þórshafnar í kringum 2000 en árið
2003 kom upp ágreiningur milli
þeirra og íbúanna um reksturinn.
„Það er svo í desember 2006 að
Ísfélagið kaupir Hraðfrystistöðina
með öllu. Þrátt fyrir þessar
hræringar var ég alltaf á mínum
stað. Var verksmiðjustjóri og
útgerðarstjóri á Júpíter ÞH sem
Hraðfrystistöðin keypti. Þegar
Ísfélagið tók yfir reksturinn vildu
þeir að ég héldi áfram sem
rekstrarstjóri en Siggeir Stefánsson
er yfir frystingunni.“
Samfara uppbyggingu í verk-
smiðju og uppsjávarvinnslu hafa
bolfiskveiðar og vinnsla verið efld.
„Það nýjasta hjá okkur er línubátur-
inn Litlanes ÞH sem var keyptur á
þessu ári í svokölluðu tólf metra
kerfi.“
Þegar talið berst að mikilvægi
Ísfélagsins fyrir Þórshöfn stendur
ekki á svarinu. „Ef Ísfélagið væri
ekki hérna með sína starfsemi væri
hér enginn staður. Þegar slagurinn
stóð við Samherja börðumst við
fyrir því að fá Ísfélagið hingað.
Félag sem vildi halda áfram rekstri
hér sem ég held að hafi verið báðum
aðilum til góðs. Félagið nýtur hér
velvildar eins og sást á þeim fjölda
sem mætti í afmælið í síðustu
viku,“ sagði Rafn.
„Það nýtur velvildar og við gerum
okkur grein fyrir því hvað sterkt
það er. Á þessum tíu árum hafa um
40 prósent af uppsjávarafla
félagsins verið unnin hjá okkur. Í
bolfiski er líka verið að bæta í og
erum við með stærsta lausfrysti í
heimi að við best vitum. Í frystihús-
inu er unnið alla virka daga ársins
en það sem vantar er meiri
sjálfvirkni. Þegar vertíð stendur sem
hæst í uppsjávarfiski vantar okkur
allt að 50 manns sem liggur ekki á
lausu þegar við þurfum á að halda.
Þegar ekki er uppsjávarfiskur er
reynt að bæta það upp með bolfiski.
Ég held að hægt sé að áætla að
Ísfélagið hafi fjárfest hér fyrir tvo til
þrjá milljarða og ekki allt búið
enn.“
Rafn segir að það reyni á þetta
þegar loðna er lítil eins og var á
vertíðinni í ár. Þá er öll áherslan á
hrognavinnslu í Eyjum. „Því
svaraði félagið með því að bæta við
1000 tonna bolfiskkvóta hjá okkur.
Stjórnendur gera sér grein fyrir því
að þetta þarf að snúast.“
Þegar Rafn er spurður um fjar-
stýringu frá Eyjum segir hann að
þau á Þórshöfn séu merkilega
sjálfstæð. „Við erum í sambandi við
Eyþór útgerðarstjóra þegar þarf að
miðla afla á milli og Stefán
framkvæmdastjóri fær að vita hvað
við erum að gera.“
Um framtíðina segir Rafn að hann
sé bara nokkuð bjartsýnn. „Það
breytir mynstrinu ef engin loðna
verður á næsta ári en á móti kemur
meiri síldarkvóti. En við verðum að
fara eftir því sem gerist í náttúrunni
sem hoppar fram og til baka. Ég vil
til dæmis ekki trúa því að loðnan sé
horfin. Hún hefur bara breytt um
hegðun og heldur sig meira fyrir
norðan,“ segir Rafn að endingu.
Gleðileg jól
og farsælt komandi ár
Virðum eignarréttinn
Sérframleidd
Sæplastker
eru rekjanleg
til viðskiptavina
„Afmælisveislan var mjög vel
heppnuð og gaman hvað margir
mættu,“ segir Kristinn Lárusson,
vinnslutjóri í mjöl- og lýsisverk-
smiðju Ísfélagsins á Þórshöfn. „Það
komu 175 manns með krökkum og
það voru unglingar í níunda og
tíunda bekk Grunnskólans sem
aðstoðuðu kvenfélagskonur við að
undirbúa veisluna, stilla upp í sal,
bera fram og taka til á eftir,“ segir
Kristinn sem er Langnesingur í húð
og hár.
„Ég er fæddur og uppalinn hér í
sveitinni og bý þar en ég er ekki
með neinn búskap. Hér lauk ég
grunnskóla og byrjaði ungur að
vinna hjá Hraðfrystistöðinni og má
segja að ég hafi alist upp hjá
fyrirtækinu. Byrjaði 13 til 14 ára á
sumrin, var í frystihúsinu en eftir 9.
bekk, nú 10. bekkur, byrjaði ég svo
sem fastur starfsmaður og fór svo í
bræðsluna þegar hún var tekin í
notkun 1986. Tók þátt í byggingu
hennar og það var 29. september
1986 sem við fengum fyrstu
loðnuna.“
Kristinn segir að bræðslan hafi
verið keypt notuð frá Noregi en
núna er nánast ekkert eftir af henni.
„Það er búið að endurnýja hana frá
grunni og ekkert eftir af þeim
búnaði sem keyptur var fyrir 30
árum nema einn forsjóðari. Og nú
eru afköstin 1000 til 1100 tonn á
sólarhring.“
Kristinn segir að það hafi verið
frekar rólegt hjá þeim í verksmiðj-
unni þetta árið og munaði mestu að
þeir fengu nánast enga loðnu á
vertíðinni. „Á makríl- og síldar-
vertíðinni erum við að bræða einu
sinni til tvisvar í viku. Þetta er
slattabræðsla á afskurði og sem
kemur fráflokkað frá vinnslunni.“
Þrátt fyrir að ekki sé stöðug bræðsla
allt árið eru 18 menn í bræðslunni í
fullu starfi. „Við sinnum nánast öllu
viðhaldi og höfum að mestu séð um
þær breytingar sem gerðar hafa
verið. Fengið tvo til þrjá iðnaðar-
menn okkur til aðstoðar.“
Þórshöfn er hluti af Langanes-
byggð og stærsti byggðarkjarninn
með um 380 íbúa og í sveitinni í
kring ásamt Bakkafirði eru um 120.
Svalbarðshreppur er svo nágranna-
sveitarfélag okkar til vesturs og þar
búa um 100 manns þannig að í allt
eru íbúarnir um 600 á svæðinu. Það
þarf því ekki mikið ímyndunarafl til
að sjá mikilvægi Ísfélagsins fyrir
byggðina. „Starfsemi Ísfélagsins
skiptir okkur öllu máli og það
endurspeglast í því að 175 manns
mættu í afmælisveisluna. Það var
mikið lán fyrir okkur að Ísfélagið
keypti Hraðfrystistöðina. Það hefur
staðið að mikilli uppbyggingu og
þeir fara ekkert með steinsteypuna,“
segir Kristinn.
Hann segir starfsemi Ísfélagsins
skipti líka miklu máli fyrir alla
þjónustu á staðnum. „Á stað eins og
Þórshöfn berst ekkert um æðarnar
ef ekkert hjarta er til að slá. Þetta er
allt mjög stórt á okkar mælikvarða
og við höfðum alltaf trú á Ísfélag-
inu. Tel það hafa verið mikið lán
fyrir samfélagið að Ísfélagið kom
hér að rekstrinum fyrir 10 árum,
sagði Kristinn að endingu.
Ísfélag Vestmannaeyja 115 ára:
Ein aðalstoðin á Þórshöfn
Ísfélagið fagnar þreföldu afmæli á
Þórshöfn á Langanesi þar sem
félagið keypti allt hlutafé í
Hraðfrystihúsi Þórshafnar 2006 sem
auk þess að vera í útgerð rak bæði
frystihús og loðnuverksmiðju á
staðnum. Í ár eru 30 ár síðan
loðnuverksmiðjan var tekin í
notkun. Ísfélagið er ein aðalstoðin í
atvinnulífi Þórshafnar og það sýnir
velvilja íbúanna í garð félagsins að
175 manns mættu í afmælisveisluna
sem haldin var á miðvikudaginn í
síðustu viku. Í allt eru 48 fastráðnir
í frystihúsinu að jafnaði en sú tala
fer hátt í að þrefaldast þegar verið
er að vinna síld og makríl. Í
bræðslunni er 18 fastráðnir þannig
að í allt eru þetta 66 starfsmenn sem
skiptir miklu í plássi sem telur 380
íbúa.
Eyjafréttir ræddu við tvo af
starfsmönnum Ísfélagsins sem báðir
störfuðu hjá Hraðfrystihúsi
Þórshafnar og eiga áratuga
starfsaldur að baki. Innfæddir
Þórshafnabúar sem hafa unnið mest
allan sinn starfsaldur hjá sama
fyrirtækinu þó eigendurnir hafi ekki
verið þeir sömu allan tímann. Þeir
eru sammála um að það hafi verið
mikið lán fyrir Þórshöfn að
Ísfélagið tók yfir reksturinn sem
hefur vaxið og dafnað á þessum tíu
árum.
Á afmælinu fékk Grunnskólinn
afhentar myndir sem tengjast
sjónum. Með krökkunum
á myndinni eru Siggeir,
Stefán og Rafn.
Ómar GarðarSSon
omar@eyjafrettir.is
Kristinn Lárusson, vinnslustjóri í
mjöl- og lýsisverksmiðju Ísfélags-
ins á Þórshöfn:
Mikið lán fyrir
samfélagið að
fá Ísfélagið
Rafn Jónsson, rekstrarstjóri Ísfélagsins á Þórshöfn:
Fjöldinn sem
mætti í afmælið
sýnir að félagið
nýtur velvildar
Rafn Jónsson, rekstrarstjóri
Ísfélagsins á Þórshöfn.
Kristinn Lárusson.