Skessuhorn


Skessuhorn - 07.05.1998, Side 18

Skessuhorn - 07.05.1998, Side 18
18 §gESSUH©SM STÓRAR smáar ð 431 4222 Til sölu eða leigu 140 fm. iðnaðarhúsnæði með tveimur stórum inn- keyrsludyrum. Einnig inni- hurðir með körmum og skápar úr eldhúsinnrétt- ingu. Uppl. í síma 431 2294. Verkfæri til sölu. Loftheftibyssur 3 stk. kr. 5.000,- stykkið. Hilti byssa DX 450 kr. 10.000,- Lamellofræsari nánast nýr kr. 25.000.- Stingsög kr. 4000.- Stór hefilbekkur kr 25.000.- Rafmagnshand- hefill kr 10.000,- Uppl. í síma: 899-8549 á kvöldin. Til sölu 2 nyjar og mjög vandaðar útihurðir með körmum 90x200 oregon pine fuln- ingahurðir, gler í efri hluta, þ.e. 4 litlar rúður. Verð aðeins 75.000 kr,- pr. stk. Góð greiðslukjör. Uppl í síma 899-8549 á kvöldin. Atvinna í Boði Bændur vélaáhugamenn! Óska eftir fólki um land allt til að afla skráninga fyrir tækjamiðlun. Góð laun í boði. Bílagallerý - Tækjamiðlun S: 451 2230. Til sölu sambyggð trésmfðavél. Robland þriggja fasa. Uppl. S: 437 2144 og 892 9464. Starfskraft vantar! Starfskraft vantar f Hrepps- laug í sumar. Ráðningar- tími er júní, júlí og ágúst. Lágmarksaldur 16 ára. Upplýsingar gefur Sigurður Axel í síma 437 0023, 437 0123 og 898 0137. Aðalfundur Sundfé- lags Akraness verður haldinn í íþróttamið- stöðinni þriðjudaginn 12. maí n.k. kl. 20:00. 1 .Venjuleg aðalfundarstörf I.Önnur mál Stjórnin. Megrunarvara Grennri stinnari stæltari! Með heilsu-og megrunarvörunni vinsælu. Sendum hvert á land sem er. Óskum eftir dreifin- garaðilum um land allt. Anna Lóa 431 1890, Hlín 431 2373, Margrét 431 3383. Sjáifstæðir dreifendur. Ur stefnuskrá Borgarfj arðariistans __ ___ FIMMTUDAGUR 7. MAÍ1998 Tískufyrírbærí eða tímanna tákn? í HUGUM margra er sorp og annar úragngur frá heimilum einfaldlega kallað rusl. Þar gildir einu hvort að í þessar oft lítið gimilegu hrúgu séu sett efni sem eru skaðleg fyrir umhverðið eða hráefni sem hægt er að endumýta eða endurvinna á einhvem hátt. Og þegar málið er skoðað nánar kemur í ljós að u.þ.b. helmingur af öllu heimil- issorpi hefur möguleika á öðmm far- vegi en að verða sett í urðun. Nú þegar hefur hafist grunnflokkun á sorpi víða um land. Misjafnt er eftir stöðum hvaða efni em flokkuð, en þó er al- mennast að spilliefnum sé haldið að- skildum, eftir að sérstakt átak var gert í þeim málum fyrir fáum missemm. Einnig er flokkun á mjólkurfemum, pappír og pappa að verða nokkuð al- menn auk þess sem jámi og timbri er víða haldið frá. Ekki bara rusl.. Nú ber svo við að útflutningur á brotajámi virðist bera sig vel og kostn- aður sveitarfélaga við að losna við jám hefur lækkað gífurlega. Þar er einmitt Pétur Ottesen sá hvati sem þarf, þ.e. að það sé ódýr- ara að losa sig við flokkaðan úrgang en óflokkaðan til að koma til móts við þann kostnað er hlýst af flokkun. Nóg- ur er sá kostnaður samt og þeir sem borga brúsann em að sjálfsögðu Mar viðkomandi byggðarlags. Timbur og trjágreinar em kurlaðar og notaðar í gangstíga auk þess sem Islenska jám- blendifélagið notar umtalsvert magn af timburkurli við framleiðslu sína. Þetta em haldgóð dæmi um þá staðreynd að rusl er ekki bara msl, heldur oft á tíð- um verðmætt hráefni. Til að mynda er 40% af allri orkuþörf Sementsverk- smiðjunnar fullnægt með brennslu á olíuleifum sem anriars hefði þurft að flytja úr landi til förgunar. Jar&gerb Það sem að ég tel að verði næsta mál í flokkun er að ná lífrænum úrgangi frá og hefja jarðgerð. Fimm sveitarfélög á Vesturlandi: Borgarbyggð, Stykkis- hólmur, Dalabyggð, Snæfellsbær og Eyrarsveit hafa látið vinna mjög ítar- lega skýrslu um með hvaða hætti sé hægt að ná sem bestum árangri í flokk- un á lífrænum úrgangi. Miðað við það sem fram kemur í skýrslunni og ef þær forsendur sem era lagðar til hliðsjónar eru réttar, virðist sem ávinningurinn sé umtalsverður. Nú á næstu dögum verða tilbúnir útreikningar á því hvaða áhrif það hefur á gjaldskrá Sorpurðunar Vesturlands hf. ef það lífræna er tekið frá. Bind ég miklar vonir við að opnun- artími urðunarstaðarins geti verið mun styttri og þar af leiðandi lægri rekstrar- kostnaður. Allir leggjist á eitt En umfram allt þá verða Mar sveit- arfélaganna að leggjast á sveif með sveitarstjómunum til að árangur náist í fullkomnari meðferð á úrgangi. Og með því að skoða þann flötinn á mál- inu að fjármunir sparist, svo ekki sé talað um þau jákvæðu umhverfisáhrif sem fylgja í kjölfarið, verður verkefnið bæði jákvætt og áhugavert. Hugarfarið þarf að breytast enn frekar, þá mun ár- angurinn skila sér fyrr en varir. Kom- andi kynslóðir eiga það skilið að við- skilnaður okkar sé með þeim hætti að við höfum stýrt umhvefismálum í þann besta og hagkvæmasta farveg sem okk- ur er frekast unnt. Pétur Ottesen Höfundur er stjómarformaður Sorpurðunar Vesturlands hf. og skipar 2. sœti á lista Sjálfstæðismanna á Akranesi. Nokkrar línur til íbúa Borgarbyggbar Er ég set þessar línur á blað til ykkar lesendur góðir, er vorið að kíkja yfir öxlina á mér. Sólin er hátt á lofti og skógarþrestirnir syn- gja sína fegurstu vörsöngva á þak- mæninum hjá mér. Svei mér þá ef ekki heyrist kosningahljómur í þeim háværustu. Það eru ávallt sönnur þess að vorið er að koma þegar á gang- stéttirnar hópast litlar manneskjur með hjálma á höfði, blik í augum og bros á vör. Reiðhjólin hafa ver- ið dregin út úr skúrum og geymsl- um til að hægt sé nú að þeysa á þeim í kappi og taka góðan skrens. Oft horfi ég yfir hópinn út um gluggann hjá mér og hugsa til þess hvaða framtíð bíði þessara ungu ofurhuga. Erum við að skapa þeim það umhverfi sem við viljum ? Hvað getum við gert betur ? Ég tel að við séum vel í stakk búin að veita þeim góða framtíð í Borgarhyggð. Það er hinsvegar Ijóst að við megum aldrei gleyma okkur við það að hrósa happi yfir því sem við höfum. Við verðum að vera viðbúin þeim öru breytingum sem verða f þjóðfélaginu. Bjóðum unga fólkinu okkar sambærilegar aðstæður og annarsstaðar, helst betri. Við höfum alla burði til þess og viljann vantar ekki. Nú á næsta kjörtímabili er framundan einsetn- ing grunnskólans í Borgarnesi. Þar viljum við sjálfstæðismenn leggja áherslu á að aðstaða verði góð fyr- ir tónlistarkennslu og salur verði fyrir mötuneyti. Við leggjum milda áherslu á það að reka tvo öfluga grunnskóla í Borgarbyggð. I Borgarnesi og að Varmalandi. Grunnskóli að Varmalandi er grundvöllur þess að gera barna- fólki lífvænlegra að búa í sveit og Varmalandsskóli þjónar einnig stórum hópi nemenda frá Sam- vinnuháskólanum í Bifröst. I sameinaðri og stærri Borgar- byggð leggjum við mikla áherslu á að finna farsæla lausn á sam- göngumálum í sveitarfélaginu með tilliti til tómstundaiðkunar, eins og fram kemur í viljayfirlýsingunni. Eitt er það sem brennur mjög á okkur að komi til framkvæmda á næsta kjörtímabili. Það er betri tenging byggðarinnar við nýjustu tækni á sviði fjarskipta og tölvu- mála s.s. við internet. Með tilliti til aukins framboðs af atvinnu og námi í gegnum slíka tækni megum við ekki sitja eftir. Þetta er eitt af okkar áherslumálum. Markaðssetning íþróttamann- vikja í Borgarbyggð í tengslum við ferðaþjónustu er mikilvæg í nán- ustu framtíð. Við höfum þegar skapað okkur gott orð á þessu sviði og stöndum framarlega með tilliti Deiliskipulag að Eiríksstöðum í Haukadal, í Dalabyggð Tillaga að deiliskipulagi Eiríksstaða, sem nær til austasta hluta jarðarinnar Stóra-Vatnshorns í Dalabyggð að mörkum jarðarinnar Skriðukots, auglýsist hér með samkvæmt skipulagslögum nr. 73/1997. Svæðið er skipulagt með tilliti til friðlýstra fornminja og endurbóta á aðstöðu til móttöku ferðamanna. Skipulagsuppdráttur og greinargerð verða til sýnis á skrif- stofu Dalabyggðar í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal frá kl. 10.00 til 15.00 alla virka daga frá 6. maí til 17. júní, 1998. Athugasemdum skal skilað skriflega til sveitarstjóra Dalabyggðar í síðasta lagi 18. júní, 1998, fyrir kl. 15.00. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna. Sveitarstjóri Dalabyggðar Helga Halldórsdóttir. til afþreyingamöguleika íyrir ferðafólk. Sagan er allt í kringum okkur og tenging á þessum þáttum saman ætti að vera okkur markmið í framtíðinni. Markaðssetjum Borgarbyggð sem fjölskylduvæna tómstunda- byggð. I lokin vil ég þakka Gísla Einars- syni, ritsjóra Skessuhomsins, fyrir þarfa ábendingu í síðasta ritsjó- rapistli sínum. Hann talar þar um mikilvægt lundarfar sem oft kall- ast þjónustulund. Sveitarfélag sem gefur sig út fyrir að vera fram- arlega í ferðamannaþjónustu verð- ur að vinna heimavinnuna sína á þessu sviði. Ég vil að endingu óska íbúum Borgarbyggðar gleðilegs sumars. Með von um að sameinuð Borgar- byggð verði okkar styrkur á næsta kjörtímabili. Helga Halldórsdóttir. Skipar 4 sæti á lista sjálfstæðis- manna til sveitarstjómakosninga í Borgarbyggð. Ratleikur Ratleikur Fjölskyldu- ratleikur Fiölskylduratleikur og grill f skógræktinni 10. maíkl. 13:00. Verðlaun handa sigurvegaranum í ratleiknum. Kveikt verður upp í grillinu en fólk kemur sjálft með mat til að grilla. Ávaxtasafi á staðnum. Stórar og smár fjölskyldur á öllum aldii! Takið þátt í skemmtilegum leik og samveru. Allir velkomnir Akraneslistinn x E Kosningaskrifstofa Akraneslistans í Röst Vesturgötu 53 er opin kl. 16:00 -19:00 virka daga, kl. 14:00 - 20:00 um helgar. Símar: 431 3060, 431 3080 og 431 1716. Munið „opið hús“ á föstudagskvöldum.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.