Skessuhorn - 07.05.1998, Qupperneq 12
12
FÖSTUDAGUR 8. MAÍ1998
Bílprófsstyrkir í
Borgarnes
BÚNAÐARBANKIÍSLANDS og bif-
reiðaumboðið Hekla standa saman að
því að veita bflprófsstyrki til 40 félaga
í Námsmanna- og Vaxtalínu Búnaðar-
bankans ár hvert. Styrkjunum er skipt
niður á 10 ungmenni ársfjórðungslega.
Þeir eru að upphæð 10.000 krónur auk
innborgunar á notaðan bíl frá Bflaþingi
Heklu að upphæð 75.000 krónur.
Styrkimir eru veittir fjórum sinnum á
ári. Allar umsóknir sem berast á árinu
eru settar í pott sem dregið er úr í árs-
lok. Heppinn ökumaður verður dreg-
inn út og ef hann hefur ekið tjónalaust
mun hann hljóta viðurkenningu.
Dregið var nú í apríl í þessum leik
Búnaðarbankans og Heklu og vildi þá
svo til að 2 vinningar komu í Borgar-
nes. Handhafar þeirra voru þær Hrafn-
hildur Hrafnsdóttir og Ester Magnús-
dóttir. Verður það að teljast hátt hlut-
fall hjá Borgnesingum að fá 20% vinn-
inga á landsvísu og er þetta þó ekki í
fyrsta sinn sem vinningur kemur í
Borgames í þessum leik.
Kristján Björn Snorrason útibússtjóri Búnabarbankans í Borgarnesi og
Björn Björnsson umbobsmabur Heklu í Borgarnesi afhenda þeim Hrafn-
hildi Hrafnsdóttur og Ester Magnúsdóttur vinningana.
Leikur ab gleri
LEIKUR að gleri er nafn á sýningu
sem Heiðrún Þorgeirsdóttir glerlista-
kona opnar í Listasetrinu að Kirkju-
hvoli laugardaginn 9. maí n.k.
Heiðrún sem hefur verið búsett s.l.
20 ár í Keflavík og í 10 ár þar á und-
an á Selfossi, er fædd á Akranesi árið
í 1940, dóttir Höllu Ámadóttur frá
Asi við Vesturgötu á Akranesi og
Þorgeirs Ibesen fyrrum skólastjóra í
Hafnarfirði. Halla var sem kunnugt
er dóttir Ama Böðvarssonar ljós-
myndara og sparisjóðstjóra á Akra-
nesi og bróðir Höllu var Ólafur
Árnason ljósmyndari á Akranesi.
Halla og Ólafur em bæði látin og er
sýningin tileinkuð minningu þeirra.
Við hittum Heiðrúnu í Kirkjuhvoli
þar sem hún var að taka verk sín upp-
úr kössum. Hún sagðist vera mjög
ánægð með að sýna í Kirkjuhvoli.
Kirkjuhvoll er fallegt hús og þar er
góður andi, auk þess sem hún á góð-
ar minningar þaðan, því í einni stof-
unni sem nú mun hýsa listmuni
hennar gaf sr. lón M. Guðjónsson,
hana eiginmann hennar Benedikt
Sigurðsson, sem kenndur var við
Gneistavelli, í hjónaband árið 1960,
en í þá daga var Kirkjuhvoll prestset-
ur, sem kunnugt er.
Heiðrún byrjaði að mála á postulín
árið 1980 og var við nám í Mynd-
listaskóla Reykjavíkur 1982-1985 og
Heibrún Þorgeirsdóttir glerlistakona
laugardaginn 9. maí n.k.
nam glerskurð og blýlagningu hjá
Listagleri Kópavogs. Árið 1987 sótti
hún þrjú námskeið í bræðslutækni
hjá lónasi Braga Jónssyni, sótti tvö
Tiffany’s námskeið í bræðslutækni
og meðferð Buffseys-glers hjá
Krissy Ellis. Síðan þá hefur Heiðrún
fengist við glerlist.
Að þessu sýnir Heiðrún 17 glugga-
myndir, 15 skálar, svo og kerta-
stjaka, en tölu þeirra hafði hún ekki.
Öll verkin sagðist hún hafa unnið á
s.l. vetri, en þau em unnin í rúðugler
en með ýmsum útfærslum þó. Sum
opnar í Listasetrinu ab Kirkjuhvoli
Mynd H.Dan
em sýmbrennd önnur með kopar,
messing, platínu, gulli eða möttu
gulli. Þetta er 3 einkasýning
Heiðrúnar, en hún hefur tekið þátt í
nokkmm samsýningum.
Við opnun sýningarinnar mun
bróðir Heiðrúna, Ami Ibesen rithöf-
undur lesa upp úr eigin verkum. Sýn-
ingin stendur til 24. maí n.k. og verð-
ur opin daglega frá kl. 15.-18.
Ástæða er til að hveta Vestlend-
inga til að leggja leið sína í Kirkju-
hvol og sjá sýningu Heiðrúnar því
sjón er sögu ríkari.
Eini prentmiðillinn sem
fer á öll heimili og
vTyrirtæki á Vesturlandi.
Skessulíorn er einfaldlega
Jjlf § t' * - í
1