Skessuhorn - 29.04.1999, Page 21
SSESSIÍH©EK
FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1999
21
Aflabrögð í
síðustu viku
far vf. f tonn
Akranes
Aðalst. H grásl. 1 0,2
Bresi net 4 5,3
Emilía Ifna 1 1,4
Harpa net 2 0,3
Hrólfur net 4 5,9
Keilir net 1 0,1
Máni net 1 0,2
Mundi lína 2 1,1
Rún lína 1 0,9
Sigrún net 6 8,5
Síldin net 5 10,3
Særún net 4 4,7
Þura lína 4 2,9
Öggur Samtals handf 1 0,8 42,6
Grundarfjöröur
Farsæll botnv 1 44,6
Hringur botnv 1 85,2
Pétur jakob dragn 4 0,0
Prins handf 3 0,7
Sævar handf 1 0,1
Brynjar lína 3 8,8
Gæfa lína 4 7,3
Láki Ifna 4 7,0
Már Ifna 4 10,5
Milla lína 5 7,6
Pétur Konn Ifna 5 11,3
Ritan Ifna 3 2,7
Þorleifur lína 3 2,8
Garpur net 4 7,2
Haukaberg net 5 21,9
Lárberg net 3 3,2
Pegron net 4 3,9
Pétur Jakop net 4 9,5
Smári Samtals net 3 2,7 237,0
Rifshöfn
Hamar botnv 2 27,4
Auðbjörg dragn 3 25,2
Bára dragn 8 13,8
Fúsi dragn 5 5,7
Þorsteinn dragn 6 20,7
Aldan handf 1 0,9
Jóa handf 3 2,7
Kári II handf 5 8,0
Leifur handf 4 4,9
Pollux handf 2 1,1
Sæfari handf 1 0,2
Bjössi lína 5 7,4
Gubbjartur lína 6 17,7
Heiðrún lína 5 10,8
Sæhamar lína 1 0,8
Særif Ifna 5 10,9
Þerna lína 2 2,3
Faxaborg net 6 23,8
Hafnart. net 7 10,0
Magnús net 8 26,1
óli Færey. net 3 3,9
Saxhamar net 6 30,0
Örvar net 9 40,1
Samtals 294,4
Stykkishólmur
Kristinn F botnv 1 30,9
Ásborg handf 2 0,7
Bryndís handf 2 1,7
Denni handf 2 2,7
Elín handf 3 3,1
Lára handf 2 1,9
Ljúfur handf 1 0,4
Rán handf 3 2,9
Sif handf 4 4,5
Teista handf 5 1,6
Guðlaug Ifna 2 5,3
Jónsnes lína 3 2,4
Kári lína 4 10,0
Arnar net 5 18,9
Ársæll net 5 23,5
Þórsnes net 3 13,6
Þórsnes II net 4 22,2
Samtals 146,3
skessuh @ aknet.is
Matstofan
Brákarbraut 3-Borgarnesi
Gleðigjafinn Ingimar spilar á
föstudagskvöld
á Dússabar
latstQfsrí
Unga fólláð og SamfyUángin
Þeir eru margir sem kjósa í
fyrsta skipti í alþingiskosning-
unum 8. maí. Það skiptir miklu
máli fyrir þróunina í stjómmál-
um að ungt fólk verði virkt í
þeirri umræðu sem fram fer, því
rödd okkar verður að heyrast.
Eg hef mikið velt fyrir mér
hverjar áherslur ungs fóks eru
og hvemig fylgi þess skiptist í
skoðanakönnunum.
Um þessar mundir hellist yfir
okkur hver skoðanakönnunin af
annarri og mikið er rýnt í og rætt
um niðurstöður þeirra. Það hefur
verið nokkuð áberandi að Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur haft geysi-
lega mikið fylgi í þessum könnun-
um og þá ekki síst hjá ungu fólki.
Eg hef rætt mikið við ungt fólk um
þær kosningar sem framundan
em, mín tilfínning er því miður sú
að ungt fólk hafi lítinn sem engan
áhuga á stjórnmálum og vilji helst
ekki blanda sér í stjórnmálaum-
ræðuna. Það virðist eitthvað vanta
í þessari kosningabaráttu sem
höfðar til ungs fólks.
Það er enginn vafi á að unga
fólkið er framtíðin og með aukinni
virkni þess í stjórnmálaumræðunni
getur það haft bein áhrif á eigin
framtíð. Af þessum sökum vil ég
hvetja allt ungt fólk að kynna sér
stefhuskrár flokkanna, gera upp
liðið kjörtímabil og taka afstöðu út
ffá þeim forsendum.
Ein helsta forsenda framfara er
að fólk rýni í málin, rökræði og
forðist skoðanafælni. Eg hef mikla
trú á að ef að ungt fólk verður
virkara í stjórnmálum, tekur virk-
ari þátt í umæðu um landsmál og
tekur afstöðu út frá sinni sannfær-
ingu þá mun fylgi þessa hóps
dreifast öðruvísi en það gerir í dag.
Samfylkingin er fyrir
ungt fólk
Ungt fólk á svo sannarlega sam-
leið með Samfylkingunni. Sam-
fylkingin er nútímaafl sem byggir
á hugsjónum félagshyggju og jafh-
aðarstefhu. Hugsjónum um rétt-
látara þjóðfélag, þjóðfélag fyrir
alla. Framboðslistar Samfylkingar-
innar eru vel skipaðir og á listun-
um er mikið af ungu fólki alls stað-
ar af landinu. Þetta baráttuglaða
fólk er tilbúið að leggja á sig mikla
vinnu til að skapa betra þjóðfélag.
Ég hvet alla kjósendur til að kynna
sér stefnu Samfylkingarinnar því
hér er kominn nýr valkostur í ís-
lenskum stjórnmálum, afl sem vill
breyta. I þessum kosningum þarf
að þora, þora að breyta rétt.
Eggert Herbertsson,
rekstrarfræðinemi við Samvinnu-
háskólann á Bifröst,
skipar 5. sætið á lista
Samfylkingarinnar áVesturlandi.
Byggjum traustan grunn fyrir unga fólldð !
Blásið er til sóknar. Kjarkurinn
er á miðjunni. Grunnur okkar
er í verkum Framsóknarflokks-
ins.
Nú í komandi kosningum mun-
um við þurfa að gera upp hug okk-
ar um val á fulltrúum okkar kjör-
dæmis til stjórnar þessa lands.
Margt er í boði en misgott. Sem
ungur kjósandi með ákveðnar
heildarlausnir í huga er valið auð-
velt. Velja þarf traustan flokk sem
efhir loforð, ver rétt manna til að
lifa í sómasamlegu þjóðfélagi, tek-
ur á málunum og tekur á málum
allra. Málefhi unga fólksins koma
þar við sögu.
Framsóknarflokkurinn sýnir ,
„sölumönnum dauðans“ rauða
spjaldið. Þeir hafa herjað of lengi á
lífsmynstur æsku landsins, þeim er
úthýst og fórnarlömbum þeirra
komið til bjargar. Þetta þorir
Framsóknarflokkurinn. Flokkur-
inn hefur verið með í því að stýra
íslensku menntakerfi í réttan far-
veg. Aherslan á aukið ffamboð
menntunar á háskólastigi á lands-
byggðinni og að ekki verði tekin
upp skólagjöld í grunn- og frarn-
haldsskólum eru í fararbroddi í
þeim farvegi. Ekki má gleyma að
námsmönnum verður að tryggja
námslán við hæfi. Þetta vill Fram-
sóknarflokkurinn. Þetta viljum
við.
Fyrir þessu hefur flokkurinn
barist, þetta er það sem koma skal.
Traust Framsóknarflokksins á
ungt fólk er virðingarvert. Af 126
frambjóðendum flokksins fyrir
þessar kosningar eru 42 á SUF
aldri. Þetta sýnir að flokkurinn
treystír ungu fólki, tekur mark á
hugmyndum þeirra og virkjar
þetta fólk til afreka á nýrri öld.
Ungt fólk! Framsóknarflokkur-
inn á erindi við ykkur. Tökum
þátt í því að setja fleiri og glæsi-
legri Islandsmet í efhdum kosn-
ingaloforðum á komandi kjörtíma-
bili. Forysta okkar er mikilvæg,
flokknum á Vesturlandi hefur ver-
ið veitt trygg og öflug forysta.
Ingibjörg Pálmadóttir er okkar
leiðtogi, tryggjum henni sæti
1 .þingmanns Vesturlands áfram og
öruggan ráðherrastól.
Hún lætur hendur standa fram
úr ermum, hefur unnið gott starf
og er tilbúin
að vinna fyrir
okkur, og ekki
síst fyrir okkur
unga fólkið.
Ekki er síður
mikilvægt að
Magnús haldi
þingsæti sínu,
þar er ungur
maður sem við
unga fólkið ættum að tryggja ör-
uggt sæti á Alþingi Islendinga við
Austurvöll.
Valið er augljóst. Enga útúr-
dúra tíl hægri eða vinstri, veljum
traust miðjuafl sem skilar árangari.
Kjósum Framsóknarflokkinn.
Einar Karl Birgisson, nemi
Einar Karl
Birgisson
Hendur fram úr ermum, Framsóknarmenn
Penninn
Framsóknarmenn á Vesturlandi
eiga firamundan skemmtilegan
lokaslag í kosningabaráttunni.
Skoðanakannanir eru flokknum
óhagstæðar eins og svo oft áður
en það er einmitt þá sem fram-
sóknarmenn sýna hversu öflug-
ir þeir eru. Þessi góða vika sem
efitir er mun duga okkur til að
tryggja kosningu Magnúsar
Stefánssonar af því að nú látum
við hendur standa fram úr erm-
um.
Framsóknarflokkurinn er eina
framboðið sem í raun hefur dreift
valdi og ákvarðanatöku um landið.
Með því tryggir flokkurinn að
önnur sjónarmið en þau sem vilja
samþjöppun valds og auðs á einn
stað verði allsráðandi. Fylgið er
jafnt og mikið í öllum landshlut-
um, sem sýnir að áherslur flokks-
ins á bætt mannlíf um land allt
samfara sterku atvinnulífi í sátt við
umhverfið er stefna sem fólk hefur
trú á. Stórir hópar fólks koma að
flokksstarfinu, en það tryggir að
forystumennirnir vita hvar hjartað
slær og hversu öflugt. En þegar
vel árar eiga menn til að fyllast
værukærð, falla fyrir ódýrum slag-
orðum og gleyma því að oft glym-
ur hæst í tómri tunnu. Vöknum af
dvalanum framsóknarmenn og
fýlkjum fram tíl sigurs. Sjálfstæðis-
flokkurinn sækir stærstan hluta af
óskiljanlega miklu fylgi sínu til
Reykjavíkur og Reykjaness. Þar
liggur líka hið raunverulega vald
hans. Þar eru formaður og vara-
formaður og hafa verið lengi. Þar
búa allir ráðherrar flokksins og þó
tveir þeirra séu munstraðir úti á
landi eru þeir Reykvíkingar. Það
eru engar líkur á að þetta sé að
breytast, a.m.k. ekki Vesturlandi í
vil. Þar komast menn ekki hærra í
virðingarstigann en að vera orðað-
ir við varaformannsslag en þora
ekki. Vesmrland hefur ekkert að
gera við slíka forysmmenn. At-
kvæði greitt Sjálfstæðisflokknum á
Vesmrlandi tryggir áframhaldandi
gíslingu landsbyggðarinnar hjá
Reykjavíkurvaldi íhaldsins.
Samfylkingin glímir við mörg
þau sömu vandamál og hrella
íhaldið. En málefnafátæktín og
andleysið er þó öðra yfirsterkara.
Stefnuskráin er innantóm og for-
ystumennirnir tala hver í sína átt-
ina. Fortíðin á að vera gleymd og
einungis bjart og fagurt ffamund-
an. En hinn napri og dapri raun-
veraleiki er allt annar. Engin sátt
hefur náðst um stefnu í landbún-
aði, sjávarútvegi og byggðamálum
og alls ekki um utanríkismál. Eg
skora hér með á þá íbúa Vestur-
lands sem ætla að kjósa Samfylk-
inguna að lesa greinar Magnúsar
Arna Magnússonar alþingismanns
um stöðu Reykjavíkur og ekki síð-
ur að kynna sér framtíðarsýn
Agústs Einarssonar alþingismanns
í landbúnaði og sjávarútvegi. Það
skulu þeir
bera saman
við málflutn-
ing þeirra fé-
laga Jóhanns
og Gísla hér á
Vesturlandi.
Og ef einhver
heldur að á
Vesturlandi sé
að finna ráð-
herraefni Samfylkingarinnar þá fer
hinn sami mjög villur vegar.
Vestlendingar. Nú er við kjós-
um í síðasta sinn í Vesturlands-
kjördæmi getum við styrkt lands-
hlutann með því að kjósa áhrifa-
manninn Ingibjörgu Pálmadóttur
tíl áframhaldandi forystu. Um leið
búum við í haginn fyrir ffamtíðina
og tryggjum Vesturlandi forystu í
nýju kjördæmi. Það verða ekki
aðrir flokkar til þess.
Sveinbjöm Eyjólfsson
Hvanneyri.
Sveinbjöm
Eyjólfsson
Aðsendar greinar sendist:
lundi @ aknet.is