Skessuhorn


Skessuhorn - 07.05.1998, Page 5

Skessuhorn - 07.05.1998, Page 5
onjtsaunv..^' FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 1998 5 Sjálfkjörínn listi í Skorradal í KJÖLFAR ÞESS að lagður var fram framboðslisti til sveitarstjómar- kosninga í Skorradalshreppi má segja að einkennileg staða hafi kom- ið upp í þessu fámennasta sveitarfé- lagi á Vesturlandi. Staðreyndin er sú að sökum fámennis sveitarfélagsins er ekki rými fyrir fleiri en einn fram- boðslista ef tekið er mið af íbúafjölda í sveitarfélaginu annars vegar og fjölda frambjóðenda og stuðnings- manna framkomins lista hins vegar. Staðan er einfaldlega sú að ekki vom til nægjanlega margir frambjóðendur og stuðningsmenn í sveitarfélaginu til þess að hægt væri að afla lögbund- inna frambjóðenda og stuðnings- manna á annan framboðslista. Deilt hefur verið um lögmæti bú- ferlaflutninga úr sveitarfélaginu síð- an í vetur, sem of langt mál yrði að rekja í smáatriðum hér. Meirihluti sveitarstjómar hefur verið því fylgj- andi að hreppurinn sameinaðist fleiri sveitarfélögum í Borgarfirði. Til að fylgja því máli eftir fóm af stað bú- ferlaflutningar í lok nóvember 1997 með það að markmiði að íbúatalan færi niður fyrir 50 fyrir 1. desember og sveitarfélagið yrði þá lögþvingað til að sameinast öðmm, óháð vilja íbúanna. Þessu var minnihluti hreppsnefndar og þar með Davíð Pétursson oddviti ósammála. Þeir vildu hafa þann kost opinn að mega kjósa um sameiningu. Fulltrúar þessa minnihluta í hreppsnefnd Skorradals- hrepps standa nú að framboðslista þeim sem nú hefur verið lagður fram með Davíð bónda og oddvita á Gmnd í fyrsta sæti. Hagstofan mun nýverið hafa gefið það út að ekki verði úrskurðað um lögmæti núverandi fbúaskrár fyrr en eftir að framboðsfrestur rann út. Samkvæmt henni vom íbúar Skorra- dalshrepps 52 talsins þann 1. desem- ber s.l. Útlitið í dag er því þannig að framkominn listi verður sjálfkjörinn til sveitarstjómar og því verði ekki kosið í Skorradal þann 23.' maí n.k. Pálmi óhress Pálmi Ingólfsson á Hálsum er full- trúi þess hóps í Skorradal sem nú virðist ætla að verða undir í þessum deilum. Hann er einn af þremur full- trúum í hreppsnefnd Skorradals- hrepps sem barist hefur fyrir samein- ingu við önnur sveitarfélög í Borgar- firði. Aðspurður um hvort minnihlutinn í sveitarfélaginu hyggist gera eitt- hvað í Ijósi þessarar nýju stöðu sagð- ist Pálmi ekki búast við því. „Vinnu- brögð þessa fólks em komin langt umfram allt velsæmi. Ég mun ekki eyða kröftum mínum í einhver skít- verk, heldur einbeita mér að öðm“, sagði Pálmi. „Við vildum fá samein- ingu við nágrannasveitarfélögin þar sem við teljum að íbúafjöldinn sé kominn í lágmark. Fjöldinn hér er einfaldlega á hungurmörkum. Við höfum ekki afl né orku til að starfa ein og sér í nútíma þjóðfélagi þar sem baráttan og vinnan á að felast í að halda í við íbúaþróunina eins og hún hefiir verið s.l. ár. Við hér í Skorradal emm að éta okkur innan frá og visnum því svo mikið að slag- kraftur og orka verður engin til að sinna málefnalegri uppbyggingu. Staðreyndin er sú að þessar deilur veikja héraðið og samtakamátt þess“, sagði Pálmi. Aðspurður um þá staðreynd að fram væri kominn hsti til sveitar- stjómar sem líklega yrði sjálfkjörinn, sagði Pálmi: „Þetta er ekki spuming um hvort verið er að bijóta lög, held- ur snýst þetta um siðferði og það að virða skoðanir einstaklinga hér í sveitinni. Eftir því sem það verða meiri átök milli manna um málefni sveitarfélagsin, tekur það sífellt meiri orku frá okkur sem viljum horfa til framtíðar og uppbyggingar. Þeir sem vilja stuðla að sókn og upp- byggingu, sjá hag sínum betur borg- ið annars staðar í manneskjulegra umhverfi", sagði Pálmi að lokum. Undirbúning- ur opnunar EINS OG alþjóð veit er stefnt að opnun Hvalfjarðarganga með pompi og prakt þann 11. júlí n.k. Akurnesingar hafa ýmislegt á prjónunum til að nýta þá athygli sem „umheimurinn" mun sýna þessum viðburði. Ráðgert er að drög að efn- isskrá fyrir dagskrá sumarsins á Akranesi verði fullgerð í byrjun júní. Nefnd, undir forsæti Gísla Gíslason- ar bæjarstjóra, vinnur að gerð dag- skrárinnar. Nefndin auglýsti eftir til- lögum að efnisskrá og rætt hefur ver- ið við hagsmunahópa, félagasamtök og einstaklinga sem lögðu inn tillög- ur. Meðal þeirra sem nefndin hefur unnið með eru Skagaleikflokkurinn. íþróttabandalag Akraness, forráða- menn Akraborgar og Tónlistarfélags- ins. Auk þess vinna fulltrúar frá Átaki Akraness með nefndinni að undirbúningi fyrir atburði komandi sumars. símtœki Rafstofan Egilsgötu 6 Úr stefnuskrá Borgarfj ardarlistans 5S$$S$S88SSSS$SSSSS8SS$$SS8S ■ —i AUGLÝSING UM SVEINSPRÓF Sveinspróf í löggiltum iðngreinum fara fram í maí og júní 1998. Umsóknarfrestur er til 25. maí n.k. Upplýsingar og umsóknareyðublöð hjá; IÐNFULLTRÚA VESTURLANDS, ÓSKARI ARNÓRSSYNI Vesturgötu 17, Akranesi. Sími og símsvari 431 3165. AUGLÝSING um framboðslista við sveitarstjórnarkosningar 23. maí n.k. í sameiginlegu sveitarfélagi Álftaneshrepps, Borgarbyggðar, Borgar- hrepps og Þverárhlíðarhrepps B listi Framsóknarflokks Guðmundur Guðmarsson Kolfinna Þóra Jóhannesdóttir Guðmundur Eiríksson Finnbogi Leifsson Eygló Lind Egilsdóttir Sigríður Helga Skúladóttir Þórður Þorsteinsson Edda Björk Hauksdóttir Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson Sigmar Helgi Gunnarsson Margrét Guðjónsdóttir Guðbrandur Þorkelsson Guðmunda Ólöf Jónasdóttir Ólafur I. Waage Veronika G. Sigurvinsdóttir Ragnheiður S. Jóhannsdóttir Sigurjón M. Valdimarsson Jón Þór Jónasson D listi Sjálfstæðisflokks Óli Jón Gunnarsson Guðrún Fjeldsted Andrés Konráðsson Helga Halldórsdóttir Bjarni Helgason Guðjón Gíslason Magnús Guðjónsson Vilhjálmur Diðriksson Jónína Arnardóttir Björg Jónsdóttir Ari Björnsson Sigbjörn Björnsson Sigrún Símonardóttir Þórdís Reynisdóttir Arilíus Sigurðsson Jóhannes Harðarson Kristín Siemsen Skúli Bjarnason Borgarnesi 04. maí 1998. Yfirkjörstjórn L listi Borgarbyggðarlista Kristín Þ. Halldórsdóttir Guðrún Jónsdóttir Guðbrandur Brynjúlfsson Kristmar Ólafsson Runólfur Ágústsson Anna Ingadóttir Örn Einarsson Ómar Örn Ragnarsson Kristín Valgarðsdóttir Birna K. Baldursdóttir Ragnheiður Einarsdóttir Einar Guðmar Halldórsson Klemenz Halldórsson Elín B. Magnúsdóttir Kolbrún Óttarsdóttir Sóley Sigurþórsdóttir Sveinn Jóhannesson Jón Kr. Guðmundsson TÓNUSTARSKÓLINN Á AKRANESI Vortónleikar og skólaslit Vortónleikar nemenda skólans verða 11., 12., 13. og 14. maí n.k. Allir tónleikarnir eru á sal skólans og hefjast kl. 20:00. Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir. Sigríður Jónsdóttir messósópran og Jónas Ingimundarson píanóleikari verða með söngtónleika í Vinaminni laugardaginn 16. maí kl. 14:00. Skólaslit verða miðvikudaginn 20. maí kl. 18:00 Vekjum einnig athygli bæjarbúa á tónleikum Stórsveitar Reykjavíkur á sal Grundaskóla sunnudaginn 10. maí kl. 16:30. TÓNLISTARSKÓLINN Á AKRANESI Akraneskaupstabur

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.