Skessuhorn


Skessuhorn - 07.05.1998, Síða 2

Skessuhorn - 07.05.1998, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 7. MAÍ1998 VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI BORGARBRAUT 57, 310 BORGARNES - SÍMI 437 2262 FAX: 437 2263 - NETFANG: skessuh@aknet.is Afgreiðsla á Akranesi að Stillholti 18 er opin eftir hádegi virka daga, sími 431 4222 Útgefandi: Skessuhorn ehf. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gísli Einarsson, sími 852 4098 Blaðamaður: Helgi Daníelsson, sími 898 0298 Auglýsingar: Magnús Valsson, sími 437 2262 Fjóla Ásgeirsdóttir, sími 431 4222 Hönnun og umbrot: Guðmundur Steinsson, sími 588 4144 Prentun: ísafoldarprentsmiðja Aðalskrifstofa blaðsins er opin alla virka daga frá kl. 10:00 - 12:00 og 13:00-16:00 Skrifstofan að Stillholti 18 á Akranesi er opin kl. 13-17. Skessuhorn-Pésinn kemur út alla fimmtudaga. Skilafrestur auglýsinga og efnis er kl. 15.00 á mánu- dögum. Litaauglýsingar sem krefjast mikillar hönnunarvinnu þurfa þó að berast blaðinu í síðasta lagi á hádegi á mánudögum . Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Blaðið er gefið út i 5.800 eintökum og dreift ókeypis inn á öll heimili og fyrirtæki á Vesturlandi auk Kjalarness, Kjósar og Reykhóla. KB hf.? Aðalfundur Kaupfélags Borgfirð- inga var haldinn í síðustu viku. Á fundinum var talsvert rætt um rekst- ur félagsins og rekstrarform. Sam- þykkt var tillaga þess efnis að fela stjóm að láta fara fram könnun á kostum þess og göllum að breyta fyr- irtækinu úr samvinnufélagsformi í hlutafélag. Þá getur komið til greina að um verði að ræða eitt hlutafélag eða mörg smærri um aðskilda hluta rekstrarins. Talsverð umræða hefur verið í hér- aðinu um þessi mál bæði innan stjómar og meðal almennra félags- manna. Meðal þeirra ástæðna sem nefndar era fyrir þessum hugsanlegu breytingum er sú staðreynd að erfitt er fyrir samvinnufélög að afla áhættufjár. Rúmlega fjöratíu milljóna króna tap varð á rekstri KB á s.l. ári þegar tekið hefur verið tillit til hlutar í dótt- ur- og hlutdeildarfélögum. Veltan var 1.362 milljónir og drógst hún saman um 7%. Þorvaldur Tómas Jónsson bóndi í Hjarðarholti er nýr fulltrúi í stjóm Kaupfélagsins og var hann á fyrsta fundi nýkjörinnar stjórnar kosinn formaður hennar. Fráfarandi formað- ur er Þórarinn Jónsson á Hamri sem ekki gaf kost á sér til endurkjörs. Kyn- grein- ing Gísli Einarsson, ritstjóri. SAMKVÆMT húsreglum ábúenda á Skessuhomi eru hendur mínar bundnar í umfjöllun um einstaka stjómmálaflokka, ekki síst á þess- um ófriðartímum þegar sveitarstjómarkosningar em í nánd. Samt sem áður eru aðgerðir og aðgerðarleysi stjómmálamanna svo stór hluti af okkar lífi að ekki verður hjá því komist að láta hug- ann reyka til þeirra þegar illa liggur á manni. Þegar eitthvað ergir mann er nefnilega nauðsynlegt að hafa einhvem til að sparka í, hvort sem ástæða skapvonskunnar er tíðarfarið, skattamir, gæftaleysi eða eitthvað annað. Þar koma stjómmálamenn í góðar þarfir. Svo að alls hlutleysis sé gætt í umfjöllun um stjómmálaflokka þá er það ónefndur stjómmálaflokkur, kenndur við ónefnt kyn sem berst þessa dagana hatrammri baráttu við íslenskuna. Það hefur komið í ljós að þetta tungumál sem stöðugt er lofað og reynt að við- halda sem uppmnalegastri mynd elur á kynjamisrétti. Ástandið er í raun svo alvarlegt að mannréttindi em gróflega brotin, nánast í hvert sinn sem íslenskumælandi einstaklingur opnar munninn. Með öðr- um orðum hafa íslendingar, kynslóð eftir kynslóð, framið grófustu glæpi með kjaftinum allt frá því málskraf hófst hér á landi. Umrædd mannréttindabrot snúast fyrst og fremst um stöðuheiti og titlatog hvers konar. Því hagar nefnilega þannig til að flestir þeir titlar sem eftirsóknarverðir kunna að teljast eru í karlkyni. Þar á meðal em stöðuheiti eins og forseti, ráðherra, tæknifræðingur, mein- dýraeyðir og klósettvörður. Hugmyndir um að breyta þessu í jafnréttisátt hljóta að vera gífur- legt réttlætismál og þar að auki allrar athygli verðar þar sem tungu- málið yrði fjölbreyttara og nákvæmara um leið. Það kæmi þá skýrt fram í starfsheitinu hvora kyninu viðkomandi einstaklingur tilheyrir sem er bráðnauðsynlegt ef sá hinn sami (sú hin sama) er ekki fær um að útskýra það sjálfur (sjálf). Breytingamar era afar einfaldar og í flestum tilfellum sjálfgefnar. Kvenkyns forseti yrði forseta, ráðherra yrði ráðfrú, tæknifræðingur yrði tæknifræða, meindýraeyðir meindýraeyða og klósettvörður yrði klósettverja eða klósettvarða. Ef við tökum fleiri dæmi þá yrði for- maður forkona, féhirðir yrði féhirða, öryrki yrði öryrkja, bóndi yrði bónda, kjaftaskur yrði kjaftaskja og aumingi yrði auminga. Allt era þetta mjög lipur og skemmtileg heiti og hljóta viðkomandi stöður að verða mun eftirsóknarverðari fyrir konur eftir að breytingamar hafa gengið í gegn. Það má reyndar spyrja sig hvemig frú Vigdís Finn- bogadóttir gat gegnt forsetaembætti í karlkyni í sextán ár og samt leyst sín verkefni með sóma. Það er vissulega gleðiefni ef það er satt að kyn stöðuheita sé al- varlegasta vandamálið í þjóðfélaginu í dag en einhvem veginn gran- ar mig nú samt að einhver mál kunni að vera brýnni. Eg hef líka alltaf haldið að hæfni einstaklingsins sem gegnir viðkomandi stöðu eða starfi skipti meira máli en kyn starfsheitisins. Það telst kannski til karlrembu af verstu sort en mér þykir það viðkunnanlegra að konur séu það kvenlegar og karlar það karlmann- legir að ekki þurfi að taka það sérstaklega fram af hvora kyni þeir era. Það er hinsvegar einungis mín skoðun og verður hver lesandi (eða lesönd) að dæma fyrir sig. Gísli Einarssan Hugleibing af gefnu tilefni Ágæti ritstjóri! Skessuhom birtir í 11. tbl. fmuntu- daginn 16. apríl á bls. 16 grein er ber hið saklausa yfirbragð: Hugleiðing um framboðsmál. Þar fer á kostum „óskar nokkur nafnleyndar", og læt- ur móðann mása. Nú er ekki ætlan mín að taka upp hanskann fyrir Kon- ráð í Loftorku, Óla Jón og eða þá frambjóðendur, til þess era þeir full- færir sjálfir. Nei hitt þótti mér verra mál, að hann setur í farþegasæti á dreifara sínum heila stétt fagmanna í byggðarlaginu, að þeim forspurðum. Ég fyrir mitt leyti, vil afþakka far- ið hér og nú, og í leiðinni lýsa undr- un minni á því að þetta annars ágæta blað, skuli birta slíkt í skjóli nafn- leyndar. Með þökk fyrir birtinguna. Ámi Ormsson húsasmíðameistari Þórólfsgötu 16 Borgamesi. Stefán Ólafsson og Ólafur Axelsson byggingameistarar í Borgarbyggð höfðu einnig samband við blaðið og frábáðu sér að vera bendlaðir við umrædd skrif. Frá ritstjóra Til Áma Ormssonar og annarra byggingameistara í Borgarbyggð: Ritstjóm Skessuhorns-Pésans harmar mjög þau slæmu mistök að grein sú sem nefnd er hér til hliðar skuli hafa verið birt. Stefna blaðsins er að birta ekki skrif af þessu tagi nema viðkomandi sé maður til að standa fyrir máli sínu. Umrædd mis- tök skrifast á reikning undarritaðs sem ber að sjálfsögðu fulla ábyrgð af skrifum þessum þar sem réttur höfundur skákar sér í skjóli nafn- leyndar. í ljósi þeirra viðbragða sem þessi skrif hafa hlotið væri hinsvegar eðlilegast að höfundurinn gengist opinberlega við verkinu. Hér með viljum við færa hlutað- eigandi, sem eru að sjálfsögðu bygg- ingameistarar í Borgarbyggð, Kon- ráð og hans menn í Loftorku og les- endur blaðsins, okkar innilegustu af- sökunarbeiðni vegna þessara mis- taka. Við gefum okkur út fyrir að gefa út vandað fréttablað og munum áfram gera hvað við getum til að rísa undir því. Gísli Einarsson, ritstjóri. Skorradalslist- inn lagbur fram Þann 30. apríl s.l. var Skorradalslistinn lagður fram vegna sveitarstjómarkosn- inganna 23. maí 1998. Listinn hefur fengið nafnið Skorradalslistinn. Listann skipa eftirfarandi: 1. Davíð Pétursson, bóndi og hreppsstjóri 2. Bjami Vilmundarson, bóndi 3. Ágúst Amason, skógarvörður 4. Pétur Davíðsson, bóndi 5. Jóhanna Hauksdóttir, bóndi 6. Guðmundur Þorsteinsson, bóndi og húsasmíðameistari 7. Ólöf Svava Halldórsdóttir, húsfreyja 8. Þórður Vilmundafson, bóndi 9. Gyða Bergþórsdóttir, sérkennari 10. Einar Kr. Jónsson, bóndi. Stuttar greinar Höfundar aðsendra greina eru hvattir til að hafa greinamar ekki of langar. Nú líður að kosningum og því má búast við að ýmsir vilji senda frá sér efni í blaðið. Til að sem flcstir komist að eru menn. : . , : ■ : - - ■, hvattir til að hafa greinar að há- marki eina blaðsíðu A4 í 12 punkta letri. Gjaman má mynd af höfundi fylgja með. Efni þarf að berast fyrir hádegi á mánudegi í næsta blað. Eitstjóri. Hagnabur af hörðum nöglum ÁRSREIKNINGUR Vírnets í Borgamesi, sem meðal annars framleiðir .Jiarða nagla“, ligg- ur nú fyrir. Hagnaður ársins 1997 var 14,4 milljónir en árið 1996 var hagnaðurinn 15,7 milljónir þannig að ekki er um að ræða mikla breytingu milli ára. Góð sala hefur verið hjá fyrirtækinu að undanfömu enda miklar framkvæmdir í gangi, bæði t héraði og víðar um landið. Runólfur SH kvebur MÁNUDAGINN 4. maí s.l. landaði togarinn Runólfur SH í síðasta skipti í Grundarfirði. Skipið hefur verið selt til Rúss- lands og verður afhent þar f shpp þann 8. maf n.k. Togarinn hefur verið í eigu Guðmundar Runólfssonar hf. s.l. 25 ár. Söluverð skipsins er 103 milljónir króna. Togarinn Hringur, sem er í eigu fyrirtækisins, tekur við hlutverki og aflaheimildum Runólfs SH. Talab í síma EINN ónefndur atvinnurek- andi á Vesturlandi tók til gam- ans saman hversu lengi hann talaði í síma s.l. 3 mánuði. í Ijós kom að í GSM símann sinn talaði hann í 73 klukku- tíma á þessu tímabili. Þar við má bæta heimasíma. vinnu- síma og NMT símanum í bíln- um svo alls má laúslega áætla að á þessum þremur mánuðum hafi hann alls varið 150 klukkutímum í síma. Þetta ger- ir 50 klukkutímar á mánuði og 100 mínútur á hverjum degi að jafnaði í símtöl. Gaman væri að vera stór hluthafi í Landssímanum hf.! Útvarp Akraness ÚTSENDINGAR frá bæjar- stjórnarfundum á Akranesi hófust þann 7. apríl s.l. Sent er út á tíðniniTÍ FM 95.0 og hafa útsendingar náðst vel á Akra- nesi og nágrenni og jafnvel til Reykjavíkur. Unnið er að undirbúningi að aukinni nýtingu útsendingar- búnaðarins. Hugmyndir eru uppi um að scnda út ahnennt dagskrárefni, svo: sem fréttir, auglýsingar, tónlist og fleira. Bjöm S. Lárussón markaðs- og atvinnufulltrúi vinnur nú að til- lögnm um tilhögun útsend- inga. _■.■, —...SLf'.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.