Skessuhorn


Skessuhorn - 07.05.1998, Side 9

Skessuhorn - 07.05.1998, Side 9
ssissiiiioía'j FIMMTUDAGUR 7. MAÍ1998 9 Framsókn til farsællar framtíbar Þann 23. maí næstkomandi ganga íbúar í fjórum sveitarfé- lögum í Mýrasýslu til kosninga um sveitarstjórn í nýju samein- uðu sveitarfélagi. Það er mikil- vægt fyrir þetta samfélag að sam- einingin takist vel og að við sem hér búum berum gæfu til að standa þannig að málum að við getum horft björtum augum til framtíðarinnar. Fyrir fjórum árum sameinuð- ust fjögur sveitarfélög í Mýra- sýslu og mynduðu nýtt sveitarfé- lag, Borgarbyggð. Við sveitar- stjórnarkosningar þá fór svo að Framsóknarflokkurinn fékk fjóra menn kjörna og hefur farið fyrir sveitarstjórninni þetta kjörtíma- bil sem nú er að líða. Það var þessum fulltrúum metnaðarmál að tekið yrði af ábyrgð á stjórn sveitarfélagsins og lögð áhersla á uppbyggingu og sókn fram á veg- inn. Þessi áform hafa tekist vel, mikil uppbygging hefur orðið hér í sveitarfélaginu síðastliðin fjög- ur ár. I því sambandi má nefna viðfangsefni sem sveitarfélagið hefur haft á sinni könnu eða lagt verulegt lið eins og íþróttamann- virkin í Borgarnesi og uppbygg- ing á Bifröst sem sveitarfélagið hefur komið að. Ferðaskrifstofa Vesturlands var opnuð og er nú farin að skila verulegum árangri á sínum vettvangi. Þá er einnig hægt að benda á uppbyggingu fyrirtækja í Borgarnesi eins og Loftorku og Vírnets en hjá báð- um þessum fyrirtækjum hefur verið byggt viðbótaratvinnuhús- næði og starfsemin aukin. Jafn- framt má nefna nýlega uppbygg- ingu tveggja þjónustufyrirtækja við Brúartorg. Eðalfiskur, sem er að stærstum hluta í eigu Borgar- byggðar, hefur einnig aukið um- svif sín umtalsvert á undanförn- um árum. Svo má nefna að nú eftir mar- gra ára hlé eru hafnar byggingar íbúða á almennum markaði og ný gata hefur verið byggð í Borg- arnesi. Þetta er mikilvægur áfan- gi og markar tímamót þar sem þróun undanfarinna ára er loks snúið við. tföariniv Kirkjubraut 8'B 431 4431 Föstudags- og laugardagskvöld Halldór og Ómar 20 ára aldurstakmark. Muniö skilríkin Hvítbotna gúmmí- skórnir eru komnir i öllum stærðum. Skóbúðin Borg EgilsgötuTl. Sími 437 1240. Það er hægt að nefna fjölmörg önnur mál sem vel hafa tekist en ég læt nægja til viðbótar að nefna þá breytingu sem gerð var á orkumálum Borgnesinga en þar hefur nú orðið tuga prósenta lækkun á hitaorku sem íbúarnir finna vel fyrir og meta. Hægt er að sýna fram á að innan fárra ára verði hægt að Iækka hitaorkuna enn meira, verði gengisþróun með svipuðum hætti og nú er, sem allt bendir til að verði. Þrátt fyrir þessi augljósu teikn um heillavænlega þróun í sveit- arfélaginu þá eru blikur á lofti á sumum sviðum. Landbúnaður hefur dregist verulega saman í sveitarfélaginu og héraðinu öllu reyndar og það á jafnframt við um úrvinnslu landbúnaðaraf- urða. Fyrr á þessu kjörtímabili var Mjólkursamlag Borgafirðinga úrelt og úrvinnslu hætt. Þetta var áfall fyrir atvinnulífið hér og þetta var áfall fyrir alla byggð í Borgarfirði og á eftir að hafa mikil áhrif á búsetu í Borgarfirði í framtíðinni. Það er umhugsun- arefni sú staðhæfing að meiri hagræðing hefði náðst með því að leggja ekki í fjárfestingu í Reykjavík og hætta úrvinnslu þar. Þegar úrvinnsla afurða fjar- Iægist framleiðendur missa þeir tengsl sem nauðsynleg eru til hvatningar þróunar í atvinnu- greininni. Þessi neikvæðu áhrif verða svo til þess að búum fer að fækka sem aftur veldur því að erfiðara verður að sinna lág- marks félagsþjónustu í dreifbýl- inu. Því nefni ég þetta að nú liggur fyrir að rekstur Afurðasölunnar í Borgarnesi hefur gengið mjög illa og sér ekki enn fyrir endann á því máli en engu að síður er nauðsynlegt fyrir fólk að gera sér grein fyrir því að þessi rekstur er mikilvægur til að viðhalda byggð í Borgarfirði. Þetta er atvinnu- mál sem ekki varðar bara Borg- nesinga heldur alla búsetu í Borgarfirði og því mikilvægt að vel takist til að leysa úr þeim hnút sem nú er komin á. I grein sem birtist í Skessu- horninu föstudaginn 24. apríl síðastliðinn gerir Guðbrandur Brynjúlfsson þessi mál að um- talsefni og ég get tekið undir margt sem kemur fram í vanga- veltum hans um þróun byggðar og atvinnumála undanfarin ár og þar með málefnum afurðastöðva í Borgarnesi. I lok greinarinnar fer hann hins vegar að fjalla um málefni Borgarbyggðar og sveitarstjórnar en þar fatast honum hrapallega flugið og reyndar finnst mér hann brotlenda sem þriðji maður á L-lista þegar hann í upphafi þeirrar umfjöllunar ræðir um kynningu á sveitarfélaginu. Það er einnig staðhæft að í sveitarfélaginu hafi ríkt stöðnun og deyfð. Mér er reyndar kunn- ugt um að Guðbrandur hefur komið í Borgarnes stöku sinnum á síðastliðnum fjórum árum og þykist því vita að hann viti betur því ný uppbygging, sem ég hef að nokkru getið um hér að framan, blasir við nánast hvert sem litið er. I lokaorðum greinarinnar kór- ónar hann verkið þegar hann grípur til þess þar sem fjallað er um áherslur L-Iistans að bera fyrir sig gamlar, innantómar og úr sér gengnar ldisjur sem ein- ungis þreyttir og úrræðalausir menn grípa til. Ef þetta er sýnis- horn af því sem L-listinn býður upp á þá er ekki annað að sjá en að þar fari úrvinda fólk sem ekki hefur kynnt sér stöðu sveitarfé- lagsins og hefur því að sjálfsögðu ekki mótaða stefnu um hvernig á málum eigi að halda. Þessu fólki á að gefa frí, langt frí. Það er hverju samfélagi nauð- synlegt að til stjórnunar veljist hæft fólk með fjölbreytta starfs- reynslu og þekkingu. Það er rétt að vekja athygli á því að fræðslu- mál eru lang viðamesta mála- flokkur sveitarfélagsins sem kemur til með að taka til sín um helming allra útgjalda sveitarfé- lagsins á næstu árum. Það er því nauðsynlegt að í sveitarstjórn veljist fólk sem hefur þekkingu á þessum málaflokki. B-Iistann skipar fólk sem kem- ur frá fjölmörgum greinum at- vinnulífsins, fólk sem kemur nýtt til starfa að sveitarstjórnarmál- um og einnig fólk sem býr yfir reynslu og þekkingu á málefnum sveitarfélagsins. Valið við næstu kosningar er því auðvelt, B-list- inn mun áfram vinna að þeirri uppbyggingu og sókn sem nú er haíin, sveitarfélginu og öllum íbúum þess til farsældar. Guömundur Guðmarsson 1. maður á B-lista í Borgar- /l/önyal&i íDALABÚÐ Laugardagskvöldið 9. maí 1998 Félag harmoníkuunnenda í Reykjavík og Harmoníkufélagið Nikkólína. Klukkan 21:00: Tónleikar F.H.U.R., einleikur, tvíleikur, fimm- leikur og hfjómsveit. Klukkan 22:00: Dansleikur. Hljómsveitir undir stjóm Þorvafd- ar Bjömssonar, Guðmundar Samúelssonar og Grettis Bjöms- sonar auk Nikkólínu og hljómsveitar F.H.U.R. sjá um að halda gólfinu heitu. Þetta verður ósvikið gömludansakvöld, sem enginn má missa af Vorið er komið og grundimar gróa og Dalimir dansa! F.H.U.R. og Nikkólína (tvær góðar saman) Starfsfólk óskast! Borgarnes Kjötvörur ehf. Borgarnesi, óska eftir starfsfólki til almennra kjötvinnslustarfa. Einnig óskast til starfa fólk vant úrbeiningu. Uppl. í síma 437 1200. Vorferð Hin árlega vorferð þátttakenda í Opnu húsi að Höfða verð- ur farin fimmtudaginn 14. maí n.k. Lagt verður af stað kl 14.30 stundvíslega frá Olísnesti við Esjubraut. Ekið verður sem leið liggur í Kringluna, snæddur þar kvöldverður og síðan farið í leikhús. Kostnaður á einstakling er 1.490,- kr. fyrir kvöldverð auk drykkjarfanga. Þátttökutilkynningar berist fyrir 12. maí n.k. á bæjarskrif- stofuna í síma 431 1211. Félagsmálaráð. Auglysing um starfsstynk til listamanna á Akranesi Hér með er auglýst eftir umsóknum um starfsstyrk bæjarlista- manns á Akranesi samkvæmt samþykkt bæjarstjórnarinnar frá 24. mars 1998. Umsóknum skal skilað til bæjarstjórans á Akranesi eigi síðar en 20. maí n.k. og gilda eftirfarandi reglur um veitingu starfsstyrks: 1. gr. Starfsstyrkur bæjarlistamanns Akraness skal miðaður við 249. launaflokk kjarasamnings Akraneskaupstaðar og STAK, efsta þrep. 2. gr. Sækja skal um styrkinn til bæjarstjórnar Akraness. Að jafn- aði koma þeir einir til greina, sem bæjarlistamenn, sem búsettir eru á Akranesi. 3. gr. Starfsstyrkur skal að jafnaði vera miðaður við 6 mánaða laun samkvæmt 1. gr. og er heimilt að skipta fjárhæðinni, þó ekki á milli fleiri en þriggja einstaklinga. 4. gr. Bæjarlistamaður skal í umsókn sinni til bæjarstjórnar gera grein fyrir því, sem hann hyggst vinna að. Hann skal einnig gera grein fyrir því hvenær hann ætli að vinna að verkum sínum. 5. gr. Bæjarlistamaður skal að loknu starfstímabili gera bæjar- stjórn grein fyrir starfi sínu. 6. gr. Bæjarstjórn auglysir í aprílmánuði eftir umsóknum um styrki, með umsóknarfresti til 20. maí. Menningarmála- og safna- nefnd veitir bæjarstjórn umsögn um framkomnar umsóknir, sem bæjarstjórn velur úr og veitir þann 17. júní. Akranesi 2. apríl 1998. Bæjarritari Aðalfundur Aðalfundur Verkalýðsfélags Borgarness verður haldinn mánudaginn 11. maí 1998 kl. 20:30 í Félagsbæ Dagskrá: 1. Aðalfundarstörf samkvæmt félagslögum 2. Önnur mál. Félagsmenn eru hvattir til að mæta vel og stundvíslega. Ársreikningar liggja frammi á skrifstofu félagsins til skoð- unar fyrir félagsmenn. Kaffiveitingar. Stjórnin Wrangler tilboð! ■ og herra- gallabuxur 3.990,-

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.