Skessuhorn


Skessuhorn - 07.05.1998, Síða 19

Skessuhorn - 07.05.1998, Síða 19
FIMMTUDAGUR 7. MAÍ1998 19 SaiESSIfHCrkJ'3 Litíb um öxl og skyggnst fram á viö Að beiðni ritstjóra Skessu- hornsins set ég hér í greinarkorn það sem helst hefur verið við að fást í bæjarstjórn Stykkishólms þetta kjörtímabil en reyni einnig að Iíta til framtíðar um það hver verði helstu viðfangsefni þess næsta. Upptalning sem þessi getur þó aldrei verið tæmandi heldur einungis stiklað á stóru. Síðastliðin fjögur ár hafa að mörgu leyti verið viðburðarík á vettvangi bæjarmála í Stykkis- hólmi. Hér sem annars staðar yf- irtók sveitarfélagið allan rekstur grunnskólans 1. ágúst 1996 og sennilega hefur ekkert einstakt mál fengið jafnmikla umljöllun og þessi yfirfærsla. Þó ekki sé löng reynsla af þessu verkefni hjá sveitarfélaginu tel ég að þetta spor sem stigið var hafi verið rétt og tekist bærilega til í byrjun. Framtíðarverkefnin eru hins veg- ar mörg og vel þarf að hyggja að innra starfi skólans og samstarfi milli skólastofnana í bænum, ekki síst nú þar sem hér er í und- irbúningi sérdeild við grunnskól- ann og samstarf um forskóla- kennslu í tónlist í samstarfi við Tónlistarskólann. Sérstaklega hefur verið hugað að uppbyggingu á tölvukosti skólans síðastliðin ár og Ijóst að vel þarf að fylgjast með þróun á því sviði og gæta þess að lands- byggðin dragist ekki afturúr hvað þetta varðar en þessi tæknibylt- ing boðar ný sóknarfæri fyrir frekara nám utan höfuðborgar- svæðisins sem ekki hefur verið völ á áður. A næstu árum þarf að huga að frekari uppbyggingu á húsnæði skólans með nýrri byggingu við skólahúsið við Borgarbraut þar sem betur yrði búið að sérgrein- um, s.s. myndmennt, hand- mennt og heimilisfræði auk bættrar vinnuaðstöðu fyrir kenn- ara og jafnframt yrði kannað hvort sameiginlegt húsnæði fyrir skólabókasafnið og Amtsbóka- safnið er heppilegur kostur fyrir söfnin. I mínum huga er þetta næsta stórverkefni sem bæjarfélagið ætti að ráðast í þegar þeim stór- verkefnum er lokið sem nú eru í gangi. Leikskólinn Á yfirstandandi kjörtímabili tók Stykkishólmsbær einnig við rekstri leikskólans nánar tiltekið l.ágúst 1997. Fram til þess höfðu St.Franciskussystur rekið Ieikskólann sem nokkurs konar verktakar fyrir bæjarfélagið og voru á síðasta ári liðin Ijörutíu ár frá því Systurnar hófu með skipulegum hætti rekstur barna- heimilis hér. Við yfirtöku bæjar- ins á rekstri leikskólans voru gerðar þar ýmsar breytingar og boðið upp á sveigjanlegan og lengdan vistunartíma. Þar hefur verið brydddað upp á ýmsum nýjungum í takt við breytingar í þjóðfélaginu. Er það ekki síst því að þakka að tekist hefur að fá menntaða leikskólakennara og þroskaþjálfa til starfa og var það góður stuðningur við hið ágæta starfsfólk leikskólans. Einnig hafa tveir starfsmenn fengið inni í ljarnámi Fóstruskóla Islands, en Stykkishólmsbær beitti sér fyrir kynningu á því námi. Sam- starf Ieikskóla og grunnskóla hefur farið vaxandi síðustu árin og á næsta kjörtímabili mun ein og sama skólanefndin fjalla um málefni beggja skólanna sem auðveldar allt samstarf til muna. Heitt vatn virkjab Heitt vatn fannst við Sorun í næsta nágrenni Stykkishólms og við það sköpuðust möguleikar á hitaveitu fyrir bæinn. Síðan þá hefur verið unnið að gerð hita- veitu eins og lesendur blaðsins hafa fengið fregnir af. Um þess- ar mundir er verið að bjóða út aðveitu og síðan munu í kjölfar- ið fylgja aðrir verkþættir. Ef áætlanir ganga eftir mun heita vatnið ylja okkur Hólmurum strax næsta vetur. Samhliða því að gerð var áætl- un um hitaveitu var tekin ákvörðun um að byggja nýja sundlaug fyrir bæinn sem þegar er hafin bygging á og verður væntanlega tilbúin í október n.k. Byggð verður 25 metra útisund- laug og búningsaðstaða auk lítill- ar innisundlaugar sem nýtt verð- ur sem kennslulaug fyrir grunn- skólann og þjálfunarlaug fyrir sjúkrahúsið sem er að festa í sessi sérmeðferðadeild í bakvill- um sem skilað hefur eftirtektar- verðum árangri og er hún sótt af fólki alls staðar af landinu. Þessi tvö verkefni, þ.e. bygging sundlaugar og hitaveitu, eru þau umfangsmestu sem bæjarfélagið hefur nokkru sinni ráðist í sam- tímis. Með heitu vatni kunna að skapast möguleikar til nýrrar at- vinnustarfsemi og hefur bærinn beitt sér fyrir skoðun á því og mun það hafa verulega þýðingu fyrir ferðaþjónusu í bænum ef eftir ganga áætlanir varðandi uppbyggingu á Hótel Stykkis- hólmi sem m.a. eru tilkomnar vegna möguleika sem heitt vatn skapar. Þessir möguleikar munu einnig margfaldast ef grunur um heilnæmi heita vatnsins fæst staðfestur fyrir þá sem þjást af húðsjúkdómum. Ýmis mál Af ýmsum öðrum málefnum sem fengist hefur verið við má nefna uppbyggingu hafnarinnar en lokið var við endurbætur tré- Boltaleikur Framköll- unarþjónustunnar Mynd af France 98 var send í pósti til Gu&mundar Apríl - útdráttur: Andrés K. Gunnarsson, HýTumel 311 Borgarnesi Anna Axelsdóttir, Fífusundi 9 530 Hvammstanga Betty Kristín Fearon, Einigrund 8 300 Akranesi Birna Guðbjartsdóttir, Fagur- hólstúni 10 350 Grundarfirði Bjarni B. Gunnarsson, Hýrumel, 311 Borgarnesi Bryndís Hrund, Reykholti 320 Reykholti Dísa Sverrisdóttir, Hellisbraut 8b 380 Króksfjarðarnesi Eiríkur Pálsson, Hlíðarvegi 23 530 Hvammstanga Eygló Guðmundsdóttir, Smiðju- stíg 9 350 Grundarfirði Guðbjörg Ingólfsdóttir, Böðvars- götu 6 310 Borgarnesi Guðjón Kjartansson, Síðumúla- veggjum 311 Borgarnesi Guðríður Hlíf, Réttarholti 8 310 Borgarnesi Halldór Jónasson, Sundabakka 10 340 Stykkishólmi Hjörtur Magnússon, Melteig 10 300 Akranesi Ingi Þór, Hrafnakletti 10 310 Borgarnesi Jóhanna J. Kristjánsd., Laugum 371 Dalabyggð Laufey Kristmundsdóttir, Sand- holti 17 355 Ólafsvík Páll Hjaltalín, Sundabakka 5 340 Stykkishólmi Rósa Marinósdóttir, Túngötu 12 Hvanneyri, 311 Borgarnesi Rúnar Viktorsson, Böðvarsgötu 13 310 Borgarnesi. Verðlaunahafar fá boltana sína afhenta á næsta móttökustað Framköllunarþjónustunnar. Starfsfólk Framköllunarþjónust- unnar þakkar öllum sem sent hafa inn miða í boltaleikinn og minnir í leiðinni á að senda miða með filmum í framköllun. Næstu 20 boltar verða dregnir út í lok maí. Ólafur Hilmar Sverrisson, bæjar- stjóri bryggju í Stykkinu og athafna- svæðis þar og við Skipavíkurhöfn en þar var jafnframt byggð upp- tökubraut fyrir smábáta og að- staða þeirra bætt með fjölgun flotbryggja. Nú er verið að hefja uppbyggingu svokallaðrar Stein- bryggju sem er aðal löndunar- bryggja smærri báta sem verður byggð upp og breikkuð auk þess sem útbúið verður athafnasvæði sem brýn nauðsyn var á vegna löndunar. Aðstaða til íþróttaiðkunar utan húss batnaði verulega á tímbil- inu þegar lokið var við gerð gras- vallar, en til framtíðar Iitið þarf að koma upp æfingasvæði í ná- grenni hans og núna er í skoðun möguleiki á áhorfendastæðum milli vallarins og sundlaugar. Unnið var að áframhaldandi uppbyggingu gatnakerfisins, bæði í njjjum hverfum og í gamla miðbænum sem tekið hefur miklum breytingum á síðustu árum. Endanlegur frágangur á því svæði verður eitt af verkefnum næsta tímabils en þar þarf að gæta vel að þeim kjarna gamalla húsa sem þar er og fjölgar ár frá ári endurgerðum húsum, en frá- gangur umhverfisins verður að samrýmast þeim. I desember á síðastliðnu ári var Iokið við byggingu sjö íbúða fyrir aldraða auk aðstöðu fyrir fé- lagsstarf aldraða en bygging þessi er viðbygging við Dvalar- heimilið og eldri áfanga íbúða aldraðra og gengu þær strax út. Nú eru fimmtán íbúðir fyrir aldr- aða í bænum auk Dvalarheimil- isins. I undirbúningi er endurbygg- ing og lagfæring á eldhúsi og matsal Dvalarheimilisins sem komið er til ára sinna auk þess sem fjölgun íbúða kallar á stækk- un matsalar. Fyrir frumkvæði fulltrúa Stykkishólms í Héraðsnefnd Snæfellinga hefur byggðasafnið í Norska húsinu, sem er í eigu Héraðsnefndar, tekið miklum breytingum og er nú aðdráttarafl fyrir ferðamenn, með krambúð og fjölbreyttum sýningum. Bær- inn hefur styrkt starfið þar sér- staklega en nauðsynlegt er að safnið geti dafnað í framtíðinni. Þessum málaflokki þurfa sveitar- stjórnarmenn væntanlega að gefa meiri gaum í framtíðinni en uppbygging safna, menningar- miðstöðva og starfsemi sem bæt- ir við afþreyingarflóruna hjá íbú- um er nauðsynleg kjölfesta í hveiju byggðarlagi og vopn í bar- áttunni gegn byggðaröskun. Að sjálfsögðu hafa verkefni Stykkishólmsbæjar verið fleiri en að framan er getið, en þessi at- riði komu upp í hugann á björt- um og fögrum sunnudegi hér við Breiðafjörð, þar sem útsýn er hve fegurst á Islandi. Ólafur Hilmar Sverrisson, bæjarstjóri Stykkishólmi. Orlofshús Verslunarmannafélags Akraness Orlofsnefnd V.A. auglýsir eftir umsóknum um dvöl í orlofshúsum félagsins í Húsafelli, Skyggnisskógi og á Akureyri. Umsóknarfrestur ertil 15. maí n.k. kl. 16:00. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu félagsins og í afgreiðslu verkalýðsfélaganna að Kirkjubraut 40. ORLOFSNEFND. Agætu Akurnesingar! Laugardaginn 9. maí kl. 16:00 opnar nýtt kaffi- og veit- ingahús að Kirkjubraut 15. Verið velkomin. Opið mánud. - fimmtud. 11:00 - 01:00 Föstud. og laugard. 11:00 - 01:00 Sunnud. 13:00 - 01:00 KAFFIHUS MEÐ SAL

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.