Skessuhorn - 07.05.1998, Page 7
gaESSUHQBM
FIMMTUDAGUR 7. MAÍ1998
7
Jón Bö hvetur til
nýtingar Eglu
LANGISANDUR
GARÐABRAUT 2 • AKRANESI • SÍMI 431 3191
Föstudagur:
kl. 23:00 - 03:00
FUNDUR númer 750 hjá Lions-
klúbbi Borgarness var haldinn
þriðjudaginn 28. apríl s.l. Klúbb-
urinn var stofnaður 2. apríl 1957
og er því að Ijúka sínu fertugasta
starfsári nú í vor. I tilefni þessa
var öllum Lionsfélögum og gest-
um, er mættir voru, afhentur
áletraður blaðahnífur til minn-
ingar um fundinn.
Aðalefni kvöldsins var erindi
Jóns Böðvarssonar kennara og
fræðimanns um hvernig tengja
mætti Egilssögu við ferðaþjón-
ustuna í Borgarfirði. Jón rifjaði
upp fyrir fundarmönnum hinar
ýmsu sögur og atvik er gerst
höfðu í Borgarnesi á landnáms-
öld og sagði að fáir bæir ættu til
jafn mikið af sögustöðum innan
bæjarmarkanna. Nefndi hann
sem dæmi Granastaði, Sandvík
og Brákarsund. Jón kvatti heima-
menn til að líta til þess hvernig
uppbygging sögusafns og þjón-
ustu í kringum það á Njáluslóð-
um væri háttað. Sagði hann að
menn á þeim slóðum hefðu lagt
í mikla vinnu við merkingar
söguslóða og þar væru allir stað-
ir er eitthvað tengdust Njálu
merktir sérstaklega með merki
sem hannað hefði verið eftir silf-
urnælu frá landnámsöld er
fannst í haug á Suðurlandi.
Einnig sagði Jón frá Njálusafni
er Björn G. Björnsson var feng-
inn til að hanna og hefði það tek-
ist mjög vel. Allur viður sem not-
aður var í grindur og uppistöður
Snorri í Reykholti la&ar aí> fjölda
feröamanna á hverju ári.
í því safni er úr rekavið og sagði
Jón að menn hefðu haft áhyggjur
af því hvernig slfkt kæmi út, en
þegar safnið var fullbúið hefðu
allir verið ánægðir með hvernig
til tókst. Jón sagði að vissulega
ugitmgajfúgjkaffflfug, to
Brákarbraut 13 * 310 Borgarnes • sími 4372313 »fax437 2213
BUÐARKLETTUR UM HELGINA:
Föstudagur 08. maí:
Guðmundur Rúnar og Hlöðver Guðnason leika
til kl. 03:00.
Laugardagur 09. maí:
Guðmundur Rúnar og Hlöðver Guðnason leika til 03:00.
Verið velkomin
Kór Félags
eldri borgara
á Akranesi og nágrenni auk gesta:
Nemendur Tónlistarskólans á Akranesi halda
vortónleika í Vinaminni fimmtudaginn 7. maí. kl.
20:30.
Kórstjóri: Lárus Sighvatsson.
Undirleikarar: Ásdís Ríkharösdóttir
og Geir Guðlaugsson.
Aðgangseyrir 500,- kr.
væri þetta dýrar framkvæmdir en
heimamenn hefðu verið duglegir
við að fá hin ýmsu fyrirtæki til að
styrkja verkið og hélt hann að
heildarskuldir þess væru ekki
meira en 1,5 til 2 milljónir í dag.
Til marks um áhuga fólks á safn-
inu, hafa gestir verið vel á fimm-
ta þúsund á fyrsta starfsárinu.
Jón lagði til að hannað yrði
merki er sett yrði við þær götur
bæjarins sem tengdust atburðum
úr Eglu auk þess sem hann benti
á að bílvegurinn niður í Alftanes
væri nánast óbreytt reiðleið Egils
og hans manna. A ferðum sínum
um slóðir Eglu með áhugasama
fornsöguunnendur hefði hann
orðið var við að nánast undan-
tekning var ef einhver af þátttak-
endum hefði komið í Alftanes
áður og vildi Jón meina að Borg-
firðingar ættu þar mikla ónýtta
möguleika.
Að lokum gat Jón þess að
heimamenn ættu að íhuga það
mjög vel að koma upp einhveiju
safni til að vekja athygli ferða-
manna á fornsögunum og skipti
þá ekki máli hvort um íslenska
eða erlenda ferðamenn væri að
ræða. Að Ioknu erindi svaraði
Jón ýmsum fyrirspumum fund-
armanna. Var gerður góður róm-
ur að málflutningi Jóns og hon-
um þakkað gott erindi.
Slysavarnir
á nýrri öld
Málþing í Borgarnesi laugardaginn 9. maí 1998
kl. 10:00 -16:00 á Hótel Borgarnesi
Opið öllum
Ábyrgð- og öryggismá! f íþrótta-, félags-og tómstundastarfi.
Dagskrá:
10:00: Setning Lára Helgadóttir formaður slysavarnaráðs Slysavarnafélags íslands.
10:15: Reynir Karlsson deildarstjóri íþrótta-og æskulýðsdeildar í menntamálaráðuneytinu.
10:30: Stefán Bjarkason íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Reykjanesbæjar. Fulitrúi fyrir Sam
band sveitarfélaga.
10:45: Helgi Gíslason æskulýðsfulltrúi KFUM og K. Fulltrúi æskulýðssamtaka.
11:00: Sjúkrahús Reykjavíkur.
11:15: Ásgerður Halldórsdóttir viðskiptafræðingur ÍSÍ/UMFÍ.
11:30: Gauti Grétarsson sjúkraþjálfari á sæti í heilbrigðisnefnd ÍSÍ.
11:45: íris Grönfeldt íþróttafræðingur UMSB
12:00: Sigurjón Sigurðsson læknir, Tryggingastofnun ríkisins
12:15: Matarhlé
13:30: Fyrri hluta pallborðsumræðna. (5 fulltrúar)
14:30: Síðari hluta pallborðsumræðna (5 fulltrúar)
15:30: Lok.
í tengslum við málþingið munu nokkur fyrirtæki halda sýningu á búnaði.
Þetta málþing er haldið í samvinnu við eftirtalda aðila:
Mentamálaráðuneytið
íþróttasamband íslands
Ungmennafélag íslands
Æskulýðsráð ríkisins.
Laugardagur:
Lokahóf stangveiðimanna. Húsið opnar á miðnætti
Húsið opnar
kl. 23:00
til kl. 03:00
STAÐUR SEM STENDUR SIC . . .
Kosningaskrifstofa
B-Listans
á Akranesi
Verður formlega opnuð laugardaginn 10. maí 1998 kl.
1J5:00 að Sunnubraut 21. Akranesi.
Avörp
Tónlist
Kaffiveitingar
Allir velkomnir
Skrifstofan verður opin dagiega fram að kosningum og
þar eru veittar allar upplýsingar um kosningarnar
Framsóknarflokkurinn Akranesi.