Skessuhorn - 07.05.1998, Blaðsíða 22
II
c
22
FIMMTUDAGUR 7. MAÍ1998
m£»uiu/u. :
Sýslumannsbraub
og fleira góðgæti
Kristjana Jónsdóttir týnir rúnstykkin í körfu. Mynd: Helgi Dan.
MORGUNSTUND gefur gull í
mund, segir máltækið. Eins og
kunnugt hafa bakarar landsins
tileinkað sér þennan góð sið þar
sem þeir eru manna árrisulastir
og hefja vinnu ekki síðar en
klukkan fjögur á nóttinni til að
volg og ný brauð geti verið tiltæk
á borðum Iandsmanna með
morgunkaffinu.
I Ráðhúsbakaríinu á Akranesi
var allt á fleygiferð þegar ég leit
þar inn árla morguns á dögun-
um. Allskonar brauð, rúnstykki
auk vínarbrauða, sem ég er hvað
veikastur fyrir, en má ekki borða
nema í Iaumi, komu út úr ofnin-
um og voru sett í þar til gerða
rekka og biðu þess að verða sett
fram í verslunina. Heimir Jónas-
son bakari var að renna út úr
ofninum svokölluðum „Sýslu-
mannsbrauðum" sem hann sagði
að væru mjög vinsæl og nú seld á
tilboðsverði. Eg spurði hvort þau
væru heitin eftir ákveðnum
sýslumanni, sem hefði aðsetur í
Ráðhúsinu. Heimir sagði það
ekki vera og 'bætti við, að þetta
væru mjög góð, gróf brauð með
sólkjarnafræum sem gæfu því
gott bragð.
Bakaraneminn, Grétar Júlíus-
son, sem var í óða önn að smyrja
súkkulaði á svokallaða ameríska
kleinuhringi, sagðist hafa byrjað
að læra árið 1995 og kunna vel
við sig í faginu, enda vinnan
skemmtileg og vinnutíminn góð-
ur. Hver brauð- og kökutegundin
af annari kom út úr ofninum og
var meðhöndluð eftir kúnstar-
innar reglum. Þegar ég var að yf-
irgefa bakaríið var Kristjana
Jónsdóttir afgreiðslustúlka mætt
á staðinn og hennar fyrsta verk
var að sækja nýbökuð brauðin og
rúnstykkinn ásamt öðru góðgæti
og færa fram í verslun, enda voru
fyrstu viðskiptavinirnir mættir
og vildu sín brauð refjalaust.
H.Dan.
Grétar Júlíusson bakaranemi setur súkkulabi á Amerísku kleinuhringina.
Mynd: Helgi Dan.
Heimir Jónasson bakari meb „sýslumannsbraubin". Mynd: Helgi Dan
Frá Matstofunni
Brákarbraut 3, Borgarnesi
Hamborgaratilboð með Pepsi og frönskum 350 krón
ur meðan birgðir endast!
Ingimar spilar á harmonikkuna föstudagskvöld
Verið velkomin
Liö Skagamanna sem vann Deildarbikarinn 1996 í fyrsta skipti sem slík keppni fór fram. Fagna þeir sigri í ár?
Mynd: Helgi Dan.
Skagamenn mæta
KR í undanúrslitum
deildarbikarsins
SKAGAMENN lögðu Leiftur frá
Ólafsfirði í 8 liða úrslitum í
deildarbikarnum. Leikurinn sem
fór fram á Akranesi var jafn og að
loknum venjulegum leiktíma var
staðan jöfn 0-0 og varð því að
framlengja. Steinar Ingimundar-
son kom Ólafsfirðingum yfir, en
Hálfdán Gíslason, nýr leikmaður
Skagamanna frá Bolungarvík
jafnaði eftir hornspyrnu í síðari
hálfleik framlengingarinnar og
þurfti því að grípa til vítaspyrnu-
keppni
I vítaspyrnukeppnni höfðu
Skagamenn betur 7-6 og tryggðu
sér sæti í undanúrslitum.
Skagamenn byrjuðu keppnina
illa því þeir töpuðu fyrir Breiða-
bliki, en síðan hafa allir leikir
unnist, síðast lögðu þeir Keflvík-
inga af velli 1 -0 eftir framlengd-
an leik í Garðinum í 16 liða úr-
slitum.
í undanúrslitum mætast fyrst
FH og Valur og síðan gömlu erki-
fjendurnir KR og Skagamenn og
fer sá leikur fram á Tungnár-
bökkum í Mosfellsbæ n.k.
fimmtudag. Leikur KRinga og
Skagamanna verður án efa
skemmtilegur eins og jafnan er
þegar þessi Iið mætast.
Logi Ólafsson þjálfari Skaga-
manna sagði í stuttu spjalli við
Skessuhorn, að æfingar hefðu
gengið ágætlega og hann væri
hóflega bjartsýnn með framhald-
ið. Alexander Högnason hefur
ekki leikið með Iiðinu að undan-
förnu vegna meiðsla, en hefur
nú byrjað að æfa. Sömu sögu er
að segja af Sigursteini Gíslasyni,
sem er búinn að vera meiddur
síðan í fyrra. Hann lék að vísu í
æfinga og keppnisferðinni í
Skotlandi í síðasta mánuði, en
ekkert íðan. Hann er að byija að
æfa á ný. Þá er Kristján Jóhanns-
son sem kom frá Sandgerði bú-
inn að vera meiddur að undan-
förnu.
Bibercic kom til landsins s.l.
þriðjudag, en hann var skorinn
upp vegna meiðsla í nára í febrú-
ar, þannig að ekki er ljóst, þegar
þetta skrifað, hvort hann getur
verið með gegn KR á fimmtudag-
inn.
Ungu mennirnir, Ragnar
Hauksson sem kom frá Siglufirði
og Hálfdán Gíslason frá Bolung-
arvík hafa staðið sig vel í undan-
förnum leikjum og skora jafnt og
þétt.
Við hvetjum alla stuðnings-
menn Skagamanna til mæta á
Tungnabakka á fimmtudaginn
og hvetja Skagamenn til sigurs,
því takmarkið er eins og alltaf
áður: Sigur fyrir Skagamenn.
H.Dan