Skessuhorn - 05.08.1999, Page 3
onUSUtlu..
FIMMTUDAGUR 5. AGUST 1999
3
Framtíð Steinaríkis íslands óráðin
Það gleymdist að kveikja ljósið við enda ganganna
Segir Þorsteinn Þorleifsson
í júní á síðasta ári opnuðu hjón-
in Þorsteinn Þorleifsson og
Snjólaug M. Dagsdóttir Steina-
ríkið á Akranesi. I sama húsnæði
er einnig Maríukaffi og Hval-
fjarðargangasafn. Blaðamaður
Skessuhoms hitti Þorsteinn að
máli og spurði hann nánar út í
rekstur Steinaríkisins og ffam-
tíðaráform þeirra hjóna en Þor-
steinn segir að eftir reynsluna af
þessu fyrsta starfsári séu jafnar
líkur á því að þau fari með safhið
eða hætti rekstrinum eins og að
þau haldi honum áfram á
Skaganum.
Þorsteinn segir nokkra þætti ráða
því að þau íhugi að hætta eða flytja:
„Þetta húsnæði er of lítið og ekki
nógu vel staðsett enda bara tekið á
leigu til tveggja ára. Leigusamning-
urinn rennur út um áramótin og
mun ég ekki endurnýja hann,“ seg-
ir Þorsteinn. Hann segir ekki auð-
hlaupið inn í húsnæði á Akranesi
um þessar mundir og því sé erfitt að
segja til um framhaldið. „Það hefur
verið óskað eftir safninu ffá öðrum
stað og eins og ég sagði eru jafnar
líkur á því að við förum með safnið
eða hættum rekstrinum eins og út-
litið er í dag. Eg átti líka von á því
að meira yrði gert til að laða að
ferðamenn hér á Skagann og eins
bjóst maður við auknum ferða-
mannastraumi við opnun Hval-
fjarðarganganna en það hefur ekki
gengið effir,“ segir Þorsteinn.
Akranes - hinn gleymdi
bær
Hvemig eru aðstæður til að reka
svona safn á Akranesi?
„Það er eitt sem ég verð sérstak-
lega var við hérna en það er að
Skaginn er týndur fyrir mörgum,
bæði Reykvíkingum og öðrum. Þeir
koma upp úr göngunum, keyra inn
í hringtorgið og fýrsta beygja er
norður. Það er ekkert sem segir
vegfarendum að í tíu kílómetra fjar-
Til sölu:
Endaraðhús 87,1 fm að stærð, að
Höfðagurna 1 ^ Akranesi þinglýst
eign Halldóru Olafsd.
Verð: 85 millj.
Upplýsingor gefa:
Guorúns: 5812146
Oddrún s: 891 7692
FRAMKÖLLUHARMÓNIISTAN EHF.
BRÚARTORGI. 310 BORðARNÉSI - S. 437-1055
lægð sé Akranes með öllu því sem
bærinn hefur upp á að bjóða. Sömu
sögu er að segja fyrir norðan Akra-
fjall og hefur fólk sem er að koma
norðan haff orð á því við mig.“
Þorsteinn segir fulla ástæðu til að
setja upp stór og góð skilti sem
minni á Skagann og upplýsa vegfar-
endur um hvað þar er í boði. „Sem
dæmi get ég sagt frá því að stór fjöl-
skylda sem var að koma hingað til
að skoða safhið hringdi þegar þau
voru komin upp úr göngunum til að
spyrja til vegar.“
Skaginn ekki á korti
erlendra ferðamanna
„Eg kem hér nýr á Skagann til að
opna þetta safn þannig að ég veit
ekki hver ferðamannastraumurinn
hefur verið hér áður. En örugglega
hafa fleiri lagt leið sína í gegnum
bæinn á meðan Akraborgin var í
siglingum. Það hefur lítið verið gert
til að laða hingað ferðamenn. Það
er fátítt að hér séu auglýstar uppá-
komur til að trekkja að fólk. Það er
ekki einu sinni til almennilegt tjald-
stæði í bænum nema inni í íbúða-
hverfi. Þótt það sé verið að undir-
búa nýtt tjaldstæði við Kalmansvík-
ina er það eitt af því sem hefði átt
að vera komið áður en göngin voru
opnuð. Ef bæjaryfirvöld vilja ná inn
tekjum af ferðamönnum verða þau
að gera eitthvað róttækt í málunum.
Akranes er ekki á kortinu hjá er-
lendum ferðamönnum eða ferða-
skrifstofum. Og höfuðborgarbúar í
helgartúr vita ekki hvar Skaginn er.
Þorsteinn Þorleifsson í Steinartki Islands.
Það segir margt að Langisandur og
Báran hætta bæði rekstri í sumar-
byrjun. Hér vantar markvissari
uppbyggingu í ferðamannaiðnaði
og væri full ástæða til að ráða sér-
stakan aðila í það til að drífa málin í
gegn. Það gleymdist að kveikja ljós-
ið við enda ganganna.“
Hvemig er þetta fyrsta ár búið að
vera?
„Við opnuðum 20. júní í fýrra og
höfðum fengið um 4000 gesti um
áramót," segir Þorsteinn. „Aðsókn-
in var mikil fyrst og spilaði gjaldfrír
akstur gegnum göngin vafalaust
eitthvað þar inn í. Það voru býsna
margir höfuðborgarbúar sem ætl-
Æl Kýr óskast til
m ‘ slátrunar
Sláturhúsið Þríhyrningur hf.
Hellu, pantanasími 487 5162
Skessuhorn ehf
Borgarbraut 49
310 Borgarnes,
Umsokn"
uðu sér að skoða allt Vesturlandið á
einum degi.
Töluvert af skólahópum kom í
vetur, margir af svæðinu hér í kring
og eins af höfuðborgarsvæðinu og
Suðurlandinu. Yngri krakkarnir eru
ekki síður áhugasamir að skoða en
þeir eldri. Þau geta gleymt sér svo
gjörsamlega. Það kom hér kennari
sem ætlaði að koma með tvo bekki
sinn í hvoru lagi og varaði mig við
að annar hópurinn gæti verið erfið-
ur. Eftir klukkutíma héma sagðist
hann aldrei hafa séð þau svona ró-
leg og athugul."
Gestirnir fyrsta heila árið eru
rúmlega 7.000 og segir Þorsteinn
innlenda gesti í miklum meirihluta.
„I það heila hefur aðsóknin verið
þokkaleg en ég bjóst við meiru,“
segir hann.
Stærsta tegundasafh
landsins
„Eins og einhver orðaði það er það
nokkurs konar einkavitleysa að setja
upp safn eins og þetta en það er aft-
ur mjög gaman að sjá viðbrögð
þeirra sem koma að skoða það,“
segir Þorsteinn. Hann segir algeng-
ustu spurninguna hjá fólki vera
hvort þetta sé virkilega allt íslenskt
þegar það kynnist þessum ævintýra-
heimi íslenskra steina. „Algengusm
lýsingarorðin sem ég fæ að heyra
em „Otrúlega skemmtilegt“, „Mjög
sérstakt“og „Náttúruperla“. Jón
Dagsson mágur minn sem er
steinasjúklingur eins og ég kalla það
á um 80% prósent af þessu og það
sem við var bætt kemur frá tveimur
öðmm söfnuram og Náttúmfræði-
stofnun. Þetta er stærsta tegunda-
safn á landinu og hentar það jafnt
almenningi, skólabörnum sem og
jarðfræðingum að koma hér. Eg
held að það verði erfitt fýrir Akra-
nesbæ að fá eitthvað annað sem
myndi vera jafn sérstakt og hafa
möguleikann á að höfða jafii mikið
til jafn margra. Það var afskaplega
gaman að búa til þetta safn og ekki
síður gaman af viðtökunum. Akra-
nes er góður staður til að búa á en
framtíðin er óráðin,“ segir Þor-
steinn Þorleifsson.
KK
Sjúkraflutningamenn httga að Skumanni bifreiðarimiar sem var jhmur á
Sjúkrahús Akraness. Mynd:KK.
Réttindalausir unglingspiltar veltu bíl
malarveginum við Skógræktina á Akranesi á fimmtudag. Bíllinn hafn-
aði á hvolfi í skurðinum við veginn og þurftu drengirnir að brjóta sér
leið út um farangursrýmið. Ökumaðurinn varð fýrir smávægilegum
meiðslum og var hann fluttur á Sjúkrahúsið á Akranesi. Hann fékk að
K.K
AKRANESI OC NAÚRENNI!
KÖRFUBOLTANÁMSKEIÐ KFA.
Þrjú námskeid verða haldin í
Iþróttahúsinu Vesturgötu.
I. 3.-6. ágúst 10-
II. 9.-13. ágúst 77 ár °9 Vngri fh
III. 16.-20. ágúst
Verð 1900 pr. námskeið.
Afsláttur fyrir 2 eða 3 námskeið
og systkinaafsláttur.
UPPLÝSINGAR OC SKRÁNING í
$ÍMA 698 5125
Síðustu da^ar
útsölunnar.
VERZLUNIN
SÍMI 431 2007
STILLHOLTI
AKRANESI