Skessuhorn - 07.05.1998, Blaðsíða 6
6
FIMMTUDAGUR 7. MAÍ1998
áSESSlíHÖBKÍ
Anna Kjartans
tekur vR» hótel
Oská Akranesi
ANNA KJARTANSDÓTTIR hef-
ur nú tekið á Ieigu Hótel Ósk á
Akranesi. Um er að ræða hús-
næði heimavistar Fjölbrautar-
skólans. Rekstraraðili hótelsins
er Hótel Akranes ehf. sem er
firma í eigu hennar.
Anna flutti ásamt manni sín-
um, Rirni S. Lárussyni, og börn-
um þeirra til Akraness á s.l. ári.
Undanfarna mánuði hefur hún
starfað á veitinga- og gististaðn-
um Barbró.
Nýji hótelstjórinn var tekinn
talin og hún spurð um horfurnar
í rekstrinum á næsta ári. „Eg er
bjartsýn á sumarið. Ég þekki að
vísu lítið til rekstursins síðustu
árin en ég hef ágæta reynslu af
svipaðri starfsemi. Ég hef starfað
við ferðaþjónustu lengi og því
ekki að prófa þetta á Akranesi?
Ég sé mikla möguleika í grein-
inni og hótelbransanum al-
mennt“, sagði Anna. Hún hefur
starfað við hótel- og veitinga-
rekstur á Selfossi síðan 1986,
síðast sem rekstrarstjóri yfir
Gesthúsum þar í bæ.
Anna segir mikilvægt að fólk í
ferðaþjónustu tald betur hönd-
um saman á Akranesi til að nýta
þau tækifæri sem skapast m.a.
vegna Hvalfjarðarganganna.
,Akranes er í mjög svipaðri stöðu
og Selfoss því Selfoss tók við sem
miðstöð ferðamanna á Suður-
landi á eftir Hveragerði, vegna
þess að þjónustan þar var betri
Anna Kjartansdóttir vi& Hólel Ósk.
við ferðamenn en á síðar nefnda
staðnum. Aðdráttarafl fyrir
ferðamenn er e.t.v. meira í
Hveragerði en einungis fyrir
stuttar heimsóknir. Það sem
gildir er önnur þjónusta og það
er styrkleiki Akraness. Það sýndi
sig t.d. í nýlegri könnun að
heimamenn gera innkaupin á
staðnum og það eru meðmæli“,
sagði Anna.
Á Hótel Ósk verður hægt að
taka á móti 64 gestum í gistingu
auk þess sem aðstaða er góð fyr-
ir stærri fundi. Anna hyggst opna
hótelið þann 1. júní n.k.
Halda tónleika í Reykholtskirkju
föstudaginn 8. maí kl. 21:00
Frábær dagskrá þar sem Diddú mun
syngja ísiensk og erlend lög við
undirleik Jerzy Tosik-Warszawiak
Gunnar, Kristbjörg, Daníel, Þorgils, Hilmar og Þórir ræ&a málin í heita pottinum. Mynd: Helgi Dan.
Málin rædd í
heita pottinum
Hafdís a& Ijúka vi& 500 metrana. Mynd: Helgi Dan.
ÞAÐ VAR frekar rólegt í Sund-
lauginni á Jaðrsbökkum, þegar
ég leit þar inn einn morguninn,
enda heldur of seint á ferðinni til
að góma morgunhanana, sem
setja sinn svip á Iaugina, eins og
í sundlaugum annarstaðar.
I sundlauginni voru tveir að
synda, karl og kona. Konan
reyndist vera Hafdís Daníels-
dóttir bókavörður, sem að sögn
er þar tíður gestur og syndir sína
500 metra eða svo. Hún baðst
undan myndatöku, en af eðlileg-
um ástæðum var því ekki ansað
og smellt af henni mynd í einum
snúningnum við laugarbakkann.
I heitapottinum sátu einir
fimm karlar og ein kona, sem
alltaf leit undan þegar myndavél-
inni var beint að þeim. Þetta
voru voru þau Kristbjörg og
Hilmar, Gunnar, Þórir, Þorgils
og Daníel, hinn ötuli fréttamað-
ur DV á Skaganum.
Eins og í öðrum heitum pott-
um í sundlaugum landsins voru
þau mál, sem efst eru á baugi
hverju sinni rædd og mér heyrð-
ist að nafn Sverris Hermansson-
ar fyrrum bankastjóra bæri þar á
góma, auk Hvalfjarðargangna og
fleiri mála sem eru efst á baugi á
Skaganum. Ekki veit ég hvort
þau Ieystu einhver mál, en heitir
pottar eru best til þess fallnir,
eins og kunnugt er, að leysa eða
a.m.k. að finna lausnir í vanda-
sömum og flóknum málum.
Frammi í andyri er svo kaffi-
horn, þar sem menn geta slapp-
að af og fengið sér kaffisopa eft-
ir velheppnaða sundlaugarferð
og jafnvel haldið áfram að ræða
málin. Þar sátu þau hjónin Þor-
geir og Dódó, ásamt gamalli vin-
konu minni, Kristínu Ragnars-
dóttir og spjölluðu saman á ljúf-
um nótum. H.Dan
Listi Dalabyggbar
Listi Dalabyggðar fyrir sveitarstjómarkosningamar 23. maí 1998 hefur verið lagður fram. Hann skipa eftirtaldir:
1. Sigurður Rúnar Friðjónsson, mjólkurbússtjóri Stekkjarhvammi 1
2. Jónas Guðmundsson, rafveitustjóri Bakkahvammi 7
3. Trausti Valgeir Bjarnason, bóndi á Á
4. Jón Egilsson, bóndi og bifreiðastjóri Sauðhúsum
5. Þóra Stella Guðjónsdóttir, húsfreyja Staðarfelli
6. Valgerður Asta Emilsdóttir, póstfulltrúi Borgarbraut 1
7. Skjöldur Orri Skjaldarson, bóndi Hamraendum
8. Kristján Þormar Gíslason, skólastjóri Laugavöllum
9. Jóel Jónasson, bóndi Bíldhóli
10. Sigursteinn Hjartarson, bóndi og lögreglusþjónn Neðri-Hundadal
11. Bergþóra Jónsdóttir, kennari Hrútsstöðum
12. Guðný Sigríður Gunnarsdóttir, þroskaþjálfí Sunnubraut 7
13. Jóhann Eysteinn Pálmason, bóndi Hlíð
14. Guðmundur Gíslason, bóndi Geirshlíð.
Listi Samstöðu í Dalabyggb
fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 23. maí 1998 hefur verið ákveðinn. Hann skipa eftirtaldir:
1. Astvaldur Elísson, bóndi Hofakri
2. Þorsteinn Jónsson, bóndi Dunkárbakka
3. Sigríður Bryndís Karlsdóttir, bóndi Geirmundarstöðum
4. Ingibjörg Jóhannsdóttir, húsmóðir og skrifstofumaður Miðbraut 2
5. Bjarni Kristmundsson, bóndi Giljalandi
6. Þórunn Hilmarsdóttir, bóndi Skarði
7. Guðmundur Pálmason, bóndi Kvennabrekku
8. Berglind Vésteinsdóttir, leikskólakennari Bakkahvammi 11
9. Guðbrandur Ólafsson, bóndi Sólheimum
10. Inga G. Kristjánsdóttir, nemi Gunnarsbraut 5
11. Guðbjörn Jónsson, bóndi Miðskógi
12. Svavar Magnússon, bóndi Búðardal 1
13. Rúnar Jónasson, bóndi Valþúfu
14. Einar Ólafsson, bóndi Lambeyrum.