Skessuhorn


Skessuhorn - 07.05.1998, Qupperneq 21

Skessuhorn - 07.05.1998, Qupperneq 21
FIMMTUDAGUR 7. MAI 1998 21 ^&tssuni/ Agæta starfssystir í síðasta blaði Skessuhorns rit- aði vinnufélagi minn hjá Engja- ási, Kristín Halldórsdóttir, opið bréf lesendum til íhugunar. Þar gerði hún að umræðuefni um- mæli eins af stuðningsmönnum Borgarbyggðarlistans. Sá átti að hafa skýrt heimsókn hennar á fund listans sem njósnaför sem hún hafi verið send í. Að vonum þótti henni þetta súrt í broti. Þar sem mér hefur borist til eyrna að einhverjir telji að ég hafi átt hlut að þessu vil ég taka þetta fram: Borgarbyggðarlistinn er breið- fylking fólks sem vill leggja sitt af mörkum til að bæta það sveitar- félag sem við búum í. Að listan- um stendur fjöldi fólks en félag- ar eru vel á annað hundrað. Ogjörningur er að henda reiður á hvað félagar í hópi sem þessum segja í viðræðum manna á meðal á vinnustöðum. Því rengi ég ekki Kristmar). Ólafsson þá fullyrðingu að einhver hafi látið þessi ummæli sér um munn fara. Hitt get ég fullyrt að hvorki ég, aðrir frambjóðendur eða stjórn Borgarbyggðarlistans eiga þátt að þessu. Því býð ég Kristínu og alla aðra sem áhuga hafa á að koma á fundi til okkar hjartanlega vel- komna. Ef fundir okkar eru aug- lýstir opnir, eru allir velkomnir. I niðurlagi greinar sinnar talar Kristín um neikvæðar hliðar kosninga og umræðna tengdum þeim. Að flestu leyti get ég tekið undir orð Kristínar. Eg hef hins vegar þá trú að þeir sem standa fyrir framboðslistum láti mál- efnalega umræðu ráða í flestum tilfellum. Látum mótframbjóð- endur okkar njóta sannmælis og stillum yfirlýsingum í hóf, jafn- vel þó að við höfum aðrar skoð- anir á málefnum sveitarfélagsins en þeir. Gleðilegt sumar! Kristmar ]. Ólafsson 4. maður á lista Borgarbyggð- arlistans KYRHAUSINN: Umsjón Glúmur Gellisson Hinn fullkomni frambjóbandi Sveitarstjórnarkosningar nálg- ast óðfluga og því nauðsynlegt fyrir væntanlega frambjóðendur að koma sér í viðeigandi stelling- ar og taka upp atkvæðavæna hegðun. Undirritaður hefur sér- hæfða þekkingu á þessu sviði og hér koma 10 óbrigðul ráð fyrir þá sem vilja ná kjöri í komandi kosningum. Frambjóðandi skal tileinka sér þétt handtak og gjarnan nota til þess báðar hendur. Þó skal gæta þess að handtakið sé ekki það þétt að það valdi líkamsmeiðing- um. Brosið skal vera lágmark 10 cm. í þvermál. Karlkyns frambjóðandi má ekki hafa sofið hjá meira en einni til tveimur konum fram til þessa. Hafi hann hinsvegar farið yfir þessi mörk skal hann hafa gert það svo vel að viðkomandi hjásvæfur verði ekki óánægðar með verknaðinn 10 - 15 árum síðar og hlaupi með allt í blöðin. Sveitarstjórnarmaðurinn Clint- on ætti að vera öðrum víti til varnaðar að þessu leyti. Engar reglur eru til um fjölda elskhuga kvenkyns frambjóð- enda. Því fleiri því betra þar sem karlmenn senda ekki bakreikn- inga. Gott er fyrir frambjóðanda að vera formaður fjársterkra sam- taka, s.s. FIB, sem geta séð um auglýsingamálin. Frambjóðandi skal vera and- Iitsfríður. Sé frambjóðandi ekki andlits- fríður skal hann vera svo áber- andi ófríður að kjósendur muni eftir honum þess vegna. Frambjóðandi skal sækja alla þá mannfagnaði og viðburði sem hann kemst yfir, s.s. íþróttakapp- Ieiki, tónleika o.fl. jafnvel þótt hann hafi ekki nokkurn áhuga á slíku. Eftir kosningar er síðan hægt að skera niður allar fjár- veitingar til viðkomandi mála- flokka. Frambjóðandi skal vera ætt- stór. Ef frambjóðandi nær ekki ár- angri hjá einum stjórnmálaflokki má alltaf prófa annan síðar. Með von um góðan árangur. Glúmur VK) erum kátir krakkar Jón Einarsson í Borgarnesi hefur nýlega samið og gefið leik- skólanum Klettaborg í Borgar- nesi söngtexta við þekkt Iög. Textarnir höfða greinilega til staðsetningar skólans og eru lík- Iegir til að styrkja vitund bam- anna fyrir heimabæ sínum. Textana kallar Jón þemalög og er þemað: „Bærinn minn - Borg- arnes“. Við erum kátir krakkar í Kletta- borg. Komum nú að ganga um vegi og torg. Höldum svo röð og reglu á okkar Ieið. Ekki má þar nú verða nein ringulreið. Hér eru holt og hæðir og fjara fín. Förum við margt að skoða, já elskan mfn. Borgarnes á svo margt fyrir böm- in sín. Best er þó alltaf úti, er sólin skín. Iþróttahús og sundlaug við þekkjum það. Þar hjá er garður „Skalla“ á sama Krakkarnir í Klettaborg. stað. Megum við Iíka fara út um víðan völl, vera þar frjáls og hlaupa - með hlátrasköll. (Lag: Krakkar kátir hoppa...) aBorgarnes er bærinn minn og Klettaborg er Ieikskólinn. Hér er Borgarvogurinn og sjórinn flæðir út og inn. U - ú - ú út og inn Sjórinn flæðir út og inn. Ú - ú - ú út og inn. Sjórinn flæðir út og inn Borgarnes er bærinn minn og þangað liggur vegurinn. Bílar keyra út og inn, á það horfi ég um sinn. Ú - ú - ú út og inn á það horfi ég um sinn. Ú - ú - ú út og inn. Þarna liggur vogurinn. (Lag: Eg þekki lítinn lah- ýU(ranes^ir/ga Sunnudaginn 10. maí: Guðsþjónusta kl. 11:00, altarisganga Aðalsafnaðarfundur á eftir messu. Boðið verður upp á léttan málsverð. Velunnarar kirkjunnar eru hvattir til að koma. Fyrirbænaguðsþjónusta alla fimmtudaga kl. 18:30. Beðið fyrir sjúkum. Sóknarprestur. Bílasalan TORG Sími 437 2252 Meindýraeyðir Útrými hverskyns meindýrum. M.a. silfurskottum, músum og rottum Uppl. í síma 894 4638, heima- síma 431 2885 og vinnusíma 431 4611. Ólafur Jónsson. Láltu þen líða vel Grennri, styrkari og stæltari með Herbalife. Óskaðu upplýsinga. Halldór Stefánsson sjálfstæður dreifandi. Dagsími 553 0502, kvöld- og helgarsími 587 1471 (ýí&li 'KfantattAMM, ul Gúfr. ýuieáytui- oy úáifxwxli ‘Eoiymé.iaat 61 - Styuytvitt&U Súhí 437 1700 - /<« 437 1017 Borgarnes og nágrenni Iðnaðarhúsnæði Til sölu er iðnaðarhúsnæði m/ stórum innkeyrsludyr- um að Borgarbraut 72, Borgarnesi. Mjög góð staðsetning. Verð: Tilboð. Veitingahús Einnig til sölu veitingahúsið BAULAN (hús og veitingarekstur) í Stafholtstungum í Borgar- byggð, við þjóðveg 1. Upplýsingar um verð og áhvílandi á skrifstofunni. Smíðum hurðir og glugga. TRESMIÐJA SIGURJONS ehf. Þjóðbaut 13 - 300 Akranesi Sími 431 1722 - Fax 431 2722 Önnumst alhliða byggingarþjónustu. Byggingafélagið BORG HF. Sólbakka 11, 310 Borgames Sími: 437 1482 —— EGILSGÖTU 11 - BORGARNES ALLTAF EITTHVAÐ NÝTT UTPRENTARARIURVALI canoii HEWLETT® PACKARD TOLVUBONDINN Egilsgötu 11 310 Borgarnesi Sími 437 2050 ^ SJÓNGLERIÐ WS Skálabraut it - Sfml 4J1 ISIt NOTALEGT GISTIHEIMILI Álfhólsvegi 32, Símar 554 4160 og 898 4825

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.